Morgunblaðið - 05.03.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1987
Tvær fóstrur
vilja reka einka-
barnaheimili
TVÆR fóstrur hafa leitað til
borgarstjóra, Davíðs Oddssonar,
eftir heimild til að fá að reka
einkabarnaheimili í Reykjavíkur-
borg. Davíð sagði frá þessu á
Viðskiptaþingi á þriðjudag en
kvað málið nýkomið á sitt borð
og því ekki afgreitt.
Borgarstjóri sagði ennfremur, að
hann gæti ekki annað en tekið
umsókn fóstranna vel og nefndi sem
dæmi að tveir kennarar hefðu á
sínum tíma farið fram á að reka
einkagrunnskóla í Reykjavík. Sá
skóli hefði nú sýnt sig að vera mjög
vel rekinn.
Það kom og fram í máli borgar-
stjóra, að í Reykjavík eru nú um
60 barnaheimili og dagvistarstofn-
anir og að hann sæi ekkert athuga-
vert við það að setja eitthvað af
þeim í hendur einkaaðila. Hann
ræddi ennfremur möguleika á því
að fá foreldrum sjálfum í hendur
þá peninga sem það kostaði borgina
að vista börn þeirra, ef þeir gætu
ráðstafað þeim á betri veg en nú
er gert. Hann tók fram, að þetta
væru aðeins hugrenningar sínar.
Fríkirkju-
vegur breikk-
ar ekki
„VIÐ gerum ekki ráð fyrir að
Fríkirkjuvegur breikki sem
neinu nemur þótt ráðist verði í
lagfæringar á Tjarnarbakkan-
um,“ sagði Davíð Oddsson
borgarsljóri.
Borgarstjóm hefur samþykkt að
veita átta milljónum króna til lag-
færingar á Tjarnarbakkanum, sem
er víða illa farinn. Verst er þó
ástandið við Fríkirkjuveg. „Því hef-
ur verið haldið fram að Fríkirkju-
vegur breikki um þijá metra við
þessa framkvæmd, en það er
rangt,“ sagði Davíð. „Það þarf hins
vegar svigrúm til lagfæringanna á
austurbakkanum, en þar er tvíbreið
gangstétt svo það er hægt að nýta
sér. Hins vegar er óhjákvæmilegt
annað en að taka eitthvað af Tjörn-
inni við þessar lagfæringar, því
bakkinn er beinlínis hættulegur í
núverandi ástandi."
INNLENT
Sá guli gefur sig ekki
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Skipveijar á Garðey frá Hornafirði voru ekki sérlega ánægðir með aflabrögðin er blaðamenn Morgunblaðsins fóru með þeim í róður
í vikubyijun. Þeim fannst sá guli heldur tregur, en aflinn í þessum róðri var um 7 tonn úr 9 trossum. A myndinni greiða skipveijar
úr netunum.
Útflutningur á ferskum fiski til Vestur-Þýzkalands:
Upplýsingaskylda til að
spoma við offramboði
STJÓRN Landssambands
íslenzkra útgerðarmanna hefur
samþykkt og lagt fram tillögu
um upplýsingabanka hvað varð-
ar sölu á ferskum fiski til
Vestur-Þýzkalands. Tillagan er
samþykkt í þeim tilgangi að
koma í veg fyrir offramboð á
fiskmörkuðunum þar og tryggja
hagstætt verð fyrir fiskinn. Ut-
flytjendur verði þá skyldugir til
að gefa skrifstofu LIU upp áætl-
aðan útflutning og fái á móti
upplýsingar um endanlegt magn
á leið á markaðinn. Þá er þess
óskað að viðskiptaráðuneytið
veiti ekki útflutningsleyfi þeim,
sem ekki gefi upplýsingar um
áformaðan útflutning. Ekki er
gert ráð fyrir beinum hömlum á
útflutninginn.
Sala á heildverslun:
Hæstiréttur
heimilar riftun
NÝVERIÐ gekk dómur í Hæstarétti, þar sem heimiluð var
riftun á kaupsamningi, sem gerður hafði verið vegna eig-
andaskipta á heildsöluverslun, sem hafði einkasöluleyfi á
vörum frá Max Factor (Mary Quant).
29. júlí gerði áfrýjandi Kristj- leyfis frá Max Factor fyrir 1.
ana Guðmundsdóttir samning við
stefndu Jóhönnu Heiðdal, þar sem
sú síðamefnda seldi heildverslun
sína til Kristjönu. Stefnda hafði
að mestu hætt verslunarrekstri
sínum, þar eð vörur fengust ekki
afgreiddar vegna ógreiddra
skulda við hið erlenda fyrirtæki.
Þessu leyndi hún áfrýjanda. Þá
segir í samningnum, að tiltekin
umboð séu framseld til áfrýjanda.
Fram kom í málinu að stefnda
hefði ekki heimild til þessa og gaf
hún þó í samningnum tryggingu
fyrir því, að svo væri. Þá skuld-
batt stefnda sig í samningnum til
þess að afla skriflegs einkasölu-
desember 1983. I dómnum segir
síðan: „Þetta umboð virðist hafa
verið veigamesti þáttur verslunar-
rekstrarins, en ekki tókst stefndu
að efna skuldbindinguna um
framsal þess.“ Að mati dómsins
voru vanefndir þessar svo veruleg-
ar, að áfrýjanda hafi verið heimilt
þann 29. júní 1984 að rifta kaup-
unum. Stefnda var og dæmd til
greiðslu málskostnaðar fyrir hér-
aðsdómi og Hæstarétti.
