Morgunblaðið - 12.05.1987, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1987 '
Morgunblaðið/Júlíus
Sjúkrabifreið afhent Hafnfirðingum
SLOKKVILIÐ Hafnarfjarðar
hefur nú tekið í notkun nýja sjú-
krabifreið, sem var afhent
formlega á fimmtudag. Bifreiðin
er af gerðinni Mercedes Benz og
kostar um 2,4 milljónir fullbúin.
Að sögn Helga ívarssonar,
slökkviliðsstjóra, er þessi bifreið
mjög fullkomin og vel útbúin í alla
staði. Rauðakrossdeildimar í Hafn-
arfirði, Garðabæ og Bessastaða-
hreppi keyptu bifreiðina til landsins,
en í stað hennar var eldri bifreið
af Chevrolet-gerð seld til ísafjarð-
ar. Nýja bifreiðjn er mun rúmbetri
en sú gamla. Á myndinni sést er
Helgi Ivarsson tekur við lyklum
bifreiðarinnar úr hendi Birgis Dag-
bjartssonar, fulltrúa Rauðakross-
deildanna.
RudolfÞ. Stolzen-
wald — Kveðjuorð
Fæddur 23. ágúst 1928
Dáinn 1. maí 1987
Nú er laukur þela þakinn,
þegir haukur vængjabrotinn,
einn er þáttur af oss rakinn,
ein af lindum hjartans þrotin ...
(Úr Sonatorrek, Grímur Thomsen)
Það skarð sem Rudolf Þórarinn
Stolzenwald, tengdafaðir minn, læt-
ur eftir sig með skyndilegu fráfalli,
er bæði ólýsanlegt og óbætanlegt.
Sagt er að tíminn lækni öll sár og
er það mikið rétt en tíminn mun
einnig leiða í ljós þá fjölmörgu
bresti og tóm í tilveru okkar sem
Rudolf hefur fyllt svo rækilega með
þögulli atorku sinni.
Eflaust hefur Rudolf verið talinn
fremur dulur maður og fámáll, en
þrátt fyrir hógværð sína og hæ-
versku mátti alltaf búast við
einhverri óvæntri uppákomu af
hans hálfu. Gátu þær verið af ýms-
um toga því hann var óneitanlega
mjög fjölhæfur maður og áhugi
hans dreifðist víða.
Hann var maður athafna og lagði
metnað sinn í að gera vel þá hluti
sem hann tók sér fyrir hendur enda
var hann óbrigðull sem klettur í
þeim efnum. Hann var einnig hæfí-
leikamaður á myndlistar- sem
tónlistarsviði og minnist ég með
angurværð í hjarta þær stundir sem
hann spilaði fyrir okkur ljúfan jass
á píanóið sitt eða orgel.
Það sem einkenndi hann þó mest
af öllu var ótakmörkuð ást hans á
náttúrunni, sem var að vissu leyti
lífæð hans og orkugjafí. Hann not-
aði hvert tækifæri til að hverfa á
RYÐFRÍTT STÁL
EROKKARMÁL!
Fyriríiggjandi í birgðastöð:
Ryðfrítt stangastál
Stálgæði: AISI 304 ( Wst. 4301)
. Vinklar LlLL Profílar Flatt
Sívalt Pípur Fjölbreyttar
• •• O O 0 stærðir og þykktir
Ryðfríar stálplötur
Stálgæði: AISI 304 (Wst. 4301) Plötuþykktir: 0,8 - 6,0 mm
Stálgæði: AISI 430 (Wst. 4016) Plötustærðir: 1250 x 2500 mm
SINDRA /fcmSTALHF
Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 27222.
vit fjallanna, jafnt á sumri sem
vetri. Fyrir mér, borgarbaminu, eru
ferðir þær sem ég átti með Rudolf
uppá hálendið ógleymanleg reynsla.
Á fjöllum var Rudolf konungur. Þar
skein frá honum stráksleg gleði og
stolt þegar hann benti á og nefndi
ótal kennileiti á stórum svæðum
sem hann þekkti svo til hins ýtr-
asta. Betri leiðsögumann get ég
ekki ímyndað mér. Ef hann var þá
ekki einn í sínum fjallaferðum, hreif
hann samferðamenn sína svo með
brennandi áhuga sínum, að óhjá-
kvæmilegt var að smitast af lotn-
ingu hans gagnvart náttúrunni.
Ég er lífínu þakklát fyrir þau 5
ár sem ég hef átt Rudolf fyrir
tengdaföður og vin og skyndilegi
missirinn er sár. Hann var fólki sínu
og vinum traustur sem berg og
erum við ófá sem höfum notið styrk-
leika hans og trygglyndis. Það er
því enn svo óraunverulegt að slíkur
klettur sem hann var skuli allt í
einu hverfa okkur svona skyndilega.
Og stór er sorgin sú að litli son-
ur minn, 10 mánaða snáðinn, fái
ekki að njóta uppvaxtaráranna í
samvistum við afa sinn, þessu
merkilega og fjölhæfa náttúru-
bami.
Sigríður Hafstað
Lísa í Undralandi
Tákn:
Endurútgáfa
á Sígildu
sögunum
TÁKN SF. er að hefja endurútg-
áfu á Sígildum sögum og er sú
fyrsta þeirra um Lísu í Undra-
landi nú komin út. Þessar sögur
voru gefnar út hér á árunum
1956 og 1957 og var það fyrir
frumkvæði Guðmundar heitins
Karlssonar, blaðamanns.
Hann þýddi sögumar og handskrif-
aði textann inn á myndasögumar
og hefur það verið látið halda sér,
að sögn Onundar Bjömssonar, hjá
Tákni. Ætlunin er að blað komi út
mánaðarlega og er Davy Crockett
væntanlegur næstur. Á sínum tíma
komu út alls 26 myndablöð með
Sígildum sögum. Þar á meðal voru
Buffalo Bill, Daniel Boone, Kit
Carlsson, Rauði ræninginn og Will-
iam Tell, svo að nokkurra sé getið.
Það fer svo eftir undirtektum.að
sögn útgefenda hvort unnt verður
að gefa út enn fleiri en þessi 26
hefti. Blöðin eru prentuð í Odda h.f
og á góðan pappír og er frágangur
allur hinn vandaðasti.