Morgunblaðið - 05.03.1987, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1987
21
RAFUAGNSVEITA
REYKJAVlKVR
Suóurlandabraut 34
109 RKYKJAVlK
ÞROUN RAFORKUVERDS*
Uióað vii byggingarvísitölu
I Skattar
I Orkukaup
I Takjxihluti RR
2-MAR-87
MBlutfall ralknlngafmróra ára—
■ takna < Irínum og heildar
orJtujðlu < trA
160J
150.
140.
130.
120.
110.
100
90
ao
70
60.
50
40
30
20,
,10
1971=100
Áœtlaö
1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987
ÁR
verð eins sígarettupakka sem er um
100 kr.
Verð hjá öðrum rafveitum er þó
nokkru hærra — nema á Akureyri
og Akranesi, þar er munurinn lítill.
Raforkuverð til iðnaðar í
Reykjavík, þ.e. til þeirra fyrirtækja
sem nýta aflið vel og nota allmikla
orku, er verulega lægri í Reykjavík
en annars staðar. Meðal þessara
fyrirtækja er Grandi hf. Almennt
hefur raforkuverð lækkað mjög
verulega miðað við vísitölu á sl. 4
árum. Sem dæmi má nefna að al-
mennur taxti lækkar um tæp 50%
frá 1983 til 1987. Á sama hátt
lækkar meðalverð þessara ára um
40%, eins og súlurit í nýlegri grein
borgarstjóra hér í blaðinu sýndi.
Súlurit þetta er birt hér aftur vegna
prentgalla í fyrri birtingu.
Raforkuverð til rafhitunar er hins
vegar alls ekki lægst í Reykjavík.
Hér koma til pólitísk byggðasjónar-
mið og niðurgreiðslur — en vitað
er að t.d. hjá Rafmagnsveitum ríkis-
ins og Orkubúi Vestfjarða er
raforka til hitunar seld verulega
undir kostnaðarverði.
Samanburður við
önnur lönd
Loks er rétt að leiðrétta algengan
misskilning, sem sé þann að raf-
orkuverð hér á landi sé óeðlilega
hátt og mun hærra en í grannlönd-
um okkar. Þetta er ekki rétt.
Staðreyndimar eru þessar, en
Samband íslenzkra rafveitna gerði
nýlega samanburð á raforkuverði í
18 Evrópulöndum:
Með sköttum er það lægra en
á íslandi í aðeins 3 löndum
(Svíþjóð, Finnlandi, Noregi).
Þetta giidir einnig um iðnaðar-
taxta (afltaxta) og má þá bæta
Grikklandi við.
Án skatta er íslenzka verðið enn
hagstæðara að því er iðnaðartaxt-
ann varðar. Aðeins í Svíþjóð er
verðið lægra.
í þessum samanburði er miðað
við tilteknar forsendur alþjóðasam-
bands raforkufyrirtækja
(UNIPEDE).
Leiðari Mogunblaðsins
og „Kerfið“
Leiðari Morgunblaðsins miðviku-
dag 25. febrúar bar yfirskriftina
„Kerfisviðbrögð".
Ef ég skil orðið „kerfí“ rétt get
ég fullvissað leiðarahöfund um, að
ég er svarinn andstæðingur „kerfís-
ins“ — engan veginn málsvari þess.
Eigi höfundurinn við að Rafmagns-
veitan sé „kerfíð" í þessu máli minni
ég á að það er til annað „kerfi“,
hið æðra kerfí stjórnmálanna
pólitíska kerfið. Meira um það í
lokin.
Aukaatriði
Leiðarahöfundur vitnar í viðtal
undirritaðs við blaðamann Morgun-
blaðsins daginn áður. Réttilega er
þar talið upp að „formlegt erindi"
hafí ekki borizt frá Granda hf.,
ekki hafí verið svigrúm til sérsamn-
inga, rekstur rafstöðva yfír vissum
stærðarmörkum sé háður leyfi ráð-
herra og að dísilstöð Granda hf.
hafi ekki verið tengd samkvæmt
öryggisreglum. En þetta er ekki
mergurinn málsins, eins og ég hef
rekið hér að framan.
Misskilningur
í leiðaranum er það talin „upp-
götvun" Granda hf. og fleiri fyrir-
tækja, að hagkvæmt geti verið að
nota dísilvél þegar skyndiálagstopp-
ar verða eða að nota gas til eldunar,
a.m.k. að hluta til. Þetta hefur lengi
tíðkast bæði hérlendis og erlendis.
