Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987 ÚTVARP/SJÓNVARP I garðinum Nú er sumar og stundum sól og hljóta ljósvakamiðlamir því að skrýðast sumarbúningi og hverfa við og við útí garðinn þar sem fólk bjástrar við blessuð blómin og sumir grilla í ákafa. Ari Garðar hefír reynd- ar sinnt grillinu svolítið á Stöð 2 að undanfömu og er það vel. Þá vil ég minnast ögn á aldeilis prýðilega Norskættaðan myndaflokk á ríkis- sjónvarpinu er nefnist Garðrækt. Væri óskandi að sjónvarpið fengi einkarétt á að gefa þennan þátt út á myndböndum og hér kviknar enn ein hugmynd! Samþœtting Fyrir framan mig liggur glæsilegt amerískt garðblað sem ég ætla ekki að nafngreina en ég fann það t neðstu hillunni hjá Eymundsson. Á blaðsíðu 122 er að fínna eftirfarandi auglýsingu er hljóðar svo í lauslegri þýðingu: Hvemig á að útfæra hug- myndimar. Lesendum blaðsins stendur til boða að panta nákvæmar verklýsingar smiða og arkitekta er gera yður fært að reisa þau mann- virki sem sýnd eru í blaðinu svo sem leiktæki, kofa og sólsvalir. Væri ekki upplagt að hafa svipaðan hátt á hér. Þannig gætu yfírmenn innlendrar dagskrárgerðar eða „staðgenglar" þeirra gert samning við útgáfufyrir- tæki um að gefa út nákvæmar verklýsingar unnar af smiðum, arki- tektum og garðyrkjusérfræðingum er tækju til ýmissa mannvirkja er lýst væri í garðyrkuþáttum sjón- varpsstöðvanna. Þá gæti almenning- ur reist slík mannvirki í görðum sínum eða bara útá svölum en lítill vandi er að fá hér niðursneitt efni hjá timbursölum bæjarins og nóg er af skrúfunum. Lúsarmenning Annars hef ég verið að velta fyrir mér stefnu sjónvarpsstöðvanna gagnvart hinu ytra mannvistarum- hverfí er telur náttúrulega ekki aðeins garða og gróðurbelti heldur ekki síður gang- og akbrautir. Er ekki kominn tími til að menn taki að skoða hið ytra mannvistarum- hverfí í víðara samhengi en hingað til og kemur mér þá í hug nýjasta byggingarhverfí Reykjavikur Grafar- vogurinn þar sem þriðji byggingar- áfanginn, hinir svokölluðu Hamrar, er að mínu mati hannaður með heild- arhagsmuni íbúanna í huga. Þannig eru fegurstu blettimir svo sem iisti- legar steinahæðir ósnortnar af malbiki og mannvirkjum. Ljósvaka- miðlamir mættu gjaman beina sjónum að slíkum nýmælum í hönnun mannvistarumhverfísins því þama eiga nú einu sinni kynslóðimar eftir að þreyja þorrann. En ekki virðist nóg að gert að hanna mannvistarumhverfíð listi- lega. Þannig aka menn gjaman á ofsahraða inní hinar lokuðu götur í Grafarvogi og leggja bílum þannig að bömin sjást ekki fyrr en í óefni er komið og ekki virðast mér lög- gæslumenn gera mikið af því að hægja á umferðinni í hliðargötunum þar sem smáfólkið er helst að leik. Á sínum tlma barðist Laxness gegn „lúsarmenningu" íslendinga. í dag er komið að hinum aðgangshörðu ljósvakavíkingum að beijast gegn „umferðarmenningu" íslenskra öku- þóra, en hér stæra menn sig af heimsins lægsta bamadauða á sama tíma og hvergi á byggðu bóli eru fleiri slys á bömum en á íslandi. Ég sé aðeins eitt til ráða og það er að íjölga umferðaröldunum en þá reka atvinnubflstjórar sennilega upp ramakvein. En hvort skiptir okkur meira máli að komast á sem skemmstum tíma