Morgunblaðið - 23.10.1986, Side 2

Morgunblaðið - 23.10.1986, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1986 Saltað af kappi á Fáskrúðsfirði í vikunni. Morgunblaðið/Albert Kemp Saltað hefur verið í um 22.000 tunnur Söltun fjórum sinnum minni en á sama tíma í fyrra Félagsmálastofnim: Skjóistæð- ingrim fjölg- aði um 7% BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam- þykkti nýlega að hækka fjár- framlög til félagsmálastofnunar vegna framfærsluaðstoðar á þessu ári um 15,7 milljónir kr., úr 116,7 milljónum i 132,4 millj- ónir kr. Að sögn Sveins Ragnars- sonar félagsmálastjóra er þetta viðbótarfé nauðsynlegt vegna fjölgunar skjólstæðinga stofnun- arinnar á þessu ári og hækkunar ýmissa kostnaðarliða sem stofn- unin aðstoðar skjólstæðinga sína við að greiða. Sveinn sagði að fyrstu níu mán- uði ársins hefðu 1.681 leitað aðstoðar félagsmálastofnunarinnar, en 1.572 á sama tímabili í fyrra. Aukningin er því 109 manns eða tæp 7%. Sagði félagsmálastjóri að áætlanir stofnunarinnar varðandi vistanir bama og öryrkja og aðstoð til fólks í formi lána hefðu staðist fyllilega, og hefðu útgjöld vegna þessara liða verið undir áætlun, en framfærslustyrkir hefðu hins vegar reynst mun fjárfrekari en gert var ráð fyrir. Aðspurður um dæmi sagði Sveinn að stofnunin hefði kostað 30 jarðarfarir á þessu ári, sem væri þrisvar sinnum meira en á sama tíma árið áður. Þetta væri verulegur kostnaður því hver útför kostaði 40—50 þúsund krónur. Hann nefndi einnig hækkun húsa- leigu og styrki vegna uppihalds bama í heimavistarskólum og vegna dagvistargjalda. Þá sagði hann að fólk hefði lent í vandræðum vegna hertra lokunaraðgerða orku- fyrirtækjanna í borginni. Hafnarfjörður Bygging húss fyrir fiskmark- að boðin út HAFNARSTJÓRNIN í Hafnar- firði hefur látið grunnteikna hús, ætlað fyrir fiskmarkað og mun leita tilboða í byggingu þess á næstu dögum. Guðmundur Arni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnar- firði, segir Hafnfirðinga ákveðna í þvi að koma upp fisk- markaði. Samkvæmt niðurstöðum nefndar um möguleika á uppsetningu físk- markaðar eru miklar líkur á því, að hann verði settur á stofn á svæð- inu frá Akranesi austur um_ til Þorlákshafnar. Guðmundur Ámi Stefánsson sagði í samtali við Morgunblaðið, að þeir hlytu að hafa mestu möguleikana á því að hreppa hnossið, sem fyrstir yrðu til með góða aðstöðu. Að kvöldi síðastliðins þriðjudags hafði síld verið söltuð i 22.000 tunnur, nær eingöngu á Aust- fjörðum. Mest hafði þá verið saltað á Eskifirði, eða í 6.904 tunnur. Samið hefur verið um sölu á 51.000 tunnum af saltsíld til Svíþjóðar og Finnlands. Sama dag í fyrra hafði verið saltað í 88.000 tunnur. Söltunin er því fjórum sinnum minni nú. FYRSTI sérsmíðaði kúfiskbátur- inn kemur tU íslands i apríl næstkomandi. Á sama tíma verð- ur eigendum afhent fyrsta kúfiskverksmiðja landins. Sala á kúfiski hefur verið tryggð til næstu tgeggja ára. Fyrirtækið Traust h.f. hefur annast skipu- lagningu og samningagerð vegna kúfiskveiðanna. Traust h.f. gekk nýlega frá samningum við hollensku skip- asmíðastöðina Damen um byggingu á 24 metra löngu skipi til kúfísk- veiða. Báturinn er sérsmíðaður til að skrapa efsta botnlag til að afla kúfísks og í bátnum er sjólest til að geyma aflann. Eigandi bátsins verður Bylgjan h.f. á Suðureyri. Kúfísk er að fínna allt frá austur- strönd Bandaríkjanna, en þar í landi neyta menn kúfískjar í miklu magni, og yfír að Noregsströndum. Við ísland er talið vera mikið magn á sjávarbotni. Trausti Eiríksson Síldarútvegsnefnd hefur sett hám- ark á söltun á hveija stöð, 300 tunnur á dag. Er það meðal annars gert vegna þess, að Svíar og Finnar vilja síður að síldin fyrir þá sé öll söltuð á svipuðum eða sama tíma og ennfremur munu söltunarstöðv- ar eiga í vandræðum með meiri dagsöltun vegna fólkseklu. 