Morgunblaðið - 14.04.1987, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
65
Sj álfstæðisdraumar
eftir Gunnar A.H.
Jensen
Nú þegar kosningar til hins háa
Alþingis standa fyrir dyrum sækja
ýmsar áleitnar spurningar að
íslensku þjóðinni, s.s. um stöðu
hennar innávið og útávið, hvert
beri að stefna og þá hvernig?
Stórir draumar hafa verið
smíðaðir svona til að krydda drunga
skammdegisins og auk þess er þeim
ætlað að marka braut ferðalagsins
inn í hina glæstu framtíð.
„Blómabúð
Élönduóss“
Ný blóma- o g gjafa-
vöruverslun
Blönduósi.
BLÓMA*- og gjafavöruverslunin
„Blómabúð Blönduóss" var opn-
uð á Blönduósi föstudaginn 10.
apríl. Eigendur verslunarinnar
eru Ásta Kjartansdóttir og Olga
Óla Bjarnadóttir.
Þær stöllur Ásta og Olga sögðu
í samtali við Morgunblaðið að á
boðstólum væru bæði pottablóm og
afskorin blóm svo og blómaskreyt-
ingar. Jafnframt fæst í versluninni
gjafavara af ýmsu tagi. Með þessu
framtaki hefur verið flutt heim í
hérað gerð kransa og brúðarvanda
svo eitthvað sé nefnt, en Olga Óla
Bjamadóttir hefur reynslu og
menntun í gerð blómaskreytinga.
Blómabúð Blönduóss er til húsa á
Holtabraut 14, þar sem áður var
tískuverslunin Búðin. .. _.
— Jon Sig.
Stórir draumar eru öllum hollir
því án þeirra lendum við á blind-
götu og án þeirra erum við ekki
menn.
En hveijir eru þá þessir draumar
og hveijir skulu hafa forgang og
hvað kunna þeir að kosta?
Aðrar þjóðir dreymir einnig og
hefur lengi dreymt stóra drauma.
Bandaríkjamenn hefur löngum
dreymt stóra drauma sem þó hafa
breyst í gegnum tíðina eða þeir
hafa skipt um sæti í forgangsröð-
inni. Þannig minnast menn til
dæmis geimferðaáætlunarinnar
sem öll heimsbyggðin fylgdist með
Morgunblaðið/Jón Sig.
Eigendur Blómabúðar Blönduóss
í versluninni, Olga Óla Bjarna-
dóttir og Ásta Kjartansdóttir.
af eftirvæntingu. En um stund virð-
ist sem almenningur þar í landi
hafi fengið leið á þeim draumi þann-
ig að hann rykfellur nú uppi á hillu.
Þannig örlög hafa fleiri draumar
fengið.
En einn er sá draumur sem hvað
langlífastur hefur orðið þar á bæ
nefnilega stórveldisdraumurinn.
Er hann orðinn svo samgróinn
þjóðarsálinni að núorðið kemst eng-
inn í forsetastólinn öðruvísi en að
vísa til hans í ávörpum til þjóðarinn-
ar með orðum eins og Super Power
og Gods Country þó án þess að
nota ákveðna greininn The fyrir
framan, svona rétt til að undirstrika
fyrir heimsbyggðinni þá hógværð
sem ríkir þar á bæ.
Það er svo sem ekkert að draum-
um í þessum dúr, heldur skiptir
framkvæmdin mestu. Hún getur
gerst á tvo vegu. Annaðhvort með
því að ávinna sér virðingu og að-
dáun áhorfandans með hugkvæmni
og dugnaði eða ef það skortir, þá
með beinni eða óbeinni valdbeit-
ingu. Sagan segir okkur hvor leiðin
er lífsseigari og vænlegri til árang-
urs.
Ymsir þegnar Bandaríkjanna eru
nú farnir að kvarta undan aukinni
áherslu á seinni aðferðinni, m.a.
kvarta vísindamenn undan afskipt-
um og hömlum stjórnvalda á
samskiptum við erlenda vísinda-
menn, hverrar þjóðar sem þeir
nefnast, en slíkt er vísindum háska-
legt.
Raunar bendir einn bandarískur
rithöfundur og sagnfræðingur í bók
sinni á að þessi þróun hafi hafist í
Kreppunni miklu þegar stefna
stjórnvalda var mótuð í þá átt að
endurreisn bandarísks efnahagslífs
skyldi byggjast á stjómun á al-
þjóðlegum hráefna- og afurðamörk-
uðum.
Gunnar A.H. Jensen
„Eigum við íslendingar
endalaust á láta ein-
hverja liugsanavillu
utanríkisráðherra
„gamla Sjálfstæðis-
flokksins“ móta utan-
ríkisstefnu okkar?“
Allir þekkja gífurlegan fjárlaga-
halla ríkisstjórnar Reagans í þeim
tilgangi einum að gera vopnafram-
leiðslu og þróun vopna að aðalvaxt-
arbroddi atvinnulífsins.
