Morgunblaðið - 14.02.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1987
25
Háskólinn XIV
Verkfræði- og raunvísindadeild
eftirÞorð
Kristínsson
Þess var áður getið (V) að
fyrstu tvo áratugina eftir að Há-
skóii íslands tók til starfa, hafí
hann mótast mjög af embættis-
mannaskólunum, sem mynduðu
kjama hans; heimspekideildin,
sem stofnuð var með skólanum,
var að stíga sín fyrstu spor og
bar eðlilega nokkum keim af
sessunautum sínum. En í byijun
flórða áratugarins tók að örla á
breytingum, enda hröð umskipti
í samfélaginu sem kölluðu á §öl-
þættari menntun. Um þær mundir
var byggt yfír sarfsemi háskólans
fyrir ágóða af rekstri happdrætt-
isins, sem stofnað var 1933 og
Tjamarbíós, sem tók til starfa
1940. Verður ekki ofsagt að ein-
mitt með stofnun happdrættisins
hafi sú stoð verið rekin undir
húsnæðisaðstöðu skólans sem
gerði honum kleift að færa út
kvíamar bæði í kennslu og rann-
sóknum.
Arið 1940 var hafín undirbún-
ingskennsla til fyrrihluta prófs í
verkfræði, m.a. vegna þess að
stríðið kom í veg fyrir að fólk
færi utan til náms. Greinamar
vom bygginga-, rafmagns- og
vélaverkfræði. Verkfræðideildin
var svo formlega stofnuð 1944,
en hún var fyrsta sjálfstæða deild-
in sem bættist við frá stofnun
skólans.
Arið 1969 var heiti verkfræði-
deildar breytt í verkfræði- og
raunvísindadeild, með því að
námskostir_ höfðu mjög aukist í
deildinni. Árið 1965 hafði verið
sett reglugerð um BA-nám í
stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði,
líffræði, landafræði og jarðfræði,
en áður hafði deildin annast
nokkra kennslu í stærðfræði og
eðlisfræði fyrir heimspekideild.
Skipulagi þessa náms var breytt
1970 er reglugerð um BS-nám í
raungreinum tók gildi. Og fyrir
tveimur ámm var verkfræði- og
raunvísindadeild svo skipt í tvær
sjálfstæðar deildir, verkfræðideild
og raunvísindadeild.
í þijá áratugi frá 1940 var ein-
ungis kennt til fyrrihlutaprófs í
verkfræði, en þessi kennsla í und-
irstöðugreinum verkfræðinnar,
t.d. stærðfræði, eðlisfræði og
efnafræði, varð einnig til þess að
efla þær greinar innan háskólans
sem sjálfstæðar fræðigreinar til
BS-prófs. Eiginleg verkfræði-
kennsla hófst svo með reglugerð-
inni um BS-námið árið 1970, er
tekin var upp kennsla til loka-
prófs í bygginga-, véla- og
rafmagnsverkfræði, auk fyrri-
hlutaprfós í eðlis- og efnaverk-
fræði. Þá má segja að tæknigrein-
ar hafí fyrst komið inn í skólann.
Fyrrihlutanámið í eðlis- og
efnaverkfræði er nú í raunvísinda-
deild og tekur tvö ár. í verk-
fræðideild miðast námsskipan við
að fullnaðamámi sé lokið á 4 ámm
með BS-prófí í verkfræði. Námið
er í senn bóklegt og verklegt og
Verkfræðistofnun
hefur starfað í tengsl-
um við verkfræðideild
síðan árið 1978. Þar
eru stundaðar rann-
sóknir á sviði verk- og
tæknivísinda og veitt
ýmis ráðgjöf og þjón-
usta á þeim fræðasvið-
um.
fyrir lokapróf skulu stúdentar
einnig hafa lokið ákveðinni verk-
þjálfun í þeim tilgangi að þeir
kynnist af eigin raun aðstæðum
og vinnubrögðum í atvinnulífinu;
aðferðum, tækni, tækjum og
skipulagi. Þessi verkþjálfun fer
fram á vinnustöðum sem deildin
viðurkennir og skal vera a.m.k.
