Morgunblaðið - 23.01.1987, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1987
19
Sameiningarmál Útvegsbanka og Búnaðarbanka:
Einungis sameining
en ekki yfirtaka til
umræðu í stjórninni
Forsætisráðherra segir brýnt
að ljúka málinu á næstu dögum
UMMÆLI Stefáns Valgeirssonar, fonnanns hankaráðs Búnaðar-
bankans, þess efnis að sameining Búnaðarbanka og Útvegsbanka
komi ekki tiligreina í hans huga, heldur einungis yfirtaka Búnaðar-
bankans á Utvegsbankanum hafa vakið athygli þeirra sem að
þessum málum vinna nú. Morgunblaðið snéri sér til formanna stjórn-
arflokkanna, Geirs Hallgrímssonar seðlabankastjóra, formanns
bankaráðs Útvegsbankans og formanns starfsmannafélags Útvegs-
bankans og leitaði álits á þessum ummælum.
Ríkisstjórnin ræddi sameining-
armál bankanna á fundi sínum í
gærmorgun og þar greindi Halldór
Asgrímsson frá því að ráðherrar
Framsóknarflokksins hefðu fengið
umboð þingflokks Framsóknar-
flokksins til þess að ræða við
ráðherra Sjálfstæðisflokksins um
þá tillögu sem Seðlabankinn hafði
lagt fram og þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksins hafði þegar
samþykkt.
í kjölfar ríkisstjómarfundarins
í gær, var haldinn fyrsti viðræðu-
fundur ráðherra stjórnarflokkanna
um sameiningarmál Búnaðar-
banka og Útvegsbanka. Fyrir
Sjálfstæðisflokk eru í viðræðunum
þeir Þorsteinn Pálsson fjármála-
ráðherra og Matthías Bjarnason
viðskiptaráðherra, en fyrir Fram-
sóknarflokk þeir Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra og
Halldór Asgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra. Forsætisráðherra sagði
að afloknum fundinum að ráð-
herrarnir myndu funda áfram um
þessi mál næstu daga, enda væri
brýnt að ljúka því á næstu dögum.
„Höfum ekki áhyggjur
af yfirlýsingum Stef-
áns“
„Við höfðum gert þessa tillögu
um sameiningu Búnaðarbanka og
Útvegsbanka að okkar tillögu og
samþykkt að vinna að henni,“
sagði Þorsteinn Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins. „Það verður
rætt um útfærslu á þeirri hugmynd
nú næstu daga,“ sagði Þorsteinn
og er hann var spurður hvort það
lægi í loftinu að fallið yrði frá
hugmynd um stofnun hlutafélags
um nýja bankann sagði hann: „Nei,
það liggur ekkert fyrir um það.“
Þorsteinn sagði er hann var sþurð-
ur álits á ummælum Stefáns
Valgeirssonar: „Stefán er nú í sér-
framboði, og við höfum ekki miklar
áhyggjur af yfirlýsingum hans.“
„Umboðið nær til sam-
einingar“
Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins
segir það rétt að samþykkt þing-
flokks Framsóknarflokksins frá
því í nóvember, hafi verið þess
efnis að Búnaðarbanki yfirtæki
Útvegsbanka, en þingflokkurinn
hafl í fyrradag samþykkt á fundi
sínum umboð til ráðherra sinna,
að þeir gangi til viðræðna um sam-
einingu bankanna á grundvelli
tillögu Seðlabankans frá því 10.
nóvember sl. „Það er ekkert
ákvæði í því umboði sem við erum
með núna, að um yfirtöku Búnað-
arbanka á Útvegsbanka verði
samið. Ef það verður niðurstaðan,
að Útvegsbankinn verður endur-
reistur með 900 milljón króna
framlagi, eins og verið er að ræða
um,“ sagði Steingrímur, „þá
standa bankarnir nokkuð jafnt að
vígi.“
„Tillaga Seðlabankans
var um sameiningii“
„Aðalatriðið er það, að um sam-
runa þessara tveggja banka verði
að ræða, þannig að bankakerfíð í
heild verði skilvirkara. Tillaga
Seðlabankans, sem stjórnarflokk-
arnir hafa komið sér saman um
að ræða nánar, ijallar um samein-
ingu bankanna, en ekki yfírtöku
Búnaðarbanka á Útvegsbanka,"
sagði Geir Hallgrímsson seðla-
bankastjóri.
„Ekki hægt að taka
ummælin mjög alvar-
lega“
„Samkvæmt okkar upplýsing-
um, er þetta ekki yfirlýst stefna
Framsóknarflokksins, heldur ein-
ungis orð eins þingmanns flokks-
ins, sem er þar að auki að fara út
í sérframboð. Þar af leiðandi er
varla hægt að taka þessi ummæli
mjög alvarlega,“ sagði Björg Sig-
urðardóttir, formaður Starfs-
mannafélags Útvegsbankans. Hún
sagði að stjóm starfsmannafélags-
ins hefði rætt þessi ummæli
Stefáns, og komist að þeirri niður-
stöðu að ekki væri þörf á að svara
þeim.
„Hlýtur að vera mis-
mæli hjá Stefáni“
„Ég held að þetta hljóti að vera
einhver mismæli eða misskilningur
hjá Stefáni Valgeirssyni formanni
bankaráðs Búnaðarbankans,“
sagði Valdimar Indriðason formað-
ur bankaráðs Útvegsbankans.
Hann kvaðst ekki telja að Stefán
meinti það, að Búnaðarbankinn
ætti að yfirtaka Útvegsbankann.
„Það má taka upp samvinnu þess-
ara banka og vinna að sameiningu
þeirra, en það verður ekki um neina
yfirtöku að ræða,“ sagði Valdimar.
Háskólabíó frum-
sýnir „Othello“:
Gefur starfs-
mönnum Sin-
fóníunnar á-
góða af frum-
sýningunni
STJÓRN Háskólabíós hefur
ákveðið að gefa starfsmannafé-
lagi Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands ágóða af frumsýningu
kvikmyndarinnar Othello, sem
frumsýnd verður kl. 17.00 laug-
ardaginn 31. janúar.
Othello er eins og kunnugt er
ein af óperum Verdis, en kvik-
myndagerðin er eftir Zefírelli.
Starfsmannafélagið ætlar að verja
ágóðanum til að bæta vinnuað-
stöðu hljómsveitarmanna í Há-
skólabíói. „Það er ýmislegt sem
þarf að laga þrátt fyrir ýmsar
endurbætur upp á síðkastið, bæði
á sviði og í kaffistofu. Ennþá vant-
ar þó geymsluaðstöðu fyrir hljóð-
færakassa, lyftu fyrir flygil og
stóla, svo eitthvað sé nefnt, og til
er áætlun fyrir bættan hljómburð
í bíóinu. Starfsmannafélagið hefur
kosið að verja ágóðanum í betri
lýsingu á sviðið, bæði til að bæta
vinnubirtu hljóðfæraleikaranna og
eins til að gera tónlistargestum til
hæfis, en þeir hafa kvartað yfir
því hversu illa við erum „upplý
á sviðinu," sagði Sesselja Halld-
órsdóttir, stjómarmaður í starfs-
mannafélaginu.
Sesselja sagðist gera sér vonir
um að hægt yrði að safna um
250.000 krónum með því að frum-
sýningargestir greiddu 300 krónur
fyrir miðana sem er svokallað
styrktargjald. Tónlistarfólk úr Sin-
fóníuhljómsveitinni ætlar að leika
fyrir bíógesti í hálftíma áður en
sýning kvikmyndarinnar hefst.
/
REYKJAVÍK AKUREYRI NJARÐVÍK