Morgunblaðið - 06.05.1987, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 6. MAÍ 1987
9
Ég þakka öllum þeim, sem sýndu mér vináítu
með heimsóknum og gjöfum á 80 ára afmœli
minu 27. apríl sl.
Ebeneser Erlendsson,
Grettisgötu 79.
\Tann
Security since 1795
peningaskápar
Eldtraustir — þjófhetdir
heimsþekkt framleiósla.
E. TH. MATHIESEN H.F.
B/EJARHRAUNI 10, HAFNARFIRDI, SIMI 651000.
Jörð
óskast
Félagasamtök óska eftir að kaupa
jörð innan ca 300 km frá Reykjavík.
Upplýsingar í símum 33147 (Hanna)
og 82205 (Jóhann).
KYNNIST
EIGIN LANDI!
Ferðir um ísland í sumar
Ferðaskrifstofa ríkisins hefur skipulagt
tvær fróðlegar og skemmtilegar ferðir um
landið í sumar.
Fararstjóri verður Guðmundur Guðbrandsson
sem leitt hefur þessar ferðir undanfarin sumur.
Gist verður á hótelum og hálft fæði
er innifalið í verði.
Tilvalið tækifæri til að kynnast eigin landi.
Hringferð um landið
10 dagar. Brottfarardagur 30. júní og 11. júlí.
í byggð og óbyggð
10 dagar. Brottfarardagur 21. júlí.
Upplýsingar og bæklingar á skrifstofúnni.
A
FRI
Ferðaskrifstofa Ríkisins
Skógarhlíð 6, sími 25855.
toítoMmsp
Öábyrgar
konur
í forystugrein Alþýðu-
blaðsins í gær er sagt,
að Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaður
Alþýðuflokksins, hafi
einn „sýnt ábyrga við-
leitni að ræða við for-
ystumenn annarra
flokka um hugsanlega
myndun ríkisstjórnar" á
meðan forseti fslands
veltir niðurstöðum kosn-
inganna fyrir sér og
metur stöðu einstakra
flokka. Blaðið kvartar
undan áhugaleysi ann-
arra flokka og segir það
gefa „mynd af pattstöðu
sem gæti reynst örlaga-
rikt þegar boltanum
verður nú varpað til
formannanna". Og enn
segir Alþýðublaðið:
„Kvennalistinn er al-
mennt var talinn sigur-
vegari kosninganna enda
þótt að hluti af sigrinum
fælist í þvi, að flokkurinn
bauð í fyrsta skipti fram
í öllum kjördæmum.
Kvennalistinn hefur enn
ekki sýnt ábyrga afstöðu
um hugsanlega stjórnar-
þátttöku með uppbyggi-
legum viðræðum við aðra
flokka. Þess í stað hefur
Kvennalistinn einangrað
sig á Hótel Vík og setið
þar maraþonfundi sem
enn hefur ekkert komið
út úr opinberlega.
Kvennaiistinn hefur
misst af vagninum í
óformlegum könnunar-
viðræðum siðustu viku
og hætta er á að flokkur-
inn lendi út í homi þegar
eiginlegar stjómarmynd-
unarviðræður hefjast."
Á að skilja þessi skrif
Alþýðublaðsins um
óábyrgar konur á þann
veg, að blaðið telji að Jón
Baldvin hafi þegar verið
hryggbrotinn af Kvenna-
listanum? í orðum blaðs-
ins felst beiskjublandin
gronija, sem bendir ekki
til þess að alþýðuflokks-
menn telji mikinn akk i
þvi að ræða frekar um
eða við Kvennalistann.
Steingrímur
fór á kreik
Steingrímur Her-
mannsson, formaður
íiwiiiimumi
Hagsmunir
þjóðarinnar
Er Albertina að fæðast? _
Óþolinmæði krata
Kratar sækjast nú svo mjög eftir að komast í ríkisstjórn, að
þeir geta ekki lengur leynt óþolinmæði sinni. Sést þetta á
hverri síðu Alþýðublaðsins í gær (þær eru fjórar). Athyglisvert
er, að í blaðinu eru hornin ekki síst rekin í þá, sem Jón Baldvin
Hannibalsson, flokksformaður, hefur talað um sem líklegustu
samstarfsmenn í næstu ríkisstjórn, sjálfstæðismenn og kvenna-
listakonur. Þá birtist í blaðinu reiðilestur um Davíð Oddsson,
borgarstjóra, í tilefni af því, að fóstrur hjá Reykjavíkurborg drógu
uppsagnir sínar til baka.
Framsóknarflokksins,
hefur afdráttarlaust
neitað þvi, að hann hafi
verið í óformlegum við-
ræðum við aðra flokka
eftir kosningar; brást
hann raunar hinn versti
við, þegar fréttamaður
Bylgjunnar sagði við
hann eitthvert kvöldið,
að hann hefði átt í slíkum
viðræðum. Við hlið leið-
ara Alþýðublaðsins {gær,
þar sem Jóni Baldvin er
einum þökkuð „ábyrg
viðleitni", birtist grein
eftir Ingólf Margeirsson,
ritstjóra Alþýðublaðsins.
