Morgunblaðið - 12.05.1987, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1987
ÚTVARP / SJÓNVARP
Eurovision
Svo sannarlega tæmdust götur
höfuðborgarinnar þá Eurovisi-
on-keppendumir þreyttu sína
hólmgöngu í Belgíu síðastliðinn
laugardag en satt að segja öfund-
aði ég þennan eina vegfaranda er
skreytti Laugaveginn þá hún Ólína
beindi þangað myndavélunum.
Lögin
Rétt eftir Eurovision-fárið kallaði
Bolli Ágústsson á Þuríði Pálsdóttur
óperusöngkonu og Ólaf Stephensen
framkvæmdastjóra í sjónvarpssal.
Ólafur lýsti því yfir að hann teldi
Eurovision-keppnina hafa runnið
sitt skeið en hún hefði getið af sér
athyglisverða tónlistarstefnu. Taldi
Ólafur að hið undurfagra lag Val-
geirs: Hægt og hljótt hefði getað
„brotið ísinn“ og bjargað þannig
keppninni frá blindgötu stöðnunar-
innar. Ég er að rnörgu leyti hjartan-
lega sammála Ólafi Stephensen um
að Eurovision-takturinn svokallaði
er tekinn að kitla kokið að ekki sé
meira sagt. Hið ljúfa lag Valgeirs
stutt fagmannlegum söng Höllu
Margrétar og tónsprota Hjálmars
H. Ragnarssonar hefði getað opnað
vök þar sem pláss var fyrir nýsköp-
un í stað hins beinfrosna Eurovisi-
on-takts. Þá var ég einnig sammála
Þuríði um að Halla Margrét hefði
mátt syngja öllu „sterkar" einsog
það er kallað á fagmáli, en ekki eru
nú allir einu máli um þetta atriði
og vissulega mun hin bjarta rödd
Höllu Margrétar hljóma víðar en
kvak Eurovision-popparanna. Hvað
varðar hið írskættaða sigurlag þá
innsiglaði það einfaldlega sigur hins
alþjóðlega engilsaxneska poppiðn-
aðar. Tónverk er bera með sér
andblæ hinnar gömlu Evrópu virð-
ast ekki eiga uppá pallborðið hjá
dómurum Eurovision-keppninnar.
Kynningin
Sviðsmynd Belganna var harla
glæsileg, einkum leisigeislalitrófið,
en hvemig stóð á því að áhorfendur
komust nánast ekki í snertingu við
stemmninguna á sviðinu að ekki sé
talað um baksviðið þar sem kepp-
endumir hýrðust? Að mínu mati var
belgíski þulurinn líkastur brúðu og
ekki líkaði mér spjall Kolbrúnar
Halldórsdóttur þá talningin hófst
né heldur sú árátta belgísku sjón-
varpsmannanna að tengja lögin
með snautlegum landslagsmyndum
og teiknimyndafígúrum. Fannst
mér engu líkara en að Músikboxið
margfræga er hamast hér á skermi
daginn út og inn væri stokkið til
Belgíu og um tíma umhverfðist
Eurovision-húlahoppið í langdregna
auglýsingamynd. Filmumeistarar
belgíska sjónvarpsins hafa senni-
lega hlotið sína eldskím í heimi
auglýsinganna. Fagmannlegar
sjónvarpsauglýsingar em gulls
ígildi en sjónvarpsáhorfendur vilja
nú hverfa spölkom frá hversdags-
amstrinu er þeir setjast fýrir
framan Eurovision-sviðið.
Búið spil?