frá A til B eða vernda börnín okkar er stökkva framundan bilunum? Þýðir yfir höfuð nokkuð að minnast á þessi mái við Ijósvakavíkingana er virðast því miður kunna orðið best við sig í biðsölum stjómarráðanna þaðan sem ekkert er að frétta. Ólafur M. Jóhannesson Ríkissjónvarpið: Nærmynd af Nikaraqva - fyrsti þáttur af þrem ■i Fyrsti þáttur af 35 þremur út ferð Guðna Braga- sonar fréttamanns til Mið-Ameríku er á dagskrá sjónvarps í kvöld. í þessum þætti verður fjallað um stríðið og stjórnmálin í Nik- aragva og aðdraganda átakana þar. Rætt er við Daniel Ortega forseta, lit- ast um á ófriðarsvæði og fólk tekið tali. Einnig er fjallað La Prensa málið og rætt við stjómarandstæð- inginn Violeta Chamorro. Fyrsti þáttur Guðna Bragasonar um Nikaragva er á dagskrá sjónvarps í kvöld. ÚTVARP © ÞRIÐJUDAGUR 26. maí 6.45 Veðurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin — Jón Baldvin Halldórsson og Jón Guðni Kristjánsson. Fréttir eru sagöar kl. 7.30 og 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Til- kynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. Guð- mundur Sæmundsson talar um daglegt mál kl. 7.20. Fréttir á ensku sagöar kl. 8.30. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. 9.05 Morgunstund barn- anna: „Ottó nashyrningur" eftir Ole Lund Kirkegárd. Valdís Óskarsdóttir lýkur lestri þýðingar sinnar. (7). 9.20 Morguntrimm. Lesið úr forystugreinum dagblaö- anna. Tónleikar. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. Her- mann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liönum árum. 11.00 Fréttir. Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. /2 12.20 Hádegisfréttir. 12.46 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn — Félags- leg þjónusta. Umsjón: Hjördis Hjartardóttir. 14.00 Miödegissagan: „Fall- andi gengi" eftir Erich Maria Remarque. Andrés Kristj- ánsson þýddi. Hjörtur Pálsson les (24). 14.30 Tónlistarmaöur vikunn- ar. Ramsey Lewis. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 16.20 Landpósturinn. Frá Vesturlandi. Umsjón. Ásþór Ragnarsson. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. 16.05 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpiö. 17.00 Fréttir. Tilkynningar. 17.05 Síödegistónleikar a. „Töfravatnið", sinfónískt Ijóð eftir Anatol Liadow. Rússneska ríkishljómsveitin leikur; Evgený Svetlanov stjórnar. b. Fiölukonsert nr. 2 I g-moll op. 63 eftir Sergej Prokofjeff. Henryk Szeryng og Sinfóníuhljómsveit Lund- úna leika; Gennady Rozh- destvensky stjórnar. 17.40 Torgiö Umsjón: Steinunn Helga Lárusdóttir. 18.00 Fréttir. Tilkynningar. 18.05 Torgiö, framhald. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni sem Guð- mundur Sæmundsson flytur. Tónleikar. 20.00 Lúðraþytur. Umsjón: Skarphéðinn H. Einarsson. 20.40 Málefni fatlaðra. Um- sjón: Einar Hjörleifsson og Inga Sigurðardóttir. (Áður útvarpaö í þáttaröðinni „I dagsins önn" daginn áður.) 21.10 Létt tónlist 21.30 Útvarpssagan: „Leikur blær að laufi" eftir Guð- mund L. Friðfinnsson. Höfundur les (3). 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir 22.20 Leiklist: „Sunnudags- barn" eftir Odd Björnsson. Leikstjóri: Jón Viðar Jóns- son. Leikendur: Róbert Arnfinnsson, Arnar Jónsson og Margrét Helga Jóhanns- dóttir. (Endurtekið frá fimmtudagskvöldi.) 