Morgunblaðið - 14.02.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 1987
Fiskmarkaðsmál í Eyjafirði:
Hlutafélög í und-
irbúningi á Akur-
eyri og Dalvík
NÚ ER í undirbúningi stofnun hlutafélags um fiskmarkað
bæði á Akureyri og Dalvík. Eins og greint var frá I blaðinu
í fyrradag lagði Fiskmarkaðsnefndin á Akureyri til að stofn-
aður yrði „Fjarskiptamarkaður“ og lítill uppboðsmarkaður
að auki og Hilmar Daníelsson
stofna Fiskmiðlunarfyrirtæki.
Akureyringar hyggjast stofna
hlutafélag þar sem bæði kaupend-
ur og seljendur ættu aðild, en
Hilmar ætlar ekki að bjóða kaup-
endum aðild. „Ég hef ekki áttað
mig á því að slíkt félag geti verið
í eigu beggja aðila," sagði Hilmar
í samtali við Morgunblaðið í gær.
„Annað hvort er maður á markaði
til að selja eða til að kaupa. Kaup-
endur hafa líka verið að tala sig
. saman um almenna yfírborgun á
físki og þá hef ég heyrt talað um
10$. Það er því eðlilegt andsvar
fískseljenda að leyta leiða sem
þessarra," sagði Hilmar.
á Dalvík vinnur nú að því að
margir aðilar boðið sömu þjón-
ustuna - en það hlýtur að enda
með því að einn stendur uppi í
lokin,“ sagði hann.
Eins og áður hefur komið fram
í blaðinu var sjö manna nefnd
stofnuð á Akureyri til að vinna
áfram að fískmarkaðshugmyndum
þar. Hún kemur væntanlega sam-
an til fundar í næstu viku að sögn
Bjöms Jóseps Amviðarsonar,
formanns nefndarinnar.
Morgunblaðið/Guðmundur
„ Andlitslyfting“ á Dalborgu
Vinna er nýhafin við breytingar á Dalborgu EA er að skipta um brú á skipinu og í gærmorgim
í Slippstöðinni hf. Eitt af því sem gert verður var þeirri gömlu lyft af.
Forsætisráðherra neitaði að hitta stuðningsmenn Stefáns Valgeirssonar:
Verður til þess að fjöldi
fólks segir sig úr flokknum
- segja Stefáns-menn. „Fásinna,“ segir forsætisráðherra
UM 100 félagar í Samtökum jafnréttis og félagshyggju, sér-
framboði Stefáns Valgeirssonar í Norðurlandskjördæmi eystra,
hugðust hitta Steingrím Hermannsson, forsætisráðherra, að
máli á Hótel KEA í gær þar sem ráðherra var á fundi með
Framsóknarmönnum, og afhenda honum bréf þar sem von-
brigðum var lýst yfir því að sérframboðið fékk ekki að
auðkenna lista sinn með stöfunum BB, en Steingrímur neitaði
að hitta menn Stefáns.
Hilmar sagðist búinn að kynna
hugmynd sína fyrir hluta útgerð-
armanna á sæðinu, en hann yrði
á ferðinni um helgina - á Húsavík
og jafnvel á Þórshöfn - og myndi
kynna mönnum þetta nánar. „Eft-
ir helgi ætti að koma í ljós hverjir
hafa áhuga á eignaraðild að félag-
inu og meiningin er að stofna það
þegar ég hef heyrt frekari undir-
teknir útgerðarmanna." Hugsar
Hilmar sér að eigendur væru á
svæðinu frá Skagaströnd í vestri
austur að Vopnafírði.
Áður hefur verið í gangi um-
ræða um fískmarkað á Dalvík og
er þriggja manna fískmarkaðs-
nefnd starfandi.Rætt var rætt um
venjulegan uppboðsmarkað, en nú
virðist sú hugmynd út úr mynd-
inni. Hilmar sagðist ekki sjá
hvemig slíkur markaður gæti
gengið á Norðurlandi. Til að vel
færi yrði þrennt að koma til: stöð-
ugt framboð af físki á markaðinn,
nægjanlegur ijöldi kaupenda og
greiðar samgöngur - og væri það
aðallega síðastnefnda atriðið sem
gæti orðið til trafala. Samgöngur
væru ekki nægilegar góðar yfír
vetrartímann.
Menn spyija sig þessa dagana
hvort grundvöllur sé fyrir tvo fisk-
markaði í Eyjafírði. Hilmar var
spurður að því: „Auðvitað geta
Bréfíð sem átti að afhenda ráð-
herra hefst á þessum orðum: „Við
framsóknarmenn í Norðurlands-
kjördæmi eystra, sem skoruðum
á Stefán Valgeirsson að gefa kost
á sér í sérframboð, gerðum það
af illri nauðsyn, þar sem sýnt var
að Framsóknarflokkurinn myndi
tapa miklu fylgi eftir að Stefáni
var ómaklega hafnað á Húsavík-
urfundinum s.l. haust.“ Síðar
segir að hópurinn hefði talið sér-
framboð undir merkjum Fram-
sóknarflokksins betri kost en að
tapa „fjölda stuðningsmanna til
annarra flokka" því sýnt hefði
verið að mikil óánægja ríkti um
skipan lista flokksins.