22 söltunarstöðvar á 12 stöðum höfðu byijað söltun á þriðjudag og sagði við fréttaritara Morgunblaðs- ins á Fish Expo sýningunni í Boston, að þetta væri stærsti ónytj- aði fiskistofn í Norður-Atlantshafi. Hann sagðist ekki hafa mætt mikl- um skilningi hjá íslenskum stjóm- völdum vegna þessa máls. Gert er ráð fyrir að kúfískverk- smiðjan á Suðureyri verki um 30-35 tonn á dag. Traust h.f. byggir verk- smiðjuna, en þar verður kúfískskel- in stærðarflokkuð, þrýstisoðin við yfir 100 gráðu hita, innvolsið skilið frá og fryst í blokkir. Framleiðsla fyrstu tveggja áranna hefur verið seld til aðila í New Jersey í Banda- ríkjunum. Sigurlinni Sigurlinnason, sem unnið hefur að þessu máli á vegum Trausts hf. undanfarin fjögur ár, sagði að áhættuþættir í kúfískút- gerð væru þrír: Áð nóg veiðist, að nýting verði nægileg á Qárfesting- unni og að markaðsfærsia takist. Hann kvað þá félaga bjartsýna að var söltun á þeim þá, sem hér seg- in Eskifjörður 6.904 tunnur, Fáskrúðsfjörður 4.472, Seyðisfjörð- ur 4.107, Vopnafjörður 437, Norðfjörður 831, Reyðarfjörður 631, StöðvarQörður 1.391, Breið- dalsvík 1.002, Djúpivogur 156, Homafjörður 1.617, Grindavík 153 og Keflavík 249. vel takist til á Suðureyri, enda séu frystigeymslur til að taka við aflan- um þegar tilbúnar í Bandaríkjunum. FALLINN er dómur i bæjarþingi Rcykjavíkur i máli Steinunnar Bjamadóttur gegn Samtökum um kvennaathvarf. Samkvæmt honum er Samtökum um kvenna- athvarf gert að greiða Steinunni 30.000 krónur vegna ólögmætr- ar, fyrirvaraiausrar uppsagnar hennar sem starfsmanns at- hvarfsins á haustdögum á síðasta ári. Ennfremur er samtökunum gert að greiða málskostnað Fáskrúðsfjörður: Síldar- saltendur bjartsýnir Fáskrúdsfirði. TVEIR bátar komu með síld til Fáskrúðsfjarðar á þríðjudags- morgun og hefur veríð saltað af kappi hér þessa vikuna. I viðtali við forstjóra Pólarsíldar, Berg Hallgrímsson, var ekki annað að heyra en hann væri frekar bjart- sýnn á að samið yrði við Sovétmenn um sfldarkaup. Pólarsfld gerir út tvo báta, Þorra og Guðmund Krist- inn og er verið að útbúa Þorra til sfldveiða núna. Hann hélt til veiða á miðvikudag, en Guðmundur Krist- inn er ekki á veiðum sem stendur. Önnur söltunarstöð er starfandi á Fáskrúðsfírði, Sólborg h/f. Til hennar komu á þriðjudag 46 lestir af vélskipinu Sólborgu SU og er það fyrsta sfldin sem söltuð er hjá þessarri stöð. Albert Rey ðarfj örður: Saltað á hverjum degi Reyðarfirði. FYRSTA síldin barst hingað til Reyðarfjarðar sunnudaginn 19. október til Verktaka hf. Var það Björg Jónsdóttir frá Húsavík, sem kom með 220 tunnur og einnig kom Sæljón SU með 150 tnnnur til Austursfldar sama dag. Aðrir höfðu ekki byijað söltun á miðvikudag. Núna er saltað á hveijum degi, Björg Jónsdóttir hefur komið þijá daga í röð og enn er saltað hjá Verktökum. Þá kom Gandí VE með á milli 500 og 600 tunnur til Aust- ursfldar á miðvikudag. Hingað er kominn ungur maður Gunnlaugur Ingvarsson, sem hefur tekið á leigu söltunarstöðina Kóp. Hjá honum hefur verið saltað í um 150 tunnur. Gréta stefnanda, 22.000 krónur. í