Morgunblaðið - 12.05.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1987
Siglufjörður:
Mikil grálúðuveiði
Siglufirði.
MIKIL grálúðuveiði hefur verið
að undanförnu og flest skip með
fullfermi. Sigluvík landaði i upp-
hafi vikunnar 200 lestum á
Siglufirði og Siglfirðingur land-
aði fyrir sunnan fullfermi af
frystri grálúðu.
Mikið er um að vera hér í fískin-
um og samkeppnin hörð um hráefn-
ið. Saltfískverkendur kaupa nú 2,5
kílóa þorsk á 30 krónur kílóið og
bæta svo við verðið fari hann yfír
þrjú kíló.
Menn hér um slóðir lengir nú
J-
eftir því, að Lágheiðin verði opnuð.
Ekki verður betur séð en iítill snjór
sé á veginum og virðist nægja að
fara eina ferð eftir honum til að
hreinsa hann. Vegna þessa þurfa
ökumenn enn að taka á sig stóran
krók er þeir fara á milli Siglufjarð-
ar og Akureyrar. Mjólkurbílar, sem
flytja mjólk héðan til Akureyrar,
þurfa til dæmis að aka 360 kíló-
metrum lengri leið en ella, væri
heiðin opnuð.
Fréttaritari
Vorfagnaður Nem-
endasambands MA
ÁRLEGUR vorfagnaður
„NEMA“, Nemendasambands
Menntaskólans á Akureyri, verð-
ur haldinn á Hótel Sögu þann
15. maí nk. Hefst vorfagnaðurinn
með borðhaldi kl. 19.30 og endar
með dansi fram eftir nóttu.
Veislustjóri verður Guðrún
Árnadóttir, framkvæmdastjóri
BSRB, og Iðunn Steinsdóttir,
kennari og rithöfundur, verður
ræðumaður kvöldsins. Sigurlaug
Kristjánsdóttir mun leiða fjölda-
söng. Einnig verður brugðið á
glens og gaman og reynt að end-
urvekja liðna en ljúfa atburði úr
skólalífinu, jafnvel leiksigra og
aðra listviðburði.
NEMA er ungt að árum, einung-
is 13 ára, og því er enn verið að
vjnna að því að skapa þá hefð að
sámbandið verði sjálfsagður vett-
vangur gamalla nemenda MA sem
vilja hittast og gleðjast saman hér
á suðvesturhomi landsins. Sú hefð
er aftur á móti nær ófrávíkjanleg
að einungis árgangar 10, 25 og 50
ára stúdenta fari „norður" og hylli
gamla skólann og yrði ansi langt á
miili vinafund?. norðanmanna og
-kvenna ef NEMA nyti ekki við.
í núverandi stjóm NEMA em:
Lára Bjömsdóttir, formaður, Edda
Snorradóttir, ritari (fulltrúi 25 ára
stúdenta), Sigurósk Jónsdóttir,
gjaldkeri (fulltrúi 10 ára stúdenta),
Hannes Hafstein (fulltrúi 40 ára
Mörg slys og
árekstrar
um helgina
LÖGREGLAN í Reykjavík hafði
í nógu að snúast um helgina, því
mikið var um óhöpp í umferðinni.
Ekið var á eldri mann á mótum
Sogavegar og Réttarholtsvegar á
laugardag og slasaðist hann nokk-
uð. Slysið varð með þeim hætti að
maðurinn hugðist hjóla yfír gang-
braut sem þama er. Hann varð þá
fyrir bifreið sem var ekið suður
Réttarholtsveginn og telur lögregl-
an að bifreiðin hafí verið á of
miklum hraða.
Síðar á laugardeginum varð
óhapp á Hringbraut, tii móts við
JL-húsið. Ung stúlka var á ferð
austur brautina á stóru vélhjóli.
Bifreið var ekið í veg fyrir hana
og missti hún þá stjóm á hjólinu
og kastaðist upp á gangstétt. Hún
meiddist nokkuð á háisi og var flutt
á slysadeild. Stúlkan hafði ekki rétt-
ipdi til að aka hjólinu.
Síðdegis á laugardag varð mjög
harður árekstur í Ármúlanum.
