Morgunblaðið - 23.01.1987, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1987
39
En hvers vegna hættir þú hjá
ríkissjón varpin u ?
„Ég var orðinn þreyttur á starfs-
andanum. Þama er mikill stofnana-
bragur á öllu og það þarf
óendanlegt tuð til þess að fá smá-
vægilegustu hluti í gegn. Síðast en
ekki síst er kaupið einfaldlega ekki
þess virði að maður sé að leggja
sálarheill að veði.“
En þú ert líka nýbytjaður á Bylgj-
unni?
„Já, ég var að koma fram í út-
varpi eftir eins og hálfs árs hlé og
það var jafngaman og mig minnti.
Að vísu tók fyrsta útsendingin svo-
lítið á — fimm tíma törn — en það
var skemmtilegt sarnt."
Taugatitringur?
„Hann er alltaf á sínum stað og
ég myndi sakna þess ef hann væri
ekki til staðar. Hann erómissandi."
Nú heyrir maður fólk tala um
að þú hugsir mikið um útlitið, sért
montinn og hafir gaman af að sýna
þig. Er þetta satt?
„Ég er ljón, hef gaman af að
sýna mig og hugsa mikið um sjálf-
an mig, það er rétt. Hins vegar er
önnur hlið á þessu máli og hún er
sú að maður líður líka fyrir þetta.
Ég forðast t.a.m. skemmtistaði
vegna þess að ég er of þekktur."
Þú hlýtur að hafa gaman af fjöl-
miðlun — ætlarðu að leggja hana
fyrir þig.
„Það er rétt ég hef mjög gaman
af ijölmiðluninni. Fjölbreytnin er
slík að manni leiðist ekki. Hins veg-
ar ætla ég ekki að læra fjölmiðla-
fræði. Það er frekar að maður
skelli sér utan í stutt námskeið eða
starfsþjálfun. Annars skulum við
láta framtíðina um leiða þetta allt
í Ijós.“
Vel búinn í kuldanum
Hann var vel búinn þessi púðluhundur, sem spígsporaði um Austur-
völl ásamt eiganda sínum á dögunum. Eins og sjá má var hann
klæddur í prjónaflík, en hún var þó ólík flestum öðrum hindalæðum að
því leyti að hún er úr íslenskum lopa. Þjóðlegur hundur þrátt fyrir útlend-
an uppruna.
AUSTURSTRÆTI
í dag S* >C
er bóndadagur IvgnO
og Þorri að byrja:
bónaantim
LjúfFengur
Þorramatur:
• Lundabaggar
• Hrútspungar
• Bringur
• Hvalur
• Vestfirskur
gæöahákarl
• Nýttslátur
Blóömör
Lifrarpylsa
• Marineruð sild
• Kryddsild
• Reykt sild
• Saltsíld
• Sildarrúllur
• Nýreyktur
rauömagi
• Harðfiskur
i úrvali
• Rófustappa
• Kartöflusalat
• Flatkökur
• Rúgbrauö
• Ný sviöasulta
• Súr sviðasulta
• Ný svinasulta
• Soðiö hangikjöt
• Nýreykt
hangikjöt
Hákarl
frá Vopnafirði
Heitt & gott:
Heit svið og rjúkandi slátur.
glaðan dag
með ljúffengum
Þorramat
2ja Wra,
Þorrabakkinn
gómsæti
Blandaður
súrmatur
í fötu
m/mysu
(Lundabaggi - Sviöasulta -
Hrútspungar - Bringur
- Lifrapylsa og blóðmör)
Gefum
að smakka
Opið til kl. 19 í dag
en til kl. 13 á laugardag