Morgunblaðið - 12.05.1987, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1987
59
Kvikmyndahátíðin í Cannes:
Allt að verða vitlaust
Einn af föstum liðum hátiðarinn-
ar eru létt- eða óklæddar stúlkur,
sem sýna sig hverjurn sem vill á
götum úti í von um að þær verði
uppgötvaðar af einhverjum kvik-
myndafurstanum. Hér er ein slík
í hópi vina úr ljósmyndarastétt.
Meðal stjarna á staðnum er sjálf-
ur konungur smurolíunnar, John
Travolta. Hér er hann ásamt
listakokkinum Roger Verger,
sem á sunnudaginn var gerður
að félaga í frönsku Heiðursfylk-
ingunni fyrir vel unnin störf í
þágu meltingarfæranna.
Þessi þykja sigurstrangleg, en
hér eru aðstandendur myndar-
innar Frásögn um margboðað
morð, sem gerð er eftir skáld-
sögu Marques. Frá vinstri:
Rubert Everett, Ornella Muti,
leikstjórinn Fransesco Rossi,
Anthony Delon og Irene Papas.
Þessa dagana fer fram fertug-
asta kvikmyndahátíðin í
Cannes og er talið að þangað séu
komin a.m.k. 15.000 manns til þess
að sýna sig og sjá aðra, koma sjálf-
um sér á framfæri, kaupa inn
myndir, ráða leikara og síðast en
ekki síst— fara í bíó.
Auk hinna tuttugu mynda sem
keppa um Gullpálmann eru mun
fleiri myndir sýndar, þó svo að ekki
taki þær þátt í keppninni. Meðal
þeirra má nefna myndina „Radio
Days“ eftir Woody Allen, „Raising
Arizona" eftir þá bræður Joel og
Ethan Coen og „Tough Guys Don’t
Dance" eftir Norman Mailer, en
hann situr auk þess í dómnefnd
hátíðarinnar.
Næsta föstudag verður svo svo-
kallaður breskur dagur hátíðarinn-
ar og mun Lindsey Anderson m.a.
frumsýna nýjustu mynd sína „The
Whales of August". Sama kvöld
verða Karl og Díana, prins og prins-
essa af Wales, vera viðstödd hátí-
ðarmálsverð til heiðurs Sir Alec
Guinness.
Að sögn kunnugra er keppnin
um Gullpálmann mjög tvísýn og
hafa veðbankar sjaldan verið jafnó-
öruggir um hver hreppa muni
hnossið, en blaðamenn hafa helst
nefnt mynd Fransescos Rossis, Frá-
sögn um margboðað morð.
Reuter
Þó að hinir margumræddu veðurguðir Veðurstofunnar hafí enn ekki getað gert upp við sig hvernig veðrið
eigi eiginlega að vera hérna, þá er það alveg á tæru hvernig það á að vera suður í Parísarborg. Þar er
það sumar og sól sem gildir. Meðfylgjandi mynd var tekin á sunnudag fyrir framan Eiffeltuminn, en hann
sést foldgnár í fjarska. Þennan dag fór hitinn upp í 27 gráður á Celsíus svo Parísarbúar tóku unnvörpun þann
kostinn að létta þrýstingi af brunahönum, eða að stinga sér í nærliggjandi tjamir og gosbrunna.
Og þá er best að biðja bara um gott veður.
KYNNIST
EIGIN LANDI!
Ferðir um ísland í sumar
Ferðaskrifstofa ríkisins hefur skipulagt
tvær fróðlegar og skemmtilegar ferðir um
landið í sumar.
Fararstjóri verður Guðmundur Guðbrandsson -
sem leitt hefur þessar ferðir undanfarin sumur.
Gist verður á hótelum og hálft fæði
er innifalið í verði.
Tilvalið tækifæri til að kynnast eigin landi.
Hringferð um landið
10 dagar. Brottfarardagur 30. júní og 11. júlí.
í byggð og óbyggð
10 dagar. Brottfarardagur 21. júlí.
Upplýsingar og bæklingar á skrifstofúnni.
xb
FRI
Ferðaskrifstofa Ríkisins
Skógarhlíð 6, sími 23853.
ITTil öryggis-
11 ■ ■1 hjálmar
rr
Viðurkenndu öryggishjálmarnir frá ,J i
eru nú fyrirliggjandi í öllum stærðui n.
HONDA é íslandi,
Vatnagörðum 24, símí 689900.