Enda er þessi „uppgötvun" ekkert
annað en heilbrigð skynsemi. Ein-
faldlega hagkvæmasta lausn fyrir
alla aðila.
Morgunblaðið heldur áfram:
„Þegar fyrirtæki eins og Raf-
magnsveita Reykjavíkur standa
frammi fyrir því að þeir sem þjón-
ustu hafa keypt af þeim sjá sér
ekki hag í áframhaldandi við-
skiptum og finna nýjar og
ódýrari leiðir ...“ (feitletr.
greinarhöf.)
Þetta er einfaldlega út í bláinn
sagt. Grandi hf. sér sér auðvitað
hag í áframhaldandi viðskiptum
við Rafmagnsveituna enda meðal-
verð fyrirtækisins býsna lágt,
líklega um 2,30 kr/kWh. það sem
málið snýst um er sérstök, ný og
skyndileg skammtímanotkun. Orka
frá rafveitukerfi til slíkra nota verð-
ur oftast dýrari en orka til venju-
legra nota og þá kann dísilvél að
vera ódýrasta lausnin. Þá verður
bara að kyngja því að útlend olía
frá vondum Rússum eða aröbum
er betri en alíslenzkt vatn fóstur-
jarðarinnar.
Og hið sama getur gilt um útlent
gas til eldunar, þar sem það á við.
„Kerfið“
Þessi kerfis-leiðari Morgunblaðs-
ins rís hæst í lokin þar sem segir:
„Sá tími er liðinn, að opinber fyrir-
tæki geti átölulaust í skjóli einok-
unar og margs konar forréttinda
sett framtaki einstaklinga stól-
inn fyrir dymar, haft að engu
leikreglur heilbrigðra markaðsvið-
skipta eða látið sem þau taki ekki
eftir hræringum og framvindu í
atvinnu- og viðskiptalífinu." (feit-
letr. greinarhöf.)
Það er rétt að pólitíska kerfíð
hefur með lögum fyrirskipað að
rafveitur skuli hafí einkaleyfi til
raforkusölu hver á sínu svæði.
Stjórnendur rafveitna, þar á með-
al Rafmagnsveitu Reykjavíkur, vilja
helzt af öllu reka rafveiturnar sem
viðskiptafyrirtæki, ekki sem „stofn-
anir“ undir daglegri miðstýringu
hins pólitíska kerfis. Það kerfi
gerir rafveitunum ósjaldan erfítt
fyrir um hvers konar breytingar í
Ungmennafélagið Þórsmörk í
Fljótshlíð frumsýnir leikritið Jóa
eftir Kjartan Ragnarsson í kvöld,
fimmtudaginn 5. mars í félags-
heimili Fljótshlíðinga, Goðalandi,
og hefst sýningin klukkan 21.
Þessi sýning er sett upp í tilefni
70 ára afmælis ungmennafélags-
ins á þessu ári.
Ungmennafélagið Þórsmörk var
stofnað 10. nóvember 1917. Félagið
hefur alltaf látið leiklistina mikið
til sín taka enda er mikill leiklistar-
áhugi í Fljótshlíðinni og er uppsetn-
ing leikritsins nú ávöxtur hans. í
fyrra var haldið leiklistarnámskeið
þar sem færri komust að en vildu.
Félagið hefur á fimm ára fresti
sett upp stór leikverk. Á 60 ára
afmælinu var það Hreppstjórinn á
Hraunhamri og 1982 Húrra krakki.
Þess á milli hafa verið settir upp
smáþættir og sýndir á skemmtun-
um.
„Þetta hefur gengið mjög vel,
auðvitað er aðstaðan dálítið erfið
en þetta hefst allt saman,“ sagði
frjálsræðisátt, hvort heldur um er
að ræða breytingar á verðskrám
eða nútímaleg þjónustuvinnubrögð.
Ef rekja ætti baráttu rafveitna,
eins og Rafmagnsveitu Reykjavíkur
við „pólitíska kerfið“ til að ná
fram ýmsum umbótum yrði það
löng lesning. Nokkur dæmi duga:
* Það tók rafveiturnar 20 ár að fá
einhvern vitlausasta skatt sem
um getur, verðjöfnunargjald á
raforkusölu, afnuminn.
* í borgarkerfinu tekur að jafnaði
nokkur ár að ná fram einfaldri
lagfæringu á verðskrá, sem mið-
ar m.a. að því að aðlaga fyrir-
komulag orkusölu „leikreglum
heilbrigðra markaðsviðskipta",
eins og segir í leiðara Morgun-
blaðsins.