24 vikur.
Við deildina starfa alls 18 fastir
kennarar og svipaður fyöldi
stundakennara, auk þess sem
nokkrar undirstöðugreinar em
kenndar á vegum raunvísinda-
deildar. Nemendur em nú 254 og
þar af era 118 á 1. námsári; í
byggingaverkfræði em 70 nem-
endur; 74 í vélaverkfræði og 110
í rafmagnsverkfræði.
Til ársins 1975 var meginaðset-
ur verkfræðikennslunnar í aðal-
byggingu háskólans, en það ár
fluttist öll kennslan í annan
áfanga byggingar verkfræði- og
raunvísindadeildar við Hjarðar-
haga, sem í daglegu tali kallast
VR-2. Þar em 6 almennar
kennslustofur, 5 teiknistofur, sem
einnig em nýttar til fyrirlestra-
kennslu og 7 stofur til verklegra
æfínga, skrifstofur kennara deild-
arinnar og sameiginleg skrifstofa
verkfræðideildar og raunvísinda-
deildar. Stærstu námskeiðin á
fyrsta ári, einkum þau sem em
sameiginleg með nemendum í
raunvísindadeild, em kennd í öðr-
um húsum háskólans, að mestum
hluta í Tjamarbæ, sem leigður er
af Reykjavíkurborg. í smíðum er
nýtt hús, austan hins eldra og nær
Suðurgötunni, sem einkum er
hugsað fyrir verklega kennslu í
verkfræði, enda orðið mjög þröngt
um kennsluna í VR-2.
Verkfræðistofnun hefur starfað
í tengslum við verkfræðideild
síðan árið 1978. Þar em stundað-
ar rannsóknir á sviði verk- og
tæknivísinda og veitt ýmis ráðgjöf
og þjónusta á þeim fræðasviðum.
Hluti kennara verkfræðideildar
starfar við stofnunina auk lausr-
áðinna sérfræðinga, en engar
fastar sérfræðingastöður hafa
fengist á íjárlög hingað til. Við
verkfræðistofnun em þessar átta
rannsóknastofur: í byggingaverk-
fræði; rafmagnsverkfræði; véla-
verkfræði; upplýsinga- og
merkjafræði; kerfisverkfræði;
jarðtækni; iðnaðar- og rekstrar-
verkfræði og rannsóknastofa í
hagnýtri aflfræði. Þeir kennarar
deildarinnar sem ekki hafa kosið
að starfa við stofnunina, hafa
ýmist fengið rannsóknaraðstöðu
við aðrar stofnanir eða sinna þeim
á eigin vegum.
Rannsóknaverkefnin sem kenn-
arar og sérfræðingar vinna að á
eigin vegum, við stofnunina eða
í samvinnu við aðra aðilja, inn-
lenda eða erlenda, em af ýmsum
toga og beinast mörg að úrlausn
vandamála á sviði íslensks atvinn-
ulifs. Fáein dæmi rannsóknaverk-
efna; íslensk sérfræðiheiti í
byggingaverkfræði; jarðsig'álftar
og jarðskjálftaálag á byggingar-
virki; styrkleiki og svignun for-
spenntra steinsteypubita; staðlar
um burðarþolskröfur og öryggi
burðarvirlqa; raki og hiti í þökum
húsa; upplýsingasöfnun varðandi
haföldur og sjóalög umhverfis ís-
land og varðandi vindhraða og
vindkrafta; vindsveiflur húsa;
spmngumyndun í útveggjum
steinsteyptra húsa; afldreifíng
virkjana; álagsspá í raforkukerf-
um; rafknúið ökutæki; þróun
búnaðar til greiningar á ormum
og beinum í fískholdi; öflun og
þróun hug- og tækjabúnaðar til
úrvinnslu gervitunglamynda; úr-
vinnsla burðarþolsmælinga á
vegum; gæðastýring og fram-
leiðslustýring í frystihúsum;
hönnun skipa og olíueyðsla; orku-
notkun í fískimjölsiðnaði; rann-
sóknir á vinnslu mós á íslandi;
hermilíkan af kvikri hegðun hita-
veitna; sjálfvirkt tilkynningakerfí
fískiskipa; þróun fluggagna-
vinnslu við flugumferðarstjóm;
orkunýting í hitaveitum o.s.frv.