BMW- bifreið var ekið vestur Árm-
úlann og annarri bifreið var ekið
frá húsinu númer 21 við götuna.
Ökumaður BMW-bifreiðarinnar
náði ekki að stöðva og skall bifreið
hans á hinni af miklum krafti. Báð-
ar bifreiðamar eru nánast ónýtar.
stúdenta) og Dóra Pálsdóttir (full-
trúi 20 ára stúdenta). í varastjóm
em: Guðrún Bamey Leifsdóttir,
Herdís Herb^rtsdóttir, Bjöm Jóns-
son og Jóhanna S. Jónsdóttir.
(Fréttatilkynning.)
Kjarneðlisfræð-
ingur f lytur tvo
háskólafyrirlestra
TÉKKNESKI kjameðlisfræðing-
urinn prófessor Frantisek
Janouch flytur fyrirlestur í boði
félagsvisindadeildar Háskóla ís-
lands kl. 20.30 í kvöld, 12. maí,
í stofu 101 í Lögbergi. Erindið
nefnir hann „Hvað er að gerast
í Austur-Evrópu?“. Einnig flytur
hann fyrirlestur á vegum Raun-
vísindastofnunar Háskólans á
fimmtudaginn nk. kl. 16.15 í
stofu 101 í Odda. Sá fyrirlestur
nefnist „Framtíð kjarnorkunnar
eftir Chemobyl".
Frantisek Janouch er prófessor í
fræðilegri eðlisfræði í Stokkhólmi
og vinnur við Forskningsinstitutet
för atomfysik. Til ársins 1970 var
hann forstöðumaður kjameðlis-
fræðideildar kjamorkustofnunar
vísindaakademíunnar í Tékkóslóv-
akíu, en var vikið úr starfí vegna
stjómmálaskoðana. Árið 1974 var
honum leyft að fara úr landi og
settist hann þá að í Stokkhólmi.
Fyrirlestramir em fluttir á ensku
og öllum opnir.
Gjöf til minn-
ingar um Pétur
Halldórsson
borgarsljóra
FORSTJÓRI Elli- og hjúkmnar-
heimilisins Grundar, hr. Gísli
Sigurbjörnsson, hefur fært Guð-
fræðistofnun Háskóla íslands að
gjöf eitt hundrað þúsund krónur
frá Stofnendasjóði Gmndar. Gjöf-
in er til minningar um Pétur
Halldórsson, borgarstjóra í
Reykjavík 1935—1940.
I gjafabréfí, sem fylgir þessari
höfðinglegu gjöf, segir:
„Elli- og hjúkmnarheimilið Gmnd
á Pétri Halldórssyni margt og mikið
að þakka. Hann var ávallt mikill vin-
ur starfsins á Gmnd og studdi það
af alhug. Þess er nú minnst á 100
ára afmæli hans með virðingu og
þakklæti."
Um leið og gagnmerks heiðurs-
manns er minnst, og nafn hans er
ritað í minninga- og heiðursgjafabók
Starfsjóðs Guðfræðistofnunar Há-
skóla Islands, era gefanda færð þökk
og blessunaróskir.
(Frétt frá Guðfræðistofnun Háskóla íslands)
Morgunblaðið/Þorkell
Frá undankeppni íslandsmótsins í bríds í Gerðubergi um helgina.
íslandsmótið í tvímenning í brids:
Guðmundur og Björn
unnu undankeppnina
BJÖRN Eysteinsson og Guð-
mundur Sv. Hermannsson unnu
undankeppni íslandsmótsins í
tvímenning í bríds sem spiluð.
var í Gerðubergi í Reykjavík
um helgina. 98 pör af öllu
landinu tóku þátt í mótinu en
23 efstu pörin fengu rétt til að
spila í úrslitum íslandsmótsins
um næstu helgi.
Segja má að í úrslitin hafi að
mestu raðast eftir bókinni þrátt
fyrir parafjöldann í undankeppn-
inni. Pörin í úrslitunum verða
þessi, talin upp í þeirri röð sem
undankeppnin sagði til um: Bjöm
Eysteinsson og Guðmundur Sv.
