Morgunblaðið - 14.04.1987, Qupperneq 91
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. APRÍL 1987
91
íslenskur tónlistardag-
ur á Bylgjunni 24. apríl
ÍSLENSKUR tónlistardagnr
verður á Bylgjunni föstudaginn
24. apríl næstkomandi, og þá
verður eingöngu leikin íslensk
tónlist. Ákvörðun um íslenskan
tónlistardag var tekin í fram-
haldi af umræðum er spunnust
um hlut íslenskrar dægurtón-
listar í útvarpsstöðvunum sl.
laugardag á fundi er hljóm-
plötuútgefendur efndu til.
útgáfan og hljómplötusalan fyrir
síðustu jól. Við lítum á íslenska
tónlist sem gott dagskrárefni og
viljum með þessu sýna i verki að
við metum það sem íslenskir tón-
listarmenn hafa fram að færa Við
eigum nokkuð blómlega hijóm-
plötuútgáfu hér á þessum afar
litla markaði sem þarf að standa
við bakið á. Útvarpsstöðvunum
er akkur í að íslenskar hljómplötu-
útgáfur fái notið sín því þær búa
stöðvunum í hendur gott efni,“
sagði Einar.
Útrás í sumarfrí 1. maí
Einar Sigurðsson, útvarpsstjóri
Bylgjunnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að Rúnar Júlíusson
tónlistarmaður hefði vakið máls á
þessu skömmu fyrir kaffihlé fund-
arins og hefði Pétur Steinn
Guðmundsson síðan stungið upp
á 24. apríl þar sem Bylgjan og
Tónabær stæðu þá fyrir Músíktil-
raunum 1987 í Tónabæ sem er
hljómsveitakeppni unglingasveita
og eru úrslit keppninnar einmitt
þennan dag.
„íslensk popptónlist er að sækja
mjög í sig veðrið. Það sýnir bæði
STARFSEMI Útrásar, útvarps-
stöðvar framhaldsskólanema,
leggst niður yfir sumartímann
vegna sumarleyfa skólafólks.
Útsendingum verður hætt frá
og með 1. maí og hefjast þær
aftur í september, í byrjun
næsta skólaárs.
Stefán Baxter, einn af starfs-
mönnum útvarpsstöðvarinnar,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að það hefði aldrei staðið til að
útvarpa yfir sumartímann á veg-
um Útrásar. Hinsvegar kæmi til
greina að leigja stöðina aðilum,
sem áhuga hefðu á útvarpsrekstri
yfir sumartímann og þá hugsan-
lega myndu þeir reka stöðina á
auglýsingatekjum. Þeir þyrftu þá
að greiða hærri stefgjöld, en Útrás
nú gerir.
Utrás er rekin af átta fram-
haldsskólum og var 600.000 króna
hlutafé lagt í starfsemina í byrjun.
Þá veitti Guðmundur Sveinsson,
skólameistari Fjölbrautaskólans í
Breiðholti, 300.000 króna framlag
frá skólanum til tækjakaupa og
mun skólipn síðar fá aðgang að
hljóðveri Útrásar til fjölmiðlunar-
kennslu.
Orgeltónleikar í
Dómkirkjunni í kvöld
MARTEINN H. Friðriksson
dómorganisti mun leika verk
J.S. Baehs á orgel kirkjunnar
í kvöld, 14. apríl, kl. 20.30.
Þessir tónleikar eru hluti af
flutningi allra verka J.S. Bachs
sem íslenskir orgelleikarar
hófu á afmælisári meistarans
1985.
Á efnisskrá tónleikanna verða
Prelúdía og fúga í f-moll, Prelúdía
og fúga í e-moll, Partíta í f-moll,
Tríó í c-moll og 6 sálmaforleikir.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Pú færð
ódýrustu páskaeggin
í SS'búðunum.
Hjá okkur í SS-búðunum eru
öll nýju og Ijúffengu
páskaeggin
á verksmiðjuverði.
Vertu því fljót(ur) til og
komdu pyngjunni þinni
þægilega á óvart fyrir þessa
páska. Keyptu páskaegg í
næstu SS-búð.
Þar sem ódýru páskaeggin 1
fást. |