Morgunblaðið - 12.05.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1987
33
Þingkosningar í Bretlandi 11. júní:
Búist við snarpri
kosningabaráttu
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Breta, gekk í gær á
fund Elisabetar II Englands-
drottningar og leitaði samþykkis
við að ijúfa þingið og halda kosn-
ingar 11. júni næstkomandi.
Búist er við snarpri kosningabar-
áttu, en allt bendir nú til sigurs
íhaldsflokksins. Flokkarnir
munu birta stefnuskrár sínar í
næstu viku.
Eftir að íhaldsflokkurinn hafði
staðið sig mun betur en reiknað var
með í sveitarstjómarkosningunum
sfðastliðinn fimmtudag, hefur verið
lítill vafi á því, að forsætisráðherr-
ann mundi boða til kosninga í júní.
Hefði hún ekki gert það, hefði það
verið óvæntasti atburður í breskum
stjómmálum í mannsaldur.
í sveitarstjómakosningunum
vann íhaldsflokkurinn á, en fyrir-
fram hafði verið búist við, að hann
tapaði sætum. Eftir þær kosningar
er Verkamannaflokkurinn í erfið-
ustu aðstöðunni, því að hann tapaði
’ yfir 200 sætum, en flestir áttu von
á, að flokkurinn héldi sínu eða ynni
á. Bandalagið jók fylgi sitt og er nú
í sterkari aðstöðu en fyrir fjórum
ámm til að verða næststærsti flokk-
ur lansins.
ERLENT
Thatcher hélt til sveitaseturs for-
sætisráðherrans, Thequers, um
helgina og ráðgaðist við nánustu
samstarfsmenn sína. Formaður
flokksins, Norman Tebbit, fór I
smáatriðum yfir niðurstöður sveita-
stjómarkosninganna með aðstoð
tölvugreiningar á þeim. A sunnu-
dagskvöld hélt Thatcher aftur í
Downingstræti 10, og í gærmorgun
tilkjmnti hún stjóminni ákvörðun
sína og gekk á fund drottningar.
Þingið situr fram á mánudag í
næstu viku og lýkur hinum veiga-
mestu málum. Nýtt þing verður
kallað saman 17. júní.
Framkvæmdastjóm Verka-
mannaflokksins heldur fund í dag
til að ákveða stefnuskrána. Banda-
lagið byijaði að þinga um stefnu-
skrá sína í gær. Forsætisráðherra
mun he§a kosningabaráttu sína á
fimmtudag, er hún heldur ræðu á
þingi skoskra íhaldsmanna í Perth,
eins og hún gerði 1983.
í skoðanakönnun, sem birtist um
helgina, hefur íhaldsflokkurinn gott
forskot á Verkamannaflokkinn. I
Sunday Express segjast 39% að-
spurðra munu kjósa Ihaldsflokkinn,
32% Verkamannaflokkinn og 25%
Bandalagið. En þegar skoðað er
nánar, hvemig íhaldsflokkurinn
stendur í þeim kjördæmum, þar sem
mjóst er á mununum, kemur í ljós,
að hann er lengra á undan Verka-
mannflokknum en heildartölumar
gefa til kynna. Hins vegar á þriðj-
ungur kjósenda eftir að gera upp
hug sinn, og kjósendur em hvikulli
en áður. Það er því alls ekki sjálf-
gefið, að íhaldsflokkurinn vinni
kosningamar.
Bretland:
Lífandi ljóð
London. AP.
„LIFANDI ljóð“ er nafn herferð-
ar sem nú er rekin á Bretlandi
fyrir því að almenningur sýni
nútímaljóðum meiri áhuga. í
síðustu viku var þrisvar efnt til
ljóðalesturs í Waterloo jám-
brautarstöðinni í London og urðu
skáldin aðreyna að yfirgnæfa
umferðarysinn.
Rétt fyrir mesta umferðartí-
mann, þegar von var á um 140.000
Emmanuel Vitria varð langlif-
astur allra hjartaþega í heimin-
um.
heillegan blett fyrir nálina," sagði
hann nýlega.
