Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 31
31
i
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
Áhyg-gjur af
Rússum
Japanir segja að Sovétríkin valdi
þeim mestum hernaðarlegum
áhyggjum. Rússar hafa 10.000
manna herlið á fjórum Kúrileyjum,
aðeins 12 mílur frá ströndum
Hokkaido. Sovétríkin hafa neitað
að yfirgefa eyjamar sem þau her-
tóku árið 1945. Rúmlega 100
sovézkir kafbátar sveima út af
ströndum Japans og sovézkir kjam-
orkukafbátar halda uppi eftirliti á
Suður-Kínahafi. r
Áætlað er að herafli Japana geti
varizt kjarnorkuárás frá Sovétríkj-
unum í fj'órar klukkustundir, árás
frá sjó í fjóra daga og á landi í um
Qórar vikur. Japanir eiga engin
flugvélamóðurskip, engar stórar
sprengjuþotur og engar langdrægar
eldflaugar. Japanskar omstuþotur
halda sig innan þriggja mílna frá
ströndinni. Sveitir bandarískra or-
ustuþotna, skip úr japanska varnar-
flotanum og bandarískar
Neptune-kafbátaleitarflugvélar
halda uppi eftirliti út af ströndum
japönsku eyjanna. En jafnvel þegar
japanski flotinn hefur verið stækk-
aður upp í 215 skip og kafbáta
árið 1990, eins og áætlað er, getur
hann ekki varið siglingaleiðir Jap-
ana um heim allan og verður að
treysta á Bandaríkjamenn að halda
þeim opnum.
Endurhervæðingin í Japan nýtur
jafnvel stuðnings fyrmm erkióvin-
arins Kína, sem má minnast 50 ára
stanzlausra árása og hryðjuverka
Japana. En Kína styður japönsku
herforingjana sem hvetja til aukinn-
ar hervæðingar og benda á að
Bandaríkin kölluðu alla hermenn
sína heim frá Víetnam og hafa í
hyggju að fækka í hersveitum
sínum í Suður-Kóreu. Yfirmenn jap-
anska hersins em sannfærðir um
að fá aðstoð frá Bandaríkjunum
verði á þá ráðizt, en óttast að sú
aðstoð komi of seint.
Víti
Yoshio Takanaka er stjórnandi
Fuji-herskólans sem þjálfar foringja
í landher, stórskotaliði og skrið-
drekasveitum. Það tók hann fímm
ár að lokinni síðari heimsstyijöld-
inni að ná sér eftir svelti og malaríu,
sem hijáðu hann í herförinni á
Salómonseyjum. Honum er ljóst að
stríð er hreinasta víti, en telur að
Japansher verði að vera viðbúinn
að mæta árás á föðurlandið. Takan-
aka hershöfðingi er sannfærður um
að japanskir hermenn séu í dag
mjög, mjög færir. Hve færir? Það
veit hann ekki. Þeir hafa ekki barizt
í 42 ár.
En margar áður sigraðar og
þrælkaðar þjóðir Suðaustur-Asíu og
þúsundir brezkra, hollenzkra, ástr-
alskra og bandarískra fyrrum
stríðsfanga, sem lifðu af pyntingar
og svelti og gátu snúið heim, kæra
sig ekki um að fá svar við spuming-
unni. Þeim ofbýður tilhugsunin um
að Japan geti orðið þriðja öflugasta
herveldi heims. Þeir eru reiðir yfir
endurhervæðingu Japana, undrandi
yfir að Japönum skuli jafnvel hafa
verið heimilað að koma sér upp her
til sjálfsvarnar.
Verður Japan á ný herveldi á
heimsmælikvarða? Milljónum Jap-
ana, ungra, auðugra og ósnortinna
af styijöldinni fyrir ævalöngu, þyk-
ir það frábær hugmynd. En aðrir,
sem eldri em og tilheyra kynslóð
sem enn ber sár, óttast að Japanir
séu að opna dyr sem þeir verði
ekki færir um að loka á ný.
Höfundur er bandarískur blaða-
maður
Texti og myndir:
Ron Laytner
Með einstakri samvinnu björgunarsveita og
þjóðarinnar hefur miklum fjölda mannslífa verið
bjargað.
Fyrirstuðning þinn og þinna líkaeru harðsnúnarog
vel búnar hjálparsveitir í viðbragðsstöðu um land
allt, hvenær sem hjálparbeiðni berst.
Að kaupa miða í stórhappdrætti okkar er ein leið til
framlags. Það munar um miðann þinn-og þig
munar vissulega um hvem og einn af þeim 265
stórvinningum sem í pottinum eru-mundu enginn
veit heppni sína.
Við látum vinningshafa vita um vinninginn.
helgarre/sur
fyrir2 til Hamborgar
^ meðArnarflugi
FIATUN045S
myndl YKLAR
fða úttektfrá
He'm"'stækjum hf.
jÆfmJdjm m
frá
LANDSSAMBAND
H JÁLPARSVEITA SKÁTA
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
hofur afstórhug styrkt happdrættlð
- HARÐSNÚNAR SVEITIR TIL HJALPAR ÞER OG ÞINUM.