23.10 íslensk tónlist a. Tilbrigði op. 7 um frumsamiö rímnalag eftir Árna Björnsson. Sinfóníu- hljómsveit íslands leikur; Páll P. Pálsson stjórnar. SJÓNVARP ÞRIÐJUDAGUR 26. maí 17.06 Steinaldarmennirnir 30. þáttur. Bandarísk teikni- mynd. Þýðandi Ólafur B. Guönason. 17.30 Villi spæta og vinir hans. Átjándi þáttur. Bandariskur teiknimyndaflokkur. Þýð- andi Ragnar Ólafsson. 17.55 l’sland - Holland Bein útsending frá knatt- spyrnuleik þjóðanna í undankeppni Ólympíuleik- anna 1988. 19.60 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veöur 20.35 Auglýsingarogdagskrá 20.40 Moröstundin (Time for Murder). Fjórði þáttur. Breskt saka- málaleikrit. Þýðandi Jó- hanna Þráinsdóttir. 21.35 Nærmynd af Nikaragva Fyrsti þáttur af þremur úr ferð Guðna Bragasonar fréttamanns til Mið- Ameríku. í þessum þætti veröur fjallaö um stríðið og stjórnmálin i Nikaragúa og aödraganda átakanna þar. Rætt er við Daniel Ortega forseta, litast um á ófriöar- svæöi og fólk tekiö tali. La Prensa-málið kemur einnig við sögu og rætt er við stjórnarandstæöinginn Vio- leta Chamorro. 22.10 Vestræn veröld (Triumph of the West). 11. Austriö er rautt. Heim- ildamyndaflokkur í þrettán þáttum frá breska sjónvarp- inu (BBC). Umsjónarmaður John Roberts sagnfræðing- ur. Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson. 23.00 Fréttir í dagskrárlok. ÞRIÐJUDAGUR 26. maí § 17.00 Stjörnuvíg III (Star Trek III). Bandarísk kvik- mynd meö William Shatner og Deforest Kelley í aðal- hlutverkum. Myndin gerist á 23. öldinni. Kapteinn Spock lét lífið er plánetan Genesis varð til. Saavik liðsforingi og Davis læknir fara í rann- sóknarleiðangur og komast að þvi að plánetan hefur þróast á ófyrirsjáanlegan hátt. Leikstjóri er Leonard Nimoy. § 18.50 Myndrokk 19.05 Hetjur himingeims- ins. Teiknimynd. Fréttlr 20.00 Návígi. Yfirheyrslu- og umræöuþáttur í umsjón fréttamanna Stöðvar 2. 20.40 Húsið okkar (Our House). Bandarískur myndaflokkur með Wilford Brimley í aðalhlutverki. § 21.30 Brottvikningin (Dis- missal). Nýr ástralskur þáttur í sex hlutum. Annar þáttur. Árið 1975 var for- sætisráöherra Ástralíu vikið frá störfum. Brottrekstur hans var upphaf mikilla umbrota (áströlskum stjórn- málum. Aðalhlutverk: Max Phipps, John Stanton og John Meillon. Leikstjórn: George Miller o.fl. § 22.30 Skotmarkið (The Hit). Bresk kvikmynd frá 1984 með John Hurt, Terence Stamp, Tim Roth, Laura Del Sol o.fl. i aðalhlutverkum. Fyrrum uppljóstrari glæpa- máls hefur verið í felum í 10 ár. Tveir náungar komast á snoðir um hvar hann held- ur sig og hyggja á hefndir. 00.40 Dagskrárlok. c. „Hrif", ballettsvíta nr. 4 eftir Skúla Halldórsson. Is- lenska hljómsveitin leikur; Guðmundur Emilsson stjórnar. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp á samtengd- um rásum til morguns. ÞRIÐJUDAGUR 26. maí 00.05 Næturútvarp. Gunnar Svanbergsson stendur vakt- ina. 6.00 I bítið. Rósa Guðný Þórsdóttir léttir mönnum morgunverkin, segir m.a. frá veðri, færð og samgöngum og kynnir notalega tónlist í morgunsárið. 