Eitt sinn bauð tóbaksfyrirtæki
Vitria stóran auglýsingasamning
fyrir að kveikja sér í sígarettu
fyrir framan sjónvarpsmyndavél.
Enda þótt hann reykti, hafnaði
hann boðinu og sagðist ekki geta
hugsað sér að græða á dauða
tvítugs hjartagjafa.
Vitria var lagður inn á spítal-
ann tíu dögum fyrir andlát sitt.
jámbrautarfarþegum hófu skáldin
lesturinn. Mikill fyöldi ljóðaunnenda
og útgefenda mættu á staðinn og
var því þröng á þingi. Skáldin
þurftu að brýna raustina, því alls
kyns tilkynningar glumdu í hátölur-
um stöðvarinnar og bættust við
hávaða þann er vélar og fólk olli.
Flestir þeir er áttu leið um stöðina
vom ánægðir með tiltækið, en einn
farþeginn sagði við blaðamann að
þetta væri bara til óþæginda og
gæti orðið til þess að einhver
gleymdi sér og missti af lest!
A átta dögum lásu 250 skáld úr
ljóðum sínum á 300 stöðum vítt og
breitt um landið, í bókabúðum,
bókasöfnum, listamiðstöðvum og
skólum svo nokkrir staðir séu
nefndir. Herferðinni lýkur í dag
með ljóðalestri í Albert Hall, þar
sem ljóðskáld frá mörgum löndum
munu lesa úr eigin ljóðum.
Gengi
gjaldmiðla
London, Reuter.
Gengi Bandaríkjadollara var
stöðugt í gær og kostaði sterl-
ingspundið 1,6670 dollara á
hádegi.
Kaupgengi annarra helstu gjald-
miðla á gjaldeyrismarkaði í London
var á þann veg háttað að dollarinn
kostaði:
1,3333 kanadíska dollara,
1,7960 vestur-þýsk mörk,
2,0250 hollensk gyllini,
1,4780 svissneska franka,
37,27 belgíska franka,
6,0000 franska franka,
1.299 ítalskar lírur,
140,05 japönsk jen,
6,2575 sænskar krónur,
6,6750 norskar krónur og
6,7450 danskar krónur.
Reuter
Gífurlegur reykjarmökkur steig til himins aðeins nokkrum sekúndum eftir að pólska þotan brot-
lenti við útjaðar Varsjár.
„Þessu er lokið“
-sagði flugstjóri pólsku þotunnar er hann
sveigði frá borginni og brotlenti 1 skógarjaðri
Varsjá, Reuter.
FARÞEGAR og áhöfn pólsku
þotunnar, sem fórst við Varsjá
á laugardag, engdust og vissu
ekki hver örlög þeirra yrðu
síðustu hálfu klukkustund ferð-
arinnar örlagaríku. Flugstjór-
inn hefur fengið hrósyrði fyrir
að steypa flugvélinni niður í
skóg í útjaðri Varsjár í stað
þess að eiga á hættu að brot-
lenda inni í borginni. Hins
vegar þykir óskiljanlegt hvers
vegna hann valdi ekki annan
flugvöll til lendingar eftir að
eldur kom upp í tveimur hreyfl-
um þotunnar af fjórum.
Eldur kom upp í tveimur hreyfl-
um á hægri hjið þotunnar 54
mínútum eftir flugtak frá Varsjá.
Var hún þá stödd yfir borginni
Grudziadz, sem er 200 km norð-
vestur af Varsjá. Jerzy Slowinski,
forstjóri pólska ríkisflugfélagsins,
LOT, sagðist enga skýringu hafa
á því hvers vegna Zygmunt Paw-
laczyk, flugstjóri, hefði ákveðið
að snúa til Varsjár í stað þess að
lenda á flugvöllum sem styttra
hefði verið til. Hann sagði það
vera í verkahring flugstjórans að
ákveða um lendingarstað og gæti
enginn tekið fram fyrir hendumar
á honum um flug flugvélar.
