Morgunblaðið - 23.01.1987, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1987
23
Er Shultz með
húðf lúr á
þjóhnöppum?
Washington, AP.
Phyllis Oakley, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins vildi
hvorki játa né neita hvort eitthvað
væri hæft í fréttum þess efnis að
mynd af tígrisdýri hefði verið ristuð
á þjóhnappa George Shultz, ut-
anríkisráðherra.
Tígrisdýrið er vemdartákn há-
skóla þess, sem Shultz útskrifaðist
frá, Princeton University. Tímaritið
The Spectator í Lundúnum hélt því
fýrst fram að ráðherrann hefði látið
tattóvera tígrisdýr á þjóhnappa
sína. Blaðið sagðist hafa heimildir
frá ónefndum kaupsýslumanni. Var
hún ekki tekin alvarlega, en málinu
hefur verið gefinn meiri gaumur í
Washington þegar tímaritið News-
week og The Washington Post birtu
fregnir um húðflúrið.
Eldingu laust
niður í þotu
Weinberger
Washington, AP.
Caspar Weinberger, vamarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, komst í
hann krappann á sunnudag er eld-
ingu laust niður í þotu, sem hann
var farþegi í.
Weinberger var að koma úr helg-
arfríi í heimabæ sínum, Bar Harbor
í Maine, ásamt konu sinni. Var
þotan, sem er af gerðinni, Gulf-
stream III, rétt ólent er eldingu
laust niður í henni. Lék allt á reiði-
skjálfi en flugmanninum tókst að
lenda heilu og höldnu. Eldingin
skar trjónu þotunnar af , laskaði
hægra hæðarstýri og skildi eftir sig
brunamerki á skrokk flugvélarinn-
ar. Ýms mælitæki biluðu, m.a.
hraðamælir, og gerði það flug-
manninum erfiðara fyrir.
Tveir biðu
bana í flug-
árekstri
Brownwood, Texas, AP.
Tvær herþotur af gerðinni RF4C
Phantom II skullu saman er þær
æfðu loftbardaga sín á milli með
þeim afleiðingum að tveir flugmenn
af fjórum biðu bana.
Atvikið átti sér stað yfir Brown-
woodvatni í Texas, rétt vestur af
þjóðvegi númer 279. Sprenging
varð er þoturnar skullu saman og
hröpuðu þær í ljósum logum til jarð-
ar. Tveimur mönnum tókst að
bjarga sér í fallhlíf. Engan sakaði
á jörðu niðri.
Kona hjólaði
flugvél 16 km
Edwardsflugstöðinni, AP.
Þrítug bandarísk kona, Lois
McCallin, setti flugmet í gær er hún
flaug fótstiginni flugvél, Eagle, 16
kílómetra hring.
Ætlunin var að McCallin flygi 8
kílómetra, en þegar hún kom yfir
áfangastað fannst henni tilvalið að
fljúga til baka aftur og setti því
met í hringflugi. Flugvélin er aðeins
40 kíló og tók flugið röskar 37
mínútur. Næst verður reynt að slá
met Bryans Allen, sem flaug fót-
stignu flugvélinni Gossamer Alba-
tross 35 kílómetra leið yfir
Ermasund árið 1979.
Bretar kaupa
njósnahnött
London, Reuter.
Tímaritið New Statesman skýrði
frá því í gær að brezka stjórnin
hefði keypt njósnahnött, sem komið
verði á braut yfir Sovétríkjunum.
Hnötturinn er fyrsti njósnahnött-
ur, sem Bretar eignast. Það eru
fýrirtækin British Aerospace og
GEC-Marconi sem smíða hnöttinn.
Mikil leynd hefur hvílt yfir málinu,
en ákveðið var árið 1983 að láta
smíða hann. Tafir hafa orðið á því
að honum yrði skotið á loft vegna
Challenger-slyssins fyrir ári.
Lifandi lax til Banda
ríkjanna frá Noregi
Norska fyrirtækið, SINT-
EF, í Þrándheimi, hefur
að undanfömu gert til-
raunir með flutning á
lifandi laxi til Banda-
ríkjanna.
