Morgunblaðið - 23.10.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1986
13
Margrét Guðnadóttir, prófessor i sýklafrœði.
ná til fólksins þar og hjá okkur.
Það ætti þó að vera hægt að gera
svipaða hluti t.d. á Norðurlöndun-
um.
Það er einnig mikið öryggi í
þeirri spjaldskrá sem við höfum
komið okkur upp um þessar kon-
ur, og iðulega er flett upp í henni
mörgum sinnum á dag ef einhver
vandamál koma upp varðandi
meðgöngu."
Margrét sagðist hafa lent í því
að kynna þetta verkefni í Banda-
ríkjunum þar sem bomar voru
saman ólíkar aðferðir til að koma
í veg fyrir skaða af völdum rauðra
hunda, og þá hefði komið í ljós
að sú aðferð sem notuð hefur ver-
ið hér á landi er ódýrasta aðferðin,
þar sem þijár mælingar kosta það
sama og einn skammtur af bólu-
efni, en víða eru allir bólusettir
án þess að mótefnamæling hafí
farið fram. Kostnaður við verkefn-
ið í heiid sagði hún vera svipaðan
og einn fjölfatlaður einstaklingur,
sem nær 60 ára aldri, kostar sam-
félagið.
Rannsóknarstofan hefur búið
við þröngan húsakost frá því hún
tók til starfa, en þá var litið á
núverandi húsnæði sem bráða-
birgðahúsnæði.
„Það er verið að vinna í hinu
nýja húsnæði í Ármúlanum sem
Ragnhildur Helgadóttir heilbrigð-
isráðherra stóð fyrir kaupum á,
og ef allt gegnur að óskum flytjum
við inn næsta vor.“
« ' vr
■; ■
Dýpkunarframkvœmdir í Olafsfjarðarhöfn. Morgunbiaöið/Svavar Magnússon.
Dýpkunarskipið Hákur komið til Ólafsfjarðar:
Á að dæla 18.000 rúm-
metrum af sandi úr höfninni
VARÐSKIP dró dýpkunarskipið
Hák nýverið til Ólafsfjarðar þar
sem á döfinni er að dýpka höfn-
ina.
“Það er ekki endanlega ákveðið
hvenær vérkið hefst. Annað hvort
verður það fljótlega eða ekki fyrr
en eftir miðjan vetur og þá færi
Hákur í slipp á Akureyri f millitfð-
Stj órnunarfélag íslands:
Fullbókað á námskeið,
sem ætlað er konum
FULLBÓKAÐ er nú þegar á
námskeið Stjórnunarfélags ís-
lands „Markmiðasetning, þjálfun
í ákveðni - lykillinn að árang-
ursriku starfi“. Námskeiðið
verður haldið nk. föstudag og
laugardag, 24. og 25. október,
að Hótel Loftleiðum frá 9.00 til
17.00 báða dagana.
Námskeiðið er ætlað konum og eru
30 konur bókaðar á námskeiðið,
bæði stjómendur fyrirtælqa og al-
mennir starfsmenn, bæði úr einka-
geiranum og stofnunum. Leiðbein-
andi verður Anne McQuade,
framkvæmdastjóri „Management
Action Programme" í London, en
það fyrirtæki sérhæfír sig í þjálfun
stjómenda víða um heim. Nám-
skeiðið er ætlað að stuðla að
framgangi kvenna í atvinnulífínu.
Að sögn Eggerts Kristjánssonar,
skrifstofustjóra Stjómunarfélags-
ins, er enn tekið við nöfnum þeirra
sem áhuga hafa á námskeiðinu ef
einhveijir hinna skyldu hætta við.
Jafnframt er farið að ræða um að
halda annað slíkt námskeið þar sem
þátttakan á þetta fyrsta námskeið
varð svo góð.
Þessir krakkar: Emma M. Swift, Anna S. Pálsdóttir, Hildur Þóris-
dóttir og ólafur Pálsson efndu til hlutaveltu fyrir nokkru tdl ágóða
fyrir Hjálparsjóð Rauða kross íslands. Þau söfnuðu rúmlega 600
krónum.
inni," sagði Óskar Sigurbjömsson,
formaður hafnamefndar Ólafs-
fjarðar, í samtali við Morgunblaðið.