En það er mál manna að slík
hagfræði muni að lokum, þegar
ævintýrinu lýkur, annaðhvort leiða
til styijaldar eða kreppu, allt eftir
því hvað menn kjósa sér.
En einnig er hugsanlegt að Reag-
an takist að fá aðrar þjóðir heims
til að taka á sig kostnaðinn, þannig
að bandarískt hagkerfi þurfi ekki
að upplifa og þjást vegna draums
forsetans sem óneitanlega virðist
hafa snúist upp í martröð. Er þetta
ekki hin raunverulega ástæða fyrir
því að sendimenn forsetans um all-
an heim, m.a. á íslandi, beita öllum
brögðum til að þagga niður andúð
á vígvæðingu og hefja upp til skýj-
anna „The American Way of liv-
ing“. Þetta hefur síðan leitt til þess
að pólitík margi-a ríkja snýst að
einhveiju leyti um Stórveldis-
draum Ameríkumanna.
Dyggustu talsmenn ameríska
stórveldisdraumsins hér á landi
hafa í gegnum tíðina verið utanrík-
isráðherrar gamla Sjálfstæðis-
flokksins sem vegna grundvallar
hugsanavillu hafa talið að það að
vera „dyggur hægrimaður og
fylgjandi „frelsi“ feli sjálfkrafa
í sér leit að fordæmum í
amerísku þjóðlífi við mótun skoð-
ana og framkvæmda í þjóðlífi
þar sem æðsti maður þjóðarinnar
notar „víða eða þrönga" túlkun á
samningum, allt eftir þörfum, ber
síðan fyrir sig minnisleysi þegar
hann sætir gagnrýni á meðan þjóð-
in seður líkamlegt hungur sitt á
hamborgurum og andlegt á sefjandi
ræðum Jerry Falwells um Guð og
andskotann í sjónvarpi.
Var ekki „hægri“ stefnan fundin
upp í Evrópu?
En hvernig snýr allt þetta að
íslensku þjóðinni og komandi kosn-
ingum?
Jú, ég vil spyija, eigum við Is-
lendingar endalaust á láta einhveija
hugsanavillu utanríkisráðherra
„gamla Sjálfstæðisflokksins" móta
utanríkisstefnu okkar?
Og svona í framhaldi af leið-
togafundinum, eigum við að láta
misvitra hagsmunapotara erlends
stórveldisdraums misnota óflekk-
aða- ímynd okkar út á við og
fordæmisgildi okkar, végna þess að
þeir eru búnir að spilla fyrir eigin
ímynd með yfirgangi og umburðar-
leysi?
Eigum við okkur ekki okkar eig-
in íslensku drauma?
Höfundurernemi viðskiptafræði
I Háskóla íslands.
FJÖLVENTLAVEUN
NVKWSL
TOYOTA
FIÖLVENTLA
VÉLAR
Tveir knastásar,
íjórir ventlar
og „kross-flæði"..
Ný hönnun
- tannhjóladrifnir
knastásar ...
Rismyndað
brunahólf
og kerti í miðju ...
Tvívirk
titringsdempun
á trissu ...
Camry og fjölventlavélin
Enn kwnir Tovota tækninýjung á sviði fólksbíla,
íjölventlavélina, sem er tvímælalaust upphafið að nýrri
kynslóð bílvéla. Þessi vél hefur 4 ventla við hvem stnokk,
eða alls 16, og jtölvustýringu á vél og bensíninnspýtingu.
Þessi búnaður evkur cifl vélaiinnar, nýtli' eldsnevtið
betur og minnkar eyðsluna.
Aðrir kostír
Fjölventlavélin hefur einnig svonefnt „brevtilegt
sogkerfi". í tveggja hólfa soggrein er annað hólfið lokað
við lágan snúning vélarinnar. Við aukinn snúning evkst
lofttæmi í soggreininni, sérstakur búnaður opnar hitt
hólfið og evkur þai' með flæði blöndunnar til brunahólfa.
Árangurinn er ótvíræðun
@ Hraðari og betri bruni
® Meira nýtanlegt afl
# Auldn sparneytni
• Snarpara viðbragð
Þessi léttbyggða og kraftmikla vél er einmitt í
hinum nýja og glæsilega Toyota Camry, fjölskyldu-
bílnum sem nú hefúr öðlast aksturseiginleika sportbíls.
Sem sagt: Háþróuð tækni... og bíll sem hæfir
henni. Hvort sem ekið er hægt eða sprett úr spori, verður
cíníegjan af Toyota Camry óblandin.
TOYOTA
Fjölventíavélin - bflvél framtíðarinnar
TOYOTA
8
E