Þar segir meðal annars:
„Meðan klukkan tifar
á óformlegar viðræður
Jóns Baldvins, hefur
Steingrimur farið á
kreik. Honum hefur ver-
ið ljóst að hann yrði að
leggja frambærilegan
stjórnarkabal um helg-
ina. í dag eða á morgun
gengur hann og aðrir
formenn flokkanna á
fund Vigdisar Finn-
bogadóttur og þá er eins
gott að hafa einhver
tromp í erminni."
Síðan segir ritstjóri
Alþýðublaðsins það full-
um feturn, að Steingrím-
ur Hermannsson hafi
dottið „það snjallræði S
hug að kippa Borgara-
flokknum inn sem þriðja
aðila í stjómarsamstarf
fráfarandi stjómar-
flokka". Jafnframt segir
ritstjórinn, að Steingrim-
ur hafl samið við Borg-
araflokkinn um að
Albert Guðmundsson
verði ekki ráðherra í
slíkri stjóm.
Þessar vangaveltur í
Alþýðublaðinu em for-
vitnilegar fyrir þá sök,
að þar kemur fram hvers
vegna kratar em jafn
önugir í garð Kvennalist-
ans og raun ber vitni;
þeir telja, að konumar
hafi auðveldað Stein-
grími Ieikinn gagnvart
Jóni Baldvin en báðir
stefna þeir að samstarfi
við Sjálfstæðisflokkinn
svo sem kunnugt er.
Hvort óþolinmæði og
beiskja krata er á rökum
reist skal ósagt látið; en
mikið er í húfi núna hjá
Alþýðuflokknum, sem
hefur tekið stefnu beint
á ráðherrastólana og ætl-
ar ekki að Iáta neinn
Iialda sér frá markinu.
Fóstrudeilan
Á baksiðu Alþýðu-
blaðsins í gær segir
meðal annars um afskipti
Daviðs Oddssonar, borg-
arstjóra, af fóstrudeil-
unni: „t fréttatíma
Stöðvar tvö notaði Davíð
tækifærið til að gera
Margréti Pálu tortryggi-
lega og sagði hana svo
róttæka að hún hefði
ekki þolað við f verka-
lýðsráði Alþýðubanda-
lagsins. — Borgarstjórinn
greip til klassískrar
kommagrýlu i miðju
samningaþófi við heila
stétt láglaunakvenna."
Margrét Pála Ólafs-
dóttir, sem var talsmaður
kjaramálanefndar fóstra
i deilunni við borgar-
stjóra og Starfsmannafé-
lag Reykjavíkurborgar,
hefur ekki farið f laun-
kofa með afstöðu sina til
Alþýðubandalagsins.
Borgarstjóri var síður en
svo að fara með fleipur,
þegar hann lýsti þessari
afstöðu. Fyrir þá sem
fylgdust með orðaskipt-
um í þessu máli voru
upplýsingar borgarstjóra
til þess fallnar að auð-
velda mönnum að skilja
hörkuna, sem f deiluna
hljóp. Viðbrögð Alþýðu-
blaðsins minna helst á
kveinstafi þeirra innan
bræðraflokks krata i
Bretlandi, Verkamanna-
flokksins, sem kvarta
hæst undan því, þegar
forysta flokksins ræðst á
þá fyrir ábyrgðarlausa
vinstrimennsku. Þessi
hópur vinstrisinna og
ábyrgðarleysi flokksins i
öryggismálum eru taldar
helstu ástæðurnar fyrir
fylgisleysi hans í skoð-
anakönnunum.
Hefur þú hugað að peningunum þínum...
...ámorgun?
VERDBRÉFAMARKAÐS IDNAÐARBANKANS
bera nú 9-11% ávöxtun umfram verðbólgu
Opnunargengi Sjóðsbréfa 1 og 2 verðuróbreytt kr. 1.000 dagana 7. til 22. maí 1987
Á morgun, 7. maí, hefur Verð-
bréfamarkaður Iðnaðarbankans
rekstur tveggja nýrra verðbréfa-
sjóða og sölu á Sjóðsbréfum 1 og
Sjóðsbréfum 2. Sjóðsbréf 1 eru
fyrir þá sem vilja örugga ávöxtun
og uppsöfnun þar til þeir þurfa á
fjármunum sínum að halda. Sjóðs-
bréf 2 eru ætluð þeim sem þurfa að
lifa af eignum sínum og hafa af
þeim tekjur. Tekjur Sjóðsbréfa 2
1
H Verðbréfamarkaður
= Iðnaðarbankans hf.
umfram verðbólgu eru greiddar út
á þriggja mánaða fresti, í mars,
júní, seþtember og desember ár
hvert.
Hjá Verðbréfamarkaði Iðnaðar-
bankans hf. hugsum við um að
ávaxta þeninga - á hverjum degi!
Síminn að Ármúla7er 68-10-40.