Morgunblaðið - 23.01.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1987
Farmenn boðaðir
til fundar í dag
RÍKISSÁTTASEMJARI ákvað í
gær að boða til fundar með und-
irmönnum á kaupskipum og
talsmönnum kaupskipaútgerðar-
innar í dag klukkan 14 til þess
að kanna hvort grundvöllur væri
til viðræðna, en hvorugur aðila
hafði óskað eftir fundi.
Sjómenn í verkfalli komu um
tíma í gærmorgun í veg fyrir að
annað leiguskip skipadeildar Sam-
bandsins, sem er í áætlunarsigling-
um, gæti lagst að í Sundahöfn, með
því að koma í veg fyrir að skipið
yrði bundið við bryggju. Létu þeir
ekki af aðgerðum fyrr en Guðmund-
ur Hallvarðsson, formaður Sjó-
Norðurlands-
kjördæmi eystra:
Listi Stefáns
fær ekki BB
KJÖRDÆMISRÁÐ Framsóknar-
flokksins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra hefur hafnað beiðni
framboðsflokks Stefán Valgeirs-
sonar um að fá að auðkenna
frar.iboðslistann með bókstöfun-
um BB.
Þessi ákvörðun var tekin á fundi
kjördæmisráðsins á Akureyri í gær.
Standi sú ákvörðun telst framboð
Stefáns ekki til Framsóknarflokks-
ins og verður að velja listanum
annan bókstaf. Ef listi Stefáns og
hans manna kemur ekki að manni
munu atkvæðin ekki nýtast Fram-
sóknarflokknum eins og gerst hefði,
ef hann hefði fengið stafina BB.
mannafélags Reykjavíkur, kom á
staðinn og fékk þá til þess. Guð-
mundur sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að þessar aðgerðir hefðu
ekki verið á vegum Sjómannafé-
lagsins, heldur hefðu sjómennirnir
ákveðið þær sjálfir. „Þeir vilja
minna á sig. Eg get ekki tekið
ábyrgð á því að slíkar aðgerðir end-
urtaki sig ekki. Það sér ekki fyrir
endan á þessu og ég mun ekki
blanda mér frekar í slíkar aðgerðir
ef til þeirra kemur," sagði Guð-
mundur.
í áiyktun frá Félagi íslenskra
iðnrekenda vegna verkfalls undir-
manna, segir að verkfallið hafi
þegar haft alvarleg áhrif á íslenskt
atvinnulíf. Þar sem útflutningur frá
landinu hafi stöðvast sé öllum við-
skiptasamböndum íslenskra fyrir-
tækja erlendis stefnt í tvísýnu.
Þetta eigi við um allan útflutning,
en verkfallið hafi einnig haft í för
með sér röskun á innflutningi hrá-
efna og annara aðfanga fyrir
innlenda framleiðslu og valdi það
fyrirtækjunum auknum kostnaði og
veiki samkeppnisaðstöðuna gagn-
vart erlendum keppinautum. Síðan
segir: „Það er algjörlega óþolandi
að verkfall farmanna dragist á
langinn vegna hringlandaháttar
samninganefnda sjómanna og inn-
byrðis ágreinings í þeirra hópi eins
og nú virðist komið.
Stjóm Félags íslenskra iðnrek-
enda skorar á samninganefnd
sjómanna að hefja nú þegar samn-
ingaviðræður að nýju þannig að
lausn fáist á þessari deilu sem allra
fyrst. Að öðrum kosti er ljóst að
verkfallið mun hafa í fór með sér
verulegt og óbætanlegt tjón fyrir
íslenskt atvinnulíf".
Fræðslusljóramálið á Alþingi:
Sturla fær greidd
laun í þrjá mánuði
— og hugsanlega gjafsókn komi til málaferla
SVERRIR Hermannsson,
menntamálaráðherra, greindi frá
því á Alþingi í gær, að hann hefði
óskað eftir því, að Sturla Krist-
jánsson, hinn brottvikni fræðslu-
stjóri, fengi greidd þriggja
mánaða laun. Þá kvaðst ráðherra
tilbúinn að beita sér fyrir því, að
hann fengi gjafsókn, ef hann
stefndi sér vegna brottvikningar-
innar. Hvatti hann til þess, að sú
leið yrði farin, því hann kvaðst
vilja hreinsa sig af áburði um
valdníðslu og lögbrot.
Snót og
vinnuveitendur;
Næsti fund-
ur í Vest-
mannaeyjum
VIÐRÆÐUM verkakvennafé-
lagsins Snótar í Vestmannaeyj-
um og vinnuveitenda hefur
verið frestað til mánudags, en
þá hefur verið boðaður fundur
í Eyjum. Aðilar hittust í gær
hjá ríkissáttasemjara og var þá
þessi ákvörðun tekin.
