Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAI 1987
-I
Stykkishólmur fær kaupstaðarréttindi:
Nýr kaupstaður
með langa sögu
og bjarta framtíð
Rætt við Sturlu
Böðvarsson bæj-
arstjóra
STYKKISHÓLMUR hlaut ný-
verið kaupstaðarréttindi. Þrátt
fyrir það, er bærinn enginn ný
bóla, heldur á hann fjögurra
alda sögu að baki sem verslun-
arstaður og þar var amtmaður
vesturamtsins staðsettur og
síðar sýslumaðurinn. I tilefni
af kaupstaðarréttindunum átti
blaðamaður Morgunblaðsins
samtal við bæjarstjórann,
Sturlu Böðvarsson, áður sveit-
arstjóra.
Við útgáfu samþykktar um
bæjarréttindi verða ýmsar breyt-
ingar á stjómsýslu Stykkishólms,
hreppsnefnd verður bæjarstjóm,
hreppsráð verður bæjarráð og
sveitarstjóri verður bæjarstjóri.
„Breytingamar við kaupstaðar-
réttindin em ekki mjög áþreifan-
legar, en þó em þær nokkrar.
Sveitarfélagið verður ekki lengur
undir sýslunefnd, bærinn fær að-
ild að að fulltrúaráði Bmnabótafé-
lags íslands, við munum hafa
sérstakt bæjarbókasafn og sér-
stakt sjúkrasamlag. Umsvif
sveitarstjómarinnar munu þó ekk-
ert aukast við þetta.“
Enginn fólksflótti
Að sögn Sturlu á Stykkishólm-
ur ekki við neitt fólksflóttavanda-
mála að stríða. „íbúar Stykkis-
hólms em um 1300 talsins og á
10 ára tímabili hefur verið stöðug
aukning, að tveimur ámm undan-
skildum. Hér er næg atvinna og
má reyndar segja að vanti fólk í
vinnu.“ Atvinnulíf í Stykkishólmi
er um margt frá bragðið því sem
gengur og gerist í í íslenskum
sjávarplássum. Fiskvinnsla skipar
þar þó veigamikinn sess og þá
fyrst og fremst skelvinnsla. Tog-
araútgerð hefur þó aldrei náð að
festa rætur á Stykkishólmi. „Sjáv-
arútvegurinn stendur hér vel og
em fískvinnslufyrirtækin stærstu
fyrirtækin," sagði Sturla, „skip-
Ungur Hólmari rennir fyrir fisk í höfninni.
asmíðaiðnaðurinn er hér einnig
blómlegur og er Skipavík h. f.
með stærstu fyrirtækjum í bæn-
um. Sömu sögu er að segja af
byggingaiðnaðinum, en hér em
tvær stórar trésmiðjur með 40 -
50 manns í vinnu.“
Vaxandi ferðamanna-
þjónusta
Stykkishólmur hefur löngum
verið mikill ferðamannabær. Þar
er rekið stórt hótel, Hótel Stykkis-
hólmur. Það sér ferðamönnum og
öðmm fyrir gistingu og ýmislegri
aðstöðu og flóabáturinn Baldur
og Eyjaferðir sjá til þess að menn
kynnist hinni stórbrotnu náttúm
Breiðafjarðareyja. Frá Stykkis-
hólmi er síðan steinsnar til
fegurstu staða á Snæfellsnesi.
„Ferðamannaþjónustan er stór
hluti af atvinnulífí bæjarins og er
sífellt vaxandi."
Stærsti vinnuveitandinn í bæn-
Morgunblaðið/Sverrir
um er hins vegar sjúkrahús Sankti
Fransiskusystra, en þær reka
einnig prentsmiðju og bamaheim-
ili. „Sveitarstjórnin tekur þátt í
rekstri heilsugæslunnar, svo og
stækkun sjúkrahússins, sem nú
er verið að vinna að,“ sagði Sturla.
Menning- á gömlum
merg
Um menninguna á Stykkis-
hólmi sagði Sturla: „Hér á
Hólmarar fylgjast með fyrstu skóflustungnnni að nýju íþróttahúsi.
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri: „Ákaflega bjartsýnn á framtíð
Stykkishólms."
■
Buxur og peysur í skemmtilegum sumarlitum og góðir útigallar
fást með
20% afslætti næstu daga.
Við vekjum athygli á því að við höfum flutt okkur um set, nú er gengið inn frá
Smiðjustíg.
I1
MOTHERCARE, LAUGAVEGI 13, SÍMI 26560
mothercare
iS
i mumm
m . j