Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRTUJUDAGUR 26. MAI 1987 L n Bretland: Innbrotsþjófur að- stoðar lögreglu London. Frá Valdimar Unnari Valdimarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter Um 150 búddamunkar efndu í gfær til mótmæla í Seoul og kröfðust þeir afsagnar Chuns Doo Hwan forseta. Sökuðu þeir stjórnvöld um að hafa reynt að hilma yfir með lögreglumönnunum, sem pyntuðu námsmanninn til dauða. Suður-Kórea: Dauði náiusiria.nnsins dregur dilk á eftir sér Búist við verulegum breytingum á sljórninni Seoul, Reuter. HÁTTSETTIR ráðgjafar Chun að þær snerti Lho Shin-yong for- Doo Hwan, forseta Suður-Kóreu, sætisráðherra. Ónefndur embættis- leggja hart að honum að reka maður stjómarflokksins, Lýðræðis- lega réttlætisflokksins, sagði, að sú nokkra ráðherra í þeirri von, að það verði til að draga úr óánægjunni í landinu. Komið hefur á daginn, að nokkrir lög- reglumenn vissu, að ungur námsmaður lést af völdum pynt- inga en gerðu þó sitt til að það vitnaðist ekki. í dag mun ríkissaksóknarinn í Suður-Kóreu skýra frá rannsókn- inni á dauða námsmannsins og er búist við, að Chun forseti muni þá jafnframt greina frá breytingum á stjóminni. Er jafnvel talið líklegt, Mikil ókyrrð hefur verið í Suður- Kóreu að undanförnu og 10. júní nk. hefur verið boðað til mótmæla- aðegrða um allt land. ÞAÐ gerðist einn góðan veður- dag í síðustu viku að innbrots- þjófur nokkur í Preston braust inn í lögreglustöð, að beiðni lög- reglunnar. Þetta var síðla kvölds og lífið virtist ætla að ganga sinn vanagang á þessari lögreglustöð, sem lætur lítið yfir sér nærri hjarta Preston- borgar. Varðstjórinn var einn á vakt þegar lögreglubíll tilkynnti komu sína, innbrotsþjófur hafði verið staðinn að verki og nú skyldi hann færður til yfirheyrslu og dvelja bak við lás og slá komandi nótt. Varðstjórinn brá sér út í svala kvöldkyrrðina til að opna hlið fýrir lögreglubílinn, sem renndi í hlað með feng sinn. Þá gerðist nokkuð sem kom flatt upp á alla viðstadda. í það mund sem lögregluþjónamir og gestur þeirra ætluðu að smeygja sér inn fyrir dyr varðstofunnar, skelltist hurðin aftur, allt var lok og læs. Nú vom góð ráð dýr, enginn inn- andyra til að ljúka upp fyrir laganna vörðum og innbrotsþjófnum, sem truflaður hafði verið við iðju sína fyrr um kvöldið. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Állra augu beindust nú að innbrotsþjófn- um, lausnin var fundin. Handjárn voru losuð hið snarasta og þjófnum fengin í hendur tól þau og tæki sem hann hafði ætlað að færa sér í nyt fyrr um kvöldið. Og það var eins og við manninn mælt. Innbrots- þjófnum varð ekki skotaskuld úr því að opna dyr á einni lögreglustöð og inn komust laganna verðir. Það er af þjófinum að segja að hann fékk þá næturgistingu sem hann hafði unnið til og fyrir aukavinnuna bolla af heitu tei. Mannfjöldi: Jarðarbúar fimm millj- arðar 11. júlí Baghdad. Reuter. JARDARBÚAR verða fimm milljarðar að tölu, þegar fyrsta barnið fæðist að morgni 11. júlí næstkomandi, að því er fram kemur í skýrslu, sem Sameinuðu þjóðirnar birtu í gær. I skýrslunni, sem Efnahags- og félagsmálanefnd Sameinuðu þjóð- anna fyrir Vestur-Asíu tók saman, sagði, að jarðarbúum fjölgaði um 150 manns á mínútu. „Af þessu leiðir, að fólki fjölgar um 220.000 á dag eða 80 milljónir á ári... og samkvæmt því verða