Sameining eftir kosn-
ingar ekki sjálfgefin
Síðan segir í bréfínu: „Það kom
því mjög á óvart og okkur næsta
óskiljanlegt þegar beiðni okkar
um að fá að bjóða fram undir
merkjum Framsóknarflpkksins og
fá að einkenna sérframboðið með
listabókstöfunum BB var hafnað.
Viljum við lýsa furðu okkar og
vonbrigðum með afstöðu stjómar
KFNE og flokksforystunnar í allri
umfjöllun um okkar beiðni, þar
sem öllu samstarfi sem aukið
gæti veg framsóknarmanna í heild
er hafnað. Einnig er augljóst, að
sameining framsóknarmanna eftir
komandi kosningar er ekki sjálf-
gefín, þar sem við munum vera
minnug þess að sjónarmið okkar
eiga ekki samleið með Framsókn-
arflokknum að mati forystumanna
hans og munum við að sjálfsögðu
móta okkar hugmyndagrundvöll
og haga kosningastarfínu í sam-
ræmi við það.“ Bréfíð er undirritað
af Haraldi M. Sigurðssyni, kosn-
ingastjóra, fyrir hönd framboðs-
ins.
Séra Pétur Þórarinsson, sem
skipar annað sæti á lista Stefáns
Valgeirssonar, sagði í gær að neit-
un Steingríms sýndi best áhuga-
leysi hans á framsóknarheildinni
í kjördæminu. „Hann hefur ekki
yrt á okkur varðandi þetta mál
og það sýnir hvað honum fínnst
um þá sem standa að sérframboð-
inu,“ sagði Pétur. Pétur og
Haraldur kosningastjóri sögðu
ljóst að eftir neitun Steingríms
myndi fjöldi fólks segja sig úr
Framsóknarflokknum sem hefði
verið í vafa áður.
Steingrímur sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að það væri
ekki við sig að eiga vegna synjun-
ar kjördæmissambandsins á
BB-merkingunni. „Samkvæmt
flokkslögum er það kjördæmis-
sambandið sem ákveður þetta og
framkvæmdastjómin vildi ekki
hafa afskipti af málinu," sagði
hann.
Fásinna
Forsætisráðherra var inntur
álits á fullyrðingum Stefáns-
manna á því að fólk segði sig
frekar úr flokknum þar sem hann
hefði neitað að hitta þá að máli.
Hann svaraði: „Þetta er fásinna
og sýnir að mennimir eru komnir
í málefnaþrot. Þeir vita ekki hvað
þeir vilja."
Haraldur kosningastjóri Stef-
áns kom beiðni sinni um fund með
Steingrími á framfæri við Pál
Pétursson, formann þingflokksins
í fyrradag, en fékk neitun. Páll
var í gær spurður hvers vegna
hann hefði neitað beiðninni: „Mér
skildist á Haraldi að þeir vildu
hitta okkur vegna ákvörðunar
framkvæmdastjómar að breyta
ekki niðurstöðu kjördæmisráðsins
vegna BB-merkingarinnar. Ég tók
þátt í að ákveða þetta í fram-
kvæmdastjóminni og tel að
réttkjörin stjóm heima fyrir eiga
að ráða þessu.“ Páll sagðist, í
samráði við Steingrím, ekki hafa
séð ástæðu til að munnhöggvast
við Harald M. Sigurðsson um
þetta mál. Páll sagði ennfremur:
„Ég vil ekkert gera til að magna
þessar deilur og tel ástæðulaust
að standa í orðaskiptum - allra
síst óvinsamlegum - en mér þykir
miður að svona fór. Að Stefán
Valgeirsson skyldi á gamals aldri
fara í sérframboð. Hann hefur
unnið vel og lengi í pólitík og þeð
hefði verið skemmtilegra ef menn
hefðu skilið sæmilega sáttir.“
Brezka hljómsveitin The Searchers.
Searchers
í Sjallann
BREZKA hljómsveitin The
Searchers er væntanleg til
landsins um aðra helgi og mun
koma fram í Sjallanum föstu-
daginn 20. og laugardaginn 21.
febrúar. Hljómsveitin mun
ekki koma annars staðar fram
í þessari ferð sinni hingað.
Serachers var stofnuð 1962
og heldur því upp á 25 ára af-
mælið á þessu ári. Verður þess
minnst á magvíslegan hátt, svo
sem með sjónvarpsþætti og út-
gáfy nýrrar hljómplötu.
í upphafí ferils síns var The
Searchers ein þekktasta hljóm-
sveit Bretlands, var m.a. kosin
önnur vinsælasta hljómsveitin
árið 1963, næst á eftir Bítlunum.
Á þeim árum kom hljómsveitin
til íslands og lék í Austurbæj-
arbíói og Glaumbæ. Hún kom
aftur fyrir nokkrum árum og
spilaði þá í Broadway.
Heildar plötusala hljómsveitar-
innar er rúmlega 30 milljón
eintök og hefur hún alls hlotið 6
gullplötur. Þekktustu lög sveitar-
innar eru Needles and pins, Dont
throw your love away, Goodbye
my love og Love potion no. 9.