“Ég vona að hægt verði að hefjast
handa nú mjög fljótlega þvi við
getum ekki beðið lengur. Það sem
stendur á er að við höfum ekki feng-
ið svar frá fjárveitingavaldinu."
Að sögn Óskars berst mikill
sandur á hveiju ári inn I höfnina
og þarf að dæla úr henni með reglu-
legu millibili. Siðast var það gert
árið 1982 og hafði þá skapast hálf-
gert neyðarástand vegna þess hve
mikið hafði safnast fyrir i henni.
“1984 átti að dæia úr höfninni aft-
ur en því var frestað þvi ástandið
var ekki eins slæmt og áður. Pen-
ingunum var þá varið i að koma
upp nýrri hafnarvog og vogarhúsi."
Óskar sagði ákjósanlegt að vinna
að dýpkun hafnarinnar nú þar sem
mjög lítil umferð yrði um hana i
haust. Aðeins einn togaranna væri
á veiðum en tveir í viðgeið. Reiknað
er með að Hákur dæli 18 þúsund
rúmmetmm af sandi úr höfninni
nú og er það verkefni sem kostar
8 milljónir króna.
ORÐ/MYND
Mdn menniun - Betrí staikiöguleikai
Nýja mjólk-
urstöðin vígð
HIN NÝJA mjólkurstöð Mjólk-
ursamsölunnar í Reykjavík á
Bitruhálsi verður vígð við hátíð-
lega athöfn laugardaginn 25.
október.
Athöfnin hefst klukkan 15.30
með því að Guðlaugur Björgvinsson
forstjóri Mjólkursamsölunnar
ávarpar gesti og lýsir aðdraganda
byggingarinnar. Síðan mun Pétur
Sigurðsson framkvæmdastjóri hjá
samsölunni lýsa starfseminni og að
því loknu mun Jón Helgason land-
búnaðarráðherra leggja homstein
bygginganna. Til athafnarinnar
verður boðið nokkmm Qölda gesta
og gefst þeim tækifæri til að ganga
um fyrirtækið og skoða húsin.
Mjólkursamsalan hefur látið gera
myndband um fyrirtækið af þessu
tilefni og verður það sýnt á laugar-
daginn. Þá verður dreift kynning-
arbæklingi sem einnig var útbúinn
í tilefni vigslunnar.
Alþjóðleg próf T ensku
ALMENN ENSKA ——
Pitman English as a foreign language — intermediate. Kennt er fjóra daga í viku,
tvœr klukkustundir í senn í fjórtán vikur. Pitmanspróf er tekið í lok námskeiösins.
Áhersla lögö á: málfrœöi, aukinn orðaforöa, skrifa eftir upplestri, ritgeröir, lýsingar
og bréf.
VERSLUNARENSKA 1I—
Pitman English for Business Communications — elemantary. Kennt er fjóra daga
í viku, tvœr klukkustundir í senn í fjórtán vikur. Pitmanspróf er tekiö í lok námskeiös-
ins. Áhersla lögö á: samin verslunarbréf eftir ítarlegum mlnnisatriöum varöandi
kaup og sölu, kvartanir, fyrirspurnir afl.; persónuleg bréf fyrir vinnuveitenda varö-
andi meömœli, hamingjuóskir o.fl.; móttaka og sending skilaboöa gegnum síma
og telex.
—VERSLUNARENSKA II i^——
Pitman English for Business communications — intermediate. Kennt er fjóra
daga í viku, tvœr klukkustundir í senn í fjórtán vikur. Próf er tekiö 1 lok námskeiösins.
Aöalatriöi prófsins eru þau sömu og í verslunarensku I en aukinheldur samin
skýrsla eftir sundurlausum upplýsingum.
27. okt. 8ó
Námslíml: 27. október 1986 tll 27. febrúar 1987. Kennt
f|óra daga vlkunnar og hœgt aö velja á mllll
mismunandl tíma: 13—15 og 16—18.
Þú svalar lestrarþorf dagsms
ásíðum Moggans!____________y
ítíiian
STOFNUNIN
UPPLÝSINGAR OG INNRITUN í SÍMA 10004/21655
Mím
lÁNANAUSTUM 15