Morgunblaðið - 25.09.1986, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. SETPEMBER 1986
Gull-
kálfurinn
Það er aldeilis handagangur í fjöl-
miðlaöskjunni þessa dagana.
Sumir vilja óðir og uppvægir selja
ríkisútvarpið og aðrir neita að borga
afnotagjaldið og svo eru þeir menn til
er vilja varðveita ríkisútvarpið og efla
til muna. Nú og ekki má gleyma þeim
ágæta manni er skrifaði bréf í Velvak-
anda í gær þar sem hann kvartar
undan fjölmiðlafarganinu öllu saman:
... á heimilum, á vinnustöðum, í
strætisvögnum og áætlunarbllum —
alls staðar smjúga hljóð úr útvarpi í
gegnum merg og bein, misvond að
vfsu, en sum nemur eyrað ekki, þótt
þau dynji á líkamanum.
Svo mörg voru þau orð og það er
auðvitað alveg rétt hjá blessuðum
manninum að víða til dæmis á vinnu-
stöðum ríkir ekkert frelsi í útvarpsmál-
um heldur neyðast starfsmenn þar til
að hlusta daginn út og inn á tónlist
sem máski ertir óþægilega hlustimar.
Hvað um það þá held ég nú að fáir
vilji hverfa aftur til þess tíma er
drungaleg tónlist rásar 1 hljómaði á
vinnustöðum nota bene þar sem Kan-
inn ríkti ekki alvaldur. En í fyllstu
alvöru þá tel ég að ef heldur fram sem
horfir með hávaðamengunina þá líði
ekki á löngu þar til sérstök „þagnar-
herbergi" verða útbúin á vinnustöðum.
Manneskjunni er ekki áskapað að búa
við stöðugan hávaða.
Umrœðuþáttur
Athyglisverður umræðuþáttur
var í beinni sjónvarpsútsendingu á
þriðjudagskveldið og nefndist sá:
Islenskir fjölmiðlar á tímamótum.
Eins og nafnið gefur til kynna var
í þætti þessum rætt um holskeflu
fjölmiðlabyltingarinnar er nú ríður
yfír eykrílið ísland. Til leiks voru
mætt auk stjómandanna Magnúsar
Bjamfreðssonar og Bjöms Vignis
Sigurpálssonar, Markús Om Ant-
onsson útvarpsstjóri, Jón Óttar
Ragnarsson forstjóri á stöð 2, Einar
Sigurðsson útvarpsstjóri Bylgjunn-
ar, Ólafur Tómasson póst- og
símamálastjóri, Gústav Amar yfir-
verkfræðingur hjá Pósti og síma,
Stefán Ólafsson lektor við Háskóla
íslands, Ólafur Stephensen formað-
ur Sambands íslenskra auglýsinga-
stofa, Bjöm Friðfinnsson formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga
og Kolbrún Halldórsdóttir dag-
skrárgerðarmaður á rás 2.
Framkvœmdin
Ástæðan fyrir því að ég þyl hér
alla þessa nafnarollu er sú að ég
vil benda lesendum á hversu vel var
hér að verki staðið af hálfu stjóm-
endanna Magnúsar Bjamfreðsson-
ar og Bjöms Vignis Sigurpálssonar
eða finnst ykkur vanta nokkum
fulltrúa þeirra aðila er standa nú
fremstir í fjölmiðlastríðinu? Ég
hefði máski kosið að sjá í þessum
fríða flokki einn fulltrua frá dag-
blöðunum en annars fannst mér
prýðilega til takast hjá þáttarstjór-
unum, ekki bara með val á gestum
heldur og hvað varðar notkun línu-
rita og annarra baksviðsupplýsinga
en hljóðupptakan hefði nú mátt
vera í betra standi. Hvað varðar
sjálfa umræðuna þá er ekki vinn-
andi vegur að gera henni skil hér
í örstuttu máli en þar bar á góma
ýmis íhugunarefni er ég vík að síðar
hér í dálki. Minnisstæðast var ann-
ars tilsvar Kolbrúnar Halldórsdótt-
ur fulltrúa rásar 2 er Magnús
Bjamfreðsson innti hana álits á því
hver hún teldi að yrðu áhrif fjöl-
miðlabyltingarinnar: Ég vona bara
að fjölmiðlabyltingin geri mig að
betri manneskju. Að svo mæltu
flugu í huga minn orð Móses gamla
þá hann frétti af því að fólkið hafði
steypt gullkálfinn: Æ, þetta fólk
hefir drýgt stóra synd og gjört sér
guð af gulli. Það er gott til þess
að vita að í fremstu röð fjölmiðla-
stríðsmannanna finnst ennþá fólk
sem dansar ekki kringum gullkálfa.
