Morgunblaðið - 12.05.1987, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
105. tbl. 75. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bretland:
Fær Thatcher um-
boðið í þriðja sinn?
London, Reuter.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, boðaði í gær
til almennra þingkosning’a 11.
júní nk. Fer hún fram á umboð
kjósenda í þriðja sinn og ef hún
fær það verður hún sá breskra
forsætisráðherra á þessari öld,
sem lengst hefur verið f emb-
ætti.
Gott gengi í skoðanakönnunum,
úrslit sveitarstjómakosninganna og
uppgangur í efnahagslífinu eiga
mestan þátt í að Thatcher boðar til
kosninga ári fyrr en tilskilið er og
einnig raunar ástandið í Verka-
Víðtæk
verkf öll í
Færejjum
Þórshöfn, frá Hilmar Jan Hansen,
fréttaritara Morgunblaðsins.
VERKFÖLLIN, sem hófust
sl. laugardag, standa enn og
er áhrifa þeirra farið að
gæta á ýmsum sviðum
þjóðlífsins. Eru það fimm
verkalýðsfélög, sem að þeim
standa, og samanlögð félaga-
tala þeirra á milli átta og
níu þúsund.
Verkalýðsfélagið í Þórshöfn
og tvö önnur félög skrifuðu
undir samninga við vinnuveit-
endur sl. föstudag en hin
félögin fimm, sem flest eru á
landsbyggðinni, vildu ekki
sætta sig við þá niðurstöðu.
Mikill ágreiningur um greiðsl-
ur í eftirlaunasjóð olli þar
mestu um. Samingaviðræður
liggja nú niðri og er ekki vitað
hvenær til þeirra verður boðað
á ný.
Ahrifa verkfallsins gætir
um landið allt og einnig í Þórs-
höfn þótt verkfallsmenn séu
fæstir þar. Mikil röskun hefur
t.d. orðið á flugferðum til eyj-
anna og frá.
mannaflokknum, sem logar af
innbyrðis ágreiningi. Verður þingið
ieyst upp nk. mánudag og nýtt
kallað saman 17. júní.
Búist er við að kosningabaráttan
verði hörð og óvægin, enda lítill
tími til stefnu. Verkamannaflokkur-
inn mun leggja höfuðáhersluna á
atvinnuleysið en reyna að minnast
sem minnst á umdeilda og óvinsæla
stefnu í vamarmálum. Helstu
stefnumál kosningabandalags
fijálslyndra og jafnaðarmanna
verða meiri tekjujöfnun og öflugar
vamir.
Methækkun varð á breska verð-
bréfamarkaðnum eftir að Thatcher
tilkynnti kjördaginn og er búist við
áframhaldandi hækkun svo lengi
sem hún virðist vís með sigur.
Sjá „Búist við ...“ á bls. 33.
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Breta, var sigurviss á svip
og veifaði glaðlega til fólks þeg-
ar hún kom í Downing-stræti 10
eftir að Elísabet drottning hafði
fallist á að leysa upp þingið og
boða til kosninga 11. júní nk.
Reuter
Malta:
Ovissaum
kosninga-
úrslitin
Valletta, Reuter.
FYRSTU tölur úr þingkosning-
unum, sem fram fóru á Möltu
á laugardag, benda til, að mjótt
verði á mununum milli tveggja
helstu flokkanna, Verkamanna-
flokksins, sem heldur um
stjórnartaumana, og Þjóðernis-
sinnaflokksins.
Vegna kosningafyrirkomulags-
ins miðar talningu mjög hægt og
ekki víst hvenær úrslitin liggja
endanlega fyrir. Flokkamir skipta
kjörfylginu nokkurn veginn jafnt
á milli sin og því geta tölur frá
einstökum kjördæmum ráðið
miklu um niðurstöðuna.
Stuðningsmenn flokkanna hafa
verið að fagna sigri á víxl en leið-
togar þeirra hafa hvatt þá til að
bíða eftir lokatalningunni. Kosn-
ingarnar þóttu fara friðsamlega
fram.
Varnarmálaráðherrar NATO-rikjanna koma saman í Stavanger:
Rætt um stefnuna í
afvopnunarmálum
Lokaákvörðun líklega tekin á Reykj avíkurfundi utanríkisráðherranna í næsta mánuði
Brussel, Bonn, Reuter.
Varnarmálaráðherrar Atlants-
hafsbandalagsins munu koma
saman á fund síðar í vikunni til
að ræða stefnuna i kjarnorku-
vopnamálum og hve langt skuli
McFarlane um skæruliða í Nicaragua:
Reagan vissi
um aðstoðina
ganga í afvopnun að þessu leyti.