Laxinn er fluttur sjó-
leiðina, í gámum og segir
Leif Jorgensen, starfs-
maður fyrirtækisins, er
sést hér kampakátur á
þessari mynd hér til
vinstri, að fundið hafi ver-
ið ráð til að koma í veg
fyrir að fiskurinn verði
„sjóveikur“ og deyi á
meðan á flutningi stend-
ur.
Telja forráðamenn fyr-
irtækisins mun ódýrara
að flytja laxinn á þennan
máta, heldur en að slátra
honum í Noregi og flytja
hann síðan flugleiðis á
markað, eins og nú mun
algengast.
LANCIA THEMA:
ÍBURÐUR,
ÞÆGINDI
0G TÆKNHEG
FULLKOMNUN
Við hjá Lancia viðurkennum fúslega að við höfum gaman
af því að vera fyrstir. Fyrir 25 árum síðan smíðuðum við
fyrsta ítalska bílinn með framdrifi. Það var líka okkar hug-
mynd að smíða bíl með sjálfstæðri fjöðrun á öllum hjólum
og sjálfberandi yfirbyggingu. Og enn erum við í fararbroddi.
Nú er það fólksbíll sem skipar sér á bekk með þeim bestu í
Evrópu og sameinar krafta og aksturseiginleika sportbílsins og
íburð og þægindi luxusbílsins. Petta er LANCIA THEMA.
Að innan er THEMA íburðarmikill og geysilega rúmgóður og
undir húddinu leynist 165 hestafla TURBO vél með millikæli og
ýmsum tæknilegum eiginleikum, sem hingað til hafa eingöngu verið
notaðir í vélar kappakstursbíla. Þessi vél skilar THEMA TURBO úr
kyrrstöðu upp í 100 km hraða á aðeins 7.2 sekúndum og hámarkshraðinn
er 218 km/klst! Vélin er næsta hljóðlaus og titringsdeyfar eyóa öllum titringi,
þannig að þú finnur raunverulega aldrei fyrir þessum ógnarkrafti. Hröðunin
og mýktin er slík, að líkast er að setið sé í þotu í flugtaki! Ef þetta er ekki nóg
fyrir þig, þá er hægt að fá THEMA með 32 ventla FERRARI V8 vél og þá er
hröðunin í 100 km hraða aðeins 6.8 sekúndur!
LANCIA THEMA TURBO kostar nú aðeins 895 þúsund krónur* með álfelgum og ríku-
legum búnaði. Aðrar gerðir af LANCIA THEMA kosta frá 760 þúsund krónum*.
Ef þú telur að þú eigir aðeins það besta skilið, hafðu þá samband við okkur og fáðu að reynsluaka
LANCIA THEMA TURBO, ÞAÐ ER LÍFSREYNSLA ÚT AF FYRIR SIG!.
LANCIA THEMA ER FLUTTUR INN AF BÍLABORG H.F. ÞAÐ TRYGGIR ÖRUGGA
ENDURSÖLU OG 1. FLOKKS ÞJÓNUSTU, SEM ER RÓMUÐ AF ÖLLUM SEM TIL ÞEKKJA!
LANCIA THEMA FÆST I 5 MISMUNANDI GERÐUM:
THEMA TURBO - 2000 cc, 165 hö, 0-100 km/klst = 7.2 sek.
THEMA i.e - 2000 cc, 120 hö, 0-100 km/klst = 9.7 sek.
THEMA 6V - 2850 cc, 150 hö, 0-100 km/klst = 8.2 sek.
THEMA TURBO DIESEL - 2500 cc, 100 hö, 0-100 km/klst =11.9 sek.
THEMA 8.32 - 2927 ccc, 218 hö, 0-100 km/klst = 6.8 sek.
LANCIATHEMA^
★ gengisskr. 14.1.87
BÍLABORG HR
SMIÐSHÖFÐA 23, SlMI 68-12-99