Flugstjórinn átti m.a. um það
að velja að lenda á herflugvelli í
Grudziadz eða flugvellinum í
Gdansk, sem einnig var miklu
styttra til. Óljóst er hvers vegna
hann sneri til Varsjár, en þar voru
aðstæður til nauðlendingar bezt-
ar. Talið er að veðurfarslegar
aðstæður hafi verið mun betri þar
en annars staðar, þar sem flug-
stjórinn gat lent þotu sinni.
Rannsókn stendur yfir á hljóð-
og flugritum vélarinnar en á þeim
kunna að vera upplýsingar, sem
leitt geta í ljós hvað leiddi til brot-
lendingarinnar. Flug þotunnar til
baka gekk eins og í sögu þar til
augnabliki fyrir brotlendinguna
en þá fór eitthvað úrskeiðis og
er talið að flugvélin hafí skyndi-
lega orðið vélarvana. Talið er að
flugstjórinn hafi þá einbeitt sér
Reuter
Pólsk þota af gerðinni Uyushin 62 á flugvellinum í Varsjá.
að því að forðast brotlendingu
inni í íbúðahverfí.
Þotan var í aðflugi á svokall-
aðri lokastefnu að flugvellinum í
Varsjá þegar hún sveigði skyndi-
lega af leið og brotlenti í skóglendi
í aðeins 300 metra fjarlægð frá
3.000 manna þorpi, Dabrowka,
og tveggja kílómetra fjarlægð frá
Ursynow, 200.000 manna út-
hverfi Varsjár. Um leið og flug-
stjórinn sveigði þotunni og steypti
henni niður í skóginn kallaði hann
í talstöðina og sagði við flugum-
ferðarstjóra, sem hann var í
sambandi við: „Þessu er lokið,
vertu sæll“.
Slowinski sagði útilokað að
geta sér til um líðan farþeganna
síðustu auganblik flugsins eða um
ástandið um borð. Hins vegar er
talið að þeir hafi lifað í mikilli
angist. I brakinu fannst m.a. miði
sem á stóð „elskulega mamma“
og virtist þar vera um rithönd
bams að ræða. Sviðið trúmálarit
fannst einnig í brakinu og það
litla læsilega, sem stóð á síðunni,
sem við blasti hljóðaði svo: „Guðs
náð gagnvart hinum látnu opin-
berast þegar þeir fá að iðrast
synda sinna í hreinsunareldi hafði
þeir ekki skriftað meðan þeir voru
í tölu lifenda."
Gífurleg sprenging kvað við er
þotan brotlenti og mun enginn
hafa lifað lendinguna af. Talið er
útilokað að hægt verði að bera
kennsl á hina látnu og hefur ekk-
ert heillegt lík fundizt, aðeins
útlimir eða líkamshlutar. Af þess-
um sökum hefur verið ákveðið að
ættingjar hinna látnu verði ekki
beðnir um að reyna að bera kennsl
á þá.
Með þotunni fórust 172 far-
þegar og 11 manna áhöfn. Meðal
farþeganna voru 17 bandarískir
borgarar. Slysið _er hið versta í
sögu Póllands. Árið 1980 fórst
flugvél sömu tegundar við Varsjá
og með henni 87. Var hún að
koma frá New York en þotan, sem
fórst á laugardag, var á leið þang-
að.
Pólska stjómin fyrirskipaði
tveggja daga opinbera sorg og var
öllum samkomum aflýst á Var-
sjársvæðinu. Skemmtiefni var
tekið af dagskrá útvarps- og sjón-
varpsstöðva.
Zygmunt Pawlaczyk flugstjóri
var 59 ára og með 20.000 flug-
stundir að baki. Þotan var af
gerðinni Ilyushin 62 og smíðuð
árið 1984 í Sovétríkjunum. Flug-
virkjar, sem skoðuðu hana fyrir
ferðina hafa verið yfírheyrðir.
Rétt eftir brottför þotunnar fór
önnur eins þota frá LOT til
Chicago í Bandaríkjunum og kom
ekkert óeðlilegt fram í ferð henn-
ar. Af þeim sökum hefur félagið
ekki kyrrsett flugvélar sínar af
þessari gerð.