Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987 Húsnædísmál aldr- aðra borgarbúa eftirArna Sigfússon Guðjón B. Baldvinsson, ritari Öldrunarráðs íslands, ritar pistil í Morgunblaðið, miðvikudaginn 20. maí sl. Þar gagnrýnir hann nokkuð skort á leiguíbúðum fyrir aldraða. Ég tek heilshugar undir það með Guðjóni að við þurfum aukna sam- hjálp til að bægja kvíða frá heilsu- tæpum og efnalitlum einstakling- um, sérstaklega þeim sem ekki hafa getað eignast eigið húsnæði þótt komnir séu á efri ár. En þar sem Guðjón bendir á að þolinmæði aldraðra megi ekki vera ævarandi í þessu máli, vildi ég fá að leggja orð í belg. Fyrst vildi ég útskýra hvemig „biðlistar" Félagsmála- stofnunar verða til, því margir virðast misskilja eðli þeirra, þá vil ég benda á uppbyggingu þjónustu- kjarna og áhersluna á þjónustu við heimili aldraðra. Loks bendi ég á það helsta sem við sjálfstæðismenn í Reykjavík höfum unnið að í hús- næðismálum aldraðra að undan- fömu. „Biðlistarnir og neyðin“ Sumum stjómmálamönnum er tamt að beita fýrir sig ósannindum til þess að fá fólk til fylgis við sig. Þannig er um alla þá sem tala um algjört „neyðarástand" í húsnæðis- málum aldraðra í borginni. Oft heyrum við sagt að neyðin sé slík að um 1200 manns séu á biðlistum eftir húsnæði fyrir aldraða hjá Fé- lagsmálastofnun. Þeir sem þannig tala hafa ekki látið svo lítið að kanna hvers eðlis þessir biðlistar eru. Þegar betur er að gáð, kemur eftirfarandi í ljós: Allir sem biðja Reykjavíkurborg um að útvega sér húsnæði, og sækja um það til Félagsmálastofnunar, eru skráðir. Einu kröfumar sem fólk þarf að uppfylla er að það, eða annað hjóna sé orðið 67 ára og hafi búið í Reykjavík sl. 7 ár. Sé þessu fullnægt eru umsækjendur komnir á skrá. Þeir eru komnir á „biðlistann". Nú em um 1000 einstaklingar og 100 hjón á slíkri skrá. En líða allir þessir einstaklingar sára neyð? Hverjir eru í forgangj? Mat starfsmanna Félagsmála- stofnunar er að um 75 einstaklingar og 5 hjón hafi þörf á að fá inni í þjónustuíbúðum fyrir aldraða innan árs. Hér ráða mestu félagslegar aðstæður, ótryggt leiguhúsnæði eða mjög óhentugt og lélegt eigið hús- næði. Um 70 einstaklingar og 5 hjón erú talin hafa brýna þörf fyrir að komast á vistdeildir. Um 100 ein- staklingar em taldir hafa þörf fyrir vistun á hjúkmnarheimili. Neyð þeirra sem raunvemlega þurfa á sérstakri aðstoð að halda við húsnæðisútvegun, vegna fjár- hagslegra, félagslegra eða heilsu- farslegra aðstæðna, er mikil. Við henni er ávallt reynt að bregðast og uppbygging á þessu sviði miðar einmitt að því að leysa þennan vanda eins og mögulegt er. En hitt er jafn ljóst að þegar þessar tölur em skoðaðar verða upphrópanir um 1200 manna „neyð“ aðeins dæmi um illkvittnar og ósanngjamar að- ferðir andstæðinga sjálfstæðis- manna til þess að afla sér atkvæða. Þjónustuna heim Með uppbyggingu félags- og þjónustumiðstöðva fyrir aldraða í Reykjavík er markvisst stefnt að því að stórefla þjónustu við aldraða í heimahúsum. Samhliða aðstoð frá þessum þjónustukjörnum, þar sem boðið er upp á fjölbreytt tóm- stunda- og félagsstarf, mat í hádegi, böðun o.fl., er stefnt að því að auka matarsendingar til aldraðra og bjóða þeim sem þurfa aukna heimilishjálp og heimahjúkmn. Nú em reknar 8 félagsmiðstöðv- ar fyrir aldraða í borginni, í fyrra hófst félagsstarf í KR-heimilinu við Kaplaskjólsveg og Þjónustumið- stöðin í húsi Verslunarmannafé- lagsins í Hvassaleiti tók til starfa. Fleiri em að bætast við því í haust