Snót felldi samninga ASÍ og
VSÍ, sem gerðir voru í desember,
og hafa viðræður staðið yfir með
hléum frá því þá. Helsta krafa
Snótarkvenna er að fá inn í samn-
ingana ákvæði um starfsaldurs-
hækkanir.
Þá hefur verið ákveðinn fundur
Sleipnis, félags hópferða- og lang-
ferðabflstjóra, og viðsemjenda
þeirra hjá ríkissáttasemjara í dag
og hefst hann klukkan 16.
Framhaldsumræðumar um
fræðslustjóramálið stóðu í rúmar
fjórar klukkustundir og lauk þeim
á áttunda tímanum í gærkvöldi.
Engin tillaga um vantraust á ráð-
herra kom fram og enginn þingmað-
ur lýsti stuðningi við tillögu
fræðsluráðs Norðurlandsumdæmis
eystra að Alþingi skipaði sérstaka
rannsóknamefnd vegna málsins.
Þingmenn stjómarandstöðunnar
deildu enn á aðferð ráðherra við
brottvikninguna og hvöttu hann til
að eiga frumkvæði að því að ná
sáttum. Stefán Valgeirsson skoraði
á ráðherra að skipa sjálfur rann-
sóknamefnd.
Við lok umræðnanna lýsti Svavar
Gestsson því yflr, að óhjákvæmilegt
væri að taka fræðslustjóramálið upp
á ný á Alþingi. Ekki væri hægt að
láta hér staðar numið.
Sjá ýtarlega frásögn af umræð-
unum á Alþingi á bls. 28-29.
FBM og FÍP
hafa samþykkt
FUNDIR í Félagi bókagerðar-
manna og Félagi íslenzka prent-
iðnaðarins samþykktu í gær
nýgerðan kjarasamning milli að-
ilanna.
í Félagi bókagerðarmanna voru
samningarnir samþykktir með 146
atkvæðum gegn 40. Fimm seðlar
voru auðir og tveir ógildir.
Samningamir eru á svipuðum
nótum og samningur ASÍ og VSÍ
frá því í desember og miða að því
að einfalda taxtakerfið og færa
kauptaxta nær raunverulega
greiddu kaupi að sögn Svans Jó-
hannessonar, varaformanns FBM.
Samningurinn gildir til næstu ára-
mótaogerafturvirkurti! l.janúar.
Varðskipið Óðinn flutti brak úr flugvélinni til hafnar á ísafirði í fyrrinótt. Morgunbiaaið/Gfsii Úifarsson.
Orsök flugslyssins ókunn;
Getum að því leitt að
vængur hafi rekist í sjó
LEIT var haldið áfram i gær að flaki flugvélarinnar TF ORN
sem fórst á ísafjarðardjúpi á miðvikudagskvöldið, en enginn
árangur varð af þeirri leit. Rannsóknarmenn frá Flugmálstjóm
og flugslysanefnd fóm til Akureyrar í gær en þaðan var vélin
að koma úr skoðun og viðhaldi. Orsakir slyssins eru ókunnar en
hugsanlegt er að annar vængur vélarinnar hafi rekist í hafflöt-
inn, en hálfur vængur er það eina sem fundist hefur af vélinni.
Flugmaður vélarinnar var einn í henni. Hann hét Stefán Páll
Stefánsson, fæddur 1948, til heimilis að Brautarholti 14, ísafirði.
Hann lætur eftir sig eiginkonu og þijú börn, á aldrinum 6 til 19
ára.
Pétur Einarsson flugmálstjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið
að ekki væri hægt að draga álykt-
anir um orsakir slyssins fyrr en
búið væri að draga saman öll
hugsanleg rannsóknargögn. Flug-
slys gætu verið óhemju flókin í
rannsókn og hveijar nýjar upplýs-
ingar gætu gerbreytt myndinni.
Þó hefði mönnum fyrst komið í
hug að vængur vélarinnar hefði
rekist í sjóinn en engar öruggar
sannanir væru fyrir því og þó svo
væri, sé ekki hægt að geta til um
ástæðuna.
Karl Eiríksson starfsmaður
flugslysanefndar og fleiri rann-
sóknarmenn fóru til Akureyrar í
gær en þar hafði flugvélin verið
til viðgerðar og viðhalds hjá Flug-
félagi Norðurlands undanfama
daga. Umboðsmenn Flugmála-
stjómar á ísafirði leituðu í gær
að braki úr flakinu, og að flakinu
sjálfu, með hjálp Landhelgis-
gæslu, björgunarsveita og lög-
reglu.
Hörður Guðmundsson, flug-
maður og aðaleigandi flugfélags-
ins Ernir, sagði samtali við
Morgunblaðið í gær að slysið
væri mikið áfall fyrir félagið. „Það
versta er auðvitað að missa góðan
félaga og frábæran starfskraft
með þessum hætti. Hvað varðar
áhrifin á rekstur félagsins er ljóst
að félagið þolir ekki svona áföll
hvað eftir annað. Þetta er önnur
vélin sem við missum á einu ári
og ekkert félag þolir slíka blóð-
töku til lengdar," sagði Hörður.
