Morgunblaðið - 23.01.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1987
45
Þáttur
Þorgeirs
Astvalds-
sonar góður
Kæri Velvakandi.
Ég vil lýsa mikilli ánægju með
þátt Þorgeirs Ástvaldssonar á
sunnudagsmorgnum á rás 2.
Hann er hreint afbragð, léttur
og leikandi og án þungarokksins
og hávaðans, sem er oft svo áber-
andi á rásinni og Bylgjunni. En
nú langar mig til að beina þeirri
fyrirspurn til Þorgeirs, hvort þau
á rás 2 geti ekki tekið á móti
óskalögum fyrir þáttinn á sunnu-
dagsmorgnum fyrirfram, t.d. á
föstudögum eða laugardögum.
Ég reyndi mikið að koma að lagi
á sunnudaginn var en komst aldr-
ei að, því að síminn á rás 2 var
alltaf á tali. Þetta er eini tíminn
í vikunni, sem öll fjölskyldan er
heima að hlusta saman og þess
vegna væri gott ef rás 2 bætti
þjónustuna.
Guðlaug Bjarnadóttir
Þessir hringdu . . .
Verslunin
Kaupstaður til
fyrirmyndar
Hjón í Kópavogi höfðu sam-
band:
Okkur hjónum langar til að koma
á framfæri innilegu þakklæti til
starfsfólks og sérstaklega verslun-
arstjóra verslunarinnar Kaupstaðar
fyrir frábæra þjónustu og úrlausn
okkar mála í versluninni.
Aðeins sjónar-
mið rétthafa
reifuð
Einn úr Vesturbænum hringdi:
Mér fínnst að íjölmiðlafólk hafi
brugðist skyldu sinni að undanförnu
í þeirri leiðindadeilu, milli mynd-
bandaleiga, sem nú hefur brotist
fram í rauðum logum. Sjónarmið
rétthafa hefur verið rækilega skýrt
en varla minnst á stöðu hinna sem
standa utan þeirra samtaka.
Ég rek sjálfur myndbandaleigu
og á dögunum, þegar lögreglan
gerði upptæk hjá mér myndbönd,
fór hún m.a. með ótextað barna-
efni. Þrátt fyrir þetta líðst þeim hjá
Stöð 2 að sýna ótextað barnaefni
af og til. Og ég fullyrði að það eru
engin lög til sem banna mynd-
bandaleigum að leigja ótextað
barnaefni - en sýning slíks efnis
er bönnuð í sjónvarpi. En hvað þá
með Rás 2, spyr sá sem ekki veit?
Ég hef hringt í menn sem höfðu
hönd í bagga með þessu eignanámi
og spurt þá hvaða efni væri ólög-
legt að hafa á leigum. Enginn hefur
getað svarað þessari spumingu
minni. Og það hef ég eftir fógeta
að öll þessi mál séu afskaplega laus
í reipunum og raunar viti enginn
nákvæmlega hvað er leyft og hvað
bannað af myndböndum.
Fann lykla
Magni hringdi:
A Vatnsendahæðinni fann ég 8
Bandaríkjaforseti á góðri stund. Ekki er Geir hrifinn af um-
fjöllun íslenskra fréttamanna um forsetann.
Með minnimáttar-
kennd að leiðarljósi
Geir R. Andersen skrifar:
Það fer nú að verða hvimleitt
þetta áróðursstríð, sem margir
íslenskir fréttamenn stunda, eink-
um þó á ríkisfjölmiðlunum, gegn
forseta Bandaríkjanna í sambandi
við svokallað íransmál.
En það þarf svo sem ekki írans-
mál til. Allt frá því að leiðtoga-
fundurinn var haldinn hér í
Reykjavík og Reagan forseti flutti
ávarp til landsmanna sinna á
Keflavíkurflugvelli, hafa frétta-
menn á vinstri væng varla mátt
vatni halda fyrir meintri hneyksl-
an á framkomu forsetans og á
því, að ekki skyldi hann hafa hald-
ið fréttamannafund í stíl við þann
er leiðtogi Sovétmanna hélt.
Síðan hefur varla linnt látum í
garð stjómvalda í Bandaríkjunum
og þó einkum í garð forsetans.
