Morgunblaðið - 15.05.1987, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1987
Óbreytt
rækjuverð
YFIRNEFND Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins ákvað á þriðjudag
óbreytt verð á rækju fyrir tíma-
bilið 1. maí til 30. september.
Samkvæmt því er verð á rækju
upp úr sjó 63 krónur á kUó fyrir
1. flokk, 52,50 fyrir 2. flokk, 45
fyrir 3. flokk og 20 krónur fyrir
undirmálsrækju. Verðið var
ákveðið með atkvæðum odda-
manns og fulltrúa seljenda.
Fulltrúar rækjukaupenda bókuðu
ekki mótmæli, en annar þeirra, Jón
Guðlaugur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Marbakka hf, sagði
í samtali við Morgunblaðið, að þeir
teldu þetta verð of hátt, þar sem
markaðsverð fyrir bæði pillaða
rækju og rækju í skel hefði farið
lækkandi. Verð á pillaðri rækju
væri nú um 2,80 til 3,40 pund, 180
til 218 krónur. Þá væri greiðslan í
verðjöfnunarsjóð mönnum mikill
þymir í auga og vildu allir framleið-
endur leggja hann niður. Þessi
greiðsla væri nú um 32 til 33 krón-
ur á kíló að meðaltali. Menn teldu
þessa engan veginn eiga rétt á sér,
meðal annars vegna þess, að hún
hefti menn í samkeppninni við aðr-
ar þjóðir, sem ekki byggju við slíkt
óréttlæti.
Oddamaður yfímefndar að þessu
sinni var Benedikt Valsson frá Þjóð-
hagsstofnun. Fulltrúar kaupenda
voru Ámi Benediktsson og Jón
Guðlaugur Magnússon og fulltrúar
seljenda Sveinn Hjörtur Hjartarson
og Guðjón A. Krisijánsson.
Morgunblaðið/Einar Falur
Einar Hákonarson listmálari á milli tveggja verka sinna á sýningunni. Til vinstri er „Dávaldurinn" máluð 1987 og til hægri er „Lesið
í hvitu bókinni" frá 1986.
„Tilfinningar skipta meg-
inmáli í allri listsköpun“
- segir Einar Hákonarson listmálari
sem opnar málverkasýningu á Kjarvalsstöðum á morgun
íslensk menningararfleifð. „Það
hefur oft verið sagt að lista-
menn spegli sinn samtíma, hver
á sinn hátt. Að mínum dómi eru
það tilfinningamar sem skipta
megin máli í allri listsköpun,
þótt auðvitað komi þar einnig
til kunnátta listamannsins og
hugmyndaflug. Ég vona að með
þessari sýningu takist mér að
gefa sýningargestum hlutdeild
í myndheimi mínum og tilfínn-
ingum“, sagði Einar að lokum.
„MANNESKJAN hefur verið mitt aðal-
yrkisefni frá því ég lauk myndlistarnámi
fyrir tuttugu árum og svo er einnig á
þessari sýningu. Ég hef því nefnt sýning-
una „Manneskjan í öndvegi“ enda fjalla
Á sýningunni eru 77 olíumál-
verk sem listamaðurinn hefur
unnið við síðastliðin þrjú ár. „Ef
hægt er að tala um einhverja
sérstakar stílbreytingar í þess-
um myndum frá fyrri verkum
mínum er það einna helst að
ég fæst meira við táknmál en
oft áður,“ sagði Einar. „Þá hafa
einnig orðið áherslubreytingar
ég í þessum myndum mínum aðallega
um fólk og daglegt líf þess,“ sagði Einar
Hákonarson listmálari í samtali við
Morgunblaðið, en hann opnar myndlist-
arsýningu á Kjarvalsstöðum á morgun.
ég um íslenskar aðstæður og
fólkið í landinu eins og ég upp-
lifí það, um íslenskan veruleika,
þar sem ýmsir þættir mannlegs
lífs leika gjaman stærsta hlut-
verkið."
Einar sagði að frásagnar-
löngunin hefði alltaf verið ríkur
þáttur í verkum sínum svo og
á yrkisefninu í gegnum árin.