“Við eigum ekki að leggjast á
svona lágt plan!" Varð mér á orði
er stigin ljómuðu á töflunni góðu
og varð þá hugsað til órangútanna
er sópuðu til sín atkvæðunum. En
svo fór ég að hugsa málið: Er ekki
sjálfsagt að taka þátt í Eurovision
svo fremi sem við Islendingar erum
trúir því besta er finnst í
íslenskri dægurtónlist? Okkur
gefst ekki betra færi á landvinn-
ingum í heimi dægurtónlistarinnar
en Eurovision og því eigum við að
halda áfram að keppa við stórþjóð-
imar, þó ekki á hinu marflata
Eurovision-sviði. Nei, aldeilis ekki,
og því vil ég hvetja okkar bestu
söngvara og tónlistarmenn, ekki
síst hina klassískmenntuðu, að
glíma við Eurovision og hver veit
nema Islendingar verði fyrstir til
að „bijóta ísinn"!
Ólafur M.
Jóhannesson
Ríkissjónvarpið:
MORÐSTUNDIN
■■■■ Annar þáttur
OA40 breska saka-
málaleikritsins
Morðstundarinnar eftir
Fay Weldon er á dagskrá
sjónvarps í kvöld og nefnist
þessi þáttur Með bros á
Bandaríska kvikmyndin Hjartaknúsarinn er á
dagskrá Stöðvar 2 í kvöld.
Stöð 2:
Hj artaknúsar inn
■■■■ Bandaríska
QQ 00 kvikmyndin
Hjartaknúsar-
inn er á dagskrá Stöðvar 2
í kvöld. Julian Kay er aðl-
aðandi og áhyggjulaus
hjartaknúsari, og leggur
lag sitt við ríkar konur
gegn gjaldi. Honum verður
hált á þessu þegar hann
er ákærður um morð. Leik-
stjóri og höfundur handrits
er Paul Schrader.
vör. Með aðalhlutverk fara
Jane Asher og Janet Suz-
man. Þýðandi er Jóhanna
Þráinsdóttir.
Morðstundin er á dagskrá sjónvarps í kvöld.
UTVARP
©
ÞRIÐJUDAGUR
12. maí
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin — Jón
Baldvin Halldórsson og Jón
Guðni Kristjánsson. Fréttir
eru sagöar kl. 7.30 og 8.00
og veöurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25. Guð-
mundur Sæmundsson talar
um daglegt mál kl. 7.20.
Fréttir á ensku sagðar kl.
8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Veröldin er alltaf ný“
eftir Jóhönnu Á. Steingríms-
dóttur
Höfundur les (7).
9.20 Morguntrimm. Lesið úr
forystugreinum dagblað-
anna. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón:
Þórarinn Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 i dagsins önn — Félags-
leg þjónusta
Umsjón: Hjördís Hjartar-
dóttir.
14.00 Miödegissagan: „Fall-
andi gengi" eftir Erich Maria
Remarque. Andrés Krist-
jánsson þýddi. Hjörtur
Pálsson les (14).
14.30 Tónlistarmaður vikunn-
ar. Carla Bley.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Frá
Vesturlandi. Umsjón. Ásþór
Ragnarsson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin
Dagskrá
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleíkar
Septett nr. 1 op. 26 eftir
Alexander Fesca. „Colleg-
ium con basso"-kammer-
sveitin leikur.
17.40 Torgið — Neytenda- og
umhverfismál. Umsjón:
Steinunn Helga Lárusdóttir.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar
Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá morgni sem Guð-
mundur Sæmundsson
flytur.
20.00 Lúðraþytur
Umsjón: Skarphéðinn H.
Einarsson.
20.40 I dagsins önn — Um
málefni fatlaðra
Umsjón: Einar Hjörleifsson
og Inga Sigurðardóttir.
(Endurtekinn þáttur frá gær-
degi.)
21.20 Létt tónlist
21.30 „Móðirin", smásaga eft-
ir Nataliu Ginzburg
Ragnhildur Óskarsdóttir
þýddi. Margrét Helga Jó-
hannsdóttir les.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir
22.20 Leikrit: „Spor I sandi"
eftir Lelde Stumbre
Þýðandi: Jón R. Gunnars-
son. Leikstjóri: Benedikt
Árnason. Leikendur: Sig-
urðurSkúlason, Ragnheiður
Steindórsdóttir og Rúrik
Haraldsson. (Endurtekið frá
fimmtudagskvöldi.)