jarð- arbúar orðnir sex milljarðar um aldamótin, sjö milljarðar árið 2010 og átta milljarðar 2022,“ segir í skýrslunni. Fjöldi jarðarbúa mun tvöfaldast fyrir lok 21. aldarinnar og verða 10 milljarðar. skoðun væri almenn innan flokks- ins, að fimm ráðherrar yrðu að víkja. Eftir að upp komst, að námsmað- urinn hafði látist vegna pyntinga lögreglumanna rak Chun forseti þáverandi innanríkisráðherra og yfirmann lögreglunnar og hafa þeir báðir verið ákærðir fyrir yfirhilm- ingu. I fyrstu var sagt, að fleiri tengdust ekki málinu en á fimmtu- dag í fyrri viku voru hins vegar þrír aðrir lögreglumenn handteknir. Frakkland: Hryðjuverkasamtök hóta sprenej uárásum Paris. Reuter. Danmörk: Æ fleiri dönsk skip undir erlendum fána Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgnnblaðsins. DÖNSKUM skipurn, sem skráð eru erlendis, fjölgar stöðugt. Samband danskra útgerðarfé- laga telur, að stjórnvöldum beri að setja reglur, sem komi í veg fyrir, að þessi þróun haldi áfram. Á ársfundi útgerðarfélaganna i Kaupmannahöfn í síðustu viku var samþykkt áskorun, þar sem ríkisstjórnin er hvött til að taka á málinu. Á fundinum var nefnt dæmi um þann ávinning, sem útgerðir hafa af því að draga niður danska fán- ann á skipum sínum. Heildarkostn- aður útgerðar vegna dansks sjómanns (laun og launatengd gjöld) er u.þ.b. 300.000 danskar krónur á ári. Sjómaður frá Filipps- eyjum kostar helming þeirrar fjárhæðar. Útgerðarfélagið Norden greindi frá dæmi um, að það hefði sparað 3 milljónir d. kr. við að flytja skrán- ingarstað flutningaskips með 22 manna áhöfn frá Danmörku til Filippseyja. Enn fremur kom fram, að margir útgerðaraðilar hefðu fylgt þessu fordæmi. Um 20% danskra flutningaskipa sigla nú undir erlendum fána. Útgerðarfélögin óttast, að þessi þróun haldi áfram, verði ekki gerð- ar breytingar á reglum um áhafna- skráningu. Var bent á, að um 55% norskra skipa sigli nú undir erlend- um fána — að mestu án norskra áhafna. Útgerðimar telja, að þeim eigi að vera heimilt að sigla með erlend- ar áhafnir undir dönskum fána. Enn fremur leggja þær til, að danskir sjómenn, 11.000 talsins, verði skattfrjálsir, svo að unnt verði að lækka laun þeirra, án þess að það komi að sök fyrir þá. Tekjur danska ríkisins af farm- skipaútgerð á sl. ári var um 17 milljarðar d. kr. París, Reuter. SAMTÖK, sem kváðust bera ábyrgð á fjölda sprenginga í Párís á síðasta ári, sögðu í gær að árásunum yrði haldið áfram í ár, ef Frakkar létu þrjá skæru- liða ekki lausa úr fangelsi þegar í stað. „Við munum einskis svífast ... það má búast við heitu sumri,“ sagði í hótunarbréfi frá samtökun- um sem kalla sig Stuðningsfylkingu pólitískra fanga frá Miðausturlönd- um og úr röðum araba. Þessi samtök kváðust hafa sprengt sprengjur í París í febrúar og mars og í september á síðasta ári. Þrettán manns létu lífið í sprengingunum og um 200 særðust. Sámtökin krefjast þess að líbanski skæruliðaleiðtoginn Georg- es Ibrahim Abdallah, Anis Naccac- he, öfgamaður, sem hlynntur er Irönum, og Armeninn Waroujan Garbidjian, verði látnir lausir. Mennirnir þrír afplána lífstíðardóm í fangelsi fyrir glæpi, sem þeir frömdu í Frakklandi. Bréfið barst á alþjóðlega frétta- stofu í París og var skrifað með sömu rithönd og fyrri bréf frá sam- tökunum. Sprengingunum í París á síðasta ári linnti eftir að stjóm Jacques Chirac