Eins og fram kom í skrifum hjá
Víkveija í Morgunblaðinu nýlega
hafa fréttamenn í ríkisfjölmiðlun-
um tekið til við nýstárlegar
fréttaskýringar frá eigin bijósti,
svo sem með því að bæta við
ýmsum athugasemdum í lok frétt-
ar, sem þeim fínnst sennilega
ekki nægilega skýrð, án eigin at-
hugasemda.
Þessar athugasemdir eru t.d.,
eins og kom fram hjá Víkverja:
„Þá vitum við það“ og fleira í
þeim dúr. Einn fréttamannanna
mátti til með að bæta við frétt
sína um stuðning almennings í
Bandaríkjunum við forseta sinn í
íransmálinu: „Gott er að eiga
góða að“, hvað svo sem áhorfend-
ur sjónvarps leggja svo út af
slíkum viðbæti.
I útvarpsþætti sídegis sl.
sunnudag (11. janúar) um erlend
málefni, að mestu bandarísk, var
m.a. blaðafulltrúi ríkisstjómarinn-
ar, sem annars kemur aldrei fram
opinberlega nema í Helgarpóstin-
um, látinn gefa nokkrar einkunn-
ir.
Hann lagði út af nýjustu við-
burðum í Washington, hvað
annað! og talaði þar um „kúreka"
forsetans og átti þar við aðstoðar-
menn hans og ráðgjafa. Hvar
skyldu vera fleiri kúrekar við ráð-
gjöf en einmitt í þessu landi elds
og ísa? En nóg um það.
Eitt skemmtilegt dæmi kom
upp í einum af þessum útvarps-
þáttum, sem eiga að fjalla um
daglega viðburði. Það var í þætt-
inum Torgið, eitt síðdegið. Þar
voru einir þrír aðilar að fjalla um
atvinnuhætti hér og framtíðarsýn,
og allt gott um það að segja.
Nema, að í lokin kvað einn þeirra
upp úr um, að langt væri í það,
að hér sköpuðust skilyrði fyrir
meiriháttar tæknivinnslu á sviði
hátækni, eða þvílíku, því hér á
landi væri því miður hvorki til að
dreifa hertækni eða geimvísind-
um. Ekki gat ég greint hver það
var sem þetta mælti, en það brá
svo við, að þetta voru lokaorð
þáttarins og honum skyndilega
lokað með þessum orðum.
Ég reyndi síðan að ná til hljóð-
varpsmanna í síma til að grennsl-
ast fyrir um, hver það hefði verið
sem þannig hefði þorað að mæla,
og var mér svarað því, að ekki
hefði enn borist skýrsla umsjónar-
manns þessa þáttar til tækni-
manns, svo að það mætti upplýsa.
Sá sem varð fyrir svörum á tækni-
stofu, kvaðst halda að þessi
ummæli hlytu nú bara að hafa
„dottið svona upp úr“ þessum við-
mælanda.
En svona liggja nú straumam-
ir. Þeir sem hafa aðra viðmiðun
en hinir opinberu fréttaskýrendur
ríkisijölmiðlanna, og fylgja ekki
endilega vinstri túlkunum, eru
ekki taldir hafa verið „með sjálf-
um sér“, er þeir mæla frá eigin
bijósti.
Auðvitað er það ekki hlutverk
ríkisfjölmiðlanna að „matreiða"
fréttir ofan í landslýð, heldur að
segja hlutlaust frá því sem gerist.
Það er því miður of algengt að
bæði umsjónarmenn þátta í ríkis-
fjölmiðlunum og einstaka frétta-
ritarar erlendis, t.d. í Banda-
ríkjunum, sá er nemur
fjölmiðlafræði í landi „markaðs-
hyggjunnar" leggi sig alla fram
um að koma á framfæri minni-
máttarkennd sinni, sem oftar en
ekki verður þeirra leiðarljós í
umfjöllun atburða.
Þakkir til Ingva Hrafns
Annar áhorfandi skrifar:
Þriðjudaginn ö.jan. sl. skrifaði
„Áhorfandi“ í Velvakanda Morgun-
blaðsins og lýsir óánægju sinni yfír
að fréttir í sjónvarpi RÚV skuli
hafa verið færðar til kl. 20. Mér
skilst einnig að hann sé yfir höfuð
óánægður með fréttatímann.
Ég vil aftur á móti lýsa sérstakri
ánægju með færsluna aftur til kl.
20 og held að svo sé með flesta.