23.20 islensk tónlist
a. Halldór Vilhelmsson
syngur Lagaflokk eftir Ragn-
ar Björnsson. Höfundur
leikur á pianó.
b. Helga Ingólfsdóttir leikur
Sebalsónötu eftir Jón Ás-
geirsson.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp á samtengd-
um rásum til morguns.
i
SJÓNVARP
ÞRIÐJUDAGUR
12. mai
18.30 Villi spæta og vinir
hans. Sautjándi þáttur.
Bandarískur teiknimynda-
flokkur. Þýöandi: Ragnar
Ólafsson.
19.00 Fjölskyldan á Fiðrildaey.
Lokaþáttur. Ástralskurfram-
haldsmyndaflokkur fyrir
börn og unglinga um ævin-
týri á Suöurhafseyju.
Þýöandi: Gunnar Þorsteins-
son.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Poppkorn.
Umsjón: Guðmundur Bjarni
Harðarson, Ragnar Hall-
dórsson og Guðrún Gunn-
arsdóttir. Samsetning: Jón
Egill Bergþórsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Moröstundín.
(Time for Murder). 2. Með
bros á vör. Breskt saka-
málaleikrit eftir Fay Weldon.
Aðalhlutverk: Jane Asher og
Janet Suzman.
Þýðandi: Jóhanna Þráins-
dóttir.
21.35 Vestræn veröld.
(Triumph of the West).
9. Betri tíð. Heimildamynda-
flokkur í þrettán þáttum frá
breska sjónvarpinu (BBC).
Umsjónarmaður: John Ro-
berts sagnfræðingur.
Þýðandi og þulur: Óskar
Ingimarsson.
22.25 Kastljós.
Þáttur um erlend málefni.
Umsjón: Sturla Sigurjóns-
son.
23.00 Fréttir í dagskrárlok.
6
0,
STOD2
ÞRIÐJUDAGUR
12. maí
§17.00 Stjörnuvíg(StarTrek).
Banarísk stjörnustríðsmynd
frá 1978, byggð á hinum
frægu sjónvarpsþáttum
Star Trek. Myndin var út-
nefnd til Óskarsverðlauna
fyrir tæknibrellur. Aöalhlut-
verk: Leonard Nimoy, Will-
iam Snatner og DeForest
Kelley. Leikstjóri: Robert
Wise.
§ 19.05 Viðkvæma vofan.
Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Návigi.
Yfirheyrslu- og umræðu-
þáttur í umsjón fréttamanna
Stöðvar 2.
§ 20.40 Húsið okkar (Our
House).
Bandarískur gamanþáttur
með Wilford Brimley í aðal-
hlutverki.
§21.30 Púsluspil (Tatort).
Þýskur sakamálaþáttur. Að-
alsöguhetjurnar eru tveir
lögreglumenn, Schimanski
og Thanner.
§ 23.00 Hjartaknúsarinn
(American Gigolo).
Bandarisk kvikmynd með
Richard Gere, Lauren Hutt-
on og Ninu Van Pallandt i
aöalhlutverkum.' Julian Kay
(Gere) er aðlaöandi og
áhyggjulaus hjartaknúsari.
Hann leggur lag sitt við ríkar
konur og þiggur borgun fyr-
ir. Þessi sérstaki lífsstíll
reynist honum fjötur um fót
þegar hann er sakaður um
morð. Leikstjóri og höfund-
ur handrits er Paul Schrad-
er.
00.50 Dagskrárlok.
us
ÞRIÐJUDAGUR
12. maí
00.05 Næturútvarp. Óskar
Páll Sveinsson stendur vakt-
6.00 í bitið. Erla B. Skúladótt-
ir léttjr mönnum morgun-
verkin, segir m.a. frá veðri,
færð og samgöngum og
kynnir notalega tónlist i
morgunsáriö.