Olafur M.
Jóhannesson.
ÚTYARP / SJÓNYARP
Arni Snævarr
Bylgjan:
Ítalía í Vökulok
Ami Snævarr, fretta-
maður, hefur umsjón með
þættinum Vökulok á Bylgj-
unni í kvöld. í þættinum
verður meðal annars fjalla
vítt og breitt um Ítalíu og
ítalskt - íslenskt félag sem
verið er að stofna. Ámi
mun ennfremur grípa niður
í ólíkustu þáttum ítalsks
þjóðlífs allt frá íþróttum til
stjómmála.
Hvernig á að
forðastlús?
■■■■ í blaðinu í gær
~t 7 03 urðu þau leiðu
A * mistök að sagt
var, að fjallað yrði um lýs
í Barnaútvarpinu á mið-
vikudag. Hið rétta er að
það er í dag, fimmtudag,
sem þessi umfjöllun verður.
Fjallað verður um lýs og
.llt sem viðkemur þeim.
Meðal annars hvemig eigi
að\forðast lýs eða þá að
losa sig við þær ef það tekst
ekkí. I þættinum verður
taiað við krakka sem hafa
lent í því að fá lús.
Stjómendur verða þær
Kristín Helgadóttir og Sig-
urlaug M. Jónasdóttir.
Fimmtudadgsleikritið;
Kappinn að vestan
Fimmtudagsleikrit ríkisút-
varpsins er leikritið
„Kappinn að vestan", sem
talið er vera frægasta gam-
anleikrit íra. Það hefur
ekki verið flutt áður hér á
landi í þeirri mynd sem
höfundurinn John Milling-
ton Synge gekk frá því.
John M. Synge, sem er eitt
merkasta ieikritaskáld ír-
lands, fæddist í Dublin árið
1871 og lést þar 38 ára
gamall. Hann skrifaði 6
leikrit alls og er þetta
fjórða leikrit hans sem
ríkisútvarpið flytur. Aður
hafa verið flutt leikritin
„Þeir riðu til sjávar",
„Bmnnur dýrlinganna" og
„í forsæludal".
Frá Loðmundarfirði
■■■■ í kvöld verður á
99 20 dagskrá þáttur
1 um Loðmundar-
§örð og líf fólks þar fyrr á
ámm. Loðmundarfjörður
stendur milli SeyðisQarðar
og Borgarfjarðar eystri.
Þar var áður byggð með
blóma en nú er fjörðurinn
kominn í eyði. Að hluta til
er þátturinn tekinn upp í
firðinum m.a. í Klyppstað-
arkirkju, en einnig sækir
umsjónarmaður þáttarins,
Inga Rósa Þórðardóttir,
heim burtflutta íbúa Loð-
mundarfjarðar, m.a. Astu
Stefánsdóttur, Seyðisfirði,
sem segir frá ámm sínum
og uppvexti í firðinum.
Einnig greinir Kristinn
Halldórsson frá því er hann
bjó einbúi í Loðmundar-
firði.
Leikurinn „Kappinn að
vestan“ gerist í sveit á Irl-
andi þar sem fábreytni
sveitalífsins er rofin kvöld
nokkurt er ókunnur maður-
birtist illa til reika á kránni.
I ljós kemur að hann hef-
ur, að eigin sögn, myrt
föður sinn og er nú á flótta
undan lögreglunni. Hetju-
skapur hins ókunna manns
hefur djúp áhrif á heima-
menn, einkum konumar,
sem hafa orðið að búa við
sáran skort á afreksmönn-
um þar í sveitinni. Hleypur
þeim því heldur betur kapp
í kinn, heimaölnum pipar-
sveinum til mikillar
armæðu. En ekki er allt
sem sýnist og bráðum taka
málin óvænta stefnu.