hefst starfsemi þjónustukjama að .Bólstaðarhlíð 43. Þar hafa Samtök aldraðra byggt 66 íbúðir fyrir fé- lagsmenn sína. Þjónustumiðstöð fyrir aldraða við Vesturgötu er komin í byggingu, og verið er að teikna aðra þjónustumiðstöð við Skúlagötu. Þessi hraða uppbygging þjón- ustumiðstöðva fyrir aldraða er því markvisst átak borgarstjómar til þess að gera öldmðum kleift að búa heima eins lengi og kostur er. Sumir búa í ótryggu húsnæði Til þess að hugmyndin um stór- eflda þjónustu við aldraða í heima- húsum eigi við, verður öllum að vera kleift að búa í tryggu og góðu húsnæði. A síðasta ári var fram- kvæmd á vegum Félagsmálaráðs viðamikil könriun á högum aldraðra hér í Reykjavík. Niðurstöður gefa mjög mikilvægar upplýsingar sem nú er unnið markvisst með. I þess- ari könnun kemur m.a. fram að ætla má að í kringum 1000 ein- staklingar 67 ára og eldri búi í leighúsnæði. Hér er fyrst og fremst um að ræða húsnæði á vegum Reykjavíkurborgar og félagasam- taka, sem telja má að veiti öldruðum fyllsta öryggi á við eigið húsnæði. Hins vegar kemur í ljós að um 3—400 aldraðir búa í leiguhús- næði á almennum markaði. Hér er kominn sá hópur sem telja má að búi við hvað minnst öryggi í húsnæðismálum sínum. Að auki er ljóst að margir aldraðir búa í óhent- ugu eigin húsnæði sem kallar á verulegar breytingar á því hús- næði, eða skipti á húsnæði. Við þessu þarf að bregðast. Enginn getur ætlað einu sveitarfélagi að fínna allsherjarlausnir á þessum málum. Sveitarfélögum á íslandi er einfaldlega ekki ætlað það hlut- verk og ekki markaðir tekjustofnar til slíkra hluta. Þó hefur Reykjavík lagt sveitarfélaga mest í uppbygg- ingu í þágu aldraðra. Við skulum þá líta á hvað verið er að gera í húsnæðismálum aldraðra í Reykjavík. Ég fer ekki dult með þá skoðun mína að fyrst og fremst ber okkur að hjálpa þeim sem verst eru sett- ir, og búa í ótryggu eða óíbúðar- hæfu húsnæði, en hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að að- hafast eitthvað í málinu sjálfír. Tíu íbúða tilraunin Fyrr á þessu ári samþykktum við að kaupa 10 íbúðir fyrir aldraða í nágrenni þjónustukjama. Hér er um að ræða kaup á íbúðum á fijálsum markaði, sem Félagsmálastofnun mun síðan leigja öldruðum. Auðvit- að er hér fyrst og fremst verið að hjálpa þeim sem verst eru settir í húsnæðismálum. Hér er um tilraun að ræða sem miðar að því að fínna íbúðir sem henta vel fyrir aldraða, bæði innan dyra, sem utan, og eru í göngufæri við þjónustumiðstöðv- amar. Þessi tilraun virðist ganga mjög vel og er því mjög athugandi að halda áfram á sömu braut. Með til- komu aukinnar heimilisþjónustu, virðist hér kominn vemlega ánægjulegur og raunhæfur kostur. Þjónustumiðstöð o g íbúðir á Vesturgötu Eins og ýmsum er kunnugt er verið að byggja þjónustu- og félag- smiðstöð fyrir aldraða að Vestur- Árni Sigfússon „Sumum stjórnmála- mönnum er tamt að beita fyrir sig ósann- indum til þess að fá fólk til fylgis við sig. Þannig er um alla þá sem taia um algjört „neyðarástand“ í hús- næðismálum aldraðra í borginni. Oft heyrum við sagt að neyðin sé slík að um 1200 manns séu á biðlistum eftir húsnæði fyrir aldraða hjá Félagsmálastofnun. Þeir sem þannig taia hafa ekki látið svo lítið að kanna hvers eðlis þessir biðlistar eru.“ götu 7. Þetta verður 9. þjónustu- miðstöðin, og er ætlað að þjóna íbúum gamla Vesturbæjarins. í þessu húsi verða 26 íbúðir fyrir aldraða. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvemig leigu- eða eignaraðild verður að þessum íbúð- um en verið er að skoða ýmsa möguleika í þeim efnum. Níutíu íbúðir við Skúlagötu og fjörutíu manns í dagvistun Nú eru á hönnunarstigi allt að 90 íbúðir fyrir aldraða, tengdar þjónustumiðstöð fyrir aldraða, sem byggð verður við Vitastíg. Þá er einnig fyrirhugað að í húsinu verði aðstaða fyrir 40 manns í dagvistun. Mjög líklegt er að 60 íbúðir verði leiguíbúðir en verið er að kanna hvaða fyrirkomulag geti hentað um afganginn. Ýmislegt annað en hefð- bundin leiga eða eign kemur þar til greina. Aðrar íbúðir fyrir aldraða Reykjavíkurborg hefur þegar byggt 278 einstaklingsíbúðir og 54 hjónaíbúðir sem sérstaklega eru leigðar öldruðum, þ.e. fyrir 386 ein- staklinga. Stærstu byggingamar eru í Furugerði 1, Norðurbrún 1, Lönguhlíð 3, Dalbraut 27, Drop- laugarstöðum og Seljahlíð. Þá hefur Reykjavíkurborg einnig til ráðstöf- unar til aldraðra 40 íbúðir í Austurbrún 6. Hér eru ekki taldar þær íbúðir sem borgin hefur byggt og selt öldr- uðum. Nú þegar hefur því Reykjavíkurborg 382 íbúðir sér- staklega til leigu fyrir aldraða borgara. Að auki búa fjölmargir aldraðir í almennu leiguhúsnæði borgarinnar. Eins og að framan greinir mun þessi tala aukast veru- lega á næstunni. Þegar við bætist að ýmis félaga- samtök huga nú að framkvæmdum, hafa byggt og hyggjast byggja sér- hannað húsnæði fyrir aldraða, er ljóst að verulegt átak er í gangi í þessum málum. Má þar minna á byggingar samtaka aldraðra við Bólstaðarhlíð og Dalbraut, og Verslunarmannafélags Reykjavíkur við Hvassaleiti. • • Onnur starfsemi Þessi greinarstúfur er fyrst og fremst settur fram til þess að gera nokkra grein fyrir uppbyggingu Reykjavíkurborgar í húsnæðismál- um aldraðra. í engu em hér gerð skil á margvíslegri annarri þjónustu sem við höfum tekið til við að veita öldruðum sl. tvö ár, s.s. þjónustu dvalarheimilis að Seljahlíð, sem veitir 79 öldruðum skjól, þátttöku í uppbyggingu Hjúkrunarheimilis- ins Skjóls, en þar er um að ræða yfír 90 milljón króna framlag frá Reykjavíkurborg, tilraun með ör- yggistæki í heimahúsum aldraðra, aukið samstarf heimahjúkrunar og heimilishjálpar, mötuneytisþjónustu og heimsendingu matar, ýmis konar námskeiðahald sérstaklega ætlað öldruðum, útgáfu fréttabréfs fyrir aldraða, dagvist o.s.frv. Heldur hef- ur ekki verið fjallað um myndarlegt framlag annarra til þessara mála í gegnum árin, frumheijanna Grund- ar og Hrafnistu, auk fyrri verkefna á vegum Reykjavíkurborgar. Öflug uppbygging Reykjavíkur- borgar í þjónustu við aldraða hefur gerst á skömmum tíma. Ekki hefur verið unnt að treysta á ríkið í þeim efnum. Við sjálfstæðismenn mun- um halda áfram á þessari braut. Við munum leitast við að virkja þær stofnanir og þau samtök sem láta sig málið varða. Þannig byggjum við myndarlega þjónustu fyrir aldr- aða borgarbúa. Höfundur er formaður Félags- málaráðs Reykjavíkurborgar. RAFMÓTORAR Á GÓÐU VERÐI HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK SIMI: 685656 og 84530 Vorum að fá einfasa og þriggja fasa rafmótora frá Kína. Mótorarnir eru í I. E. C. málum, í flestum stærðum, 1400 og 2900 s/m. Sérlega hagstætt verð. 1ÖTUMN ? ARISTONÖ Þvottavél kr. 34.050 með söluskatti Hveffisgötu 37, símar 21490 og 21846. Víkurbraut 13, Keflavík, sfml 2121. ARISTONfi Helluborð og bökunarofnar •f' h r i % 'Þ’ -í Helluborð, verð frá kr. 8.805.- Bökunarofnar, verð frá kr. 19.775.- Hverfisgötu 37 Vfkurbraut13 Reykjavik Keflavík Símar: 21490, Sími2121 21846
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.