Morgunblaðið - 25.09.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 25.09.1986, Blaðsíða 45
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SETPEMBER 1986 fclk f fréttum Ostaðfest ævisaga Julio Iglesias vekur athygli f Samrýndir feðgar Dustin Hoffmann, sem tvímælalaust telst til stór- leikara sinnar kynslóðar þó ekki sé hann hár í loftinu, hefur margoft lýst því yfir að af öllum þeim hlutverkum, sem hann hef- ur tekið að sér um dagana, sé foðurhlutverkið það som harm kunni best við. í syninum Jake á hann líka aðdáanda sem ekki bregst, upp á hverju sem gagnrýnendur kunna að taka. Reyndar hafa gagnrýnendur hingað til ekki farið hörðum höndum um Hoff- man, enda varla ástæða til þar sem maðurinn hefur gert hveiju stórhlutverkinu á fætur öðru hin ágætustu skil. Ein ástæðan fyrir því h ve vel Dustin Hoffman hefur famast á leiklistarbrautinni er e.t.v. sú, að hann hefur ætíð lagt mikla áherslu á farsælt einkaiíf utan sviðsljósanna. Þ6 fékkst hann nýlega til að sitja fyrir ljósmynd-' ara ásamt Jake, fímm ára, sem er einkasonur Hoffmans og verður ekki annað séð en að þeir séu samrýndir feðgamir. George Panayiotou kemur til dyranna eins og hann er klæddur Er átrúnaðargoð milljóna ekkert annað en hrútleiðinlegur og drykkfelldur karlagrobbari? Eins og fram hefur komið í frétt- um er nýlega komin út ævisaga Frank Sinatra eftir Kitty Kelly, sem taldar eru miklar líkur á að fengið hafi „gamla bláeyga brýnið" til að sjá rautt, þar sem farið er um hann heldur ómjúkum höndum í téðu riti, tengsl við mafíuna tíunduð sem og ill meðferð Franks á konum og yfir- leitt flest sem einn mann má óprýða. Og sjaldan er ein báran stök. Nú er nefnilega komin út önnur ævi- saga, sem væntanlega gerir það að verkum að viðfangsefnið eða fóm- arlambið, Julio Iglesias, sem í hópi latneskra aðdáenda sinna gengur undir gælunafninu „E1 Divino", „Hinn guðdómlegi", muni ekki verða í sjöunda himni á næstunni. Ævisaga Iglesias var ekki skráð með samþykki viðfangsefnisins, frekar en bókin um Sinatra, og segja þeir sem lesið hafa að eitrið drjúpi þar af hverri síðu. Hitt er svo annað mál að innvígðir viður- kenna einnig að ekki muni því öllu á Iglesias logið sem fram kemur í bókinni „Julio Iglesias": Cad or Gentleman" eða „J.I.: Lubbi eða heiðursmaður?" Höfundurinn hefur það líka fram yfir skrásetjara Sinatra að þekkja „fómarlambið" persónulega, því Antonio Del Vallo er fyrrum ráðs- maður á heimili „þess guðdómlega“. Því starfí gegndi Del Vallo í þijú ár, eða allt til ársins 1983 að þeim Iglesias sinnaðist alvarlega og ráðs- maðurinn var rekinn. Sá möguleiki er því fyrir hendi að Del Vallo sé að hefna harma sinna er hann lýsir fyrrum húsbónda sínum sem hrút- leiðinlegum og klæmnum kvenna- bósa, en svo mikið er víst að bókin selst eins og heitar lummur um all- an hinn latneska heim þar sem plötur Iglesias seljast líka í milljóna- tali. Geoffrey Matthews, gagnrýnandi breska stórblaðsins The Observer, hefur skrifað ritdóm um bókina „Julio Iglesias: Lubbi eða heiðurs- maður" og segir þar m.a. að ekki þurfi að lesa margar blaðsíður til þess að komast að því að höfundur svari titlinum sjálfur, svo að ekki verði um villst að það sé ekki orðið heiðursmaður sem