Morgunblaðið - 05.03.1987, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1987
Noregur:
Olafur konung-
ur greiðir tapið
Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÓLAFUR Noregskonungur hef-
ur hefur sent 49 fyrirtækjuin
ávísanir sem samtals hljóða upp
á 2,3 milljónir norskra króna
(tæpar 13 millj. isl.kr.). Pening-
ana reiðir konungur fram úr
eigin vasa til að greiða fyrir
endursmíði skips hans hátignar
„Noreg“.
„Noregur" skemmdist í eldsvoða
fyrir tveimur árum. Fyrirtæki eitt
tók að sér að gera við skipið og
réði til sín 49 undirverktaka til að
ljúka verkinu. Verktakarnir fengu
hins vegar ekki nema hluta launa
sinna greiddan þar eð fyrirtækið
varð gjaldþrota.
Olafur konungur sendi verktaka-
fyrirtækjunum 49 ávísun og
þakkarbréf á föstudag. Kvaðst kon-
ungur vera mjög ánægður með þær
endurbætur sem gerðar hefðu verið
á skipinu og að með ávísuninni
vonaðist hann til að bæta að hluta
þann skaða sem viðkomandi hefðu
orðið fyrir. Norska Stórþingið sam-
þykkti á sínum að sérstaka fjárveit-
ingu til fyrirtækjanna sem nam 50
prósentum af tapi þeirra.
Nokkrir norskir stjórnmálamenn
hafa sagt það álitshnekki fyrir þing
og þjóð að konungurinn skuli sjálf-
ur þurfa að rétta hlut manna með
þessum hætti. Þeir hafa og borið
lof á konung fyrir réttsýni hans og
trúmennsku.
Kína:
Utanríkisráð-
herrann sækir
Evrópuríki heim
Peking, Reuter.
WU Xueqian, utanríkisráðherra
Kína, heldur á morgun, föstudag,
í för til nokkurra Evrópuríkja.
Ráðherrann hyggst sannfæra
ráðamenn í viðkomandi ríkjum
um að herferð kínverskra stjórn-
valda gegn vestrænum hug-
myndum muni ekki skaða
samband Kína og Evrópu.
Leiðtogar Evrópuríkja vænta
þess að ráðherrann muni skýra
hvaða afleiðingar þróun stjórnmála
í Kína að undanförnu komi til með
að hafa á verslun og viðskipti við-
komandi ríkja. Ráðamenn í Kína
hafa ítrekað lýst því yfir að stjóm-
málahræringar í landinu muni á
engan hátt skaða viðskiptahags-
muni ríkja Evrópu.
Kínverski utanríkisráðherrann
mun heimsækja Tékkóslóvakíu,
Búlgaríu, Vestur-Þýskaland, Sviss,
Italíu og San Marino og er búist
við að hann haldi aftur til síns heima
undir lok þessa mánaðar.
Stjórnvöld í ríkjum Austur-Evr-
ópu hafa mörg hver fagnað þeim
aðgerðum sem kínverskir ráðamenn
hafa beitt til að sigrast á vestrænum
lýðræðishugmyndum. Þessi ríki
hafa því ekki teljandi áhyggjur af
þróun mála í Kína og vænta þess
að ferð Wus komi til með að styrkja
tengsl kínverska kommúnista-
flokksins og stjórnvalda í Austantj-
aldsríkjunum. Leiðtoga ríkja
Vestur-Evrópu fýsir hins vegar að
fá fréttir af innbyrðis átökum í
kínverska kommúnistaflokknum. I
janúarmánuði var Hu Yaobang,
formanni flokksins, vikið frá þar
eð hann þótti hafa brugðist rangt
við mótmælum kínverskra náms-
manna víða um landið.
Reuter.
Hvílst eftir kjötkveðjuhátíð
Kjötkveðjuhátíðinni í Rio de Janeiro er nú lokið
og þátttakendur og gestir farnir að tygja sig til
heimferðar. Eru þeir margir örmagna eftir
margra daga stanslaus hátíðahöld eins og t.d.
þessi unga stúlka, sem hallaði sér stundarkom
á bekk.
Svíþjóð:
Tengist Palme-morð-
ið Persaflóastríðinu?
Stokkhólmur, AP.
SÆNSKIR fjölmiðlar hafa velt
fyrir sér spurningum varðandi
ólöglega vopnasölu sænskra fyr-
irtækja til íran og hvort Olof
Palme, fyrrum forsætisráðherra
hafi reynt að stöðva slíkt.
Svíþjóð:
Stj órnarandstaðan
styður viðskiptabann
Hörð viðbrögð í Suður-Afríku
Stokkhólmi, Jóhannesarborg, Reuter.
Stjórnarandstöðuflokkar í
Svíþjóð lýstu á þriðjudag yfir
stuðningi við frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um að gripið verði
til viðskiptaþvingana gegn Suð-
ur-Afríku. Búist er við að
frumvarpið verði að lögum í
næstu viku.