9.05 Morgunþáttur í umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Sigurðar Þórs Salvarssonar.
Meðal efnis: Tónlistarget-
raun, óskalög yngstu hlust-
endanna og fjallaö um
breiðskífu vikunnar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Á milli mála. Leifur
Hauksson kynnir létt lög við
vinnuna og spjallar við
hlustendur.
16.05 Hringiðan. Umsjón:
Broddi Broddason og
Margrét Blöndal.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Nú er lag. Gunnar Sal-
varsson kynnir gömul og ný
úrvalslög. (Þátturinn verður
endurtekinn aðfaranótt
fimmtudags kl. 2.00.)
21.00 Poppgátan. Gunnlaug-
ur Sigfússon og Jónatan
Garðarsson stýra spurn-
ingaþætti um dægurtónlist.
Keppendur í 8. þætti: Björg-
vin Þórisson og Björn
Gunnlaugsson. (Endurtek-
inn þáttur frá laugardegi.)
22.05 Steingerður. Þáttur um
Ijóðræna tónlist i umsjá
Herdisar Hallvarðsdóttur.
23.00 Við rúmstokkinn. Guð-
rún Gunnarsdóttir býr fólk
undir svefninn með tali og
tónum.
00.10 Næturútvarp. Hjörtur
Svavarsson stendur vaktina
til morguns.
2.00 Tilbrigði. Þáttur í umsjá
Hönnu G. Sigurðardóttur.
(Endurtekinn frá laugar-
degi.)
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISUTVARP
AKUREYRI
18.03-19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
Fjallaö um menningarlíf og
mannlif almennt á Akureyri
og i nærsveitum. Umsjón:
Arnar Björnsson.
ÞRIÐJUDAGUR
12. maí
07.00—09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00
og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar.
Afmæliskveðjur, opin lina
og spjall til hádegis. Síminn
er61 11 11. Fréttirkl. 10.00
og 11.00.
12.00-12.10 Fréttir
12.10-14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Frétta-
pakkinn. Þorsteinn og
fréttamenn Bylgjunnar fylgj-
ast með því sem helst er í
fréttum, spjalla við fólk og
segja frá i bland við létta
tónlist. Fréttir kl. 13.00 og
14.00.
14.00—17.00 Þorsteinn Ás-
geirson á réttri bylgjulengd.
Þorsteinn spilar síðdegis-
poppið og spjallar við
hlustendur og tónlistar-
menn. Fréttir kl. 15.00,
16.00 og 17.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir i Reykjavík síðdeg-
is. Ásta leikur tónlist, litur
yfir fréttirnar og spjallar við
fólkið sem kemur viö sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—20.00 Anna Björk
Birgisdóttir á flóamarkaði
Bylgjunnar. Flóamarkaður
og tónlist. Fréttir kl. 19.00.
20.00—21.00 Vinsældalistl
Bylgjunnar. Jón Gústafsson
kynnir 10 vinsælustu lög
vikunnar.
21.00—23.00 Ásgeir Tómas-
son á þriöjudagskvöldi
Ásgeir leikur rokktónlist úr
ýmsum áttum.
23.00—24.00 Vökulok. Þægi-
leg tónlist og fréttatengt efni
í umsjá Elínar Hirst frétta
■ manns. Fréttir kl. 23.00.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Bjarni Ólafur
Guömundsson. Tónlist og
upplýsingar um veöur og
flugsamgöngur. Fréttir kl
03.00.
ALFA
FM 192,9
ÞRIÐJUDAGUR
12. maí
8.00 Morgunstund: Guðs
orð og bæn.
8.15 Tónlist.
12.00 Hlé.
13.00 Tónlistarþáttur
lestri úr Ritningunni.
16.00 Dagskrárlok.
með