Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 80
80
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
J
Snæfellsjökull skartar sínu fegnrsta á meðan feðgamir Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson keppast við
að koma Ford Escort RS sínum sem hraðast um Útnesveginn. Þeir unnu Hótel Nes-rallið örugglega
og hafa aldrei ekið betur.
Hótel Nes-rallið:
-, i ----------------
F eðg’arnir hafa
aldrei ekið betur
„VIÐ mættum ákveðnari til leiks
en nokkm sinnum fyrr því við
vissum að keppnin yrði hörð. Ég
sleppti fram af mér beislinu. I
byrjun náðum við strax forystu
og héldum henni á meðan marg-
ir toppbílanna hmndu úr. Ef svo
heldur fram sem horfir færa
andstæðingamir mér íslands-
meistaratitilinn á silfurfati,“
sagði Jón Ragnarsson í samtali
við Morgunblaðið, eftir að hann
ásamt syni sínum Rúnari kom í
mark í Hótel Nes-rallinu á laug-
ardaginn i Olafsvík. Hann varð
rúmlega tveimur mínútum á und-
an Asgeiri Sigurðssyni og Braga
Guðmundssyni á Toyota Corolla,
en þriðju urðu Ævar Sigdórsson
og Sighvatur Sigurðsson.
Jón og Rúnar tóku strax forystu
og hafa aldrei ekið betur en nú,
enda samkeppnin óvenju mikil að
þessu sinni, a.m.k. til að byrja með.
Fljótlega voru margir toppbílanna
hættir keppni. Hjörleifúr Hilmars-
son og Sigurður Jensson smíðuðu
upp nýjan keppnisbíl, eftir að hafa
eyðilagt annan í fyrstu keppni árs-
ins. Sorgarsagan hélt áfram núna
Ásgeir Sigurðsson og Bragi Guðmundsson veittu
feðgunum mesta keppni, en náðu aldrei að slá þá útaf laginu. Þeir
era nú í öðra sæti í Islandsmeistarakeppninni á Toytota Corolla.
þegar vélin bræddi úr sér, en öflug-
ar keppnisvélar kosta vel á annað
hundrað þúsund króna, þannig að
skaðinn er mikill. En fleiri urðu
fyrir áfalli. Hafsteinn Aðalsteinsson
og Úlfar Eysteinsson á Ford Escort
voru í öðru sæti, þegar kviknaði í
keppnisbíl þeirra. „Eg sá eldana
loga við lappimar á mér. en það
kviknaði í vélarsalnum. Ástæðan
var sú að blöndungur bilaði á sér-
leið, við gerðum við hann, en vír
sem við notuðum til viðgerðar leiddi
út og kveikti í. Við náðum að
slökkva eldinn með slökkvitækjum
okkar, áður en skaðinn varð veru-
legur." sagði Úlfar.
Á meðan á öllu þessu gekk héldu
feðgamir ótrauðir sínu striki, náðu
besta tíma á hvern sérleið á fætur
annarri, á meðan Ásgeir og Bragi
gerðu tilraun til að ná þeim á afl-
minni keppnisbfl sínum. „Ég hefði
ekki haft efni á því að sprengja
dekk, munurinn var það lítill," sagði
Jón. „Þegar við vomm komnir með
þokkalegt forskot, fómm við gró-
fari leiðimar sumar hveijar varlega,
en þó af krafti. Eina óvænta atvik-
ið í keppninni gerðist á Útnesvegi.
Ég ætlaði að sveigja framhjá holu,
fór út f kant, sem gaf sig. Það kom
högg á stýrið, bfllinn breytti um
stefnu og ég þurfti að stýra útaf
og inn á veg aftur. Annars gekk
allt vel. Við Rúnar náðum betur
saman en áður. Ég hef passað mig
á því, frá því ég byijaði að aka sjálf-
ur að hlaupa ekki út í neina vitleysu,
eða ofsaakstur í keppni. Það hefur
verið stígandi í þessu og við emm
komnir með góð tök á bflnum, þó
við séum ekki búnir á ná öllu útúr
honum. Þetta verður því spennandi
ár,“ sagði Jón.