Ingvar Carlsson forsætisráð-
herra sagði að Miðflokkurinn og
Frjálslyndi flokkurinn hefðu lýst
yfir stuðningi við frumvarpið á
fundi utanríkismálanefndar á
þriðjudag. Hægri menn lýstu einir
yfir óánægju vegna frumvarpsins.
Carl Bildt, leiðtogi Hægri flokksins,
Verður danska skipinu sökkt?
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
DANSKA flutningaskipinu Hor-
nestrand, sem kviknaði í á
Ermarsundi á þriðjudag, verður
ef til vill sökkt. Skipið er með
300 tonn af dýnamíti og 100 tonn
af sprengibúnaði innanborðs.
Áhöfnin yfirgaf skipið, þegar
skipstjórinn uppgötvaði, að eldur
var kominn upp í farminum. Voru
skipvetjar teknir um borð í skip frá
Kýpur og fluttir til Frakklands.
Frönsk herskip halda vörð um
flutningaskipið og hafa stjómendur
þeirra fýrirskipun um að sökkva
skipinu, ef það rekur of nálægt
ströndum Frakklands.
sagði að með því væri hlutleysis-
stefnu Svía ógnað þar sem ráðstaf-
anir þessar nytu ekki stuðnings
Oryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Tillaga um refsiaðgerðir gegn
stjórn hvíta minnihlutans í Pretoríu
var felld í síðasta mánuði í Öiyggis-
ráðinu þegar fulltrúar Breta og
Bandaríkjamanna beittu neitunar-
valdi.
Suður-afríska dagblaðið Citizen,
sem er hliðhollt stjómvöldum í Suð-
ur-Afríku, vandaði Svíum ekki
kveðjumar á þriðjudag. í forystu-
grein blaðsins sagði að Svíar gætu
farið „íjandans til“. „Okkur líka
ekki refsiaðgerðir og við hefðum
kosið að slíkum aðgerðyum yrði
ekki beitt gegn Suður-Afríku. Svíar
hafa ákveðið að beita refsiaðgerð-
um og geta af þeim sökum farið
fjandans til, okkar vegna,“ sagði í
greininni.
í grein sem birtist í bandaríska
stórblaðinu The New York Times í
vikunni var hið óupplýsta morð á
Palme fyrir einu ári tengt tilraunum
hans til að miðla málum í stríði ír-
ana og Iraka og stöðva vopnasölu
Svía til stríðsaðila.
Aftonbladet hefur eftir varafor-
manni danska sjómannasambands-
ins, Henrik Berlau, að hann hafi
sannanir fyrir því að Palme hafi
sjálfur stöðvað sendingar á eldflaug-
um til íran árið 1985. Berlau sagði
að vopn hefðu verið flutt með dönsk-
um skipum til Persaflóa og að ekki
hefði verið fylgst með því hvort
vopnin færu í raun á þá staði sem
skráðir voru á fyigiskjöl. Danska
sjómannasambandið bannaði á
þriðjudag að þetta mál yrði rætt og
var borið við að vemda þyrfti öryggi
danskra skipa.
Eftir byltinguna í íran 1978 bönn-
uðu sænsk yfirvöld að flutt yrðu
vopn þangað og einnig er sænskum
vopnaframleiðendum bannað að
selja framleiðslu sína til svæða þar
sem styijöld geisar. Yfirmenn Bo-
fors, stærsta vopnaframleiðanda
Svíþjóðar, eiga að mæta fyrir rétt á
næstunni sakaðir um að hafa haldið
áfram að flytja vopn til íran, þrátt
fyrir bannið. Einnig er verið að
rannsaka þátt hollenskra og belg-
ískra vopnaframleiðenda í því máli.
Stjórn Mohammeds Rheza Phalevi
íranskeisara hafði greitt Bofors fyr-
irtækinu um 400 milljónir sænskra
króna fyrirfram fyrir vopn þegar
henni var steypt af stóli og hefur
klerkastjómin krafíst þess að staðið
væri við þann samning.
Danmörk:
Læra að taka til-
lit til stúlkna
Kaupmannaliöfn. Frá Nils Jörgcn Bruun,
Dönskum menntaskólakennurum
gefst nú kostur á að taka þátt í
námskeiðum á vegum mennta-
málaráðuneytisins, þar sem
fjallað verður um, hvemig þeir
geti tekið ríkara tillit til sérstöðu
og sérþarfa stúlkna í hópi nem-
endanna. Býðst hveijum mennta-
fréttaritara Morgunblaðsins.
skóla í Danmörku að senda tvo
kennara á þetta námskeið.
í boðsbréfi menntamálaráðu-
neytisins segir, að drengir hljóti nú
langmesta eftirtekt í menntaskól-
unum og hafi það neikvæð áhrif á
sjálfstraust og þar með námsval og
síðar starfsmöguleika stúlknanna.