Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 19
T9 MORGIÍNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987 Starf aldraðra í Hallgrímskirkju: Ferðir í Húnavatns- sýslu og til Danmerkur — Þrjúsætilaus í Danmerkurferð Á VEGUM starfs aldraðra í Hallgrímskirkju verður farin fjögurra daga ferð í Húnavatns- sýslu dagana 13.-16. júli. Einnig er áætluð ferð til Danmerkur á vegum „Ældre pá höjskole" dag- ana 5.-21. ágúst. Lagt verður af stað í Húnavatns- sýsluferðina mánudaginn 13. júlí kl. 9.30 frá Hallgrímskirkju. Ekið verður um Vatnsnes og komið við í Borgarvirki. Gist verður á Húna- völlum allar nætumar í eins eða tveggja manna herbergjum. 14. júlí verður ekið til Skagastrandar og í kringum Skaga. 15. júlí verður far- ið í Vatnsdalinn og Þingeyrarkirkja skoðuð. 16. júlí verður ekið suður Kjöl. Fararstjóri verður Dómhildur Jónsdóttir en leiðsögumaður verður sr. Pétur Þ. Ingjaldsson, fyrrver- andi prófastur í Húnaþingi. Ferðin til Danmerkur hefst með flugi til Kaupmannahafnar 5. ágúst og þaðan verður ekið til Jótlands þar sem dvalið verður í „Vrá folke- höjskole" til 19. ágúst, en þá verður farið með lest til Kaupmannahafnar og dvalið þar í tvo daga. 20 manns 60 ára og eldri verða í hópnum. Vegna forfalla eru 3 sæti laus. Fararstjóri verður sr. Lárus Hall- dórsson. Þeir sem áhuga hafa á þessum ferðum em vinsamlegast beðnir að hafa samband við Dómhildi Jóns- dóttur í síma 39965. Allir lífeyrisþegar geta tekið þátt í þessum ferðum. Tónlistarskólinn í Reykjavík: Hádegis- tónleikar í Gamla bíói HINIR árlegu vortónleikar Tón- listarskólans í Reykjavík verða haldnir miðvikudaginn 27. maí kl. 12.30 í Gamla bíói. Efnisskrá tónleikanna er ijöl- breytt. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Fyrirlestur um stofnerfða- fræðirannsókn- ir í f iskeldi BANDARÍSKI prófessorinn Graham A.E. Gall frá Háskól- anum í Kaliforníu heldur fyrirlestur um stofnerfða- fræðirannsóknir sínar á regnbogasilungi. Gall talar meðal annars um þann árangur sem náðst hefur í kynbótum á regnbogasilungi í tilraunum sínum í Bandaríkjun- um. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 101 í Odda þann 27. maí kl. 20.00 og verður hann haldinn á ensku. Ollum er heimill aðgang- ur. P Eðvarð Þór Eðvarðsson, íþróttamaður ársins: „Æfi 6 tíma á dag bœðaiéttoe drekk mikirt af mjóllí „Þú kemst ekki á heimsafrekslista og setur ekki vel á annað hundrað (slandsmet eða Norðurlandamet eins og Eðvarð án þess að hugsa um hvað þú lætur ofan í þig“, segir þjálfari Eðvarðs, Friðrik Ólafsson. Með eftirtektarverðri samvinnu og skipulegri uppbyggingu hefur þeim tekist að ná stórkostlegum árangri og stefna enn hærra. Veigamikill þáttur þjálfunarinnar er heilbrigt mataræði. Það hefur áhrif á alla starfsemi líkamans, hvort sem um er að ræða skaphöfn, taugaviðbrögð, styrk eða annað. Mjólkin erómissandi uppistaða í daglegu fæði allra þeirra sem hugsa um andlegt og líkamlegt heilbrigði. Hún er ótrúlega auðug uppspretta af fjölbreyttum bætiefnum. Úr mjólkinni fáum við kalk, magníum, zlnk, A og B vítamín, steinefni, amínósýrur og fjölmörg önnur efni, sem eru líkamanum lífsnauðsynleg. Vegna þessa mikilvægis mjólkurinnar verður aldrei of oft brýnt fyrir ungum sem öldnum að tryggja líkamanum nægilegt magn af mjólk eða mjólkurmat á hverjum degi. MJÓLKURDAGSNEFND íþróttamaður ársins, Eðvarð Þór Eðvarðsson, sem hefur skipað sér sess á meðal besta sundfólks í heimi er vel meðvitaður um mikilvægi mjóikur í alhliða líkamsuppbyggingu. Engir sætudrykkir geta komið í stað mjólkurinnar. Mjólkeða mjólkurmatur er sjáifsagður hluti af hverri máltíð. Hvað er hæfileg mjolkurdrykkja? eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson Raolagður Hæfilegur Aldurshópur dagsskammtur mjólkurskammtur ár (RDS) af kalki í mg (2,5 dl glös) Bom1-10 1200 Unglingar 11-18 Fullorömrkariar ogkonur* * Margir sérfræðingar telja aö kalkþörf kvenna eftir tiðahvorf sé mun hærri eöa 1200-1500 mg/dag. Reynist þaö rétt er hæfilegur mjólkurskammtur ekki undir 3 glösum á dag. (Með rnjólk erátt við nýmjólk, léttprijólk og undanrennu).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.