Morgunblaðið - 03.02.1987, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1987
29
Sum börnin höfðu ekki komið á kaffihús áður
og- fannst gaman að láta þjónana snúast dálítið
í kringum sig
SkólaferðaJag tíl Reylqavíkur:
iim Endurnar tóku vel á móti gestum Reykjavíkur
(JCA CMjÍ CjL ILfUl II U.I úr Snælandsskóla i Kópavogi.
Snælandsskóla í vettvangsheimsókn
ÞEGAR maður er smár er oft
erfitt að sætta sig við að silja
á skólabekk og Iáta troða í sig
visku sem kemur manni ein-
hverntíma að góðum notum,
sérstaklega þegar veðrið
minnir á vorið, dag eftir dag.
Kennarar í Snælandsskóla í
Kópavogi fóru á föstudaginn með
35 börn úr 6 ára bekk til
Reykjavíkur í vettvangsferð.
Börnin fóru með strætisvagni til
Reykjavíkur, þar sem þau byijuðu
á því að gefa öndum á Tjöminni
brauð. Síðan var haldið á Austur-
völl, þar sem Alþingishúsið og
styttan af Jóni Sigurðssyni voru
skoðuð. Ekki vom þau öll með
það á hreinu hvað alþingismaður
er, en meðan verið var að útskýra
það gekk Sigríður Dúna yfir völl-
inn og ræddi við þau og leiddi þau
í sannleikann um starfið. Eftirá
fannst börnunum ansi tilkomum-
ikið að hafa hitt þingmann.
Að lokum fóm börnin á Hressó,
þar sem þau gæddu sér á súkkul-
aði með rjóma og kringlum.
Blaðamaður Morgunblaðsins hitti
þau þar, öll ljómandi af ánægju,
og sögðu þau að ferðin hefði ver-
ið „ofsalega “ skemmtileg. Þau
vom sammála um að mest hefði
verið gaman að gefa öndunum.
Mörgum fannst næstskemmtileg-
ast að ferðast í strætisvagni, en
það höfðu sum þeirra aldrei gert
áður.
Ferðin er liður í kennsluáætlun
fyrir þennan árgang og eftir helgi
verður byijað að vinna úr henni.
Þá munu kennarar ræða ferðina
og láta krakkana teikna myndir
úr henni.
Skýrsla Þjóðhagsstofnunar:
Meðallaun hæst í fisk-
veiðum árið 1985
Meöalárslaun í helstu atvinnugreinum 1985
Reiknaö á ársverk
1.1 þúsundum króna
Meðallaun talin
geta verið um 63
þúsund krónur á
mánuði nú
MEÐALLAUN námu rúmlega
einni milljón króna í fiskveiðum
á árinu 1985 og voru þetta lang-
hæstu meðallaun í atvinnugrein-
um, sem greidd voru í landinu,
að því er kemur fram í frétt frá
Þjóðhagsstofnun. Meðallaunin
voru hins vegar lægst hjá bænd-
um eða rúmar 300 þúsund
krónur. Heildarlaunagreiðslur
fyrirtækja námu rétt rúmlega
50 milljörðum króna árið 1985,
samanborið við tæplega 34,5
milljarða króna á árinu 1984.
Þessi hækkun nemur 45,4% á
milli áranna.
Meðallaun reiknuð á hvert árs-
verk námu 488 þúsund krónum á
árinu 1985 samanborið við 351
þúsund krónur árið áður. Hækkun
á milli ára er um 39%, en kauptaxt-
ar launþega hækkuðu um 32% á
sama tíma. Mismuninn má meðal
annars rekja til ýmiss konar flokka-
tilfærslna samkvæmt kjarasamn-
ingum og launaskriðs, segir í frétt
Þjóðhagsstofnunar.
Næsthæstu laun voru líkt og
áður greidd í stóriðjuverunum
tveimur, álverinu og járnblendi-
verksmiðjunni, um 650 þúsund
krónur fyrir hvert ársverk. Meðal-
laun hjá hinu opinbera voru hins
vegar heldur lægri en landsmeðal-
talið eða um 470 þúsund krónur.
Launahækkun milli áranna 1984
og 1985 var einnig mest í fiskveið-
um, um 50% á hvert ársverk, og
næstmest í fiskvinnslu um 44%.
Ennfremur hækkuðu laun opin-
berra starfsmanna nokkuð umfram
meðaltal. Milli áranna 1984 og 1985
hækkaði verðlag um um rúmlega
32% og samkvæmt því jókst kaup-
máttur launa að meðaltali um 5%.
Þjóðartekjur hækkuðu minna í
heild en tekjur launaþega á árinu
1985 eða um 3,5%. Því fór hlut-
deild launa í þjóðartekjum vaxandi
og eru þau áætluð um 64,5% sam-
anborið við 60—61% tvö næstu ár
á undan. Síðustu spár benda til að
þetta hlutfall hafi enn hækkað á
árinu 1986. Þá segir í frétt Þjóð-
hagsstofnunar að gera megi ráð
fyrir að laun í ársbyijun 1987 hafi
hækkað um 55% frá ársmeðaltali
1985 og gætu því nú verið um 750
þúsund krónur miðað við heilt ár
eða að meðaltali um 63 þúsund
krónur á mánuði. Þarna er um að
ræða meðalhækkun, en hækkunin
kann að vera mismikil eftir atvinnu-
greinum.
^946^lÍl986\
Brautarholti 20.
Benidorm-
ferðakvöld
sunnudaginn 8. febrúar
Húsið opnað
kl. 19.00
J
Matséðill
Eldsteikt nautafíllé með
koníaks-sósu.
Sherry triffle.
SKEMMTIATRIÐI
Hinn frábæri Ómar Ragnarsson fer á kostum ásamt
Hauki Heiðari. Bandaríski stórsöngvarinn og grínist-
inn Tommy Hunt sýnir sínar allra bestu hliðar.
Ásadans — Þau snjöllustu fá vinning
Ferðakynning: Guðlaugur Tryggvi Karlsson leiðir
ykkur í allan sannleikann um dýrð Spánar. Nýr
ferðabæklingur kynntur. Ný mynd sýnd frá Beni-
dorm.
FERÐABINGO
3 glæsilegir ferðavinningar til Benidorm.
DANS
Santos-sextettinn ásamt söngkonunni Guðrúnu
Gunnarsdóttur.
BORÐAPANTANIR
Mánudaga til föstudaga frá kl. 10.00—18.00 og
laugardaga eftir kl. 14.00 í símum 23333 og 23335.
ALLIR VERÐA BRÚNIR
Á
BEIMIDORM
ÍE=! FERÐA
m MIÐSTODIN
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133