Morgunblaðið - 05.03.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1987
23
Kvenfélag Hall-
grímskirkju 45 ára
Á hátíðarfundi Kvenfélags
Hallgrímskirkju sem haldinn verður
í kvöld, fimmtudagskvöld 5. mars,
kl. 20.30, verður þess minnst að
45 ár eru frá stofnun félagsins.
Hallgrímssöfnuður var stofnaður
samkvæmt lögum á haustdögum
1940 og falið það verkefni að reisa
minningarkirkju Passíusálma-
skáldsins. Þá þegar var risin §ölda-
hrejrfing um þá hugsjón í bænum.
Fljótlega eftir stofnun safnaðarins
bundust nokkrar konur samtökum
um að stofna kvenfélag til styrktar
kirkju og söfnuði. Var stofnfundur
Kvenfélags Hallgrímskirkju svo
boðaður að aflokinni messu í sam-
komusal Barnaskóla Austurbæjar,
sunnudaginn 8. mars. 325 konur
gerðust stofnfélagar kvenfélagsins,
og í fyrstu stjórn voru kosnar: Guð-
rún Jóhannsdóttir frá Brautarholti,
formaður, Anna Ágústsdóttir,
Emilía Sighvatsdóttir, Jónína Guð-
mundsdóttir, Lára Pálmadóttir og
prestskonurnar, Magnea Þorkels-
dóttir og Þóra Einarsdóttir.
Biskup íslands, Sigurgeir Sig-
urðsson, flutti ávarp á stofnfundin-
um, og lýsti gleði sinni yfir þessum
atburði, og þeirri von sinni, að þetta
unga félag yrði sem kærleikskeðja
um Hallgrímskirkju. Sú hefur verið
raunin.
Á langri og oft stormasamri leið
safnaðarins hefur kvenfélagið aldr-
ei hvikað frá settu marki af
kærleika og einstakri fómfýsi.
Frá fyrstu tíð hefur meginmark-
mið kvennanna verið prýði og
fegrun kirkjunnar, og hafa þær t.d.
gefíð mestan hluta skrúða kirkjunn-
ar og annars búnaðar, svo og allan
búnað safnaðarheimilisins og eld-
húss. Auk þess hafa þær á margvís-
legan hátt stutt starfíð í söfnuðinum
og starfað að menningar- og líknar-
málum.
Fimm konur hafa frá upphafi
gegnt formennsku í Kvenfélagi
Hallgrímskirkju. Það eru: Guðrún
Jóhannsdóttir frá Brautarholti,
Magnea Þorkelsdóttir, Guðrún Ryd-
én, Þóra Einarsdóttir og núverandi
formaður, Lýdía Pálmarsdóttir.
Á merkisafmæli geta kvenfélags-
konur litið um öxl með gleði og
nokkm stolti. Nú er Hallgríms-
kirkja risin og vígð, stolt og gleði
safnaðar síns, og þjóðarinnar allrar.
En Hallgrímskirkja þarf ekki síður
nú en fyrr stuðning og kærleika
safnaðarfólks og þeirra samtaka,
sem efla og hlúa að kirkjunni og
því lífi og starfi, sem þar á sér stað
Guði til dýrðar og landi og lýð til
heilla.
Karl Sigurbjörnsson
Flateyrarhrepp-
ur hluthaf i í
f er ðaskrif stofu
Flateyri.
NÚ NÝVERIÐ ákvað hrepps-
nefnd Fiateyrarhrepps að kaupa
lítinn hlut í ferðaskrifstofunni
Ferðabæ, sem meðal annars býð-
ur upp á sérstakar ferðir á
Vestfirði og þar á meðal til Flat-
eyrar. Fleiri aðilar hér hafa
gerst hluthafar í þessari ferða-
skrifstofu.
Nú er svo komið að hér er hægt
að taka á móti litlum ferðahópum,
því eigandi verslunarinnar Vagninn
hefur byggt upp notalegt gistiheim-
ili á efri hæð verslunarinnar. Á
neðri hæðinni er skyndibitastaður,
myndbandaleiga og billjardstofa.
Ferðabær hyggst bjóða upp á
kynningu fyrir Onfirðinga á ferða-
möguleikum til Vestijarða fimmtu-
daginn 5. mars og föstudaginn 6.
mars milli klukkan 16 og 18 báða
dagana. Fyrirhugað er að á staðn-
um verði fulltrúar frá sveitarfélag-
inu sem og frá Önfirðingafélaginu
í Reykjavík. Árshátíð Önfirðingafé-
lagsins er einmitt á laugardaginn,
þann 7. mars, og verður hún haldin
í Félagsheimilinu á Seltjamarnesi.
Miðar á árshátíðina verða seldir á
skrifstofu Ferðabæjar.
Binda menn talsverðar vonir við
að Ferðabæ takist að auka hlut
Vestfirðinga í ferðamannaþjón-
ustunni, en því miður virðist hlutur
okkar Vestfirðinga í þeirri grein
ekki vera eins mikill og aðstæður
hér teljast geta boðið upp á.
- EFG
DÆLUR
úr ryftfríu stáli
• 1 og 3ja fasa.
• Til stýringar á
vatnsrennsli.
• Einstök gæði,
góð ending og
fágað útlit.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSIJUN, SlMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Hemfefur ákr íí90r0^ ý(?
T 1-HerraAkyi'Ujra'"0
MIKLIGAR-DUR
DOMUS
r • •
KAUPFELOGIN
- m iMtddtt!
VIKUNNAR
YDDA