Morgunblaðið - 23.01.1987, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.01.1987, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1987 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Hjúkrunarfræðingur — sölumaður Heildverslun í Reykjavík óskar eftir að ráða sölumann til starfa sem fyrst. Starfið felst í kynningu og sölu á vörum til heilbrigðisstofnana. Um er að ræða fjöl- breytt og líflegt heilsdagsstarf. Kröfur: Viðkomandi þarf að vera hjúkrunar- fræðingur með góða skipulagshæfileika, aðlaðandi framkomu og eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt. Umsóknum skal skilað á auglýsingadeild Mbl. fyrir 30. janúar merktum: „H — 7123“. Laus staða Njarðvíkurbær auglýsir hér með lausa til umsóknar stöðu íþrótta- og æskulýðsfull- trúa. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknir er greini frá menntun, persónuleg- um upplýsingum sem máli skipta og fyrri störfum sendist bæjarstjóranum í Njarðvík, Fitjum, 260 Njarðvík fyrir lok þessa mánaðar. Bæjarstjóri veitir allar nánari upplýsingar um starfið. Bæjarstjórinn í Njarðvík. Rafvirki óskast til framtíðarstarfa við uppsetningar og viðhald á lyftum. Upplýsingar gefur Júlíus Friðriksson rafvirkja- meistari í síma 33157. Vélstjóra og vélaverði vanta á mb Eyvind Vopna NS 70 og Lýting NS 250 sem gerðir eru út frá Vopnafirði. Upplýsingar í síma 97-3143 á daginn og síma 97-3231 á kvöldin. Starfsmaður óskast Óskum að ráða sem fyrst starfsmann á sníðaborð á saumastofu okkar að Höfða- bakka 9. Við leitum að mannmi sem er laginn og get- ur unnið skipulega. Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri (ekki í síma) mánudag og þriðjudag frá kl. 16.00-18.00. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá starfs- mannahaldi, Skeifunni 15. Umsóknum þarf að skila fyrir fimmtudaginn 29. janúar. HAGKAUP Skeifunni 15.— Starfsmannahald. Laus staða skógarvarðar Hjá Skógrækt ríkisins er laus til umsóknar staða skógarvarðar á Norðurlandi með að- setri að Vöglum í Fnjóskadal. Staðan veitist frá 1. mars 1987 og er menntun í skógtækni áskilin. Skógarverðinum er ætlað að hafa umsjón með eignum Skógræktar ríkisins á Norður- landi og stýra starfsemi hennar þar. Þar er m.a. um að ræða gróðrarstöðvarnar á Vögl- um í Fnjóskadal og að Laugabrekku í Skagafirði, svo og 15 skóglendi víðsvegar á Norðurlandi. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fyrir 20. febrúar nk. til landbúnaðarráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík. Landbúnaðarráðuneytið, 19. janúar 1987. Fiskvinna Óskum eftir fólki í allar deildir fiskvinnslu. Greitt eftir bónuskerfi. Húsnæði á staðnum. Upplýsingar í símum 98-2254 og 98-2255 (Viðar Elíasson, verkstjóri). Vinnsiustöðin hf., Vestmannaeyjum. Verkstjóri Hraðfrystihús Fáskrúðsfjarðar óskar eftir að ráða verkstjóra í sal. Ráðningartími er frá 1. mars nk. Húsnæði fyrir hendi. Skriflegar umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf ásamt fjölskyldustærð, sendist framkvæmdastjóra Gísla Jónatanssyni eða starfsmannastjóra Sambandsins er veita nánari upplýsingar. Hraðfrystihús Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðsfirði. Framkvæmdastjóri — eignaraðild Fyrirtæki í fataiðnaði óskar eftir meðeig- anda. Viðkomandi þarf að geta séð um daglegan rekstur, gert áætlanir og annast sölur. Æskilegt er að viðkomandi hafi mikla þekkingu á fataframleiðslu. Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Mbl. fyr- ir 1. febrúar merkt: „K — 5045“. Hjúkrunarfræðingar Sjúkrahúsið á Blönduósi óskar að ráða hjúkr- unarfræðinga frá 1. febrúar eða síðar. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í símum 95-4206 og 95-4528. Sjómenn Stýrimann og vélavörð vantar á netabát frá Grindavík. Upplýsingar í síma 91-23167. Stýrimaður óskast á m/b Albert Ólafsson KE 39. Upplýsingar í síma 92-1333 eða 92-2304. Lögfræðingur Lögfræðingur óskast til starfa sem fulltrúi á lögfræðiskrifstofu á höfuðborgarsvæðinu. Umsóknir skilist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „Lögfræðingur — 5431“. | raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar vinnuvélar Traktortil sölu Massey Ferguson 165 árgerð 1976. Ekinn 3000 vinnustundir. Ennfremur pólskur jarð- tætari 60 tommur. Bein sala. Upplýsingar í síma 99-8513. Útgerðarmenn Vorum að fá takmarkað magn af beitusmokk. Símar 11688 og 622866. Borgarbúar! Úrvals kartöflur beint frá bóndanum, rauðar eða gullauga. Ath. heimsendingarþjónustuna, hún er ókeypis. Verð aðeins kr. 32 per. kg. Eyfirska kartöflusalan, Vesturvör 10, Kópavogi. Sími: 641344. Til sölu Einangrunarplast 2. tommu ca. 800 fm. Innréttingar fyrir mötuneyti ca. 15 m. Fataskápar 2,07x2,17 8 stk. Hljóðeinangrunarkassettur 60x90 sm, 78 stk. Grettisofnar 4ra elimenta ca. 4 m, 5 stk. Klassik pottofnar 4ra leggja, 24 og 30 tommu. Furupanill ca. 150 fm. Spónarplötur ca. 200 fm. Ofangreindir hlutir eru nothæfir og í góðu ástandi. Frekari upplýsingar gefa Hagerup eða Baldur í síma 38160 fram til kl. 18.00 eða 40519 eftir kl. 18.00. System 34 — IBM Til sölu er tölva IBM System 34. Stærð 128MB 128 K með fjarvinnslulínu og maga- síni. Hentugt tækifæri fyrir þá, sem þurfa á stækkun að halda í S-34. Gott verð og greiðslukjör. Þeir sem áhuga hafa sendi nöfn til blaðsins merkt: „I — 2063“. Verslunaraðstaða — útsala Til leigu verslunaraðstaða með innréttingum. Sjáum um dreifingu á vörum ef óskað er. H-húsið, sími 44440. Verslunarhúsnæði til leigu Um það bil 150 fm verslunarhúsnæði til leigu á góðum stað við miðbæinn. Upplýsingar gefnar í síma 621590.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.