Aðspurður um hvort hann teldi
Stefán Páll Stefánsson.
ástæðu til að herða öryggisreglur
varðandi flug á Vestfjörðum í ljósi
þessara atburða sagði Hörður að
strangar öryggisreglur giltu um
flug á Vestfjörðum sem og annars
staðar á landinu. Hann sagði enn-
fremur að ekkert benti til að rekja
mætti orsök þessa slyss til ófull-
nægjandi öryggisreglna.
„Afkoma innlendrar dagskrár
deildar stórsignr fyrir mig“
- segir Hrafn Gunnlaugsson vegna
ummæla Eiðs Guðnasonar á Alþingi
„VIÐ uppgjör nú um áramótin
kemur i ljós að ég hef farið 3,5
milljónir fram úr áætlun og miðað
við hvað innlend dagskrárgerð
hefur stóraukist lít ég á það sem
stórsigur fyrir mig,“ sagði Hrafn
Gunnlaugsson, deildarstjóri inn-
lendrar dagskrárgerðar hjá
sjónvarpinu, er hann var inntur
álits á ummælum Eiðs Guðnasonar
alþingismanns við umræður um
Sturlumálið á Alþingi i gær. Þar
gerði Eiður því skóna, að ef reka
ætti Sturlu Kristjánsson úr em-
bætti fræðslustjóra, mætti fara
eins að með fleiri opinbera starf-
menn og tilgreindi þar sérstak-
lega deildarstjóra innlendrar
dagskrárgerðar hjá sjónvarpinu.
„Það vill svo til, að í dag 22. jan-
úar, var ég að fá uppgjör síðasta árs
frá fjármáladeild," sagði Hrafn
Gunnlaugsson. „Þar kemur í ljós að
mér hafði verið áætlaðar 56,7 millj-
ónir til að eyða á árinu. Ef þetta er
skoðað bókhaldslega var ég um ára-
mót búinn að eyða 66.074.000
krónum. Mismunurinn þama er
9.374.000 krónur. Inn í þetta dæmi
verður að taka að af þessum
9.374.000 er greitt fyrirfram fyrir
efni, sem er þá inneign, að upphæð
5.520.000 krónum. Mismunurinn er
þá 4.854.000. Ég á útistandandi
skuld vegna leiðtogafundarins upp á
1,3 milljónir sem dragast þá frá þess-
um 4,8 milljónum þannig að raun-
veruleg umframeyðsla er því
3.554.000. Þetta þýðir að innlend
dagskrárgerðardeild fer um 6% fram
úr áætlun. Samkvæmt þessu stendur
innlend dagskrárgerðardeild best
allra deilda sjónvarpsins um þessi
áramót og miðað við að innlent efni
hefur margfaldast á árinu þá er ég
geysilega stoltur yflr þessari niður-
stöðu og tel þetta mikinn og stóran
persónulegan sigur fyrir mig.
Út allt árið hefur verið rekinn sá
áróður í sorpritum, að ég væri að
bmðla og eyða. Nú veit maður hvað-
an sá rógur er kominn. Það er
fróðlegt fyrir menn að hugsa til þess,
að þessi maður, Eiður Guðnason, sem
fer með þennan róg hefur verið
nefndur menntamálaráðherraefni
Alþýðuflokksins. Ungt fólk og lista-
menn, sem ganga til kosninga í vor
geta þá vitað, hvers konar og hvem-
ig innrættan mann það er að hefja
til valda ef það kýs Alþýðuflokkinn.
Hver heilbrigður maður sem skoðar
þetta hann sér, að 6% um áramót
fram úr áætlun við innlenda dag-
skrárgerð, í þjóðfélagi sem við lifum
í, er stprsigur. Ég leit á það sem
mikinn sigur þegar ég skilaði lista-
hátíð af mér á núlli, en ég lít á þetta
sem ennþá stærri sigur. En það er
fróðlegt til þess að hugsa, að sá
maður sem fer með þennan róg,
hann situr sjálfur í útvarpsráði þann-
ig að það er með ólíkindum að hann
sé ekki að tala gegn betri vitund.
Það er einnig: athyglisvert að hugsa
til þess, að Eiður Guðnason er kom-
inn úr þeim flokki þar sem einu sinni
var eldhuginn Vilmundur Gylfason,
sem talaði um að þingmenn ættu
ekki að misnota aðstöðu sína með
setu í ráðum. Þetta er sá maður sem
þaulsetnastur hefur verið f útvarps-
ráði, hann hefur ofsótt nafna minn
Ingva Hrafn Jónsson allt árið en nú
virðast spjótin farin að beinast að
mér og ég hlakka til að takast á við
þennan rnann," sagði Hrafn Gunn-
laugsson.