Morgunblaðið - 27.09.1986, Side 47

Morgunblaðið - 27.09.1986, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1986 47 MorgunbtaðiA/Einar Falur • Gull-, Silfur- og Bronsskór Adldas voru afhentir f gœrkvöldi. Þessir þrfr knattspymumenn voru mestu markmannshrellar 1. deildar f sumar. Frá vinstri: Guðmundur Steinsson, Sigurjón Krístjáns- son og Guðmundur Torfason, sem hlaut gullskóinn og skoraði 19 mörk f deildinni og jafnaði þar með markamet Páturs Póturssonar. Gullskór Adidas: „Mikill heiður að hljðta pessa viðurkenningu" — sagði Guðmundur Torfason sem tók við Gullskó Adidas I gær GUÐMUNDUR Torfason úr Fram fékk í gœr Gullskó Adidas, sem eru verðlaun sem Adidas- umboðið á íslandi veitir marka- hsasta leikmanni fyrstu deildar íslandsmótsins í knattspyrnu. Þetta var í fjórða sinn sem heildverslun Björgvins Schram hf. gengst fyrir þessari verð- launaveitingu. Ingi Björn Alberts- son hlaut Gullskóinn fyrst er hann var veittur 1983, Guðmund- ur Steinsson 1984 og Ómar Torfason 1985. Guðmundur Torfason skoraði 19 mörk í 1. deild í sumar og jafnaði þar með markamet Pót- urs Péturssonar. Guömundur er 24 ára og hefur leikið með öllum flokkum Fram, er þrefaidur bikar- meistari, margfaldur Reykjavík- urmeistari og nú í sumar íslandsmeistari með félagi sínu í fyrsta sinn. Hann hefur leikið 206 leiki með meistaraflokki og skorað 100 mörk. „Það er mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu. Það er æðsti draumur hvers knatt- spyrnumanns að verða marka- hæstur og hljóta þennan eftirsótta titil. En maður gerir þetta ekki án aðstoöar félaga sinna í liðinu. Það eru góðir leik- menn sem ég spila með og svo hefur Ásgeir, þjálfari, kennt mér mikið og á ég honum mikið að þakka," sagði Guðmundur Torfa- son sem einng var nýiega valinn besti leikmaður íslandsmótsins af leikmönnum 1. deildar. Adidas veitir einnig Silfur- og Bronsskó til þeirra leikmanna sem eru í öðru og þriðja sæti yfir markahæstu leikmenn 1. deildar. Valsmaðurínn Sigurjón Kristjánsson hlaut Silfurskóinn og Bronsskórinn kom í hlut Guð- mundar Steinssonar úr Fram. Sigurjón og Guðmundur Steins- son skoruðu báðir 10 mörk í deildinni en Sigurjón lék einum leik minna en Guðmundur og því Silfurskórinn hans. Morgunblaðið/Einar Falur • Guðmundur Torfason ásamt unnustu sinni, Höllu Björk Jóns- dóttur og föður, Torfa Bryngeirssyni, sem var mikill frjálsfþrótta- maður á sfnum yngrí árum. Morgunblaöið/Einar Faiur • Sigurjón Krístjánsson ásamt foreldrum sfnum, Helgu Krístjáns- dóttur og Krístjáni Sigurjónssyni og systur, Jónfnu Krístjánsdóttur. Morgunblaðið/Einar Falur • Guðmundur Steinsson ásamt eiginkonu sinni, Sólveigu Hjalta- dóttur og dótturínni Irís. Guðmundur hefur nú tvívegis fengið þessa viðurkenningu frá Adidas. Gullskóinn fékk hann 1984 og nú Bronsskóinn. Þá vantar bara silfrið til að eiga allt safnið. Morgunblaðið/Július ■Jil •' ” iiiw iW? • Reykjavfkurmeistarar Vals f handknattleik 1988. Fremrí röð frá vinstri: Valdimar Grfmsson, Jakob Sigurðsson, Elfas Haralds- son, Geir Sveinsson, Birgir Þorgeirsson, Gísli Óskarsson og Pálmi Jónsson. Aftari röð frá vinstri: Finnbogi Kristjánsson, Jón Pétur Jónsson, þjálfari, Theo- dór Guðfinnsson, Þorbjöm Guðmundsson, Júlíus Jónasson, Þórður Sigurðsson, Stefán Hall- dórsson og Pétur Guðmundsson, liðsstjóri. Evrópukeppnin íhandknattleik: Stjarnan sigraði með 37 marka mun STJARNAN úr Garðabæ burst- aði enska liðið Birkenhead frá Uverpool með 37 marka mun, 46:9, f fyrri leik þessara liða f Evrópukeppni bikarhafa f hand- knattleik f Uverpool f gnrkvöldi. Það má því telja vfst að Garð- bæingar komist { aðra umferð keppninnar. Seinni leikurinn fer einnig fram ytra á sunnudaginn. Ekki tókst að ná sambandi viö leikmenn liðsins til að fá frekari uppiýsingar um leikinn. Þyskirfjölmiðlar: Held er hetja áíslandi Frá Sigurði Bjömssyni fréttaritara Morgunblaðsins ( V-ÞýskaUndl. Vestur-þýskir fjölmiðlar gerðu landsleik íslendinga og Sovét- manna góð skil í gœr. Nánast undantekningalaust léku blaða- mennirnir sér að nafni Sigfríed Held (Held merkir hetja á þýsku) og flestar fyrirsagnir vom á þá leið að Held vœrí orðinn hetja á íslandi eftir frækilega frammi- stÖðu knattspymulandsliðsins sem hann stjómar. Blöðin fara mjög fögrum orðum um leik íslenska liðsins, nefna gjarnan Ásgeir Sigurvinsson sem besta mann, en taka jafnframt fram að ailir leikmennirnir hafi leik- ið vel. [ Frakklandi var einnig fjallað ítarlega um leikinn undir stórum fyrirsögnum, enda kom jafnteflið Frökkum vel, því flestir eiga von á baráttu Sovétmanna og Frakka um efsta sætið í riölinum. I Le Equipe sagöi meðal annars að vöm íslenska liðsins hefði sannað það • Sigfríed Held í þessum tveimur leikjum aö hún værí í hæsta gæðafiokki í Evrópu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.