Morgunblaðið - 23.01.1987, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1987
3
H-
Morgunblaðið/Guðmundur Pétursson
Landgöngubrýrnar
komnar á sinn stað
LOKIÐ hefur verið við að setja
upp landgöngubrýrnar sex við
nýju flugstöðina á Keflavíkurflug-
velli. Að sögn Jóns E. Böðvarsson-
ar frarnkvæmdastjóra byggingar-
nefndar flugstöðvarinnar eru
þessar brýr mjög fullkomnar, þar
sem hægt er að breyta lengd
þeirra og stöðu þannig að þær
henti mismunandi gerð flugvéla.
Einnig er fremst í landgöngunum
sérstakur rafræsibúnaður fyrir
flugvélar.
Nú er verið að vinna við innrétting-
Akranes:
Vélaskiptum á
Sturlaugi að ljúka
Akranesi.
NÚ ER að Ijúka vinnu við vélaskipti í togaranum Sturlaugi H. Böðvars-
syni, en skömmu eftir að hann var keyptur til Akraness komu fram
skemmdir i aðalvél hans. Togarinn hét áður Sigurfari II. frá Grundar-
firði og var sem kunnugt er seldur á nauðungaruppboði í byrjun
síðasta árs.
Þrátt fyrir þessa vélaskemmd hef-
ur útgerð togarans gengið mjög vel,
gerð var bráðabirgðaviðgerð á henni
og stundaði skipið veiðar allt fram
í byijun nóvember, en hóf veiðar í
marsmánuði. Afli skipsins þessa
rúma 8 mánuði var alls 4.313 tonn
ar flugstöðvarinnar, setja upp milli-
veggi, klæða loft og mála, auk þess
sem verið er að smíða ýmiskonar
sérbúnað í stöðina. Að sögn Jóns
bendir ekkert til annars en þær áætl-
anir standist að fyrsta flugvélin verði
afgreidd frá stöðinni 14. apríl næst-
komandi. Þessi mynd var tekin af
einni landgöngubrúnni við nýju flug-
stöðina.
INNLENT
og aflaverðmætið nam röskum 93
milljónum. Aflinn er að meðaltali
500 tonn á mánuði sem er mjög gott.
Vinnu við vélaskiptin verður lokið
á næstu dögum og mun skipið þá
strax heija veiðar. Verkið er unnið
í skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts
hf. hér á Akranesi og að sögn Har-
alds Sturlaugssonar framkvæmda-
stjóra H.B. og Co. hf., sem á og
gerir út togarann, hefur verkið
gengið sérlega vel og allt staðist
áætlun. Þess má geta að togarinn
var byggður í skipasmíðastöðinni á
sínum tíma.
Skipstjóri á Sturlaugi H. Böðvars-
syni er Kristján Pétursson sem hefur
um langan tíma verið fengsæll skip-
stjóri hér á Akranesi.
- JG
Þrjár milljónir vant-
ar til að Aida beri sig Ósamið við byggingamenn
og engir samningafundir
Verkfall líklega í mars hjá Trésmiða-
félagi Reykjavíkur ef ekki semst
íslenska óperan skuldar rúmar
tíu milljónir króna og er það
uppsafnað tap Óperunnar frá
stofnun fyrirtækisins fyrir fimm
árum. Um er að ræða m.a. opin-
ber gjöld og skuldir við stærri
fyrirtæki, að sögn Þorsteins
Gylfasonar, ritara Islensku óper-
unnar.
Ljóst er að endar munu ekki ná
saman fjárhagslega á sýningum
óperunnar Aidu, sem nú er á fjölum
íslensku óperunnar í Gamla bíói.
