Morgunblaðið - 23.01.1987, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1987
Sjávarafurðadeild Sambandsins:
14.100 lesta aukning
útflutnings milli ára
Sjávarafurðadeild Sam-
bandsins flutti á síðasta ári út
69.100 lestir af sjávarafurðum
að verðmæti tæpir 7 milljarðar
króna. Árið 1985 nam útflutn-
ingurinn 55.000 lestum að
verðmæti 5,1 milljarður. Aukn-
ing í magni nemur þvi 14.100
lestum, 26% og í verðmætum
1,9 milljarður króna eða 36%.
Af frystum sjávarafurðum voru
fluttar utan 54.400 lestir á
móti 48.800 árið áður. Aukning-
in er 5.600 lestir eða 11,5%.
8.030 lestir af fiskimjöli fóru
utan í fyrra en 3.310 lestir árið
áður. Alis voru fluttar út 4.820
lestir af skreið og hertum haus-
um, en 1985 mátti heita að
útflutningur skreiðar lægi niðri
enda voru þá aðeins fluttar ut-
an 370 lestir.
Frysting hjá framleiðendum á
vegum Sjávarafurðadeildarinnar
nam um 50.000 lestum 1986 og
var það 4,4% meira en árið áður.
Því var á árinu gengið á brigðir
sem nam 4.000 til 5.000 lestum.
Því má áætlað útflutningsverð-
rnævi bundið í birgðum hafi verið
um 500 milljónum króna lægra í
árslok 1986 en ársbyijun.
Japan og Kóera 4,5% (5%). Hlut-
fallstölurnar miðast við magn.
Sveiflan, sem verður á útflutn-
ingi freðfisks milli Bandaríkjanna
og Evrópu, á einkum rætur sínar
að rekja til lækkandi gengis dals-
ins. Á síðari hluta ársins 1986
urðu verulegar verðhækkanir í
Bandaríkjunum og höfðu þær þá
þegar nokkur áhrif í þá átt að
beina framleisðlunni á ný inn á
markað þar. Freðfiskmarkaðurinn
í Bandaríkjunum er mjög styrkur
nú og eftirspum mikil. Hins vegar
er gengi dalsins lægra en það
hefur verið um langt skeið og
óvissa um samkeppnisstöðu þeirra
markaða, sem greiða fyrir vörur
með dölum.
Morgunblaðið/Bjami Pálsson.
Hluti fundarmanna á fundi sjálfstæðisfólks í Reykjaneskjördæmi „við upphaf kosningbaráttu", en sú
var yfirskrift baráttufundar að Kirkjuhvoli í Garðabæ síðast liðinn þriðjudag.
Upphaf kosningabaráttu:
Fjölmennur fundur sjálfstæðis-
manna í Reykjaneskjördæmi
Mest var flutt til Bandaríkjanna
af frystum afurðum eins og undan
farin ár. Þangað fóru 25.210 lest-
ir, sem er um 4% minna en árið
áður. Til Bretlands voru fluttar
12.080 lestir, 17% aukning milli
ára, til Sovétríkjanna 6.680 lestir,
54% aukning, til Frakklands 3.900
lestir, 61% aukning og til Japans
og Kóeru um 2.500 lestir eða
sama magn og árið áður. Hvað
varðar aukninguna á útflutningi
til Sovétríkjanna ber þess að geta,
að þar er fremur um að ræða
sveiflu í afskipunum milli ára en
raunverulega söluaukningu. Hlut-
deild helztu markaðslanda af
framleiðslu Sjávarafurðadeildar-
innar var sem hér segir árið 1986.
Innan sviga er hlutdeild ársins
1985: Bandaríkin 46% (54%),
Bretland 22% (21%), Sovétríkin
12% (9%), Frakkland 7% (5%) og
VEL á þriðja hundrað manns
sóttu baráttufund sjálfstæðis-
fólks í Reykjaneskjördæmi,
sem haldinn varð að Kirkju-
hvoli í Garðabæ síðast liðinn
þriðjudag. Þorsteinn Pálsson,
formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, fjallaði um stefnumál
Sjálfstæðisflokksins, starfs-
árangur ríkisstjórnarinnar og
nauðsyn þess að varðveita
hann sem undirstöðu batnandi
kjara og betra þjóðfélags í
næstu framtíð.
Fluttar vóru tvær framsögu-
ræður. Þorsteinn Pálsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
fjalladi sem fyrr segir um starfs-
árangur ríkisstjómarinnar og
einstök þingmál, sem nú er að
unnið, stefnumál Sjálfstæðis-
flokksins og kosningabaráttuna
iaæaaw—i—■ i wm \ m - m
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, flytur yfirlits- og
hvatningarræðu. Á vinstri hönd honum situr Ólafur G. Einarsson,
fundarstjóri og formaður þingflokks sjálfstæðismanna, og Matthías
Á Mathiesen} utanríkisráðherra og fyrsti þingmaður Reykjaness-
kjördæims. Á hægri hönd er Tryggvi G. Árnason, fundarritari,
formaður Félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ.
framundan. Matthías Á. Mathie-
sen, utanríkisráðherra, ræddi
einkum utanríkis- og öryggismál
og kjördæmismál, og nauðsyn
þess að tryggja sterka stöðu
Sjálfstæðisflokksins til áhrifa á
framvindu í þjóðfélaginu á kom-
andi kjörtímabili.
Fjölmenni var á fundinum, sem
fyrr segir, fyrirspurnir bomar
fram og almenn þátttaka í um-
ræðum. Fundarstjóri var Ólafur
G. Einarsson, formaður þing-
flokks sjálfstæðismanna, og
fundarritari Tryggvi G. Árnason,
formaður FUS á staðnum. Meðal
þeirra, sem þátt tóku í umræðum,
var Salome Þorkelsdóttir, þing-
maður Reyknesinga, og Ellert
Eiríksson og Víglundur Þor-
steinsson, sem skipa sæti ofar-
lega á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í kjördæminu.