* Afskipti ríkisvaldsins af verð-
lagningu raforku hafa löngum
leikið rafveitur grátt — en fyrst
og fremst þó almenning, sem
hefur þurft að greiða hærra verð
en ella vegna þessara afskipta.
Ótrúleg vinna hefur farið í þessa
baráttu fyrirtækjanna við
„pólitíska kerfið“.
* Rafmagnsveitan var orðin 50
ára, þegar tókst að byggja fyrri
áfanga eigin húsnæðis yfir starf-
semina. Og önnur 12 ár liðu þar
til fjárhagur og skilningur dugðu
til að ljúka síðari áfanganum.
* Stefna hins „pólitíska kerfis“
í launamálum og sú mikla mið-
stýring sem þar ríkir gerir
opinberum þjónustufyrirtækjum
mjög erfitt fyrir. Afgreiðsla mála
er fádæma seinvirk og þung-
lamaleg. Ungt, velmenntað fólk
Ingunn Jensdóttir þegar litið var inn
á æfingu í Goðalandi síðastliðið
þriðjudagskvöld. „Þetta er sérstak-
lega viljugt og skemmtilegt fólk að
vinna með. Það var sagt í gamla
daga að það væri alltaf sérstakt
fjör í Fljótshlíðinni og ég staðfesti
að svo er enn,“ sagði leikstjórinn
einnig.
Allir leikendur eru Fljótshlíðingar
og láta það ekkert á sig fá þó að-
eins tveir þeirra hafi leikið á sviði
áður. Fólk leggur bara harðara að
sér. Kristín Jónsdóttir frá Lambey
sem hannaði búninga og leikmynd
og axlar að auki eitt hlutverk sagð-
ist ekki hafa unnið að leikhússtarfi
áður heldur við auglýsingagerð en
þetta væri stórskemmtilegt.
Frumsýningin verður fimmtu-
daginn 5. mars og síðan verða
sýningar í Goðalandi 6., 7., og 8.
mars. Hægt er að panta miða hjá
Sigurði Eggertssyni formanni leik-
nefndar í síma 8471. Leikendur
lögðu áherslu á að fólk passaði upp
á að koma á sýningarnar í Goða-
fæst hreinlega ekki til starfa,
nema í mjög skamman tíma.
* Skilningur „pólitíska kerfisins" á
því að fyrirtæki eins og Raf-
magnsveita Reykjavíkur opnaði
eina stöðu manns til að skipu-
leggja endurmenntun starfsfólks
og annast almannatengsl á
nútímavísu hefur fram að þessu
enginn verið.
* Það tók allmörg ár að fá leyfi
hins pólitíska kerfis til að taka
dráttarvexti af orkuskuldum.
Ráðstöfun sem var ekkert annað
en sjálfsögð aðgerð í „heilbrigð-
um markaðsviðskiptum“. Hún
verðtryggði Rafmagnsveitunni
útistandandi skuldir og lagfærði
misrétti sem skilvísir notendur
voru beittir.
Jákvæður árangur
Rafmagnsveitu Reykjavíkur hef-
ur, þrátt fyrir þessa baráttu við
pólitíska kerfið, tekist margt vel.
Ég tel Rafmagnsveituna hafa verið
með framsæknari opinberum fyrir-
tækjum í landinu. Hún hefur verið
fljót að taka nýjustu tækni í þjón-
ustu sína, t.d. verktækni og tölvu-
stýringu dreifikerfísins. Hún tók
snemma upp hvetjandi launakerfi
við framkvæmdir (kaupaukakerfi)
samfara róttækum hagræðingarað-
gerðum. Hún tók fyrir nokkrum
árum í notkun öflugt og mjög full-
komið tölvukerfi m.a. til útskriftar
orkureikninga (svonefnt sívinnslu-
eða beintengt kerfi) þar sem við-
skiptavinir geta með skjótum hætti
fengið hvers konar upplýsingar.
Hér var Rafmagnsveitan í farar-
landi því ekki væri áformað að sýna
leikritið annarstaðar í sýslunni.
I aðalhlutverkum eru Gunnar
Karlsson sem leikur Jóa, Guðmund-
ur Svansson leikur Dóra og Ólöf
Sveinsdóttir fer með hlutverk Lóu.
Leikarar eru alls 7 en um 20 manns
koma nærri uppsetningu leikritsins.