málsskjölum kemur meðal ann- ars fram, að Steinunn Bjamadóttir hafí verið fastráðinn starfsmaður kvennaathvarfsins frá og með 1. október 1985 til eins árs. Vegna ágreinings hennar og meirihluta annarra aðstandenda athvarfsins um starfsemi þess, var henni síðan sagt upp fyrirvaralaust þann 5. sama mánaðar. Við ráðningu Stein- unnar var meðal annars óljóst hver launakjör væru, en þau miðuðust að miklu leyti við kjör hjá BSRB. Krafa Steinunnar var að henni yrðu greidd þriggja mánaða laun ásamt vöxtum, þar sem hún taldi sig eiga rétt á þriggja mánaða uppsagnar- fresti, auk málskostnaðar. Samtök um kvennaathvarf kröfðust sýknu, en til vara að þeim yrði aðeins gert að greiða stefnanda 30.947,25 krónur með vöxtum. Auk þess var krafízt að stefnandi greiddi samtök- unum málskostnað. í dómsniðurstöðu segir að upp- sögn ráðningarsamnings Steinunn- ar hafi verið ólögmæt. Ekki sé deilt um rétt hennar á skaðabótum held- ur ijárhæð þeirra. Þar sem kaup og Igör hafi verið óráðin er ráðning- arsamningur var gerður, sé ekki hægt að fallast á kröfu stefnanda um þriggja mánaða uppsagnarfrest og þyki því hæfilegar skaðabætur verða 30.000 krónur auk vaxta. Sækjandi í málinu var Viðar Már Matthíasson, hdl, en veijandi Guðný Höskuldsdóttir, hdl. Notkun bílbelta eykst: Konur samviskusamari en karlar Þær eru einnig hlynntari sektarákvæðum varðandi bílbeltanotkun í KÖNNUN sem Hagvangur hf. hefur gert kemur fram að kon- ur nota bílbelti í ríkari mæli en karlar, eða tæp 56% á móti rúmum 41% hjá körlum. í heild virðist tæpur helmingur öku- manna, eða 48,3% nota bílbeltin að jafnaði, en fyrir tveimur árum notuðu rúm 40% beltin. Könnunin var gerð á tímabilinu 26. september til 4. október sl. og var úrtakið 1000 manns um alit land. Svör fengust hjá tæpum 80% af brúttóúrtaki. Aldurskipt- ing þátttakenda og skipting milli karla og kvenna samsvaraði heild- arskiptingu íslendinga á aldrinum 18-67 ára fyrir landið í heild. Þegar spurt var um bamabflstól eða annan öryggisbúnað fyrir bamið í bflnum kom í ljós að af þeim sem aka með böm í bflnum að staðaldri nota 78% stóla eða annan búnað. Konur gáfu jákvæð- ari svör við þessari spumingu en karlar, því 37.5% kvenna sagði að þær notuðu bamabflstólana fyrir böm sín, en 30.2% karla gáfu sama svar. Þriðji liður könnunarinnar var um það hvort fólk teldi rétt að beita sektarákvæðum varðandi notkun á bflbeltum. Helmingur þátttakenda taldi svo vera og vom konur þar í meirihluta, eða 57% á móti 47% karla. Töluverður munur er á svömm eftir aldri þátttakenda og vom 45% fólks yfir fimmtugu hlynnt sektar- ákvæðum á meðan 53-55% vom því fylgjandi í yngri aldurshópun- um. Þegar niðurstöður þessar em bomar saman við niðurstöður könnunar frá aprfl 1984 kemur fram fylgisaukning við beitingu sektarákvæða. Hlutfallið hefur aukist úr 39,5% upp í 52% á þess- um tveimur ámm. Loks var að því spurt hvaða atriði fólk teldi helst stuðla að umferðaröiyggi. Þar kom í Ijós að konur töldu það vera aukna bflbeltanotkun og lægri hámarks- hraða, en karlar neftidu oftar aukna löggæslu, áróður í fjölmiðl- um og fræðslu í skólum. Bæði kjmin lögðu svipaða áherslu á nauðsyn þess að virða umferðar- reglur betur en gert er. Kúfiskveiði hefst á næsta ári Frá Jóni Ásgeiri Sigurðssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Bandarikjunum Samtök um kvennaathvarf: Dæmd til sektar vegua uppsagnar starfsmanns

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.