hann ætli lesend- um að tengja við nafn Iglesias að loknum lestri hennar. „Sem Del Vallo lítur reiður um öxl virðist hann ekki koma auga á einn einasta jákvæðan eiginleika í fari fyrrum vinnuveitanda síns,“ segir gagnrýnandinn. „Auk kvennafars- ins og klámbrandaranna sem að sögn höfundar eru aðaláhugamái Iglesias í tilverunni, er honum sjálf- um lýst sem kaldrifjuðum tækifær- issinna, eiginhagsmunasegg og falshundi. Er þá ótalið karlagrobbið sem söngvarinn er sagður iðka í ríkum mæli og aðaláhugamál hans að safna klámfengnum myndbönd- um. Einnig er drepið á drykkjusýki „II Divino" og eru líkur á að bók þessi eigi eftir að valda fjölda hjartaáfalla meðal aðdáenda hans, allt frá Madrid til Montevideo, að ekki sé minnst á Manchester og Milwaukee þegar verkið lítur dags- ins ljós í enskri þýðingu," bætir gagnrýnandinn við. Líkt og Kitty Kelly heldur því fram að það hafi verið skilnaður Franks Sinatra og Övu Gardner sem gerði hann að ólæknandi flagara, vill Del Vallo halda því fram að hátterni Julios eigi rætur að rekja til þess að fílippiska fegurðardísin Isabel Preysler skildi við hann á sínum tíma. Gagnrýnandi Observer er þó á þvi að allar séu þessar uppljóstranir bamaleikur einn miðað við það sem látið er liggja að um viðhorf Igles- ias og framkomu í alþjóðamálum er lúta að hinum spænskumælandi hluta heimsins. Þar sakar höfundur söngvarann um hræsni og segir hann gefa lítið fyr- ir heiður þjóðar sinnar og frænd- þjóða í Suður- Ameríku, persónu- lega eða pólitískt. Nefnir höfundur Falklandseyja- stríðið (eða Malvina-eyjastríðið, eins og Argentínumenn kalla það), sem dæmi og telur Matthews að þessar dylgjur geti átt eftir að koma Iglesias afar illa, þó ekki séu þær nýjar af nálinni. A hinn bóginn munu aðdáendur söngvarans geta bent á það með réttu að hann hefur jafnan verið reiðubúinn að halda veglega tónleika til styrktar fóm- arlömbum náttúruhamfara í spænskumælandi löndum, s.s. Mexí- kó og Kólumbíu. Ritdómaranum þykir því sem hart sé vegið að söngvaranum í þessari bók um ævi hans, en bendir jafn- framt á að blaðafulltrúar Iglesias MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SETPEMBER 1986 COSPER — Hugsaðu þér, eftir 20.000 ár verður þessi teikning fræg. oQP & c> °c e==3 9B35 COSPER hafi lengi verið á dijúgu yfírvinnu- kaupi við að gera lítið úr orðrómi svipaðs eðlis og „staðfestur" er í bók ráðsmannsins reiða. Að lokum riíjar Matthews upp gam- alt hollráð úr skemmtanaheiminum er lýtur að illu umtali og -skrifí og hljóðar einhvem veginn svona: „Ekki lesa það vinurinn, teldu dálk- ana sem það tekur.“ Eða eins og sagt var í sveitinni í gamla daga: „Það sparkar enginn í hundshræ." Tími hinna miklu uppljóstrana er upp runninn. Blaðafulltrúi George Michaels hefur staðfest að raunverulegt eftimafn stjömunnar sé Panayiotou og að hann sé sonur grísks veitingahúsaeiganda. Varla er það neitt sem maðurinn þarf að skammast sín fyrir, en af einhveij- um ástæðum hefur þessum stóra sannleik þó verið haldið leyndum fyrir aðdáendum Georges hingað til. Það fylgir einnig sögunni að Panayiotou hafi gengið í hjónaband aðeins sextán ára að aldri sam- kvæmt fyrirskipunum foreldra sinna, en slík skynsemishjónabönd tíðkast enn í nokkmm