Morgunblaðið - 23.01.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1987 47
Hroðaleg útreið
IMíu marka tap gegn Vestur Þjóðverjum í Rostock
„ÉG HELD ég reyni að gleyma
þessum afmælisdegi mínum sem
allra fyrst,“ sagði Guðmundur
Hrafnkelsson, markvörður
íslenska landsliðsins, eftir hina
hroðalegu útreið sem íslendingar
fengu gegn Vestur-Þjóðverjum f
Eystrasaltskeppninni í gærkvöldi.
Guðmundur varð 22 ára f gær og
kom inn á undir lok leiksins. Þjóð-
verjar tóku íslenska liðið heldur
betur í karphúsið að þessu sinni
og trúlega er þetta stærsta tap
okkar gegn þeim frá því sögur
hófust. Lokatölur í þessum afleita
leik urðu 16:25 eftir að Þjóðverjar
höfðu haft yfir, 6:12, í leikhléi.
Það var svo sannarlega svartur
dagur í sögu íslensks handknatt-
leiks í gær hér f Rostock og
vonandi er þetta svartasti dagur
þessarar keppni. Strákarnir eru
staðráðnir í því að leika ekki
slikan leik aftur — og þarf varla
mikið til.
Hvattir af nokkrum íslendingum
sem komu á leikinn gekk þokka-
lega fyrstu mínúturnar. Sigurður
Gunnarsson skoraði fyrstu þrjú
mörk íslands og síðan kom nafni
hans Sveinsson og bætti því fjórða
við úr vítakasti. Áður hafði Sigurð-
ur Gunnarsson látið verja frá sér
eitt víti. Á meðan íslenska liðið
skoraði þessi fjögur mörk skoruðu
Vestur-Þjóðverjar sjö.
Alfreð Gíslason og Sigurður
Sveinsson minnkuðu muninn niður
í eitt mark, 6:7, en síðan kom mjög
slakur kafli hjá íslensku sókninni.
Það var alveg sama hvað þeir
reyndu, ekkert gekk upp. Varnar-
leikur Þjóðverja var að vísu mjög
góður þennan tíma og því erfitt
um vik. Gott dæmi um hvað allt
gekk á afturfótunum var að Þorgils
Óttar Mathiesen náði ekki að grípa
einar þrjár sendingar sem komu
til hans inn á línuna og það er
ekki oft sem slíkt hendir fyrirliða
okkar.
Á meðan ekkert gekk hjá okkur
skoruðu Þjóðverjar fimm mörk án
þess að okkur tækist að svara fyr-
ir okkur. Vörnin var þó ekki svo
léleg, heldur var það sóknarlelkur-
inn sem brást. Flest marka
Vestur-Þjóðverja á þessum kafla
voru skoruð úr hraðaupphlaupum
eða með dúndurskotum langt utan
af velli, en Þjóðverjar hafa á að
skipa stórkostlegum skyttum þar
sem þeir Rudiger Neitzel og Mart-
in Schwalb eru. Þeir eru báðir rétt
tæpir tveir metrar á hæð og geysi-
lega skotfastir.
Lengi getur vont
versnað
Vonir þeirra sem bjuggust við
að síðari hálfleikur yrði eitthvað
skárri en sá fyrri urðu fljótlega að
engu. Það sást strax í upphafi
hans að íslenska liðið var ekki svip-
ur hjá sjón frá því á miðvikudaginn
er þeir léku gegn Austur-Þjóðverj-
um. Varnarleikurinn var langt frá
því að vera eins góður og sóknin
var mjög slök að þessu sinni.
Sem dæmi um það má nefna
að það var ekki fyrr en á áttundu
mínútu síöari hálfleiks sem
íslenska liðið skoraði mark eftir
fallega útfærða sókn. Hin 7 mörk
liðsins höföu meira komið eftir
happa-og-glappa sóknir eða eftir
einstaklingsframtak, aldrei eftir að
leikkerfi haföi gengið upp. Sigurður
Gunnarsson batt endahnútinn á
góða sókn með því að skora 8.
mark íslands, en þá höfðu Þjóð-
verjar gert 14 mörk.
Munurinn á liðunum varð mest-
ur 11 mörk er staðan var 12:23
og eftir það fengu hinir óreyndari
í liði Þjóðverja að reyna sig og
náði þá ísland að minnka muninn
aðeins.
Símamynd/ADN
• Alfreð Gíslason var besti leikmaður íslenska liðsins í gærkvöldi. Hann skoraði fjögur mörk og lék vel
bæði í sókn og vörn. Hér þrumar hann að þýska markinu. Til varnar eru Martin Schwalb og Ulrich Roth.
Ekki dugði það þó til að koma
í veg fyrir að leikurinn í gærkvetdi
yrði sú martröð sem raun varð á.
Það virðist vera venja að íslenska
landsliðið í handknattleik fái útreið
sem þessa í hverju móti. Leikurinn
gegn Suður-Kóreu á HM í Sviss
og ekki síður leikurinn við Sovét-
menn í fyrra eru gott dæmi um
það ásamt leiknum í gærkvöldi.