forsætisráðherra leitaði að- stoðar Sýrlendinga. Abdallah var í febrúar dæmdur sekur um aðild að morðum á banda- rískum hemaðarráðunauti, Charles Ray, og ísraelskum stjómarerind- reka, Yaacov Barsimentof, árið 1982 og misheppnuðu tilræði við bandaríska ræðismanninn í Stras- bourg árið 1984. Naccache var sekur fundinn um að hafa stjórnað sveit manna, sem myrtu tvo menn þegar gert var banatilræði við Shapour Bakhtiar, fyrmm forsætisráðherra írans, árið 1980. Bakhtiar sakaði ekki. Garbidjian, félagi í Leynilega frelsisher Armeníu, var dæmdur fyrir þátt sinn í sprengjuárás á skrifstofu Tyrkneska flugfélagsins á Orly-flugvelli í París árið 1983. Átta menn létu lífíð í árásinni. Penguin-bókaútgáfunni stjómað frá Manhattan St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. FRAMKVÆMDASTJÓRI breska útgáfufyrirtækisins Penguin hefur ákveðið að flytja aðsetur sitt frá Kensington London til Mannhattan i New York, að því er segir í The Sunday Times sl. sunnudag. Penguin er stærsti útgefandi vandaðra bókmennta í Bret- landi og þekktasta útgáfufyrir- tæki landsins. Peter Mayer, sem varð f ramk væmdastj óri fyrirtækisins 1978, hefur ger- breytt gengi þess. Penguin-útgáfufyrirtækið var stofnað 1935 af Allen Lane og var þegar frá upphafi frumkvöð- ull í útgáfu vandaðra pappírskilja fyrir almennan markað. Með tímanum varð Penguin stærsti útgefandi vandaðra bókmennta í Bretlandi. Bókamenn hér í landi hafa áhyggjur af því, að þessi breyting á stjóm fyrirtækisins leiði til þess, að meiri áhersla verði lögð á sölumennsku en minni á gæði bókanna. Peter Mayer hafnar þessu og segir, að engin ástæða sé til að hafa áhyggjur af fyrirtækinu, því að Penguin í Bretlandi verði al- gjörlega óháð Penguin í Banda- ríkjunum, eins og aðrar Penguin-útgáfur í Indlandi, Ástr- alíu, Nýja-Sjálandi og Kanada. Hann muni einungis fara með al- menna yfírstjóm fjölþjóðafyrir- tækisins, en ekki taka ákvörðun um, hvað verði gefíð út í hveiju landi. Peter Mayer hefur frá 1978 breytt Penguin-fyrirtækinu í fjöl- þjóðafyrirtæki, sem veltir mill- jörðum á ári hveiju. Þegar hann tók við, var fyrirtækið illa statt og hafði tapað 242.000 pundum það árið eða um 14 milljónum ísl. kr. á núverandi verðlagi. Á síðast- liðnu árí skilaði fyrirtækið hagnaði upp á 9,2 milljónir punda eða um 550 milljónir ísl. kr. Mayer gerði tvær breytingar á fyrirtækinu: Hann keypti önnur útgáfufyrirtæki og byijaði á Fred- erick Warne 1983, sem setti af stað skriðu í heimi útgáfufyrir- tækja og enn sér ekki fyrir endann á. Penguin eignaðist Hamish Hamilton-útgáfufyrirtækið, Mic- hael Joseph og Rainbird og Sphere-pappírskiljufyrirtækið í Bandaríkjunum. Nýjasti liðurinn í þeirri þróun er að breski blaðaút- gefandinn Robert Maxwell hefur nú boðið tvo milljarða punda í bandaríska útgáfufyrirtækið Harcourt Brace Jovanovich. Mayer tók enn fremur til við að gefa út hreinar sölubækur og sætti verulegu ámæli fyrir vikið hjá bókamönnum. Hann hlær að þessum ásökunum og segir, að bókabúðaeigendum þyki gott að fá öðru hvoru bækur, sem seljast í miklum eintakafjölda. Penguin hefur aldrei haft fleiri titla sígildra bókmennta á markaði en nú, hef- ur tvöfaldað þá frá 1978. Á stjómartíma sínum hefur Mayer gert Penguin-vörumerkið þekkt hvar sem enska er töluð í heimin- um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.