Morgunblaðið - 23.10.1986, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1986
Jón Sigurðsson forsljóri Þjóðhags-
stofnunar:
Ihugar framboð
fyrir Alþýðuflokk-
inn í Reykjavík
JÓN Baldvin Hannibalsson form-
aður Alþýðuflokksins hefur farið
þess á leit við Jón Sigurðsson
forstjóra Þjóðhagsstofnunar að
hann gefi kost á sér á framboðs-
lista Alþýðuflokksins í Reykjavík
fyrir næstu alþingiskosningar.
Jón hefur ekki gert upp hug sinn
hvort hann verður við þessari
málaleitan flokksformannsins.
„Mér finnst rétt að kynna mér
leikreglumar áður en ég ákveð að
taka þátt í leik,“ sagði Jón Sigurðs-
son í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Aðspurður hvort ákvörðun hans
réðist af því hvort Alþýðuflokkurinn
ákvæði að hafa prófkjör, áður en
listinn verður ákveðinn, svaraði Jón:
„Akvörðun mín ræðst meðal annars
af því hvemig Alþýðuflokksmenn í
Reykjavík hugsa sér að velja menn
á lista og hvaða aðférðum þeir ætla
að beita. En auðvitað hef ég einnig
áhuga á því hvaða önnur nöfn koma
þama fram. Þetta met ég allt í
samhengi."
Jón var spurður hvort hann væri
ekki reiðubúinn til þess að taka
þátt í prófkjöri: „Það er vel hugsan-
legt að ég sé tilbúinn til þess að
taka þátt í prófkjöri. Ef ég ákveð
að sækjast eftir sæti á framboðs-
lista Alþýðuflokksins, þá mun ég
að sjálfsögðu fylgja þeim reglum
sem flokkurinn hefur til þess að
velja menn á listann."
... Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
þaki nýja Fjölbrautaskólans.
Starfsmenn Giuggasmiðjunnar við glerísetningu
á
Fj ölbrautaskóli Suðurlands:
Gler í einn stærsta glugga landsins
Selfossi.
I góðviðrinu sl þriðjudag hófust
starfsmenn Gluggasmiðjunnar í
Reykjavík handa við að gleija
suðurhlið þaksins á Fjölbrauta-
skóla Suðurlands sem myndar
550 fermetra gluga á þessum
fyrri áfanga byggingarinnar en
i fullri stærð verður glugginn
1100 fermetrar. Óhætt er að full-
yrða að þetta sé einn stærsti
gluggi landsins.
Glugginn samanstendur af 142
rúðum sem eru 142 x 314 sm og
glerþykktin er 18 mm og þykkt
hverrar rúðu 3,1 sm. Að utanverðu
er í rúðunum hert gler og að innan
öryggisgler með filmu.
Gluggasmiðjan er verktaki að
glerísetningunni en Sigfús Kristins-
son sá um að koma aðalburðarvirki
gluggans fyrir. Haldist veðurblíða
undanfarinna daga má gera ráð
fyrir að það taki 3 daga að gleija
þakið og síðan viku að ganga end-
anlega frá glerinu.
íbúar á Selfossi og á Suðurlandi
öllu fylgjast grannt með gangi
byggingarinnar og vonast allir sem
hlut eiga að máli að það takist að
heija kennslu í hluta nýbyggingar-
innar eftir áramótin. Nokkrar tafír
hafa orðið á verkinu en upphaflegar
áætlanir gerðu ráð fyrir að því lyki
1. sept. sl.
Sig. Jóns.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hódegi f gær: Á Grænlandshafi er minnkandi lægðar-
drag, en 975 millibara djúp víðáttumikil lægð milli Færeyja og
Noregs á leið norðnorðaustur.
SPÁ: Fremur hæg norðaustan- og norðanátt verður ríkjandi á
landinu. Él verða á norðurlandi og norðanverðu austurlandi en bjart-
viðri á suðausturlandi og sunnanverðum austfjörðum. Hiti á bilinu
-4 til 2 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Hæg norðaustanátt og áfram
kalt í veðri. Víða él við ströndina en þurrt og bjart í innsveitum.
