Morgunblaðið - 14.02.1987, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1987
hefðu af því nokkrar áhyggjur hve
örar verðhækkanir hefðu verið á
undanfomum misserum, en teldu
þær þó geta haldizt. Hann sagði
að fyrirtækið þyrfti að fá fískinn
og með því að hækka verðið, yrði
hagstæðara fyrir framleiðendur
heima að selja hann vestur um haf
en ella. „Við þurfum að vera sann-
gjamir bæði gagnvart framleiðend-
um og kaupendum. Gagnvart
framleiðendum með því að ná eins
háu verði og mögulegt er og gagn-
vart kaupendum með því að hækka
ekki um of. Það er erfítt að þjóna
fleiri en einum herra, en við höfum
reynt að hækka verðið lítið í einu
en hækkað það oftar þess í stað,“
sagði Ólafur Guðmundsson.
Sem dæmi um síðustu verð-
hækkanir má nefna eftirfarandi:
Hvert pund af ýsu í fimm punda
flakapakkningum hækkar um 20
sent, úr 2,30 dölum í 2,50 eða uni
8,6%. Hvert pund af þorskflökum í
sams konar pakkningum hækkar
um 15 sent, úr 2,30 í 2,45 eða um
6,5%. Ufsaflök hækka um 10 sent,
úr 1,27 í 1,37 eða um 7,8%, roðlaus
karfaflök hækka um 10 sent, úr
1,67 í 1,77 eða um 5,9% og karfa-
flök með roði hækka úr 1,53 í 1,63
eða um 6,5%. Loks hækkar hvert
pund í þorskblokk um 6,6%.
Skýrsla um Ljósufjallaslysið:
Sterkt niðurstreymi
meðal orsakaþátta
FLUGMÁLASTJÓRN og Flug-
slysanefnd hafa skilað skýrslu
um flugslysið í Ljósufjöllum á
Snæfellsnesi 5. aprfl 1986, þegar
fimm manns fórust með flugvél
Flugfélagsins Ernis hf., TF-
ORM. Tveir menn lifðu slysið af.
! niðurstöðum nefndarinnar eru
eftirtalin atriði nefnd sem líklegir
orsakaþættin
Flugmaðurinn kynnti sér ekki
nægilega veðurskilyrði á fyrir-
hugaðri flugleið og hann fór ekki
eftir ákvæðum flugrekstrarbókar
Ernis hf., hvað varðar flug í sterk-
um vindi.
Þegar flugmaðurinn ákvað að
lækka flugið í lágmarkshæð fyrir
blindflug á þessum hluta leiðarinn-
ar, tók hann ekki tillit til ytri
aðstæðna, svo sem áhrifa vind-
straumsins yfír Snæfellsnesfjall-
garð, samanber Upplýsingabréf
Flugmálastjómar, B-6 frá 19. jan.
1984 og ákvæði flugrekstrarbókar-
innar.
Mjög hvasst var á ferli flugvélar-
innar og henni var flogið niður fyrir
lágmarksblindflugshæð. Vegna
hæðarmælisskekkju, sem sterkur
vindur yfír háan §allgarð olli, sýndi
hæðarmælir flugvélarinnar milli
500 og 600 fetum of hátt er hún
hvarf af ratsjárskjánum og raun-
vemleg flughæð hennar var þá það
sem því nam undir lágmarkshæð
og aðeins rúmlega 1.400 fetum yfír
hæsta hluta Qallanna.
Mjög sterkt niðurstreymi var hlé-
megin við fjallgarðinn og miklu
meira en mesta klifurgeta flugvél-
arinnar á fullu afli á báðum hreyfl-
um.
Spáðíspilin
BRIDSHÁTÍÐ hófst í gærkvöldi á Hótel Loft-
leiðum. Alls taka 48 pör þátt í tvímennings-
keppni, sem lýkur í dag. Á morgun hefst
sveitakeppni sem um 250 manns taka þátt í.
Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra
setti mótið og bauð gesti velkomna, en 23
erlend pör taka þátt í keppninni. Menntamála-
ráðherra fylgdist síðan með spilamennskunni
í fylgd Björns Theodórssonar forseta Brids-
sambands íslands. Þegar myndin var tekin var
hann að kíkja á spilin hjá hinum þekkta Bella-
donna frá Italíu.
Morgunuiaoio/ Ami öæoerg
Starfsfólkið á Hlemmi var sammála um að ástandið hefði batnað til muna síðan eftirlitið var hert
og sagðist vona að svo yrði áfram.
HERT EFTIRLIT Á HLEMMI
„Við munum auka eftirlit á Hlemmi með tvenn-
um hætti,“ sagði Böðvar Bragason lögreglustjóri
eftir fimd, með Sveini Björnssyni forstjóra
Strætisvagna Reykjavíkur, þar sem ástandið í
biðskýlinu við Hlemm var umræðuefnið. Frá
áramótum hefur Iögreglan sinnt 130 útköllum
i biðskýlið en þar af voru 47 fyrstu tíu daga
febrúarmánaðar.
„Eftirlitsferðir lögreglunnar verða tíðari og SVR
mun auka sitt eftirlit og ráða til þess sérstakan
mann, sem mun reyna að sjá til þess að þama verði
friðvænlegra fyrir farþegana," sagði Böðvar. Hann
sagði að þetta væru fyrstu viðbrögðin en í athugun
væri til hvaða annarra ráða yrði gripið. „Það sem
um er að ræða er að húsið hefur ekki gagnast þeim,
sem það var upphaflega ætlað og eru það ýmsir
hópar 8em koma í veg fyrir það með nærveru sinni
en það er það sem við erum að reyna að stöðva,"
sagði Böðvar.