Vestur-þýska dagblaðið Bild
sagði í frétt í gær, að Mikhail
Gorbachev, leiðtogi Sovétríkj-
anna, ætlaði að leggja til brott-
flutning allra erlendra heija frá
Evrópu.
Vamarmálaráðherrar frá 14
NATO-þjóðum munu hittast í Stav-
anger í Noregi á fimmtudag og
föstudag til að ræða núll-lausnina
svokölluðu, brottflutning meðal-
drægra eldflauga frá Evrópu, og
einnig tilboð Sovétmanna um að
Washinpfton, Reuter.
RONALD Reagan, Bandarílg'a-
forseti, fylgdist með tilraunum
til að útvega skæruliðum í Nic-
aragua fé á þeim tíma, sem
fjárstuðningur við þá var bann-
aður, og átti sjálfur þátt í að
þjóðarleiðtogi í ónefndu Mið-
Ameríkuriki greiddi götuna fyrir
vopnasendingu til þeirra. Kom
þetta fram í gær í yfirheyrslum
yfir Robert McFarlane, fyrrum
öryggisráðgjafa.
McFarlane sagði í gær í yfír-
heyrslum sameiginlegrar rannsókn-
arnefndar beggja deilda Banda-
ríkjaþings, að hann hefði sjálfur
beðið Reagan um að skerast í leik-
inn þegar vopnasending til skæru-
liða hefði verið stöðvuð í einu
nágrannaríkja Nicaragua. Hefði
Reagan orðið við því, haft samband
við viðkomandi þjóðarleiðtoga og
vopnin komist á áfangastað. Sagði
McFarlane, að Reagan hefði ávallt
verið látinn fylgjast með tilraunum
til að útvega skæruliðum fé og einn-
ig eftir að Bandaríkjaþing bannaði
það.
Marlin Fitzwater, talsmaður
Bandaríkjaforseta, sagði í gær um
þessar staðhæfingar, að forsetinn
hefði aldrei dregið dul á stuðning
sinn við skæruliða í Nicaragua en
hefði hins vegar aldrei beðið um
ólöglegan fjárstuðning við þá.
Sjjj, „Stuðningur ..." á bls. 32.
Barbie-
réttarhöld-
in hafin
í GÆR hófust í Lyon í Frakk-
landi réttarhöld yfir stríðs-
glæpamanninum Klaus Barbie
en hann var yfirmaður Gestapo
þar í borg á stríðsárunum. Er
mikill áhugi á réttarhöldunum
og ekki síst vegna þess, að verj-
andi Barbies segist ætla að
leggja áhersluna á samstarf
Frakka við þýska hernámsliðið
og nefna nöfn svikara innan
frönsku andspyrnuhreyfingar-
innar. Myndin var tekin við
upphaf réttarhaldanna í gær
þegar Barbie var leiddur hand-
jámaður i salinn.
Sjá „Miklar öryggisráðstaf-
anir ..." á bls. 30
eyða skammdrægum eldflaugum,
þeim, sem draga 500-1000 km. Um
það er mikill ágreiningur innan
NATO og óttast Bretar, Frakkar
og Vestur-Þjóðveijar að með því
væri verið að þrengja mjög kosti
bandalagsins í varnarmálum. Þó er
talið að bandalagið fallist á „tvö-
falda núllausn", brottflutning
beggja eldflaugategundanna, en um
það er einhugur að afsala sér ekki
vopnum, sem draga 500 km eða
skemmra, fyrr en NATO og Var-
sjárbandalagið standa jafnt að vígi
í hefðbundnum herafla.
Haft er eftir embættismönnum
NATO, að engin ákvörðun verði
tekin á Stavanger-fundinum og
líklegft að stefnan verði ekki mörkuð
fyrr á utanríkisráðherrafundi
NATO-ríkjanna í Reykjavík í næsta
mánuði.
Vestur-þýska dagblaðið Bild
sagði í gær, að Gorbachev, Sovét-
leiðtogi, ætlaði á fundi Varsjár-
bandalagsins í lok mánaðarins að
leggja til að allur erlendur her yrði
fluttur frá Evrópu. Sagði blaðið,
sem nefndi enga heimild fyrir frétt-
inni, að tillögunni yrði vafalaust
hafnað, því það tekur Sovétmenn
skamma stund að senda her inn í
Austur- og Vestur-Evrópu en ekki
eins auðvelt fyrir Bandaríkjamenn
að koma Vestur-Evrópu til hjálpar.