Morgunblaðið - 27.09.1986, Síða 2

Morgunblaðið - 27.09.1986, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27., SEPTEMBER 1986 Tuttugu sæmdir heið- ursdoktorsnafnbót við Háskóla íslands TUTTUGU vísinda- og fræði- menn ásamt Margréti Dana- drottningn verða sæmdir heiðursdoktorsnafnbót við Há- skóia íslands i tilefni af 75 ára afmæli hans á þessu ári. Meiri- hluti þeirra er íslenskur að þjóðerni, eða þrettán, sjö eru útlendir. Þar á meðal er að finna einn helsta frumkvöðulinn að tölvubyltingunni svokölluðu, dr. Konrad Zuse. í guðfræðideild verður dr. theol. Eugene A. Nida, Bandaríkjunum, sæmdur heiðursdoktorsnafnbót, en eftir hann liggja mörg merk fræðirit og hefur hann verið framkvæmda- stjóri hjá Ameríska Biblíufélaginu. Fjórir íslendingar verða sæmdir nafnbót þessarri í læknadeild, þeir Benedikt Tómasson, fyrrverandi skólayfirlæknir, dr. Julíus Sigurjóns- son, fyrrverandi prófessor í heilbrigð- isfráeði, Ófeigur J. Ófeigsson, en hann er kunnur fyrir meðferð sínar á brunasárum, og Páll Agnar Páls- son, en hann hefur fengist við rannsóknir á búfjársjúkdómum. í heimspekideild verða sjö út- nefndir heiðursdoktorar við deildina: Hennar hátign Margrét II Dana- drottning, sem vegna farsælla lykta handritamálsins fyrir okkur íslend- inga er sæmd þessarri nafnbót. Snorri Hjartarson, ljóðskáld. FVú Anna Sigurðardóttir, en hún er brautryðjandi_ á sviði_ kvennasögu- rannsókna á íslandi. Ásgeir Blöndal Magnússon, sem kunnur hefur verið af störfum sínum á sviði orðfræði og málsögu. Dr. Gösta Holm, pró- fessor frá Lundi í Svíþjóð, en hann er kunnur af störfum sínum á sviði málsögu, ömefnafræði og stílfræði. Dr. Ludwig Holm-Olsen, prófessor frá Bergen, sem hefur unnið að textaútgáfum norrænna fomrita. Dr. Jón Steffensen, prófessor, sem er kunnur af ýmsum störfum sínum á sviði lækningasögu, mannfræði og fomleifafræði. 0g dr. Bruno Kress, prófessor frá A-Þýskalandi sem hef- ur þýtt margar íslenskar bækur á þýsku og stundað rannsóknir á íslenskri tungu. Þrír menn fá útnefningu við verk- fræðideild. Dr. Christian H. Gudna- son, prófessor í Kaupmannahöfn, en hann er kunnur af framlagi sínu til gæðastýringar og skýringar sínar á sviði rekstrarverkfræði. Einnig verð- ur einn helsti frumkvöðull tölvubylt- ingarinnar heiðursdoktor við deildina, dr. Konrad Zuse, verk- fræðingur frá V-Þýskalandi. Sá þriðji er Jakob Gíslason, fyrrverandi orku- málastjóri, en hann mótaði mjög yfirstjóm og stefnumörkun á því sviði. í viðskiptadeild fær heiðursdokt- orsnafnbót Ólafur Bjömsson, pró- fessor, en hann hefur um áratuga skeið verið prófessos við deildina og eftir hann liggja viðamikil fræðirit. í raunvísindadeild fá þrír íslend- ingar heiðursdoktorsnafnbót, þar af tveir sem starfandi eru í Banda- ríkjunum. Dr. Bjami Jónsson, pró- fessor í Nashville, en hans meginstarf er á sviði algebru. Dr. Sigurður Helgason, prófessor í Bost- on, sem kunnur er fyrir undirstöðu- rannsóknir sínar á sviði diffurrúm- fræði. Og Þorbjöm Sigurgeirsson, prófessor í eðlisfræði, en hann setti fyrstur fram hugmyndir um heftun hraunrennslis f eldgosi með vatns- kælingu. Morgunblaðið/Jón Asgeir Sigurðsson/slmamynd Skrifstofustjóri Sameinuðu þjóðanna, Virendra Dayal, þakkar Herði Helgasyni fyrir málverkið sem gefið var í tilefni 40 ára aðildar íslands að samtökunum. Á myndinni er