Framan af málaði ég myndir,
sem sýndu hlutskipti manneskj-
unnar í vélrænum og oft
fjandsamlegum heimi. Þær
myndir voru oft með ádeilu-
broddi og ekki sérlega alúðlegar
sumar. Nú fjalla ég meira um
manneskjur í daglegu umhverfí
sínu. í þessum myndum fjalla
Fimm íslenskir aðilar styrktir
af Norræna menningarsjóðnum
Bankamenn
samþykkja
FÉLAGSMENN Sambands
íslenskra bankamanna hafa sam-
þykkt nýgerðan kjarasamning
sambandsins með tæpum 80%
atkvæða, en atkvæðagreiðslan
fór fram dagana 7. og 8. maí.
Atkvæði féllu þannig að 2.520
samþykktu samninginn eða 78,65%,
621 greiddi atkvæði á móti eða
19,38%. Auðir og ógildir seðlar voru
63 eða 1,97%. A kjörskrá voru
3.490 og 3.204 greiddu atkvæði eða
91,81%.
Tónlistarskólinn í Reykjavík
heldur burtfararprófstónleika
föstudaginn 15. maí kl. 18.00 í
sal skólans, Skipholti 33.
Eydís Franzdóttir óbóleikari flyt-
ur verk eftir Philidor, Poulenc,
Seiber, Mozart og Britten. Flytjend-
ur með Eydísi eru Anna Guðný
Eydís Franzdóttir óbóleikari.
Guðmundsdóttir, píanó, Kristín
Stefánsdóttir, sembal, Kristín M.
Jakobsdóttir, fagott, Hildigunnur
Halldórsdóttir, fíðla, Margrét
Hjaltested, víóla og Lovísa
Fjeldsted, selló.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
NORRÆNI menningarsjóður-
inn hefur veitt fimm íslenskum
aðUum styrki til ýmissa verk-
efna á sviði menningar og lista.
Sjóðurinn, sem hefur það mark-
mið að efla norrænt samstarf
á sviði þróunar, kennslu og
menningarmála, úthlutaði að
þessu sinni rúmum fjórum millj-
ónum danskra króna til 57 aðila
á Norðurlöndum.
Framlag Norræna menningar-
sjóðsins samsvarar um tuttugu og
flórum milljónum íslenskra króna
og komu þar af í hlut íslendinga
rúmlega 2 milljónir og 200 þúsund
krónur. Stærsta framlag Norræna
menningarsjóðsins að þessu sinni
er vegna menningarviku á Grænl-
andi og nemur tæpum 3 milljónum
íslenskra króna. Menningarvikan
er í tengslum við opnun Norrænnar
stofnunar á Grænlandi.
Þeir sem styrki hlutu hér á landi
eru Námsgagnastofnun, sem veitt
var um 320.000 krónur, vegna
íslenskrar þýðingar á kennsluefni,
íslandsdeild Félags norrænna for-
varða, rúmlega 100.000 krónur,
vegna ráðstefnuhalds, íslensk
grafík, tæplega 750.000 krónur,
vegna ráðstefnunnar Graphica Atl-
antica sem haldin verður hér á landi
í sumar, Norræna húsið, rúmlega
750.000 krónur, vegna bókmennta-
Á sýningunni eru liðlega 200
ljósmyndir sem hlutu verðlaun í 9
efnisflokkum í alþjóðlegri sam-
keppni blaðaljósmyndara. Sýning-
in er nú haldin í þrítugasta sinn,
en hefur verið þrisvar áður hér á
íslandi.
hátíðar í Reykjavík, og Höfundar-
réttarfélag íslands sem úthlutað var
rúmum 280.000 krónum vegna
norrænnar höfundarréttarráð-
stefnu sem haldin verður hér á landi
í sumar.
Á sýningunni er mynd eftir
Ragnar Áxelsson, Ijósmyndara
Morgunblajðsins, og var sú mynd
meðal þeirra sem birtar voru í
árbók „World Press Photo".
Burtfararpróf s-
tónleikar í dag
Listasafn ASÍ:
Síðasta sýningarhelgi á
„World Press Photo ’87“
NÚ stendur yfir í Listasafni ASÍ fréttayósmyndasýningin
„World Press Photo ’87“. Sýningunni lýkur sunnudaginn 17.
maí nk. og er opin í dag kl. 16.00-20.00 og um helgina kl.
14.00-22.00.