Morgunblaðið - 23.01.1987, Síða 21
STUTTAR
FÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1987
21
Alnæmi;
23 látnir
í Noregi
Osló, Reuter.
36 Norðmenn þjást af alnæmi
og 23 hafa látist af völdum sjúk-
dómsins, að því er yfírmenn
heilbrigðismála sögðu í gær.
í tilkynningu yfirvalda sagði
að 480 Norðmenn hefðu tekið
veiruna, sem veldur sjúkdómn-
um og að 60 prósent þeirra
byggju í Osló.
Tígrisdýr
í vígamóð
Dacca, Bangladesh, AP.
Tígrisdýr hafa banað 70
mönnum í Bangaladesh undan-
fama 45 daga, að sögn dagblaðs
sem gefið er út í Dacca. Flest
fómarlambanna hafa verið
skógarhöggsmenn í Sundur-
ban-skóglendinu, en þar er öll
veiði bönnuð. í frétt blaðsins
sagði að í mörgum tilfellum
hefðu dýrin tryllst vegna skots-
ára sem þau hefðu hlotið af
völdum veiðiþjófa.
Indland:
Tvær millj-
ónir í
verkfalli
Nýju Delhí, AP.
Rúmlega tvær milljónir
manna lögðu niður vinnu í gær
til að mótmæla efnahagsstefnu
ríkisstjórnar Rajivs Gandhi for-
sætisráðherra. Vinna lagðist að
mestu niður í ríkisreknum nám-
um, verksmiðjum og bönkum og
flugsamgöngur gengu úr skorð-
um. Talsmenn verkalýðsfélaga
hafa sakað stjórn Gandhis um
að taka hagsmuni ijölþjóðafyrir-
tækja fram yfir hagsmuni
ríkisfyrirtækja. Segja þeir
stefnu þessa ógna sjálfstæði
Indlands auk þess sem þeir eru
andvígir auknum einkarekstri
fyrirtækja.
Frá því Gandhi tók við völdum
fyrir rúmum tveimur árum hefur
hann slakað á inn- og útflutn-
ingshöftum og leitað eftir
samvinnu við erlend stórfyrir-
tæki á sviði hátækniiðnaðar.
Sovétríkin:
Hyggjast
draga úr
olíufram-
leiðslu
Moskvu, Reuter.
Sovétstjómin hefur ákveðið
að draga úr olíuframleiðslu á
þessu ári, að því er Gennady
Gerasimov, talsmaður utanríkis-
ráðuneytisins, sagði í gær.
Gerasimov sagði þessa ák-
vörðun hafa verið tekna í kjölfar
heimsóknar olíumálaráðherra
Saudi-Arabíu til Sovétríkjanna.
Nikolai Ryzhkov, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, átti við-
ræður við olíumálaráðherrann í
fyrradag og lýsti þá yfir stuðn-
ingi við þá ákvörðun OPEC-ríkja
að draga úr olíuframleiðslu í því
skyni að hækka verðið á ný.
OPEC-ríkin hafa að undanförnu
leitað eftir stuðningi ríkja utan
samtakanna.
Reuter
Veturí Washington
ÍBÚAR stórra svæða í Bandaríkjunum hafa fundið óþyrmilega
fyrir Vetri konungi að undanförnu. Snjó hefur kyngt niður og
fjöldi manna hefur látist af völdum veðursins. I gærmorgun
var snjókoma og heldur kuldalegt um að litast í Washington,
höfuðborg Bandaríkjanna, er ljósmyndari festi á filmu þessa
vegfarendur er voru á leið til vinnu.
Viðræður GATT-rík)a í Genf:
N iðurgreiðslur í land-
búnaði eru helsta
ágreiningsefnið
Genf, Reuter.
FULLTRÚAR þeirra 92 ríkja sem eiga aðild að samkomulagi um
tolla og viðskipti (GATT) áttu í gær lokaða fundi þar sem ræddár
voru leiðir til að tryggja aukið frelsi í alþjóða viðskiptum. Ríkin
hafa einsett sér að ná samkomulagi fyrir 28. janúar.
David Woods, talsmaður GATT,
sagði í gær að bjartsýni ríkti um
að samkomulag myndi liggja fyrir
næsta miðvikudag. Sagði hann að
vel hefði miðað í samkomulagsátt
að undanfömu. í desember töfðust
viðræður vegna ágreinings milli
Bandaríkjastjómar og ríkja Evrópu-
bandalagsins. Deilt var um hvort
leggja bæri áherslu á viðræður um
niðurgreiðslur í landbúnaði umfram
önnur mál. Bandaríkjamenn vildu
að viðræðum á þessu sviði yrði
hraðað eins og frekast væn unnt
en Evrópubandalagið taldi það með
öllu ástæðulaust. Deilur um niður-
greiðslur hafa einkum sett svip sinn
á þessa lotu viðræðnanna.
í gær voru einnig ræddar leiðir
til að koma á auknu frelsi í þjón-
ustugreinum svo sem bankastarf-
semi og ferðamannaþjónustu. Á
fundi GATT-ríkja í Punta del Este
í Uruguay í septembermánuði var
ákveðið að láta samkomulagið einn-
ig taka til þess háttar viðskipta.
99. árgAPK
Anltíunös Ðagblaö
Lordag H- i**nuar
stormi og stórsjó er fiskiskip
þeirra, Haroyfjord, fórst austur
af Stafjord í Norðursjó 15. jan-
úar 1981.
Þeir voru allir sammála um
það, sjómennirnir níu, sem
bjargað var við mjög erfiðar
aðstæður eftir að hafa verið
rúmar 9 klst.í sjónum í norðan-
Staðreyndir tala sínu máli
Sendum myndalista.
"HIB ÖRYGGI
LnJl OFAR
Hdly-Hanscn O L L U
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200