Þorsteinn sagði að fullvíst væri að
a.m.k. þrjár milljónir kr. vantaði
uppá. íslensku óperunni voru veitt-
ar 4,7 millj. kr. á fjárlögum ársins
1987, en stofnkostnaður við upp-
setningu Aidu hljóðar upp á 7 til
7,5 millj. kr. Þá er eftir að taka
svokallaðan kvöldkostnað inn í
dæmið, eða þau laun sem listafólk-
inu, kór og hljómsveit, er greitt
fyrir hverja sýningu. Hver sýning
á Aidu kostar 515.000 kr.
„Ég barðist fyrir þriggja milljóna
króna aukaframlagi úr ríkissjóði,
en það tókst ekki. Við vitum ekki
ennþá hvemig við komum til með
að brúa bilið þannig að uppsetning-
in á Aidu standist fjárhagslega, en
ljóst er að við höfum ekki fjármagn
til að setja upp fteiri verk á árinu
við óbreytt ástand," sagði Þor-
steinn.
íslenska óperan aflar sjálf um
70% af rekstrarfé fýrirtækisins,
20% hafa komið úr ríkissjóði og 10%
hefur ekki verið hægt að greiða til
þessa, að sögn Þorsteins. „Fyrir
milligöngu menntamálaráðherra
lánaði Landsbankinn íslensku óper-
unni 1.6 millj. kr. fyrir áramótin út
á fjárveitingar. þessa árs. Lánið var
mjög aðkallandi þar sem ekki var
búið að greiða listafólki því sem
fram kom í haustsýningum á II
Trovatore launiri sín,“ sagði Þor-
steinn.
FELAGSFUNDUR í Trésmiðafé-
lagi Reykjavíkur hefur lagt
blessun sína yfir verkfallsboðun
telji stjórn, trúnaðarmannaráð og
samninganefnd félagsins það
nauðsynlegt til að knýja á um
gerð nýrra kjarasamninga. Félög
í Sambandi byggingarmanna eiga
ekki aðild að samningum ASÍ og
VSÍ, sem undirritaðir voru í byij-
un desember. Samningaviðræður
hafa staðið yfir með hléum frá
þvi þá, en nú hefur samninga-
fundur ekki verið boðaður í
nokkra daga.
Grétar Þorsteinsson, formaður
Trésmiðafélags Reykjavíkur, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að samn-
ingaviðræðumar væru komnar í svo
til algera sjáldheldu. Félagið hefði
ekki séð ástæðu til þess að óska
eftir fundi með vinnuveitendum und-
anfarið og þeir myndu ekki eiga
frumkvæði að fundi nema viðsemj-
endur breyttu í einhveiju afstöðu
sinni til kröfugerðar félagsins.
Grétar sagði að það væri ófrá-
víkjanleg krafa að taxtar félagsins
yrðu færðir að greiddu kaupi, eins
og ákvæði væru um í samningunum
frá því í febrúar í fyrra. Þessu væri
frestað í samningum ASÍ og VSÍ frá
því í desember og þeir væru ekki
tilbúnir til þess að fresta því að
launaskriðið væri tekið inn í taxta-
kaupið fram eftir þessi ári og jafnvel
til ársloka. Hann sagði að nýgerðir
samningar ASÍ og VSÍ væru hvergi
nærri fullnægjandi og breyttu litlu
fyrir flesta félagsmenn Trésmiðafé-
lags Reykjavíkur. Það kæmi skýrt
fram i launakönnun Kjararann-
sóknanefndar að laun félagsmanna
væru langt yfir því sem taxtamir
segðu til um. Þá þyrfti einnig að
semja um laun í ákvæðisvinnu.
Grétar sagði að ef ekki semdist
og boðað yrði til vinnustöðvunar, þá
yrði ekki af henni fyrr en í marsmán-
uði. Hann sagði að félagið myndi
hafa samráð um vinnustöðvun við
félög trésmiða í nágrannasveitarfé-
lögunum og hann ætti ekki von á
öðru en félögin stæðu saman um
aðgerðir, þó ekkert lægi fýrir form-
lega þar að lútandi.
...ALLTAF GOTT
Mfi ö Mm
t