Mál þetta dæmdu Hæstaréttar-
dómaramir Magnús Thoroddsen,
Bjami K. Bjamason, Guðmundur
Jónsson, Halldór Þorbjömsson og
Þór Vilhjálmsson.
Víðtæk leit
að dreng á
Djúpavogi
Elti heimilishund-
inn út að Búlands-
neshöfn
Á SJÖTTA tug manna leitaði
þriggja ára drengs á Djúpa-
vogi í gær, sem hafði villst
frá heimili sínu. Hann fannst
hrakinn og blautur á gangi í
mýrlendi nálægt Búlandsnes-
höfn laust eftir kl. 20.00 i
gærkvöldi.
Að sögn Sigurðar Gíslasonar
héraðslögregluþjóns var það um
sexleytið í gær, sem strákur
hvarf ásamt heimilishundinum.
Hann hafði verið að leika sér
heima við og móðir hans brugð-
ið sér frá í nokkrar mínútur.
Ættingjar hófu þegar leit.
Strákur virðist hafa farið hratt
yfir því hann fannst ekki í næsta
nágrenni. Þegar myrkva tók var
björgunarsveitin köiluð til og
bæjarbúar flykktust til leitar.
Strákur fannst tveimur kíló-
metrum fyrir utan bæinn og
hafði þá gengið um þýfið og
skorið mýrlendi drykklanga
stund. Hann hresstist fljótt þeg-
ar heim var komið. Gaf hann
þá skýringu á ferðum sínum að
hann hefði verið að elta hundinn
Tillagan hefur verið kynnt sjó-
mannasamtökunum, sem hafa lýst
sig henni fylgjandi, og sömuleiðis
útflutningsnefnd Félags íslenzkra
stórkaupmanna, sem hefur á sinni
hendi megnið af útflutningi físks í
gámum. Matthías Bjarnason, við-
skiptaráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hann hefði aðeins
litið lauslega á tillögu LÍÚ og ætti
hann eftir að hugleiða hana betur.
Því vildi hann ekki tjá sig um hana
fyrr en síðar.
Jón Ásbjörnsson, fískútflytjandi
segir tillöguna spor í rétta átt, þó
hún firri menn ekki áhættunni á
verðfalli vegna offramboðs. Helgi
Laxdal, varaforseti Farmanna- og
fískimannasambands Islands, segir
tiilöguna geta verið fyrsta skrefíð
í þá átt að koma lagi á útflutning
á ferskum fiski.
í tillögu LÍÚ er gert ráð fyrir
því, að bókanir fískiskipa á söludög-
um verði óbreyttar. Ekki er gert
ráð fyrir því, að fyrirkomulag þetta
nái til útflutnings til Bretlands,
meðal annars vegna þess, að fisk-
markaðurinn þar fer yfirleitt ekki
jafn neðarlega og markaðimir í
Þýzkalandi.
Dæmdir fyrir inn-
flutning á amf etaíni
í vindlingapökkum
SAKADÓMUR í ávana- og fíkni-
efnamálum hefur dæmt tvo
menn til fangelsisvistar fyrir inn-
flutning á 350 grömmum am-
fetamíns. Hlaut annar þeirra
tveggja ára og níu mánaða dóm,
en félagi hans var dæmdur til
eins árs fangelsisvistar.
Málavextir eru þeir að maður var
handtekinn við komu til landsins í
apríl 1986 og reyndist hann þá
vera með 350 grömm af amfet-
amíni í fórum sínum. Daginn eftir
var félagi hans handtekinn við
komu til landsins. Hafði sá fengið
þann fyrmefnda til að flytja efnið
til landsins gegn 300 þúsund króna
greiðslu, en ætlaði sjálfur að selja
efnið hér á landi. Mennimir fóru
báðir til Luxemborgar og ferðuðust
þaðan til Amsterdam, þar sem ann-
ar keypti amfetamínið. Síðan héldu
þeir aftur til Luxemborgar og kom
kaupandinn fíkniefninu fyrir í vindl-
ingapökkum, en þannig flutti félagi
hans efnið til landsins.
I niðurstöðum dómsins segir að
styrkur amfetamínsins hafl ekki
verið mjög mikill, en efnismagn
hafí hins vegar verið mjög mikið
og efnið ætlað til endursölu. Kaup-
andi efnisins hafði hlotið reynslu-
lausn í desember 1985 í 2 ár á
eftirstöðvum refsingar, 280 daga
fangelsi. Hann rauf því skilorð með
sakfellingu í málinu. Þótti brot hans
í þessu máli svo alvarlegs eðlis að
ekki kæmi til álita að láta standa
óbreytt sem skilorðsdóm óloknu
fangelsi. Því þótti refsing hans
hæfilega ákveðin fangelsi í tvö ár
og níu mánuði. Sá sem flutti efnið
til landsins hlaut hins vegar eins
árs dóm.
Dóminn kvað upp Guðjón St.
Marteinsson fulltrúi.