9.05 Morgunþáttur i umsjá Kolbrúnar Halldórsdóttur og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Meðal efnis: Tónlistarget- raun, óskalög yngstu hlust- endanna og fjallað um breiðskífu vikunnar. 12.20 Hádegisfréttir 12.46 Á milli mála. Leifur Hauksson kynnir létt lög við vinnuna og spjallar við hlustendur. 16.06 Hringiðan. Umsjón: Broddi Broddason og Margrét Blöndal. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Nú er lag. Gunnar Sal- varsson kynnir gömul og ný úrvalslög. (Þátturinn verður endurtekinn aðfaranótt fimmtudags kl. 02.00.) 21.00 Poppgátan. Gunnlaug- ur Sigfússon og Jónatan Garðarsson stýra spurn- ingaþætti um dægurtónlist. (Endurtekinn þáttur frá laug- ardegi.) 22.05 Steingerður. Þáttur um Ijóðræna tónlist í umsjá Herdísar Hallvarðsdóttur. 23.00 Við rúmstokkinn. Guö- rún Gunnarsdóttir býr fólk undir svefninn með tali og tónum. 00.10 Næturútvarp. Hjörtur Svavarsson stendur vaktina til morguns. 02.00 Tilbrigði. Þáttur i umsjá Hönnu G. Siguröardóttur. (Endurtekinn frá laugar- degi.) Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00, 16.00, 17.00, 18.00,19.00, 22.00 og 24.00. SVÆÐISÚTVARP AKUREYRI 18.03-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 Fjallaö um menningarlíf og mannlíf almennt á Akureyri og í nærsveitum. Umsjón: Arnar Björnsson. ÞRIÐJUDAGUR 26. maí 7.00— 9.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Siguröur lítur yfir blööin og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00. 9.00—12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Palli leikur uppáhaldslögin ykkar. Afmæliskveðjur, opin lína og spjall til hádegis. Síminn' er 611111. Fréttir kl. 10.00 og 11.00 12.00—12.10 Fréttir. 12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil- hjálmsson á hádegi. Frétta- pakkinn, Þorsteinn og fréttamenn Bylgjunnar fylgj- ast með þvi sem helst er i fréttum, spjalla við fólk og segja frá í bland við létta tónlist. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00—17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. Péturspil- ar síödegispoppiö og spjall- ar við hlustendur og tónlistarmenn. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00—19.00 Ásta R. Jóhann- esdóttir í Reykjavík síðdeg- is. Ásta leikur tónlist, litur yfir fréttirnar og spjallar við fólk sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00. 19.00—20.00 Anna Björk Birgisdóttir á Flóamarkaöi Bylgjunnar. Flóamarkaður og tónlist. Fréttir kl. 19.00. 20.00—21.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Jón Gústafsson kynnir 10 vinsælustu lögin. 21.00—23.00 Ásgeir Tómas- son á þriöjudagskvöldi. Ásgeir leikur rokktónlist úr ýmsum áttum. 23.00—24.00 Vökulok. Þægileg tónlist og frótta- tengt efni ( umsjá frótta- manna Bylgjunnar. Fróttir kl. 23.00. 24.00—07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar — Bjarni Ólafur Guðmundsson. Tónlist og upplýsingar um veður og flugsamgöngur. Fréttir kl. 3.00. ALFA IrUtlUf tmnMlll. FM 102,9 ÞRIÐJUDAGUR 26. maí 8.00 Morgunstund: Guðs orð og bæn. 8.16 Tónlist. 12.00 Hlé. 13.00 Tónlistarþáttur mei lestri úr Ritningunni. 16.00 Dagskrárlok.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.