Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAI 1987
45
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
Sæbjörg, kennsluskip Slysavarnarfélags íslands, kom til Akureyrar í gær og var því vel fagnað. Við
landganginn standa Haraldur Henrýsson formaður, Þorvaldur Axelsson erindreki og Hannes Þ. Haf-
stein skipstjóri SVFI.
mennimir á varðskipunum hafa
verið teknir í land í stað þess að
hafa þá um borð í skipunum. „Við
teljum að loftskeytamennirnir gegni
þýðingarmiklu hlutverki um borð
þegar leitar- og björgunarstörf em
annars vegar og ekki forsvaranlegt
að skipin séu ekki með loftskeyta-
menn innanborðs," sagði Haraldur
Henrysson, formaður SVFÍ, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Fundurinn ályktaði að auknu fé
skuli varið. til umferðarslysavama.
Einnig er ætlunin að gera átak í
fræðslumálum hinna ýmsu björgun-
arsveita víðsvegar um land.
Á fundinum vom starfsmenn
loftskeytastöðvarinnar á Siglufirði
heiðraðir fyrir vel unnin störf.
Kvennadeild SVFI á Akureyri gaf
75.000 krónur. Nesskip hf. gaf fé-
laginu 100.000 krónurtil minningar
um þá skipveija sem fómst með
Suðurlandinu í desember sl. og
Sigmar Benediktsson frá Sval-
barðseyri afhenti félaginu 25.000
krónur frá sér og konu sinni. Þá
gaf Iðnaðardeild SÍS 24 ullarteppi
um borð í Sæbjörgu, en skipið kom
sl. föstudag til Akureyrar, sama dag
og setning aðalfundar SVFÍ fór
fram.
Nýir umsjónarmenn
svæðisútvarps Akureyrar
NÝIR starfsmenn bætast í hóp
dagskrárgerðarmanna Ríkisút-
varpsins á Akureyri frá og með
1. júlí næstkomandi.
Það em þau Kristján Sigurjóns-
son og Margrét Blöndal, sem flytja
sig norður um heiðar, en þau hafa
bæði starfað að þáttagerð á rás 2
undanfarin ár. Þau munu koma til
með að verða umsjónarmenn svæð-
isútvarps Akureyrar og nágrennis,
sem er á dagskránni milli kl. 18.00
og 19.00 virka daga og sendir út
á FM-tíðni 96,5.
Þristur í söngf ör um Suðurland
SAMKÓRINN Þristur er tíu ára
á þessu ári. Af því tilefni ætla
kórfélagar að fara í söngferða-
lag um Suðurland dagana 28.-29.
maí.
Kórinn dregur nafn sitt af því
að félagar hans em úr þremur
hreppum í fram Eyjafirði, Onguls-
staðahreppi, Saurbæjar- og Hrafna-
gilshreppi. Söngstjóri frá upphafi
hefur verið Guðmundur Þorsteins-
son.
Fyrstu hljómleikar kórsins á Suð-
urlandi verða í Hlégarði á uppstign-
ingardag kl. 21.00. Kvöldið eftir
vera tónleikar að Flúðum og laugar-
daginn 30. maí á Hellu. Einsöngvari
í förinni er Ingveldur Hjaltested,
Jónína Gísladóttir leikur undir á
píanó en Ambjöm Tryggvason á
harmoniku.
Hallgrímur skoðar hreiðrið á þaki bifreiðar sinnar.
Kassinn utan um hreiðrið er áberandi á þakinu. Fuglinn liggur á
hreiðrinu.
Guðmundur Ármann:
Gefur út syrpu af dúkristum
Morgunblaðið/Benedikt
Guðmundur ætlar að helga sig málaralistinni í sumar. Sést hann hér
munda pensilinn á vinnustaðnum.
GUÐMUNDUR Armann hefur
gefið út nýja grafíkmöppu
sem hann nefnir „Á svart-
hvítum klæðum“. í möppunni
eru 6 dúkristur með kunnug-
legum svipmyndum úr miðbæ
Akureyrar. Mappan er hand-
þrykkt af höfundi í 100
númeruðum og árituðum ein-
tökum.
„Ég gaf fyrir ári síðan út
möppu með dúkristum sem ég
nefndi „10 dúkristur úr inn-
bænum“. Hún er löngu uppseld
og þar sem fólk var sífellt að
biðja mig um eintök ákvað ég
að slá til og gera aðra,“ sagði
Guðumundur þegar blaðamaður
ræddi við hann um verkin.
„Það var ekki fyrr en eftir að
ég var búinn að fullklára mynd-
imar í möppunni sem ég upp-
götvaði að hún var eðlilegt
framhald af þeirri fyrri. Hún byij-
ar þar sem hin endar, það er að
segja við Hvamm, Gamla barna-
skólann og Samkomuhúsið. Síðan
HARÐUR árekstur varð á mótum
Þórunnarstrætis og Hrafnagils-
strætis um klukkan 11.00 í
gærmorgun og var þrennt flutt
í sjúkrahús. Meiðsl voru þó ekki
talin alvarleg.
Báðir bílarnir, sem eru fólksbílar,
eru mikið skemmdir og valt önnur
bifreiðin við óhappið.
Þá valt Suzuki-fólksbíll í Öxna-
fer ég norður eftir bænum.“
Guðmundur sagði að hann
væri fullur tilhlökkunar til sum-
dal aðfaranótt laugardags en
farþegarnir, tvær stúlkur, sluppu
ómeiddar. Bifreiðin er talin ónýt.
Nokkuð var um að ökumenn
væru teknir fyrir of hraðan akstur
um helgina, að sögn lögreglunnar
á Akureyri. Sjö ökumenn voru tekn-
ir á yfir 100 km hraða í nágrenni
við Akureyri, en hámarkshraði á
götum þar er 70 km.
arsins. Hyggst hann helga sig
málaralistinni í þijá mánuði og
taka frí á meðan frá starfí sínu
á teiknistofunni Stíl. „Ég fékk í
fyrsta sinn starfslaun frá ríkinu
í ár. Þau ætla ég að nýta vel og
vinna eins og berserkur í sumar.
Starfíð hefur stolið öllum mínum
tíma og ég hef fundið illilega
fyrir því að vegna hlésins frá list-
inni er ég að staðna. Það er mjög
óþægileg tilhugsun. En nú rætist
úr því.“
Hann sagðist miða að því að
halda sýningu á Akureyri í haust.
Þá hefur Guðmundur ásamt
Kristni G. Jóhannssyni fest sér
sýningarsal á Kjarvalsstöðum í
október. Ætla þeir að halda þar
tvær sjálfstæðar einkasýningar á
sama tíma.
Harður árekst-
ur í gærmorgun