Ævar og Sighvatur á BMW áttu
lengi vel í stríði við Guðmund Jóns-
son og Sæmund Jónsson um þriðja
sætið, en héldu því með hörku-
akstri. „Við ákváðum eftir fyrri dag
að gefa ekki tommu eftir og slógum
ekkert af.“ Sighvatur sem gjör-
þekkir bflinn veitti mér geysilega
mikinn stuðning og hvatningu,"
sagði Ævar, sem ekið hefur bílnum
annað slagið í keppni. Guðmundur
og Sæmundur óku Nissan 240 RS
keppnisbíl sínum í fyrsta skipti.
Þeir töpuðu miklum tíma vegna
spmngins dekks á fyrsta degi, hröp-
uðu í níunda sæti, en unnu sig upp
í það fjórða áður en yfír lauk.
Gætu þeir orðið framarlega í Is-
landsmeistarakeppninni í ár. í
fimmta sæti urðu Ari Amórsson
og Magnús Amarsson á Alfa
Romeo 4x4, óbreyttum bfl og unnu
sinn flokk. Náðu þeir á köflum
mjöggóðum aksturstímum og slógu
við mörgum öflugri keppnisbflun-
um.
Frá handavinnusýningu nemenda í Flúðaskóla. Monrunblaðið/Sie.Sitrm.
Skólaslit á Flúðum
- Syðra-Langholti.
FLÚÐASKÓLA var slitið að
þessu sinni fimmtudaginn 21.
maí. í vetur stunduðu 137 nám í
skólanum í 9 bekkjardeildum.
Alls vom það 16 manns sem
stunduðu kennslu, mismikið að vísu,
frá 5 stundum upp í fullt starf.
Skólastarfið gekk vel að sögn
Bjáma Harðar Ansnes skólastjóra.
Tekin var í notkun í vetur ný og
vistleg kennslustofa fyrir heimilis-
fræði. Nemendum hefur heldur
fækkað sem stunda nám í 7., 8. og
9. bekk. af Skeiðum og úr Gnúp-
veijahreppi og er þeim ekið daglega
til skólans. Um 10—12 nemendur
vom þó í heimavist, þeir sem lengst
eiga að fara. Ráðskona yfir mötu-
neyti var Hrönn Ásgeirsdóttir. Að
venju var sýning á verkum nemenda
við skólaslit og gat að líta þar
marga ágæta muni. í sumar verður
hótelrekstur í skólahúsinu svo sem
verið hefur mörg undanfarin sumur
og er búið að bóka margar gistinæt-
ur.
— Sig. Sigm.
Aldrei sett meira
niður af kartöfhim
- Miklu magni þó hent á hauga
Syðra-Langholti.
UM ÞESSAR mundir era þeir
bændur sem stunda kartöflurækt
hér í Hranamannahreppi að setja
útsæðið niður enda er jörð orðin
klakalaus en reyndar komst aldr-
ei mikill klaki í jörðu hér í vetur
svo mildur sem hann var.
Veruleg kartöflurækt er hjá
nokkmm bændum en ræktunar-
landið er yfirleitt fijósamir árbakk-
ar. Að sögn Magnúsar H.
Sigurðssonar bónda í Birtingaholti
sem er stjómarformaður hjá sölu-
samtökunum Ágæti lítur svo út að
aldrei verði meira sett niður en nú
í vor. Þó er offramleiðsla mikil á
kartöflum og nægar birgðir til fram
til síðari hluta ágústmánaðar þegar
nýjar kartöflur koma á markaðinn.
Útlit væri fyrir að fleygja yrði vem-
legu magni af kartöflum. Nú vorar
vel og ef sumarið verður gott má
búast við mikilli offramleiðslu í
þessari búgrein eins og svo mörgum
öðmm í landbúnaðinum.
— Sig. Sigm.
Morgunblaðið/SÍK.Sigm.
Magnús H. Sigurðsson í Birtingaholti við kartöfluniðursetningu
ásamt fólki sínu.