einnig Matthías Á. Mathiesen utanríkisráðherra. Kjarvalsmálverkgefið Sameinuðu þjóðunum „ÞAÐ er ekki vanþörf á hinum íslenska anda hér hjá Sameinuðu þjóðunum," sagði Virendra Dayal, skrifstofustjóri aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, er hann tók við Þingvalla- mynd frá 1935 eftir Jóhannes Kjarval i gær. Hann benti á fyrstu þinghá íslendinga og sagð- ist óska sér að SÞ stæðu á jafntraustum grunni. Hörður Helgason, sendiherra íslands hjá SÞ, afhenti gjöf þessa ásamt þeim Matthíasi Á. Mathiesen, utanríkisráðherra, og Ólafi Egilssyni sendiherra. Þorvaldur Guðmundsson, kaup- maður í SQd og fisk, gaf íslenska rikinu málverkið með ósk um að það yrði gefið SÞ i tilefni 40 ára aðUdar íslands. Bandalög opinberra starfsmanna: Afhentu stjórnvöldum drög að lagafrumvarpi Geta ekki orðið grimdvöllur frek- ari umræðu, segir Geir H. Haarde Bandalög opinberra starfs- manna, BSRB, BHMR og BK afhentu fulltrúum riksvaldsins drög sín að frumvarpi til laga um stéttarfélög opinberra starfs- manna í gærdag. Á blaðamanna- fundi sögðu talsmenn samtak- anna, að frumvarpsdrögin byggðu í aðalatriðum á þeim lögum sem gilda um stéttarfélög á almennum vinnumarkaði og myndu þau veita opinberum starfsmönnum verk- fallsrétt og færa samningsréttinn tU einstakra stéttarfélaga. Að sögn Geirs H. Haarde, aðstoðar- manns fjármálaráðherra, telur ráðuneytið að drögin geti ekki orðið grundvöUur frekari umræðu milli aðUa. Á kynningarfundi bandalaganna Pétur Sigurðsson alþm.; Ekkí hættur stj órnmálastör fum - en tek ekki þátt í þessu prófkjöri Pétur Sigurðsson alþingis- maður hefur ákveðið að taka ekki þátt í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins tíl Alþingis að þessu sinni. Morgunblaðið sneri sér til hans af því tilefni og spurði um ástæð- una. Pétur hefur setið á þingi frá haustinu 1959 til vors 1978 og síðan aftur frá haustinu 1979, eða tæp 27 ár alls. Hann á því að baki lengstan starfstíma á þingi þeirra alþingismanna, sem nú sitja á þingi fyrir Reykjavík. Pétur Sig- urðsson hefur verið einn helzti verkalýðsforingi sjálfstæðis- manna um langt árabil. Spumingu Morgunblaðsins svaraði Pétur á þessa leið: „Það eru margar samverkandi orsakir fyrir því, að ég tek ekki þátt í þessu prófkjöri, t.a.m. hafa hlaðizt á mig störf sem ég hvorki get né vil yfirgefa. Ég hef átt við langvarandi veikindi, asma, að stríða og svo hef ég auk þess megnustu óbeit á fyrirkomulagi prófkjörs Sjálfstæðisflokksins hér í Reykjavík. Ég tel t.a.m. að próf- kjör eigi að vera öllum opið án skuldbindinga og vitna til þess mikla atkvæðamagns, sem Sjálf- stæðisflokkurinn fær ( öllum kosningum, en fæstir stuðnings- mennimir eru flokksbundnir. Þúsundir kjósenda hafa sýnt flokknum traust um áratuga skeið án flokksaðildar, hví skyldi Sjálf- stæðisflokkurinn ekki treysta þeim? Auk þess ættu frambjóð- endur ekki að þurfa að hafa mikið ljármagn á bak við sig né skipu- lagðar sveitir. Þetta hanaat veldur því, að fjöldi góðra og hæfra manna vill ekki gefa kost á sér. En ekkert af þessu hefur þó ráðið neinum úrslitum hjá mér nú, heldur það sem ég fyrr nefndi. Ég ætla nú að einbeita mér að störfum fyrir sjómannasamtök og hina öldruðu, en það hefur farið saman við þingstörf á liðnum árum. Enginn hefur endalaust þanþol. Eg mun skilja við félaga mína í þingflokki Sjálfstæðisflokksins