Áfram skal haldið
Það þýðir samt ekki að gofast
upp þó móti blási heldur rífa sig
upp og þó svo leikurinn í gær hafi
tapast með miklum mun er ekki
nótt úti enn um að góður árangur
náist á þessu móti.
Það er ekki mikið hægt að segja
um frammistööu íslensku leik-
mannanna í þessum leik.
Allir léku langt undir getu og
slíkt gengur ekki þegar leikið er
við Vestur-Þjóðverja sem ná einum
af sínum bestu leikjum.
Alfreð Gíslason var besti maður
íslands í leiknum. Hann er geysi-
lega sterkur varnarmaður og lék
þar að auki mjög vel fyrir liðið í
sókninni, fiskaði nokkur vítaköst
og átti margar skemmtilegar línu-
sendingar. Allir leikmenn íslands
fengu að reyna sig í þessum leik.
Þjóðverjar léku glimrandi vel að
þessu sinni og áttu þennan stóra
sigur fyllilega skilið. Þeir léku mjög
agað og skipulega og það er greini-
legt að Simon Schobel, þjálfari
þeirra, er á réttri leið með liðið.
Leikmenn eru í mjög góðu líkam-
legu formi og leika sem ein liðs-
heild en það gefst best þegar á
heildina er litið.
Mjög góðir dómarar leiksins
voru frá Austur-Þýskalandi.
Mörk islands:Alfreð Gíslason 4, Sig-
urður Gunnarsson 4/1, Kristján Arason
4/3, Sigurður Sveinsson 3/2, Karl Þráins-
son.1.
Mörk Þýskalands: Löhr 5, Bauert 4,
Schwalb 4/2, Neitzel 3, Schubert 3, Roth
3, Hertelt 1, Schöne 1, Springel 1.
Allt slæmt
við leikinn
- sagði Alfreð Gíslason, besti
maður íslenska liðsins í gærkvöldi
„ÞAÐ VAR allt slæmt viö
þennan leik hjá okkur í kvöld
og þvi ekkert gott um hann
að segja,“ sagði Alfreð Gísla-
son besti liðsmaður íslenska
landsliðsins i leiknum i gær.
Það var þó alla vega tilraun en
hún gekk ekki heldur upp. Ég
vona bara að þetta sé svartasti
dagur okkar hér í þessari
keppni," sagði Alfreð Gíslason.
Skot Mörk Varin Yfireöa framhjá í stöng Feng- in víti Knetti glatað línus. sem gefur mark Skota- nýting
Einar Þorv.son 8
SigurÖur Sveinsson 5/3 3/2 1 1/1 2 60%
Geir Sveinsson 1 1 2
Guömundur Guömundsson 1 1
Bjarni Guömundsson 1 1 100%
Siguröur Gunnarsson 7/2 4/1 3/1 1 58%
Póll ólafsson 1 1 3
Kristján Arason 9/3 4/3 3 1 1 45%
Alfreö Gfslason 8/1 4 4/1 2 1 50%
Þorgils Óttar Mathiesen 2 0 1 1 2 3
Karl Þráinsson 3 1 2 34%
Allir góðir í dag
- sagði Simon Scobel þjálfari Þjóðverja
„Þjóðverjarnir hafa æft mjög
vel að undanförnu og þeir ætla
sér að komast upp úr B-keppn-
inni og á Ólympíuleikana. Þeir
léku eins vel í kvöld og þeir
geta og ég held að þetta sé
Pesti leikur þeirra í langan tíma.
Leikur okkur var hinsvegar
ferlega dapur. Það er sama
hvað við tökum, sóknina, vörn-
ina eða markvörsluna, allt var
ömurlegt. Við náðum ekki að
gera það sem Bogdan sagði
okkur og því fór sem fór. í sókn-
inni gekk ekkert og þegar við
Siggi vorum saman inná gátum
við ekki leikið neitt nema frjálst.
„VIÐ ERUM nú að Ijúka okkr und-
irbúningi fyrir B-keppnina og því
erum viö í mun betri leikæfingu
en islenska liðið. Allir leikmenn
mfnir léku mjög vel og eiga heið-
ur skilið,“ sagði Schobel, þjálfari
Vestur-Þjóðverja eftir leikinn.
„Það sýndi sig núna að við get-
um leikið hraðan og góðan
sóknarleik. Vörnin hjá okkur var
einnig mjög sterk i dag þannig að
íslensku skytturnar áttu litla mögu-
leika gegn okkur."
- Hvað með B-keppnina? Áttu
von á að þið komist áfram þar?
„Það veit maður auðvitað aldrei,
en við ætlum að gera okkar besta.
við viröumst standa undir þeim
væntingum núna sem fólk í Þýska-
landi gerir til okkar og við það
eykst sjálfstraust leikmanna þann-
ig að það er aldrei að vita. Það
er enginn öruggur í liðið ennþá og
það getur vel verið að ég noti ein-
hverja eldri leikmenn sem íað hefur
verið að upp á síðkastiö að verði
notaðiræn ég vil ekki nefna nein
nöfn í því sambandi," sagði Scho-
bel.