Morgunblaðið - 12.05.1987, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1987
17
Dánir í umferðarslysum í Danmörku 1970—82
1200
£
5
1000
t-i
*o
(-1
<1>
4-
E
D
C
'íO
Q
800
600
0
1970
Hraðatakmarkanir eingöngu
80 km
90 km
r
1972
1974
.1_____1—
1976
Hraðatakmarkanir
yj-o.fl. aðgerðir
80 km
J_____I____I____l_____I____I J
1978 1980 1982
Frá landlæknisembættinu:
HRAÐATAKMARKANIR
DRAGA ÚR SLYS ATÍÐNI
Á árunum 1970—73 voru engar
hraðatakmarkanir á hraðbrautum
eða öðrum þjóðvegum í Danmörku.
Á þessum árum dóu milli 1.100 og
1.200 á hveiju ári í umferðarslysum
í landinu. Árið 1973 var 80 km/klst.
hámarkshraði lögboðinn á þjóðveg-
um og hraðbrautum og það ár dóu
766 manns vegna umferðarslysa á
þjóðvegum.
Árið 1974 var leyfður 110 km/
klst. hámarkshraði á hraðbrautum
en 90 km/klst. á þjóðvegum. Engar
aðrar öryggisaðgerðir voru lögleidd-
ar. Á næstu árum fjölgaði dauðs-
föllum i umferðarslysum
verulega. Árið 1978 voru afturtekn-
ar upp hraðatakmarkanir, þ.e.
100/km klst. á hraðbrautum og 80
km/klst. á öðrum þjóðvegum. Þá
fækkaði dánarslysum verulega. Um
og eftir síðustu hraðabreytingu
fylgdu aðrar aðgerðir, s.s. löggilding
bílbelta og hjálma (á bifhjólum) o.fl.
Ljóst er að takmarkanir á há-
markshraða 1973—74 við 80
km/klst. á öllum þjóðvegum dró
verulega úr slysatíðni sem aftur
jókst er hámarkshraði var aukinn
í 90 km/klst. (þjóðvegum). Ekki
var gripið til annarra aðgerða. Áhrif
síðari hraðatakmarkana er erfiðara
að mæla því að gripið var til annarra
slysafækkunaraðgerða.
Svipaðar rannsóknir hafa verið
gerðar í öðrum löndum, s.s. í Þýska-
landi, Bretlandi og í Bandaríkjunum,
og niðurstöður eru svipaðar. Áður
en menn leggja til að hámarkshraði
verði aukinn úr 80 í 90 km/klst. er
brýnt að þeir kynni sér vel hvað fram
hefur farið í nágrannalöndunum —
því að við íslendingar höfum litla
reynslu í þessu efni.
Sjóður stofnaður
til minningar um
Einar á Einarsstöðum
Nokkrir vinir Einars heitins á
Einarsstöðum hafa stofnað sjóð
við útibú Landsbanka íslands á
Húsavík til minningar um
Einar. Hafa undirtektir verið
góðar
Fé úr sjóðnum verður varið til
styrktar ekkju Einars og dóttur
þeirra hjóna og með þeim hætti
reynt að létta þeim lífsróðurinn.
Með því vilja þeir sem þarna eiga
hlut að máli minnast Einars og
þjónustu hans við þá sem til hans
leituðu í margháttuðum erfiðleik-
um. Jafnframt er minnt á hlut
eiginkonunnar, sem ávalltstóð við
hlið manns síns og studdi hann í
þessum efnum eins og best mátti
vera.
Öllum þeim sem Einars vilja
minnast er bent á sjóðinn og hlut-
verk hans. Reikningurinn er nr.
5460 við útibú Landsbanka ís-
lands á HÚSavík. (Fiíttatilkynning)
Njarðvík:
Málverkasýning
ÓSKAR Jónsson hefur opnað
málverkasýningu í Sjálfstæðis-
húsinu í Njarðvik. Þetta er þriðja
einkasýning Óskars, en hann
hefur tekið þátt í nokkrum sam-
sýningum.
Óskar hefur kennt teikningu,
fyrst í Vestmannaeyjum, síðan í
Keflavík. Hann hefur sótt kennara-
námskeið í teikningu auk nám-
skeiðs í leiktjaldamálun hjá Gunnari
R. Hansen.
Þessi sýning samanstendur að
mestu af vatnslitamyndum ásamt
olíumálverkum.
Sýningin er opin.laugardaga og
sunnudaga kl. 15.00-22.00, virka
daga kl. 20.00-22.00. Lokað verður
laugardaginn 16. maí en síðasti
sýningardagur verður sunnudagur-
inn 17. maí.
Óskar Jónsson
ÝR VOLVO Á AÐEINS
491 ÞÚSUND !
JÁ, VOLVO 340 DL MEÐ RYÐVÖRN OG TILBÚINN TIL SKRÁNINGAR
KOSTAR AÐEINS FRÁ 491.000 KRÓNUM. ÞETTA ER VERÐ SEM STENST
SAMANBURÐ HVAR SÉM BORIÐ ER NIÐUR.
OG EFTIR AÐ ÞÚ ERT EINU SINNI KOMINN Á VOLVO VERÐUR FREKARI
SAMANBURÐUR NÆSTA ÓJAFN.
RÆDDU VIÐ SÓLUMENNINA OG KYNNTU ÞÉR VOLVOKJÖRIN.
OPIÐ í VOLVOSAL SKEIFUNNI 15. ALLA VIRKA DAGA FRÁ 9-18 OG A LAUGARDÖGUM FRA KL. 10-16.
VOLVO 340 DL
Verð frá:
491.000.-
Við lánum allt að 50%
og tökum flesta
notaða bíla upp í nýja
\7Z22l3H>
Skeifunni 15, Sfmi: 91-35200 -
35207 (bein lína f VolvosaO.