Hermannsson, Hermann Láms-
son og Ólafur Lámsson, Ásmund-
ur Pálsson og Karl Sigurhjartar-
son, Aðalsteinn Jörgensen og
Ásgeir Ásbjömsson, Jón Baldurs-
son og Ragnar Magnússon,
Gestur Jónsson og Jón Páll Sigur-
jónsson, Kristján Blöndal og
Valgarð Blöndal, Guðmundur Pét-
ursson og Magnús Torfason,
Jónas P. Erlingsson og Valur Sig-
urðsson, Hrólfur Hjaltason og
Sigurður Sverrisson, Gunnar
Þórðarsson og Sigfús Þórðarson,
Hörður Amþórsson og Jón Hjalta-
son, Jón Þorvarðarson og Þórir
Sigursteinsson, Matthías Þor-
valdsson og Júlíus Sigurjónsson,
Amar Geir Hinriksson og Einar
Valur Kristjánsson; Guðlaugur
R. Jóhannsson og Öm Amþórs-
son, Ragnar Bjömsson og Sævin
Bjamason, Rúnar Magnússon og
Stefán Pálsson, Guðmundur Páll
Amarson og Símon Símonarson,
Bragi Erlendsson og Ríkharður
Steinbergsson, Bemódus Krist-
insson og Þórður Bjömsson,
Jóhann Jóhannsson og Kristján
Sigurgeirsson, Ari Konráðsson og
Kjartan Ingvarsson. Að auki spila
núverandi Islandsmeistarar, Þór-
arinn Sigþórsson og Þorlákur
Jónsson í úrslitunum.
Öll úrslitapörin em höfuðborg-
arsvæðinu nema Sigfús og
Gunnar frá Selfossi og Amar og
Einar frá ísafírði. Úrslitin verða
spiluð á Hótel Loftleiðum og hefj-
ast klukkan 13 á laugardaginn.
Jaki Graham skemmtir i Evrópu 14., 15. og 16. maí nk. Auk þess
skemmtir hún 16. maí i Glaumbergi í Keflavík.
Söngkonan Jaki
Graham í Evrópu
DAGANA 14., 15. og 16. maí mun
breska söngkonan Jaki Graham
skemmta gestum veitingahússins
Evrópu við Borgartún.
Jaki Graham sló fyrst í gegn með
laginu „Could It Be I’m Falling In
Love", sem hún söng ásamt David
Grant árið 1985. í Bretlandi náði
lagið einu af fimm efstu sætunum á
Gallup-Iistanum sem er hinn opinberi
breski vinsældalisti. Vinsældunum
fylgdi hún eftir með laginu „Round
And Around", sem komst inn á topp
tíu á breska listanum. Á síðasta ári
sendi Jaki Graham frá sér aðra
breiðskífu sína, „Breaking Away“,
einnig syngur hún með Ferry Aid-
flokknum í laginu „Let it be“.
Söngskemmtanir Jaki Graham í
Evrópu heQast á miðnætti öll þijú
kvöldin. Auk þess að skemmta gest-
um Evrópu mun hún skemmta í
veitingahúsinu Glaumbergi í Kefla-
vík laugardagskvöldið 16. maí.
Bókasafn Kópavogs:
Sýning á
þurrblóma-
skreytíngum
OPNUÐ hefur verið sýning á
þurrblómaskreytingum eftir
Öldu Guðmundsdóttur í Lista-
krubbu Bókasafns Kópavogs.
Alda Guðmundsdóttir er hár-
greiðslumeistari að mennt og hefur
gert þurrblómamyndir og -skreyt-
ingar undanfarin ár á heimili sínu
í Kópavogi.
Á sýningunni, sem stendur til 23.
maí, em 32 myndir unnar með ís-
lenskum og erlendum blómum og
stráum, sem Alda hefur ýmist rækt-
að sjálf eða tínt.
Sýningin er opin á sama tíma
og bókasafnið, mánudaga til föstu-
daga kl. 9.00-21.00.
Leiðrétting
í texta með baksíðumynd Morg-
unblaðsins á sunnudaginn af
stúlkunum 10 sem keppa um titil-
inn Fegurðardrottning Islands
1987 urðu þau mistök að ein
þeirra, Fjóla Grétarsdóttir, er
sögð vera úr Hafnarfirði. Þetta
er ekki rétt heldur er Fjóla úr
Ölfusi. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.