í mikilli vináttu. Þeir og reyndar margir fleiri þingmenn hafa reynzt mér vel og þeim málum, sem ég hef barizt fyrir innan veggja Alþingis. Ég get því með góðri samvizku stutt þá í væntan- legu prófkjöri. Einn þeirra, Eyjólfur Konráð Jónsson, bað mig að styðja framboð sitt hér í Reykjavík, því að hann býður sig nú fram í fyrsta sinn í höfuð- borginni, en hefur með prýði setið á þingi fyrir Norðurlandskjör- dæmi vestra um langt árabil. Kynni okkar Eyjólfs eru gömul og góð. Við áttum saman sæti í stefnumótandi nefnd á vegum þingflokksins fyrir nokkrum árum, eða í tíð fyrri stjómar, og þar var Eyjólfur sem endranær tillögugóður, og þótt tillögum okkar væri þá flestum hafnað hefur þeim vaxið fylgi, sumar eru komnar fram, aðrar eru í farvatn- inu. Þá má ekki gleyma störfum Eyjólfs að hafréttarmálum, en þar var unnið frábært starf. Að lokum vil ég segja, að ég hef dálítið samvizkubit af að hverfa nú af Alþingi vegna ýmissa hagsmunamála launþega, sem þarf að vinna að og berjast fyrir á vegum Sjálfstæðisflokksins, en mér er þó rórra að vita af Guð- Pétur Sigurðsson mundi H. Garðarssyni, þaulreynd- um forystumanni í launþegasam- tökum, og vona, að honum vegni vel í slagnum. Með þessu er ég á engan hátt að varpa rýrð á þá sem fyrrir eru eða væntanlegir eru í þingliði Sjálfstæðisflokksins. Auk þess er alkunn sú staðreynd að Gunnar sneri aftur. í stjómmálum eins og lífinu sjálfu getur allt gerzt. þriggja með blaðamönnum kom það fram að frumvarpið væri til orðið vegna bókunar í síðasta aðalkjara- samningi samtakanna og fjármála- ráðherra. Þorsteinn A. Jonsson, einn fulltrúa BHMR á fundinum, sagði að af hálfu ríkisvaldsins lægi ekki annað fyrir en almennir punktar. Á fundinum með fulltrúum ríkisvalds- ins hafi ekki komið fram hvaða hugmyndir fjármálaráðuneytið hefur um nánari útfærslu laganna. Aðspurður hvort þetta væri vísbendíng um að samstarf samtak- anna þriggja væri að verða nánara sagði Kristján Thorlacius, Bandalagi Kennarafélaga, að það hefði ekki verið rætt. „Við erum I samstarfi núna, um þetta tiltekna, sameigin- lega hagsmunamál okkar. Að sjálf- sögðu skiptir það miklu hver niðurstaðan verður af þessari laga- setningu hvort um samruna verður að ræða eða ekki“ sagði hann. „Niðurstaða okkar er sú að þetta plagg geti ekki orðið umræðugrun- dvöllur" sagði Geir H. Haarde í samtali við Morgunblaðið. „Fýrir það fyrsta er það of mikil eftirlíking af lögunum frá 1938 um stéttarfélög og vinnudeilur. í þessu drögum vant- ar líka nægilega viðurkenningu á sérstöðu ríkisins sem vinnuveitanda." Geir sagði að hugmyndir ráðu- neytisins lægju nú þegar fyrir. Þar er tekin sama steftia hvað varðar samningsrétt stéttarfélaganna. Jafn- framt er gert ráð fyrir því að opinberir starfsmenn hafi verkfalls- rétt, með ákveðnum undantekning- um. „Við höfum verið að semja við hópa sem gegna lykilhlutverki í ör- yggisgæslu, lögreglu og tollgæslu sem við teljum að eigi alls ekki að hafa verkfallsrétt" sagði Geir. „Útaf fyrir sig samþykkum við verkfalls- réttin, en hann þarf að afmarka skýrt. í þessum drögum eru til dæm- is fjölmörg atriði sem varða verk- fallsboðun sem við erum ekki ánægðir með.“ Næsti fundur um þessi mál verður 10. október n.k. Að sögn Geirs mun ríkisvaldið þá leggja fram sínar hug- myndir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.