Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 82
82
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
Heimsmeistaramót sveina í skák
H ANNES Hlífar
Stefánsson, nýbakaður
heimsmeistari sveina
sextán ára og yngri í
skák, lét lítið yfir sér við
“^Verðlaunaafhendingu
skákmótsins í Innsbruck
á laugardag. Hann settist
á aftasta bekk ásamt
Guðmundi Siguijónssyni,
stórmeistara, og fiktaði
við glænýjan tírólahatt á
meðan langdregin ræðu-
höld fóru fram. Hann fór
hjá sér þegar stór stráka-
hópur safnaðist í kringum
hann og bað um eigin-
handaráritun. Hann
" hefur gaman af að tefla
en leiðist athyglin sem
frábær frammistaða hans
í skák vekur.
Hannes Hlífar gefur ungum aðdáendum eiginhandaráskrift.
Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir
í fyrsta sinn sem hann tók þátt í
heimsmeistaramóti unglinga. 74
krakkar frá 46 þjóðlöndum voru
mættir til leiks. Búist var við miklu
af keppendunum frá Sovétríkjunum
og Bandaríkjunum, en hvorugur
þeirra skaraði fram úr. Hannes
sagðist hafa átt góða daga í Inns-
bruck. „En ég vann nú aðallega af
því að hinir voru svo lélegir," bætti
hann svo við af einstakri hógværð.
Adams frá Bretlandi var helsti
keppinautur hans á mótinu. Hannes
var með 8,5 vinninga en Adams
með 8 stig fyrir lokaskákina. Þó
nokkur hópur fólks fylgdist með
leik þeirra á borðum númer 1 og 2
í salarkynnum Sparkasse-bankans
á laugardagsmorgun. Adams stóð
nokkrum sinnum upp og leit á stöð-
una hjá Hannesi. Hún leit ekki vel
út um tíma og Guðmundur varð
órólegur. Hannes gleymdi langri
leikjaröð sem þeir höfðu farið yfir
og víxlaði leikjum. Hann varð að
eyða dýrmætum tíma í að finna
leikina sjálfur en bjargaði stöðunni.
Degraeve, andstæðingur hans frá
Frakklandi, gafst upp og rétti hon-
um höndina eftir 38 leiki. Þá virtist
stefna í jafntefli hjá Adams. Hann
vann þó skákina að lokum og hlaut
9 vinninga á mótinu. Hannes Hlífar
fékk 9,5 vinninga.
Guðmundur Sigurjónsson skoðar bikarinnn sem Hannes Hlífar fékk
fyrir sigurinn á heimsmeistaramóti sveina í skák.
TITILLINN í HÖFN
Skák
Guðmundur Sigurjónsson
Þegar þrjár umferðir voru eftir
í Innsbruck höfðu Hannes og Ad-
ams frá Englandi hrist hina
keppendurna af sér. Slagurinn stóð
á milli þeirra. Rúmeninn Moldovan
hafði nú með óvæntum hætti mikil
áhrif á gang mála. I níundu umferð
náði hann jafntefli gegn Hannesi,
þótt hann stæði til taps, en á með-
an náði Adams forystunni með því
að sigra Biro frá Ungverjalandi.
En Adams var ekki lengi í Paradís,
því að í 10. umferð tapaði hann
fyrir þessum Moldovan, en Hannes
felldi Gurevich frá Bandaríkjunum.
Hannes var því einn efstur fyrir
síðustu umferð með 8V2 vinning,
en Adams hafði 8. Allar líkur bentu
til, að Adams sigraði á stigum, ef
þeir yrðu jafnir að vinningum.
Hannes varð því að tefla til vinn-
ings til að tryggja sér heimsmeist-
aratitilinn. Hér kemur skákin.
Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson
Svart: Degraeve (Frakklandi)
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5, 2. Rf3 - Rc6, 3. d4
- cxd4, 4. Rxd4 - Rf6, 5. Rc3 -
e5. Þetta afbrigði, sem oft er kennt
við Lasker, var vinsælt fyrir nokkr-
um árum. 6. Rdb5 — d6, 7. Bg5
— a6, 8. Ra3 - b5, 9. Rd5 -
Be7, 10. Bxf6 - Bxf6, 11. c3 -
O-O, 12. Rc2 - Bg5, 13. a4 -
bxa4, 14. Hxa4 — a5, 15. Bc4 —
Hb8, 16. b3 - Kh8, 17. Rce3?!
