Morgunblaðið - 23.10.1986, Side 48

Morgunblaðið - 23.10.1986, Side 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1986 fclk í fréttum Heimsmet í öfugsnúningi Þjóðverjinn Rene Liissi, setti á dögunum nýtt heimsmet, en hann lá f þessari stellingu í 30 mínútur og 22 sekúndur. Ekki er getið líðan hans ?að metinu settu, en varla hefur vininum liðið vel í bakinu. ELTON JOHN LÉTTUR ÁFÆTI Rokkstjaman Elton John kom um daginn saklausum gestum Sheraton-hótelsins á óvart þegar hann hljóp upp á þrítugustu hæð hótelsins. „Lyftan var biluð og ég þurfti að komast inn á herbergi", var eina svarið, sem hægt var að toga upp úr honum. Einn vinur hans sagði: „Gamli maðurinn er greinilega í mun betra ásigkomu- lagi, en hann lítur út fyrir að vera“. Hlaupagarpurinn ótrúlegi. ___. C/liff 46 ára Dorian Gray rokksins, Cliff Richard, hélt nýverið upp á 46 ára afmæli sitt f Waterloo-næturklúbbnum í Lundúnaborg. Þangað bauð Cliff u.þ.b. 50 leikurum og leikhúsfólki, sem þátt tók í uppfærslu söngleikjarins Time, en Cliff er aðalnúmerið í honum. Cliff, sem rígheldur í æskuna sem Pétur Pan væri, hafði einnig ástæðu til þess að fagna velgengni Time, en hann hefur nú gengið fyrir fullu húsi í hálft ár. hálfan mánuð mun hann stýra landinu í fyrsta sinni, en þá munu foreldrar hans fara til Lundúna að sinna jólainnkaupum. í janúar fara hjónin í opinbera heimsókn til Eyja- álfu og þarf Friðrik þá aftur að taka við stjómartaumunum. í Hovelte er Friðrik í skála með tíu öðrum og sefur hann í efstu koju. Einn skálafélaga Friðriks, Bjame Henrik Hensrik gat ekki beðið eftir að komast í síma til þess að segja foreldrum sínum tfðindin. „Prinsinn er sko góður gæi, ég held að við tíu eigum eftir að skemmta okkur konunglega". Carsten Wer- berg-Maller frá Dokkedal, sem er Trékyllisvík þeirra Dana, sagði hins vegan „Ja, nú ligg ég sko laglega í því lasm, því ég lofaði litlu systur minni að ég skyldi kynna þau prins- inn, ef ég svæfi með honum í skála". Prínsinn þurfti að burðast með 30 kg pinkilinn, sem hver annar óbreyttur. Fyrir skömmu hófst her- mennskuferill Friðriks, krón- prins Danmerkur. Friðrik mun hljóta þjálfun í lífverði drottningar, en þjálfun hans fer fram í Hovelte á Norður-Sjálandi. Að undanfömu hafa skyldur Friðriks við land og þjóð aukist verulega, en eftir u.þ.b einn og Bruce Springsteen Michael Jackson Ríkir rokkarar Rokkstjömur hafa yfírleitt ekki hátt um auðlegð sína, enda fer þeim yfírleitt betur að syngja um fátækt og óréttlæti heimsins, þegar ástarsöngvunum slepp- ir. Ekki verður þó sagt að þær séu á flæðiskeri staddar. > Bruce Springsteen velti t.a.m. tæpum fímm milljörðum íslenskra króna á síðasta hljómleikaferðalagi sínu um heimsbyggðina. Paul McCartney er einnig harðduglegur við að þéna á tónlist sinni. Undanfarin sex ár hefur hann haft meira en tvo og hálfan milljarð íslenskra króna í hreinar tekjur. Ynni Paul eins og flest fólk um 225 daga á ári og átta tíma á dag, væri tímakaupið dágott, eða rúmar 200 þúsund krónur! Ekki er Michael Jackson fátækari, en hann fékk ríflega þijá milljarð í hreinar tekjur af Pieto/y-hljómleikaferðalaginu árið 1984. Paul McCartney Fnðrík krónpríns í hvfldarstöðu. DANMORK Friðrik krónprins kvaddur 1 herinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.