Tónlistin í leikritinu er eftir Guðna
Fransson. Húsgagnaiðjan Hvols-
velli leggur til veglegt sófasett í
leikmyndina og er í hópi fleiri aðila
broddi, en hún var líka frumkvöðull
í skýrslutæknimálum hér á landi
þegar Skýrsluvélar ríkisins og
Reykjavíkurborgar voru stofnaðar
fyrir 40 árum.
Með tæknivæðingu og hagræð-
ingu hefur starfsfólki Rafmagns-
veitunnar fækkað jafnt og þétt sl.
tvo áratugi þrátt fyrir geysilega
stækkun veitukerfisins og aukningu
í allri starfsemi. í árslok 1968 voru
starfsmenn 272, í árslok 1986 voru
þeir 219.
Niðurstaða
Leiðara Morgunblaðsins lauk
með upphrópun um „skjól einok-
unar“ og forréttindi opinberra
fyrirtækja eins og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur.
„Skjól einokunar" er til komið
vegna kröfu pólitískra yfírvalda um
að rafveitur skuli hafa einkaleyfí
til orkusölu hver á sínu svæði. Ég
tel mig hafa hrakið fullyrðingu leið-
arans um misnotkun Rafmagns-
veitu Reykjavíkur á þessu „skjóli".
„Forréttinda" Rafmagnsveitu
Reykjavíkur hef ég leitað frá því
að ég las þennan leiðara Morgun-
blaðsins — en hvergi fundið. Þess
í stað hef ég fundið urmul af skert-
um réttindum ef borið er saman
við einkafyrirtæki. Ég hef rakið
nokkur þeirra hér að framan.
„Niðurstaða mín varðandi kerf-
isskrif Morgunblaðsins í garð
Rafmagnsveitu Reykjavíkur er
þessi: Ég tel Rafmagnsveituna,
miðað við allar aðstæður sem opin-
bert fyrirtæki, vera tæknilega og
fjárhagslega vel á vegi stadda. Hún
hefur átt því láni að fagna, og á
enn, að hafa á að skipa góðu starfs-
fólki, sem vinnur störf sín af
samvizkusemi og trúmennsku. Ég
tel þjónustu við notendur góða þeg-
ar á heildina er litið.
Hins vegar má að sjálfsögðu
færa ýmsa þætti þjónustunnar og
tengsla við notendur til enn betri
vegar. Þjónustu má alltaf bæta.
Ef Rafmagnsveitan væri sjálf-
stæðari, ekki eins bundin við þunga
yfírbyggingu og miðstýringu póli-
tíska kerfisins, yrði það léttara
verk. Rafveitur landsins hafa og
rætt það á sameiginlegum fundum,
að breyting í þessa átt sé æskileg.
í grannlöndum okkar eru raf-
veitur ýmist í eigu opinberra aðila,
iðnaðarfyrirtækja eða annarra
einkaaðila. Mismunandi eignarfyr-
irkomulag er þar notað, en m.a. eru
mörg þeirra rekin sem hlutafélög,
jafnvel þótt eigandinn sé opinber
aðili, t.d. sveitarfélög, eitt eða fleiri.
Kannski myndu rafmagnsnot-
endur, þ.á m. Grandi hf., njóta enn
betri þjónustu, ef orkusalinn héti
Rafmagnsveita Reykjavíkur hf.
Höfundur er rafmngnsstjóri.
sem leggja eitt og annað til.
Hún gekk snurðulaust fyrir sig
æfíngin, sem litið var inn á hjá leik-
urunum og leikstjóranum í Goða-
landi. Leikritið hentar kannski
frekar stóru leikhúsunum, en snjall-
ar lausnir leysa þann vanda sem
hin þrönga aðstaða veldur. „Það er
gaman að fást við svona verk og
þetta skilur heilmikið eftir,“ sagði
einn leikendanna og þau orð fylgdu
gestum út í nóttina. — Sig.Jóns.
Jói frumsýndur í
Goðalandi í Fljótshlíð
Ungmennafélagið Þórsmörk 70 ára
Selfossi.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Leikarar og hluti aðstoðarmanna fyrir framan leiksviðið ásamt leik-
stjóra. í efstu röð: Ragna Björnsdóttir, Kristín Aradóttir, Ingunn
Jensdóttir leiksijóri og Ingibjörg Halldórsdóttir. Miðröð: Kristinn
Jónsson, Jón Ólafsson, Einar Eiríksson. Fremst eru Einar Magnús-
son, Guðmundur Svavarsson, Þorsteinn Guðjónsson, Gunnar Karls-
son, Ólöf Sveinsdóttir, Katrin Jónsdóttir og Ólafur Þ. Gunnarsson.