Morgunblaðið - 05.03.1987, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1987
29
Sovéski leikstjórinn Gleb Panf-
ilov hampar Gullbirninum,
hinum eftirsóttu kvikmynda-
verðlaunum.
Vestur-Berlín. Reuter.
Sovéska kvikmyndin „Þemað“
hlaut í fyrrakvöld hin eftir-
sóttu verðlaun „Gullbjöminn" á
kvikmyndahátíðinni í Vestur-
Berlín. Er verðlaunaveitingin talin
munu verða sovéskum kvik-
myndagerðarmönnum til mikillar
hvatningar og auka kröfur þeirra
um meira frelsi.
Leikstjóri myndarinnar, Gleb
Panfilov, sagði, að sovéskir kvik-
myndagerðarmenn ættu ekki bara
að láta sér vel líka það, sem þeg-
ar hefði áunnist fyrir atbeina
Gorbachevs, því að enn væri mik-
ið verk óunnið. „Við verðum að
beijast fyrir því, að ekki verði
aftur snúið til fyrri hátta og meg-
Kvikmyndahátíðin í Vestur-Berlín:
Sovéska myndin „Þemað“
vann til Gullbiamarins
um ekki vera hræddir við að fást
við viðkvæm mál,“ sagði Panfilov.
Panfilov lauk við myndina
„Þemað“ árið 1979 en þá var
bannað að sýna hana. Eftir upp-
stokkunina í samtökum sovéskra
kvikmyndagerðarmanna í janúar
sl. var hún hins vegar leyst úr
banni ásamt ýmsum öðrum kvik-
myndum. „Loksins geta kvik-
myndagerðarmenn í Sovétríkjun-
um ákveðið sjálfir hvað þeir vilja
taka fyrir og hvemig. Aður voru
okkur lagðar línurnar en nú ráð-
um við okkur sjálfir," sagði
Panfilov.
„Þemað“ fjallar um mál, sem
löngum hefur verið þagað um í
Sovétríkjunum, um brottflutning
gyðinga úr landi og um ofurvald
kommúnistaflokksins yfir allri
listsköpun. Segir þar frá þægum
listamanni, spilltum af forréttind-
unum, sem þakklátir kerfiskarlar
hafa ausið yfir hann, og ungri
konu, sem listamaðurinn verður
ástfanginn af. Hún sýnir honum
hins vegar fyrirlitningu og hæðir
á ýmsa lund fyrir undirlægjuhátt-
inn og kynnir hann fyrir ástmanni
sínum, rithöfundi af gyðingaætt-
um, sem ekki fær bækur sínar
gefnar út og verður að vinna fyr-
ir sér sem grafari í kirkjugarði.
Myndin segir frá tilfinningaleg-
um átökum þremenninganna og
lýkur loks með því, að rithöfund-
urinn ákveður að reyna að komast
til ísraels. „Ég vil heldur deyja
þar úr heimþrá en veslast hér upp
í hatri,“ segir hann og minnir sú
yfirlýsing nokkuð á hlutskipti sov-
éska leikstjórans Andreis Tarkov-
ski, sem lést ur krabbameini í
París fyrir nokkru.
Yelem Klimov, nýr formaður í
samtökum sovéskra kvikmynda-
gerðarmanna, sagði á frétta-
mannafundi á kvikmyndahátíð-
inni í Vestur-Berlín, að örlög
Tarkovskis væru mikill harmleik-
ur. „Við vitum ekki aðeins, að
verk listamanna hafa verið bönn-
uð, heldur einnig, að líf margra
manna hefur verið eyðilagt,"
sagði hann.
Danmörk
skuldug-
asta land
í heimi
Kaupmannahöfn. Frá Barbro Björnbak,
fréttaritara Morgunbiaðsins.
DANMÖRK er nú skuldug-
asta land í heimi. Erlendar
skuldir landsins nema
51.400 dönskum krónum
(um 293.000 ísl. kr.) á hvert
mannsbarn. í árslok námu
þessar skuldir 47.600 d.
krónum á mann.
Áður var það ísrael, sem átti
metið, en nú eru erlendar skuldir
þess aðeins 43.600 d. krónur á
hvern íbúa.
ísrael hefur tekist að minnka
erlendar skuldir sínar með
ákveðnum efnahagsráðstöfunum
og hjálp frá Bandaríkjunum.
Fall dollarans hefur enn fremur
lækkað erlendar skuldir landsins,
umreiknað í dönskum krónum,
en það sama er ekki hægt að
segja um skuldir Danmerkur.
I þriðja sæti á listanum yfir
skuldugustu löndin kemur írak.
•Bæði Israel og írak hafa mikil
útgjöld vegna hermála, en slíkt
á ekki við um Danmörku.
Erlendar skuldir Danmerkur
nema 39,6% af heildarþjóðar-
framleiðslunni, og á landið í
erfiðleikum með afborganir af
lánunum, meðan halli er á við-
skiptunum við útlönd.
Við parketleggjum landið
Reykjavík
Egill Árnason hf.
Parketval
Teppaland—Dúkaland
Akranes
Málningarþjónustan
Ólafsvík
Litabúðin
ísafjörður
Pensillinn
Sauðárkrókur
Kaupfélag Skagfirðinga
Ólafsfjörður
Valberg
Akureyri
Kahrs
Kahrs
Kahrs
Kahrs
Kahrs
Kahrs
Kahrs
Kahrs
Húsavík
Kaupfélag Þingeyinga
IMeskaup-
staður
Ársæll Guðjónsson
Höfn
KASK
Vestmanna-
eyjar
Brimnes
Selfoss
S.G. Búðin
Keflavík
Dropinn
Teppaland
fæst
Opið til
Kahrs
gæðaparket um allt land
kl. 16 laugardaga
EGILLARNASONHF.
PARKETVAL
SKEIFUNNI 3, SÍMI 91-82111