Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
Rannsóknir íslands og Danmerkur á
Hatton Rockall-svæðinu:
Gagnasöfnun boð-
in út erlendis
Leiðangurinn fyrirhugaður í ágúst
UNDIRBÚNINGUR að rann-
sóknum Islendinga og Dana á
Hatton-Rockall-svæðinu heldur
áfram samkvæmt áætlun þótt
Bretar hafi lýst því yfir að þeir
samþykki ekki rannsóknirnar í
sumar vegna þess að þær geti
truflað þeirra eigin rannsóknir á
svæðinu. Gert er ráð fyrir að
gagnasöfnunin verði boðin út til
fyrirtækja sem hafa sérbúin skip
til slíkra rannsókna og sú söfnun
Stúlkan
er látin
STÚLKAN, sem varð fyrir I
bifreið á Sogavegi í
Reykjavík í siðustu viku, lést
á sjúkrahúsi í gærmorgun.
Stúlkan, sem var 12 ára
gömul, var gestkomandi í
Reykjavík, en átti heima á
Stykkishólmi. Á miðvikudags-
kvöld í síðustu viku varð hún
fyrir bifreið á Sogaveginum og
lést af völdum áverkanna
snemma í gærmorgun. Ekki er
unnt að birta nafn hennar að
svo stöddu.
Maðurinn við
Hvassaleitis-
skóla ófundinn
taki 3-4 vikur í ágúst og septem-
ber. Orkustofnun mun síðan
vinna úr gögnunum.
Guðmundur Pálmason jarðeðlis-
fræðingur, sem vinnur að undirbún-
ingi rannsóknanna af íslands hálfu,
sagði við Morgunblaðið að gagna-
söfnunin yrði boðin út á alþjóðleg-
um markaði en engin íslensk
fyrirtæki hefðu búnað til slíkra
rannsókna. Guðmundur sagði að
rannsóknirnar á svæðinu beindust
aðallega að því að rannsaka gerð
sjávarbotnsins með tilliti til vinnslu
verðmætra efna, þar á meðal olíu.
Gumundur sagði að svæðið hefði
ekki verið rannsakað ýtarlega, þótt
Bretar hafi gert út leiðangra þang-
að.
Guðmundur sagði að úrvinnsla
gagnanna yrði hjá Orkustofnun og
ef allt færi eftir áætlun tæki hún
eitthvað á annað ár. Guðmundur
sagði að kostnaði við rannsóknimar
yrði haldið innan þeirra marka sem
fjárveitingar til þeirra leyfa, en á
fjárlögum 1987 var gert ráð yfir
20 milljón króna framlagi til rann-
sóknanna, og Danir leggja fram
jafn háa upphæð.
Að sögn Eyjólfs Konráðs Jóns-
sonar, formanns utanríkismála-
nefndar Alþingis, átti hann fund
með utanríkisráðherra í gær vegna
viðbragða Breta og verður málið
lagt fyrir ríkisstjómarfund, sem
hefst klukkan 10.00 í dag. Fundur
iiefur síðan verið boðaður í utanrík-
ismálanefnd klukkan 11.00 þar sem
fjailað verður um málið.
<*«- ' :» »». !-■ .. . . .
Flugvél Ómars Ragnarssonar, TF-AFL, á slysstað á Mývatnsöræfum.
Morgunblaðið/Siguröur Práinsauu
Brotlent í könnunar-
flugi á Mývatnsöræfum
Flugmaður og 5 farþegar sluppu
lítið meiddir, f lugvélin gerónýt
TVEGGJA hreyfla einkaflug-
vél, TF-AFL, brotlenti á
Mývatnsöræfum síðdegis í
fyrradag. Fimm menn voru í
vélinni, og sluppu þeir tiltölu-
lega lítið meiddir. Flugvélin er
gerónýt.
Eigandi flugvélarinnar, Ómar
Ragnarsson fréttamaður, var í
eftirlits- og könnunarflugi með
fulltrúa Landgræðslunnar og
Náttúruvemdarráðs, en ferðin var
að hluta til farin á vegum Vélflug-
félags íslands, þar sem Ómar er
félagi. Með í för vom einnig kvik-
myndatökumaður og hljóðmaður
frásjónvarpinu.
Ómar sagði að þeir hefðu verið
að ljúka við að kanna og mynda
það svæði afréttarins sem kindum
var sleppt á fyrir helgina í óþökk
Landgræðslunnar. En þegar hann
hefði ætlað að hækka flugið og
fara hefði flugvélin lent í ókyrrð
og síðan í sogi sem togaði hana
niður svo hún missti bæði hraða
og hæð. Ómar sagðist hafa reynt
að ná henni upp aftur, en án ár-
angurs og því neyðst til að brot-
lenda. Hjólin vom uppi og lenti
flugvélin á kviðnum, fyrst í urð
en síðan á foksandi, þar sem nef
hennar rakst niður með þeim af-
leiðingum að flugvélinni hvolfdi.
Ómar sagði að þetta hefði verið
óskemmtileg reynsla, en þó guðs-
þakkarvert að ekki hefðu orðið
meiri meiðsli. Hann sagði að þeir
hefðu gengið upp á veg, um 2 km
leið, og náð að láta vita þar af sér.