Ekki kosið síð-
ar en 25. apríl
Ákvörðun um kjördag eftir helgi
Morgunblaðið/Amór Ragnarsson
Samkomulag Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks:
ÁKVÖRÐUNAR um kjördag í komandi alþingiskosningum er að
vænta eftir fund forsætisráðherra með formönnum stjómmálaflok-
kanna, sem haldinn verður á mánudaginn. Samstaða hefur náðst
um það milli Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks, að kosningar verði
ekki síðar en 25. apríl. Sjálfstæðismenn hafa hins vegar áhuga á
því, að kosningar verði fyrr og er laugardagurinn 11. apríl nefndur
í því sambandi.
í frétt á forsíðu Tímans í gær
er staðhæft, að kosningalaganefnd
neðri deildar Alþingis hafi þegar
tekið ákvörðun um að kosið verði
25. apríl. Þá er haft eftir Steingrími
Hermannssyni, forsætisráðherra,
að kosningar verði 25. apríl. Páll
Pétursson, þingmaður Framsóknar-
flokksins, sem er formaður kosn-
ingalaganefndar, sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í gær,
að þessi frétt væri „tóm vitleysa".
0
Islendingnr
handtekinní
Oðinsvéum
- grunaður um aðild
að fíkniefnakeðju, er
teygir anga sína hingað
ÞRJÁTÍU og þriggja ára gamall
íslendingur hefur verið handtek-
inn í Óðinsvéum að beiðni fíkni-
efnalögreglunnar hér á landi
vegna gruns um aðild að um-
fangsmiklu fikniefnamáli, sem
teygði anga sina hingað.
Maðurinn hefur verið úrskurðaður
í gæsluvarðhald til 25. febrúar á
meðan á rannsókn stendur, en hann
hefur verið búsettur í Danmörku
nokkur undanfarin ár. Ekki hefur enn
sem komið er verið farið fram á fram-
sal mannsins hingað.
{slenska fíkniefnalögreglan hefur
verið að rannsaka fíkniefnamálið und-
anfama daga og hafa nú alls sex
menn verið handteknir vegna þess.
Tveir menn, 30 og 31 árs, sitja nú
inni hér á landi og hafa þeir verið
úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 26.
febrúar. Þremur mönnum var hins-
vegar sleppt úr varðhaldi sl. þriðjudag
þar sem talið var að þeirra þáttur í
málinu væri fullrannsakaður.
Hann sagði, að það væri ekki í
verkahring nefndarinnar að ákveða
kjördag í næstu kosningum, heldur
væri valdið formlega í höndiim for-
sætisráðherra. Hann sagði, að hið
eina, sem samkomulag hefði tekist
um í nefndinni, væri, að mæla með
því að annar laugardagur í maí
yrði í framtíðinni lögbundinn kjör-
dagur í þingkosningum.
Páll sagði, að Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra myndi
á mánudaginn ræða við formenn
stjómmálaflokkanna um þetta mál
og ákvörðun um kjördag á þessu
ári yrði tekin i framhaldi af því.
Friðrik Sophusson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, sem er vara-
formaður kosningalaganefndar,
sagði einnig, að frétt Tímans væri
ekki á rökum reist. Hann kvaðst
hafa tilkynnt það á fundi kosninga-
laganefndar á fimmtudaginn, að
samstaða væri um það milli þing-
manna Alþýðuflokks og Sjálfstæð-
isflokks að kjósa ekki síðar en 25.
apríl. Jafnframt hefði hann beðið
formann nefndarinnar, að beita sér
fyrir því að forsætisráðherra kallaði
formenn stjómmálaflokkanna sam-
an eftir helgina til að ræða um
kjördag í komandi kosningum.
Ólafur G. Einarsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
sagði á fundi í Garðabæ í fyrra-
kvöld, að það væri skoðun sín að
25. apríl væri óheppilegur kjördag-
ur vegna frídaga vikuna á undan.
Hann kvaðst telja 4. eða 11. apríl
heppilegri kjördag og sagðist hafa
smá von um að 11. apríl yrði fyrir
valinu.
Friðrik Sophusson kvað það rétt,
að sjálfstæðismenn vildu skoða það
alvarlega, hvort unnt væri að kjósa
fyrir 25. apríl. Hann sagði, að þau
ummæli forsætisráðherra í Tíman-
um að 25. aprfl hefði þegar orðið
fyrir valinu væm á misskilningi
byggð.
Fisksölufyrirtækin í Bandaríkjunum:
Fiskverð hækk-
að um 6% til 8%
ÍSLENZKU fisksölufyrirtækin í
Bandaríkjunum hækkuðu i jan-
úar verð á fiski frá sér um 6 til
8% eða 10 til 20 sent á hvert
pund. Mest er hækkunin á 5
punda pakkningum á ýsu, 20sent
eða 8,6% og þorskblokk hækkar
um 10 sent, 6,6%. Hækkunin skil-
ar sér að mestu til framleiðenda
hér á landi að frátöldum flutn-
ingskostnaði.
Ólafur Guðmundsson, innkaupa-
stjóri hjá Coldwater, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að menn þar