Norðfjarðar-
kirkja
RÉTT 90 ár verða liðin laugar-
daginn 24. janúar nk. síðan
Norðfjarðarkirkja var vígð.
Vígsla hennar fór fram þann dag
árið 1897 og framkvæmdi sr. Jón
Guðmundsson þáverandi sóknar-
prestur safnaðarins vígsluna.
Áður hafði kirkjuhús Norðfirð-
inga staðið á Skorrastað en kirkjur
munu hafa verið þar allt frá önd-
verðri kristni í landinu. Síðasta
kirkjuhús á Skorrastað fauk og
eyðilagðist í ofsaveðri sem gekk þar
yfir þann 8. mars árið 1896. Ekki
þótti viturlegt þá að endurbyggja
kirkjuna en þess í stað ákveðin
nýbygging og jafnframt að flytja
kirkjustæðið út að Nesi.
Það var síðan strax um vorið
1896 að framkvæmdir hófust við
hina nýju kirkjubyggingu. Menn
gengu fyrst að grjótaðdrætti og þá
með lítilfjörlegum tækjum. Allt var
gert með handafli einu, flytja gijót-
ið, bijóta það og byggja úr því. Upp
komst grunnurinn og stendur
óhaggaður enn þann dag í dag. Það
var Gísli heitinn Þorláksson sem sá
um það verk sem sannarlega lofar
meistarann. Strax og grunnurinn
var tilbúinn var byijað á timbur-
vinnu og um nýár 1897 var kirkjan
90ara
fullreist og nær tilbúin til notkunar
þó ýmis smávægilegúr frágangur
væri þá eftir. Yfirsmiður við kirkju-
bygginguna var Vigfús Kjartansson
en með honum unnu Olafur Ás-
geirsson, Siguijón Ólafsson og Jón
Jónsson auk fleiri sem lögðu hönd
á plóginn en eru ekki nafngreindir
í skjölum kirkjunnar. Má fullyrða
að allir þeir unnu verk sín vel eins
og reyndar býr enn að. Kirkjan var
síðan vígð eins og áður segir 24.
janúar 1897 sem var 3. sunnudagur
eftir þrettánda. Ýmsir gripir úr
gömlu Skorrastaðakirkju eru varð-
veittir og notaðir í Norðfjarðar-
kirkju. Má þar nefna prédikunar-
stólinn, altarisstjaka, sálmatöflu og
fleira.
Það má segja að Norðfjarðar-
kirkja hafí þjónað vel hlutverki sínu
þessi 90 ár. Oft hefur þó borið við
að húsið hafí verið of lítið við sum-
ar athafnir. Er. eftir að safnaðar-
heimilið komst í gagnið árið 1983
hefur veríð hægt að nýta það sem
viðbót með því að útvarpa og sjón-
varpa þangað því sem fram fer í
kirkjunni. Með tilkomu safnaðar-
heimiiisins gjörbreyttist öll starfs-
aðstaða safnaðarins og má segja
að hún sé nú til fyrirmyndar og ýtt
Norðfjarðarkirkja.
undir fjölbreyttara safnaðarlíf.
í tilefni af afínæli Norðfjarðar-
kirkju nú hefur sóknamefnd
ákveðið að leita til sérfræðinga um
að gera úttekt á kirkjuhúsinu. Verð-
ur leitað eftir tillögum og hugmynd-
um þeirra um það á hvem veg
megi standa að endurbótum og
endumýjun kirkjuhússins. Er stefnt
að því, að vinna með markvissum
hætti næstu 10 árin við að koma
kirkjuhúsinu í gott lag.
Vígsluafmælis kirkjunnar verður
minnst sunnudaginn 25. janúar nk.
Verður hátíðarmessa í kirkjunni
þann dag kl. 14.00. Sr. Bemharður
Guðmundsson fréttafulltrúi þjóð-
kirkjunnar prédikar en sóknarprest-
urinn sr. Svavar Stefánsson þjónar
fyrir altari. Kór Norðíjarðarkirkju
syngur við undirleik organistans
Ágústar Ármanns Þorlákssonar.
Eftir messu býður sóknamefnd
kirkjugestum til kaffidrykkju í safn-
aðarheimilinu og munu konur úr
kvennfélaginu Nönnu sjá um þann
þátt hátíðarhaldanna. Það er von
sóknamefndar að Norðfírðingar
fjölmenni til kirkju sinnar þennan
dag og sameinist um að fagna þess-
um tímamótum.
„Set fót-
inn fyrir
slíkar út-
sendingar“
- segir Sverrir Her-
mannsson um ótextað
efni á Stöð tvö
„ÉG læt kanna þetta þegar í stað.
Það verður settur fótur fyrir
svona útsendingar ef satt reyn-
ist,“ sagði Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra aðspurður
um hvort ráðuneyti hans hygðist
gera athugasemdir við ótextað
erlent efni sem sent er út á Stöð
tvö.
Stöð tvö sendir út þætti sem
nefnast Myndrokk og eru fyrst og
fremst tónlistarþættir með dægur-
tónlist frá breska sjónvarpsfyrir-
tækinu Music Box. Sunginn texti í
þessum þáttum er ekki þýddur. Að
undanfömu hefur sjónvarpsstöðin
einnig sýnt snyrtivömauglýsingu
þar sem erlend leikkona talar þjóð-
tungu sína án íslenskrar þýðingar.
„Ég hef sjálfur ekki kynnt mér
þessa dagskrá. Um þetta gilda
strangar reglur og verður hart tek-
ið á brotum á þeim, sagði Sverrir.