mæli í Suð- ur-Evrópu, sem og öðmm heims- homum. Ekki hafa fengist skýringar á því hvemig söngvaranum tókst að losna úr skynsemishjónabandinu. Það verður bara að vona að George sé nú laus úr viðjum skynseminnar, annað væri aðdáendum hans af kvenkyni of þungbært. Julio Iglesias gerði stutt- an stans á Reykjavíkur- flugvelli fyrir skömmu meðan sett var eldsneyti á einkaflugvélina og söngvarann sjálfan á leið vestur um haf. Þá náðu blaðamenn Morgunblaðs- ins tali af honum og var hann afar vingjarnlegur og spjallaði um heima og geima, eins og fram kom í fréttum Morgunblaðs- ins eftir heimsóknina. Þar sem þá höfðu hvorki borist fréttir af um- ræddri ævisögu var hann ekki spurður álits á verk- inu enda ekki víst að slíkar spurningar hefðu vakið mikla kátinu þessa söluhæsta söngvara í heimi. Fáar konur í heimi hafa hlotið aðra eins athygli fjölmiðla og Jacqueline Onassis. Hún starfar nú sem ráðgjafi hjá stóru bóka- forlagi i Bandaríkjunum og virðist hin ánægðasta með lífið. Jackie í fínu formi Alltaf eru einhveijir að velta sér upp úr því hvemig tímans tönn gangi að vinna á hinum ýmsu konum, sem lengi hafa verið í sviðs- ljósinu. Af einhveijum ástæðum virðist minna upp úr þvi lagt hvem- ig útlit karla breytist í áranna rás, en það er nú önnur saga. En aum- ingja Elizabet Taylor má t.d. ekki stíga á baðvigtina heima hjá sér án þess að hálf heimspressan gæg- s- ist yfír öxl hennar og gefí síðan lesendum nákvæma skýrslu um stöðuna, sem er reyndar afar breyti- leg þegar Elizabet er annars vegar. Svo em aðrar sem virðast allt að því standa í stað og þann flokk fyllir fyirum forsetafrú Banda- ríkjanna og ekkja eins ríkasta manns í heimi, Jacqueline Bouvier Kennedy Onassis. Þessi mynd var tekin af Jacque- line nýverið þegar hún kom til kirkju til þess að vera viðstödd brúð- kaup Carólínu dóttur sinnar, sem giftist Edwin nokkmm Schlossen- berg í sveitakirkjunni í heimabæ Kennedy fjölskyldunnar í Massa- chusetts. Jackie mætti í ljósgrænum kjól og verður ekki betur séð en að lítil ástæða sé til að hafa áhyggjur af viðureign hennar við tímans tönn. Ef eitthvað er þá lítur hún betur út nú en hún gerði fyrir nokkmm ámm, enda mun hún vera afar ánægð með lífið ogtilvemna, eftir því sem næst verður komist. á HÓTEL ÖRK nk. laugardag Hljómsveitin Krossbrá leikur fyrir dansf frá kl. 23.00—03.00. Kvöldverður frá kl. 19.00-21.00. Borðapantanir í síma 99-4700. Tískusýning fyrir matargesti. Módelsamtökin sýna glæsilegan tískufatnaö undir stjórn Unnar Arngrímsdóttur. Dansstúdíó Sóleyjar kemur í heimsókn og sýnir dans. Einnig minnum við á „Brunch" aö bandarískum hætti í hádeginu á sunnudögum (meö freyöandi veig- um) milli kl. 11.00 og 15.00. Dennison MERKILEG LAUSN hO \—a 0 H hH E Þær eru þarfaþing Dennison merkiþyssurnar. Úrval plastskota gera þér mögulegt að merkja nánast allan fatnað. Frá úlpum til sokka er ekkert mál fyrir Dennison. Dennison merkibyssureru ómissandi í fataiðn- aðinum, en þær hafa einnig reynst mjög vel við merkingu á kjötskrokk- um, loðdýraskinnum og fiskum. Já, Dennison er merkileg lausn. Kynntu þér málið. SNÆFELL SE Langholtsvegi 109-111, 124 Reykjavlk S: 30300-33622 ÖRKIN/SÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.