Leikendur em: Edda
Heiðrún Backman, Kristj-
án Franklín Magnús,
Erlingur Gíslason, Karl
Agúst Ulfsson, Kristbjörg
Kjeld, Jón Sigurbjömsson,
Kjartan Bjargmundsson,
Flosi Olafsson, María Sig-
urðardóttir, Lilja Þóris-
dóttir, Rósa Þórsdóttir,
Helga Þ. Stephensen og
Gretar Skúlason.
Leikstjóri er Stefán
Baldursson.
UTVARP
FIMMTUDAGUR
25. september
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.30 Fréttir. Tilkynningar
8.00 Fréttir. Tilkynmngar
8.15 Veðurfregnir
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Rósalind dettur
ýmislegt í hug“ eftir Christ-
ine Nöstlinger. Guðrún
Hrefna Guömundsdóttir og
Jóhanna Einarsdóttir þýddu.
Þórunn Hjartardóttir les (2).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.45 Lesið úr forystugreinum
dagblaðanna.
10.00 Fréttir
10.10 Veöurfregnir
10.30 Ég man þá tiö
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum
árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Söngleikir á Broadway
1986 Áttundi þáttur: „Big
River". Árni Blandon kynnir.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 f dagsins önn - Efri ár-
in. Umsjón: Inga Rósa
Þórðardóttir.
14.00 Miödegissagan: „Ma-
hatma Gandhi og lærisvein-
ar hans" eftir Ved Mehta.
Haukur Sigurðsson les þýð-
ingu sina (21).
14.30 í lagasmiðju
Sam Cookes.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn
Frá svæðisútvarpi
Reykjavíkur og nágrennis.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Strengjakvartettar eftir
Dmitri Sjostakovitsj. Kvart-
ett nr. 13 í b-moll op. 138.
Fitz William kvartettinn leik-
ur. Umsjón: Sigurður Ein-
arsson.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpiö. Umsjón:
Vernharður Linnet og Sigur-
laug M. Jónasdóttir.
■17.45 Torgið — Tómstunda-
iöja
Umsjón: Óðinn Jónsson.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.0C Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Guðmund-
ur Sæmundsson flytur
þáttinn.
20.00 Leikrit: „Kappinn að
vestan" eftir John M. Synge.
Þýðandi: Böðvar Guð-
mundsson. Leikstjóri:
Stefán Baldursson. Leik-
endur: Edda Heiðrún
Backmann, Kristján Franklín
Magnús, Erlingur Gíslason,
Karl Ágúst Úlfsson, Krist-
björg Kjeld, Jón Sigurbjörns-
son, Kjartan Bjargmunds-
son, Flosi Ólafsson, María
Sigurðardóttir, Rósa Þórs-
dóttir, Lilja Þórisdóttir,
Helga Þ. Stephensen og
Grétar Skúlason. Jón Viðar
Jónsson leiklistarstjóri flytur
formálsorð. (Leikritið verður
endurtekið nk. þriðjudags-
kvöld kl. 22.20.)
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Frá Loðmundarfiröi.
Umsjón: Inga Rósa Þórðar-
dóttir.
23.20 Á slóöum Jóhanns Seb-
astians Bach. Þáttaröð frá
austur-þýska útvarpinu eftir
Hermann Börner. Jórunn
Viðar þýðir og flytur.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
SJÓNVARP
19.15 Á döfinni
Umsjónarmaður Maríanna
Friðjónsdóttir.
19.25 Litlu Prúðuleikararnir
(Muppet Babies)
Tíundi þáttur. Teiknimynda-
flokkur eftir Jim Henson.
Þýðandi Guðni Kolbeins-
son.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingarogdagskrá
20.40 Rokkarnir geta ekki
þagnaö
Rokkhátíð á Arnarhóli II.
Svipmyndir frá fyrri hluta
hljómleika á afmælishátíð
Reykjavíkur. Hljómsveitirnar
Prófessor X og Tic-Tac
leika. tæknistjóri Vilmar H.
Pedersen. Umsjón og
FÖSTUDAGUR
26. september
stjórn: Marianna Friðjóns-
dóttir.