Ég aðstoðaði Hiibner hér um árið
og rannsökuðum við þessa stöðu
mikið, þegar hann tefldi við Adorj-
an. Mér fannst upplagt að Hannes
tefldi svona gegn Frakkanum og
athuguðum við afbrigðið fyrir skák-
ina. Gallinn var bara sá, að nú
víxlar Hanr.es leikjum, en það kom
ekki ósjaldan fyrir Hiibner! Rétt var
17. 0-0. 17. - g6, 18. 0-0 -
f5, 19. exf5 — gxf5, 20. Hel —
f4, 21. Rfl — f3. Svartur veikir
kóngsstöðu hvíts og undirbýr að
sækja að henni. 22. Rg3 — Re7,
23. Rxe7 — Dxe7. Hann fórnar
a-peðinu í þágu sóknar. 24. Hxa5
- fxg2, 25. Bd5 - Hf6, 26. Dd3
— Bf4. Hótunin er ógnvænleg: Hh6
ásamt Dh4. 27. De4. Nú má svara
27. - Hh6 með 28. Dxf4. 27. -
tilefni af
lnnsbruck, frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
Campomanes, forseti FIDE, af-
henti Hannesi veglegan verðlauna-
bikar og hengdi verðlaunapening
um hálsinn á honum. „Hann tók
við forsetastólnum af okkur svo að
það er tími til kominn að hann rétti
okkur eitthvað í staðinn," varð
Guðmundi að orði. „Það er ekki
bagalegt að það er heimsmeistara-
bikar.“
Lúðrar voru þeyttir þegar
Campomanes gekk í salinn. Hann
sat á fremsta bekk í Kongresshaus,
þar sem athöfnin fór fram, ásamt
borgarstjóra Innsbruck og nokkrum
öðrum austurrískum merkismönn-
um. Þeir fögnuðu því allir að 10.
heimsmeistaramót unglinga hefði
farið fram í bænum og lofuðu ungl-
ingana fyrir góða frammistöðu.
Eftir athöfnina var haldin móttaka
og diskó fyrir ungu skákmennina.
Það lifnaði yfir Guðfríði Lilju
Grétarsdóttur, fimmtán ára fulltrúa
íslenskra stúlkna á heimsmeistara-
mótinu, þegar hún heyrði að það
sigrmum
yrði diskó. Hún lenti 1' 14. sæti af
28 á mótinu og var ánægð með
árangurinn. Hún hafði gaman af
að kynnast krökkum víðsvegar að
úr heiminum í Innsbruck og fannst
frammistaða Hannesar „alveg æð-
isleg“.
Hannes Hlífar var ekki eins hrif-
inn af diskóhugmyndinni og
Guðfríður. Hann sagðist hafa lítinn
áhuga á dansi. Skák er hans helsta
áhugamál. Hann á orðið gott safn
af skákbókum og les þær sér til
gagns og gamans. Hann teflir lítið
við jafnaldra sína en spreytir sig á
þeim eldri. „Við þurfum að vara
okkur á honum,“ sagði Guðmund-
ur. Hannes verður í 9. bekk
Hagaskóla næsta vetur. Þar er boð-
ið upp á skák sem valgrein og
Hannes býst við að velja hana. „Ég
get reynt að kenna kennaranum
eitthvað,“ sagði hann og hló góðlát-
lega. Stærðfræði er annars uppá-
haldsfagið hans. Hann er fæddur
18. júlí 1972, skáksumarið mikla,
þegar Fisher og Spassky háðu ein-
vígi á Islandi. Bræður hans kenndu
honum mannganginn, en hann
græðir lítið á að tefla við þá nú
orðið.
Hannes átti ekki von á að vinna
mótið í Innsbruck þegar hann fór
út til Austurríkis 8. maí. Þetta var
-ís o g tírólahattur í
- B