Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 15
vuot Um ao qiminrjiaTUrf nifTí. i'Ti/ftinQOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1987
15
Ágústa Loftsdóttir, starfsmaður á Sámsstöðum, með lúpínuplöntu
sem sáð var
Lúpínu sáð
í 25 hektara
fræreiti
Selfossi.
Á ÞESSU vori verður lúpínufræi
sáð í fræreiti i Gunnarsholti og á
Skógasandi i samtals 25 hektara.
Gert er ráð fyrir að safna fræi
af þessum ökrum eftir þrjú ár.
Unnið er að þvi að kynbæta lúpin-
una og ná fram eiturlausu af-
brigði sem hægt verður að nýta
til fóðurs.
Lúpínan dafnar mjög vel þar sem
skilyrði fyrir hana eru góð og hún
er ennfremur kjörin til að græða upp
örfoka land. Takist að ná fram eitur-
lausu afbrigði lúpínunnar mun fást
mjög ódýrt fóður því lúpínan hefur
mikið næringargildi og hún meltist
vel.
Jón Guðmundsson, sérfræðingur
Rannsóknarstofnunar landbúnaðar-
ins í frærækt og illgresiseyðingu og
starfsmaður á tilraunastöðinni á
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Jón Guðmundsson með tilbúið
lúpínufræ.
Sámsstöðum, hefur umsjón með
fræsáningunni. Hann sagði að lúpín-
an gæti gefið mikla uppskeru eftir
fáein ár. Það væri mikill kostur við
lúpínuna að eini tilkostnaðurinn við
hana væri sáningin.
— Sig. Jóns.
mcð
farfugtunum
koma
fcrðamermirnir
og því viljum við minna viðkomandi
verslunar- og innkaupastjóra á, að
nú er rétti tíminn til að panta prent-
minjagripina. Aldrei meira úrval:
★ Yfir 300 tegundir af póstkortum hvaðanæfa af land-
inu - margar nýjar gerðir - falleg hönnun.
★ 3 gerðir af diskamottum með litljósmyndum: lceland
- Reykjavík - Mývatn.
★ Glasamottur (coasters) 6 mismunandi í pakka.
★ Áprentuð glös í gjafaöskjum.
★ 3 ný veggspjöld (61 x86 sm) í glærum plasthólk: lce-
land, 26 litmyndir - Mývatn, 12 litmyndir og „The
Golden Circle," 11 litmyndir.
★ 2 tegundir af litmyndabæklingum væntanlegir í júní.
★ Vinsamlega gerið pantanir tímanlega.
□ LITBRA hf.
Símar 22930 og 22865
Höfðatúni 12 - 105 Reykjavík
Þorvaldur Garðarsson
„ ... við íslendingar
eigum marga frábæra
sérfræðinga á sviði
fiskeldis sem hafa unn-
ið frábært starf bæði
að aðlögun f iskeldis að
íslenskum aðstæðum og
á sviði fisksjúkdóma.“
ast á við verkefnin byggjum við
íslendingar enn í moldarkofum undir
erlendum yfirráðum.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra, hefur stutt framgang
fiskeldis dyggilega á undanfömum
árum, enda fer þar maður sem skynj-
ar hjartslátt þjóðfélagsins, skynjar
að hlutimir byggjast á að sækja sjó-
inn og framleiða iðnaðarvömr,
eldisfisk og hvaðeina sem gefur þjóð-
inni gjaldeyristekjur og sér fólki fyrir
atvinnu.
Varðandi framtíð fiskeldis _á ís-
landi tel ég að hún sé björt. Ég sé
fyrir mér stórfellda framleiðslu
gönguseiða, ýmist til útflutnings,
hafbeitar eða framhaldseldis í
íslenskum strandeldis- og kvíaeldis-
stöðvum. Ég sé fyrir mér lækkandi
verð á gönguseiðum þar til það er
nægilega lágt til að hafbeit geti orð-
ið verulega arðbær en ég tel jafn-
framt að það verði nægilega hátt
verð til þess að seiðaeldisstöðvar
verði reknar með góðri afkomu.
Ég sé fyrir mér stórhækkandi verð
á eldislaxi á næstu tveimur ámm sem
gefi strandeldisstöðvum sem nú em
í uppbyggingu svigrúm til að ná nið-
ur fjármagnskostnaði og fóta sig í
samkeppninni.
Ég tel að Norðmenn og fleiri þjóð-
ir eigi eftir að flytja stóran hluta af
sínu eldi upp á land vegna vaxandi
tíðni sjúkdóma í kvíaeldi í Noregi og
þar með muni þeir keppa við okkur
með svipuð framleiðsluskilyrði.
Þama eigum við að nýta enn eina
sérstöðu íslands með því að láta
íslenskum eldisstöðvum í té raforku
á svipuðum lgömm og stóriðja fær
hana, enda er sú orka fólgin í fall-
vötnum landsins sem er óþijótandi
auðlind og strandeldisstöðvar afar
stórir raforkukaupendur.
Höfundur er framkvæmdastjóri
fiskeldisstöðvará Suðurlandi.
GAGGENAU heimilistæki
TILBOÐ 15%afsláttur |_
20% á CK-064-104
útborgun Coramic helluborði.
Það hefur alltaf borgað sig að versla í Vörumarkaðinum.
©
Vörumarkaðurinn lil
J Nýjabæ-Eidistorgi Simi 622-200