21.20 Bergerac
Lokaþáttur
Breskur sakamálamynda-
flokkur. Aöalhlutverk John
Nettles. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.10 Seinni fréttir.
22.15 Á heitu sumri — fyrri
hluti.
(The Long Hot Summer)
Bandarísk sjónvarpsmynd í
tveimur hlutum, gerð eftir
sögu Williams Faulkner.
Leikstjóri Stuart Cooper.
Aðalhlutverk: Jason
Robards, Ava Gardner, Don
Johnson, Cybill Shepherd,
Judith Ivey og William Russ.
Myndin gerist i sveit í Suð-
urrikjunum þar sem stór-
bóndinn og jarðeigandinn
Will Varner ræður lögum og
lofum. Hins vegar gengur
honum illa að tjónka við fjöl-
skyldu sina. Sonurinn er
duglitill, tengdadóttirin hálf-
gerð gála en dóttirin hlé-
dræg um of. Allslaus
aðkomumaður, sem kemst
i náðina hjá Will, hleypir
síðan öllu f bál og brand í
fjölskyldunni. Þýðandi
Höskuldur Þráinsson.
Sögulokin eru á dagskrá á
laugardagskvöldið.
00.00 Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
25. september
9.00 Morgunþáttur
í umsjá Gunnlaugs Helgason-
ar, Kristjáns Sigurjónssonar
og Kolbrúnar Halldórsdóttur.
Elisabet Brekkan sér um
barnaefni kl. 10.05.
12.00 Hlé.
14.00 Andrá
Stjórnandi: Ragnheiöur Dav-
íðsdóttir.
15.00 Sólarmegin.
Þáttur um soul- og fönktónlist
i umsjá Tómasar Gunnars-
sonar. (Frá Akureyri.)
16.00 Hitt og þetta
Stjórnandi: Andrea Guð-
mundsdóttir.
17.00 Gullöldin.
Guðmundur Ingi Kristjánsson
kynnir lög frá sjöunda ára-
tugnum.
18.00 Hlé.
20.00 Vinsældalisti hlustenda
rásar tvö
Leopold Sveinsson kynnir tíu
vinsælustu lög vikunnar.
21.00 Um náttmál
Jónatan Garðarsson sér um
þáttinn.
22.00 Rökkurtónar
Stjórnandi: Svavar Gests.
23.00 Dyrnar að hinu óþekkta
Annar þáttur af þremur um Jim
Morrison og hljómsveitina
Doors. Umsjón: Berglind
Gunnarsdóttir.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00
10.00, 11.00, 15.00, 16.00
og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
SVÆÐISÚTVARP VIRKA DAGA
VIKUNNAR FRÁ MÁNU
DEGI TIL FÖSTUDAGS.
17.03—18.00 Svæðisútvarp fyr
ir Reykjavik og nágrenni — FM
90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp fyr-
ir Akureyri og nágrenni — FM
96,5 MHz.
989
FIMMTUDAGUR
25. september
6.00—7.00 Tónlist i morg-
unsárið
Fréttir kl. 7.00.
7.00—9.00 Á fætur meö Sig-
urði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður litur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 8.00 og 9.00.
9.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur öll uppáhaldslögin og
ræðir viö hlustendur til há-
degis.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Haröar-
dóttur. Jóhanna leikur létta
tónlist, spjallar um neyt-
endamál og stýrir flóamark-
aði kl. 13.20.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar og spjallar við hlustendur
og tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00-19.00 Hallgrimur
Thorsteinsson í Reykjavík
siðdegis. Hallgrímur leikur
tónlist, litur yfir fréttirnar og
spjallar við fólk sem kemur
við sögu.
Fréttir kl. 18.00 og 19.00.
19.00—20.00 Tónlist með
léttum takti.
20.00—21.30 Jónína Leós
dóttir á fimmtudegi. Jónina
tekur á móti kaffigestum og
spilar tónlist eftir þeirra
höfði.
21.30—23.00 Spurningaleik-
ur. Bjarni Ó. Guðmundsson
stýrir verðlaunagetraun um
popptónlist.
23.00-24.00 Vökulok. Frétta
menn Bylgjunnar Ijúka
dagskránni með frétta
tengdu efni og Ijúfri tónlist.