Höfundur er prófstjóri við
Háskóln íslands.
Hart á móti hörðu
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Hart á móti hörðu (Fire with
Fire). Sýnd í Regnboganum.
Stjörnugjöf: ☆
Bandarísk: Leikstjóri: Duncan
Gibbins. Handrit: Bill Phillips,
Warren Skaaren og Paul og
Sharon Boorstin. Framleiðandi:
Gary Nardino. Helstu hlutverk:
Virginia Madsen og Graig Shef-
fer.
Hart á móti hörðu er mynd sem
byijar eiginlega ekki fyrr en rétt
áður en hún endar. Hún er svo lengi
að koma sér að efninu að loksins
þegar hún fer að verða áhugaverð
er henni lokið og aðalkæmstuparið
labbar sig inn í sólarlagið. Lengst
af er hún viðburðasnauð og lang-
dregin og lítt athyglisverð.
Hart á móti hörðu er svona mynd
sem segir frá ástföngnum ungling-
um, sem ekki geta notist almenni-
lega vegna utanaðkomandi
kringumstæðna. Efnismeðferðin er
vægast sagt slöpp. Joe er í betmn-
arvist en Lísa í hálfgerðum klaust-
urskóla fyrir stúlkur. Joe er
framúrskarandi á meðal fanganna
og Lísa er framúrskarandi á meðal
stúlknanna. Saman em þau framúr-
skarandi leiðinleg.
Og handritshöfundamir fjórir
passa sig á því að skýra aldrei neinn
skapaðan hlut, sem maður er að
velta fyrir sér út myndina. Til dæm-
■ : -
Fangelsisstjórinn og Joe Fisk eiga ýmislegt vantalað í myndinni
Hart á móti hörðu, sem sýnd er í Regnboganum.
is veit maður aldrei af hveiju
fangelsisstjóranum er í nöp við Joe.
Joe er í alla staði indælis piltur og
alls ekki neinn uppreisnargaur sem
predikar aga- og virðingaleysi á
meðal fanganna vina sinna. Hann
er næstum gersamlega sviplaus og
sauðmeinlaus í meðfömm Graig
Sheffer en samt er fangelsisstjórinn
alltaf eitthvað að rífast í honum.
Líklegasta skýringin á því er sú
að í öllum hinum fangamyndunum
er fangelsisstjórinn alltaf að rífast
í aðalgaumum. Best að hafa það
svona í þessari mynd líka, hafa
handritshöfundamir sjálfsagt hugs-
að með sér.
Og það er nú einmitt málið með
þessa mynd; það er ekkert í henni
sem kemur á óvart; hún er eins og
sniðin eftir gamalli og mikið not-
aðri uppskrift að unglingamynd,
gersamlega andlaus og ófrumleg í
efnistökum.
Hreínar, fallegar og jafnstórar
TnTjTfn oo i ifíjniT CD niij iiii R TTii|ÍHl jpz & TmjTíTí p ■rmpfí jat,
IííuIjIH ilLiliiii JIiiiiiil "i'inii ■llillu.il tiu inn Uiililli. ■Ull.ll.ll.lJ.
PÖKKUN OG DREIFING: ÞYKKVABÆJARKARTÖFLUR HF, GILSBÚÐ 5, GARÐABÆ.