TÁKN:
Heiðskírt
'É5 Léttskýjað
■á Hálfskýjað
A
"lllÍl Sl^*aö
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-|Q Hrtastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, > Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hhl veður
Akureyri -1 léttskýjað
Reykjavík 1 snjóél
Bergen 3 skúr
Holainkl 5 skur
Jan Mayen ' 4 skýjað
Kaupmannah. 9 skýjað
Narasarssuaq -9 léttskýjað
Nuuk -8 léttskýjað
Osló 4 skýjað
Stokkhólmur S rignlng
Þórshðfn 6 léttskýjað
Algarve 23 léttskýjað
Amstordam 11 skúr
Aþena 23 skýjað
Barcelona 21 mistur
Barifn 12 alskýjað
Chicago 10 mlstur
Glasgow B skúr
Feneyjar 17 þokumóða
Frankfurt 16 rlgnlng
Hamborg 11 skýjað
LasPalmas 26 léttskýjað
London 13 rigning
LosAngeles 16 skýjað
Lúxemborg 15 rignlng
Madrfd 19 mlstur
Malaga 25 helðskfrt
Mallorca 24 léttskýjað
Mlami 19 léttskýjað
Montreal 6 þoka
Nice 22 helðskfrt
NewYork 11 þokumóða
Paris 16 rignlng
Róm 23 léttskýjað
Vfn 14 skýjað
Washlngton 11 mistur
Wlnnlpeg 6 helðsklrt
Atak í umferðinni:
Lögregluþjónar í
leyni við gatnamót
LÖGREGLAN um állt land ætlar
á næstu dögum að efna til sérs-
taks átaks i umferðinni í samráði
við Umferðarráð og dómsmála-
ráðuneytið. Átakinu er ætlað að
auka virðingu ökumanna fyrir
umferðarljósum, stöðvunar-
skyldu og stefnuljósanotkun, en
ofangreindir aðilar telja að mjög
skorti á virðingu fyrir umferðar-
reglum sem að þessu lúta.
I fréttabréfí frá Umferðarráði er
tekið þannig til orða hvað þetta
varðan „Stöðvunarskyldu er ekki
komið á nema aðstæður í umferð-
inni kre§ist þess að ökumenn nemi
skilyrðislaust staðar. Brot gegn
þessu ákvæði er því stórháskalegt
bæði fyrir þann sem það fremur
og fyrir þá sem á vegi hans verða.
Sama á við um akstur mót rauðu
ljósi. Slíkt háttalag sæmir ekki
hugsandi mönnum og er hrein van-
virða við samferðamenn. Ökumenn
sem telja sig vera að gefa einhverj-
um stórgjafír þótt þeir „gefí“
stefnuljós ættu að spyija sjálfa sig
hvort þeir eru yfirleitt hæfír til þess
að stjóma bifreið."
Til þess að tryggja það að öku-
menn fari varlega við gatnamót
ætla lögreglumenn að láta lítið á
sér bera, vera óeinkennisklæddir
og á ómerktum bifreiðum. „Þetta
er óyndisúrræði, en nauðsynlegt til
að góma þá sem brjóta reglur. Það
vill nefnilega vera svo að menn fara
eftir reglum á meðan þeir sjá lög-
reglu nálægt en bijóta reglumar
um leið og þeir eru komnir úr aug-
sýn“, sagði Óli H. Þórðarson,
framkvæmdastjóri Umferðarráðs á
fundi með blaðamönnum í gær.
„Þeir sem fara yfir á rauðu, virða
ekki stöðvunarskyldu og gefa ekki
stefnuljós verða hvergi óhultir, en
samferðamenn þeirra í umferðinni
verða að sjálfsögðu öruggari ef tek-
ið er á brotum sem þessum."
Alfræðibók
o g gagnabanki
BÓKAFORLAGIÐ Svart á hvítu
hefur hafist handa við_ gerð
islenskrar alfræðibókar. Áætlað
er að verkið verði gefið út í
tveimur bindum. Fjöldi uppfletti-
orða verður um 50.000 orð.
Hér er um að ræða almenna al-
fræðibók, en sérstök áhersla verður
lögð á upplýsingar um ísland og
íslendinga. Fjöldi mynda mun prýða
bókina.
Hér er á ferðinni stórt og mikið
verkefni, raunar hið stærsta sem
forlagið hefur tekist á við, undir-
búningur hefur staðið um langt
skeið og fjöldi sérfræðinga mun
koma við sögu. Bók sem þessa hef-
ur lengi vantað hér á landi og þykir
sjálfsögð í öllum menningarlöndum,
segir í frétt frá bókaforlaginu Svart
á hvítu.
í tengslum við gerð bókarinnar
verður settur á stofn gagnabanki
sem einstökum tölvunotendum
gefst kostur á að tengjast. í gangi
eru viðræður við menntamálaráðu-
neytið um möguleika á samvinnu
fyrirtækisins og ráðuneytisins um
þetta verkefni með þarfír skólakerf-
isins í huga.
Ráðgert er að íslenska alfræði-
bókin komi á markað fyrir jólin
1987.
Fijálst verð á síld
og loðnu til bræðslu
YFIRNEFND verðlagsráðs sjá-
varútvegsins breytti í gær fyrri
ákvörðun ráðsins um að gefa
loðnuverð ekki frjálst eftir 28.
október næstkomandi. Fulltrúar
Sfldarverksmiðja ríkisins höfðu
í ráðinu lagzt gegn fijálsu verði
og var ákvörðun um verð því
vísað til yfimefndar.
Yfímefnd óskaði síðan eftir því
að fyrri ákvörðun yrði breytt og var
það samþykkt. Loðnuverð verður
því fijálst til 31. desember með
sömu skilmálum og áður. Þá var
ennfremur samþykkt í yfímefndinni
að gefa verðlagningu á sfld til
bræðslu frjálsa á núverandi vertíð.