Rannsóknanefnd flugslysa fór
á slysstað í fyrrakvöld og vinnur
nú að rannsókn óhappsins. I gær
var unnið að því að flytja flakið
til byggða. Verðmæti flugvélar-
innar er rúm milljón, að sögn
Ómars.
TVEIMUR mönnum, sem hand-
teknir voru á föstudag grunaðir
um ósæmilega negðan, hefur nú
verið sleppt úr haldi. Ekki er
talið að þeir tengist svokölluðu
Hvassaleitismáli.
Annar maðurinn var handtekinn
í Öskjuhlíðinni, en hinn á miðjum
Laugavegi. Sá fyrri hafði að vísu
ekki verið staðinn að ósæmilegri
hegðan í Öskjuhlíðinni, en var grun-
aður um aðild að Hvassaleitismál-
inu. Eins og sagt befur verið frá í
Morgunblaðinu hafa ungar telpur
orðið fyrir áreitni manns við
Hvassaleitisskólann og Breiðagerð-
isskóla. Maðurinn sem tekinn var á
Laugavegi þrætti fyrir að hafa sýnt
á sér kynfærin þrátt fyrir fullyrð-
ingar vegfaranda um annað og
hefur báðum mönnunum nú verið
sleppt úr haldi.
Fyrsti vam-
arliðs-
farmurinn
FYRSTI farmurinn sem Eim-
skipafélag íslands flytur fyrir
Varnarliðið á Keflavíkurflug-
velli, samkvæmt nýjum samn-
ingum við Bandaríska
sjóherinn, kom til landsins í
fyrrinótt og var skipað upp í
Njarðvíkurhöfn í gærkvöldi.
Leiguskip Eimskips, Baltic,
kom til Reykjavíkur frá Banda-
ríkjunum í fyrrinótt. Eftir að
almennur farmur hafði verið los-
aður úr skipinu í Reykjavík sigldi
það til Njarðvíkur þar sem Vam-
arliðsfarmurinn var losaður. Voru
það rúmlega 80 gámaeiningar.
Skipaafgreiðsla Suðumesja sér
um afgreiðslu skipsins í Njarðvík.
Jarðskjálftinn í gær sá stærsti síðan 1912 á Suðurlandi:
Astæða til að Almanna-
varnir verði í varðstöðu
Gæti verið fyrirboði mikillajarðhræringa, segir Ragnar Stefánsson
„ RÉTT fyrir hádegi kom snarpur
skjálfti og harður, sem mældist
5,8 gráður á Richter, eftir nokkra
skjálfta fyrr um daginn," sagði
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur á Veðurstofu Islands í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hér mun vera um sterkasta
skjálfta að ræða á Suðurlandi
síðan 1912 og sterkasta skjálfta,
sem hérlendis hefur mælst síðan
1976.
Að sögn Ragnars Stefánssonar
er erfitt að staðsetja svo stóran
skjálfta, eins og þann, sem varð rétt
fyrir hádegi, en eftir þeim upplýsing-
um, sem Veðurstofan hafði aflað
sér, munu upptök skjálftans hafa
verið 10-15 kílómetra suður af
Heklu, nálægt Vatnafjöllum. Skjálft-
inn fannst mjög víða, allt austan úr
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Unnið við losun fyrsta farmsins sem Eimskip flytur fyrir Vamarliðið, samkvæmt nýjum samningi,
í Njarðvíkurhöfn í gærkvöldi.
Suðursveit og vestur á Reykjanesi
og Rifl. „Okkar mælingar sína að
sterkasti skjálftinn var 5,8 gráður á
Richter og hefur Jarðskjálftastofn-
unin í Uppsölum staðfest þá tölu.“
Mjög margir höfðu samband við
Veðurstofuna og sagði Ragnar að
hann hefði ekki frétt af neinum
skemmdum. „Búrfellsvirkjun mun
þó hafa farið úr sambandi og hafa
okkur einnig borist fréttir af hruni,
bæði úr sjálfu Búrfelli, Eyjaíjöllum
og Selsunds§alli.“
Aðspurður sagði Ragnar að jarð-
hræringar þessar bentu ekki endi-
lega til goss í Heklu, enda væri hér
um allstóran misgengisskjálfta að
ræða; eldsumbrotaskjálftar væru
minni og hægari. „Þó ber það að
athuga að á þessu svæði eru venju-
legir misgengisjarðskjálftar og
kvikuhreyfingar neðanjarðar mjög
samtengdar, þannig má benda á að
ári eftir jarðskjálftann mikla nálægt
Selsundi 1912 byrjaði gos í Munda-
felli skammt austur af Heklu,
reyndar fundust líka nokkrum
klukkustundum á undan því gosi
j arðskj álftakippir um Ámes og
Rangárvallasýslur og reyndar varð
þeirra aðeins vart í Reykjavík.
Við höfum venjulega talið, að
þegar stór skjálfti verður á þessu
svæði, fylgi eitthvað í kjölfarið vest-
ar. Spurningin er því, hvort skjálft-
inn var nógu stór til að vera fyrirboði
slíks; um það er ekki gott að segja.
Ég tel þó ástæðu til þess að Al-
mannavamir séu í varðstöðu."