Ég horfí alltaf á fréttirnar kl.20 og
lýsi ánægju minni með þann tíma,
og færi hér með bestu þakkir til
Ingva Hrafns fréttastjóra og til
allra fréttamanna hans sem allt er
afburðafólk í sínu starfi.
Fréttirnar kl. 19.30 eru á slæm-
lykla á hring (á honum var einnig
upptakari). Upplýsingar í s.78197.
Askorun til
S.Á.Á. ■
0859-0478hringdi:
Kæru forráðamenn happdrættis
S.Á.Á., mig langar til að spyija
ykkur að svolitlu: Af hveiju er ekki
svarað í uppgefið símanúmer á
happdrættismiðanum mínum sem
ég keypti af ykkur (s.681552)?
Viljið þið gjöra svo vel og birta
vinningsnúmer í öllum blöðum og
ekki sakar að svara í umrætt síma-
númer.
Eru auglýsing-
arnar aðeins
fyrir útvalda?
Af og til kemur sú umræða upp
að ríkisfjölmiðlunum beri að hætta
um tíma, a.m.k. fyrir minn smekk.
Ég hlusta alltaf þegar ég get á
fréttir ríkisútvarpsins kl. 19, sem
eru mjög góðar. Síðan hlusta ég á
„Daglegt mál“ og á mánudögum
sleppir maður ekki þættinum „Um
daginn og veginn".
Það kemur þá fyrir að ég kíki á
fréttir á Stöð 2, bara til að sjá Pál
Magnússon, sem kemur alltaf vel
fyrir og er afburða góður frétta-
maður. Og ekki skemmir það að
Páll er alltaf í svo fínum fötum frá
Sævari.
í öllu okkar fjölmiðlafári eru
fréttir sýndar og lesnar 30-40 sinn-
um á dag og ættum við því að vera
vel upplýstir og ánægðir.
að birta auglýsingar. Það hljóta
allir að sjá, sem á annað borð vilja
eitthvað hugleiða þetta mál, að
hugmyndin er fáránleg, að m innsta
kosti á meðan einkastöðvamar ná
ekki um allt landið. Auglýsingar
geta komið sér alveg jafn vel fyrir
mann sem býr á Austurlandi og
hinn sem býr í Reykjavík. Eða er
það ekki á hreinu?
Þakkir til
Heimis
Piltur hringdi:
Ég vil þakka Heimi Karlssyni
fyrir körfuboltann sem hann sýnir
alltaf af og til á Stöð 2. Gætirðu
kannski sýnt leiki með Pétri Guð-
mundssyni Heimir? Svo langar mig
til að spyija þig hvort þú gætir klár-
að það sem Bjarni Félixson byijaði
á, nefnilega að sýna seinustu úr-
slitaleikina í bandarísku körfubolta-
deildinni?
Fjöllin tóku jóðsótt
og fæddist lítil mús
Velvakandi.
Menntamálaráðherra hefur vik-
ið fræðslustjóra einum úr starfi.
Hlaupa þá ýmsir upp til handa
og fóta, telja ráðherra vinna
fólskuverk hið mesta og væna
hann um valdníðslu. Fræðslustjóri
virðist einn halda ró sinni og
hyggst leita réttar síns fyrir dómi.
Allt er þetta gaspur hvimleitt,
galendum til hneisu, fræðslustjóra
síst til framdráttar og honum trú-
lega mót skapi.
Ymsir þeir sem hæst gala eiga
enga aðild að máli þessu, svo sem
menntaskólakennarar á Akureyri
og fræðslustjóri á öðru landshomi.
Lög eru í gildi á íslandi um
réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna. Væri nú ekki við
hæfi að bíða dóms hvort. fræðslu-
stjóri reynist sýkn eða sekur? Við
höfum tvö dómsstig sem alþjóð
treystir en höfum enn losnað við
alþýðudómstóla, þótt marga fysi
að setjast þar í dómarasæti.
J.G.
PjiflVv iHEILRÆÐI
tVjlASOV'
Til sjómanna
Sjómenn: Meðferð gúmbjörgunarbáta er einfold og fljótlærð. Þó
geta mistök og vanþekking á meðferð þeirra valdið Qörtjóni allra á
skipinu á neyðarstundu. Lærið því meðferð þessara þýðingarmiklu
björgunartækja. Hjálpist að því að hafa björgunartækin í góðu ástandi
og ávallt tiltækileg.