Morgunblaðið - 26.05.1987, Blaðsíða 84
STERKT KORT
ÞRIÐJUDAGUR 26. MAI 1987
VERÐ I LAUSASOLU 50 KR.
Niðaþoka í Ólafsvík:
Trillurnar
fundu ekki
Jjöfnina
ÓlaíhVÍk ^ -
NIÐAÞOKA var hér allan daginn
í gær og fram á nótt og stafa-
logn. Trillur voru fjölmargar á
sjó og komu þær fyrstu að landi
um kvöldmatarleytið. Margar
trillur áttu í erfiðleikum með að
finna hafnarmynnið, því ekki
sást nema rétt út fyrir borð-
stokkinn. Þeir sem ekki hafa
lóran reyndu að þreifa sig áfram
eftir dýpi en gekk misjafnlega
og biðu sumir ráðvilltir eftir að
þokunni létti.
Afli þeirra sem komnir voru að
í gærkvöldi var hjá flestum
—700 kg. En Kristján Bjama-
son á Glað, renndi að bryggju með
2,5 tonn af slægðum stórfíski, sem
hann hefir einsamall eftir daginn.
Hann hefur því fundið það sem
finna þurfti, fiskinn og síðan land,
þrátt fyrir þokuna.
Helgi
Heimsmeist-
ari tekur við
^sigurlaunum
HANNES Hlífar Stefánsson,
nýbakaður heimsmeistari
sveina í skák, tók við sigur-
launum sínum úr hendi
forseta Alþjóðaskáksam-
bandsins við hátíðlega athöfn
í Innsbruck í Austurríki á
iaugardag.
Sjá frásögn, myndir og
skákþátt á blaðsíðum
Morgunblaðið/Bjöm Rúríksson
Upptök jarðskjálftans voru á þessu svæði. Á myndinni, sem tekin er í suðurátt úr flugvél í um 20 þúsund feta hæð, sjást fjallgarðamir fjórir
sem liggja eftir eystra gosbeltinu á Suðurlandi. Næst fyrir miðri mynd er Hekla og utan í henni er Litla-Hekla. Næsti fjallaklasi sunnan við
Hekluhraun eru Vatnafjöll, þar sem talið er að upptök stóra skjálftans hafi verið. Þar fyrir sunnan eru Tindafjöll og Tindafjallajökull og fjærst
er Eyjafjailajökull. Raninn austur úr Eyjafjallajökli, efst til hægri, er Fimmvörðuháls sem tengir Eyjafjallajökul við Mýrdalsjökul. Dökka f væðið
á milli Tindafjalla og Eyjafjallajökuls er Fljótshlíð og er Þórsmörk þar innst. Á dökka svæðinu til hægri á myndinni sést niður á Suðurland-
sundirlendið, m.a. Rangárvelli og Landeyjar.
STERKASTISKJÁTFTI í 75 ÁR
STERKASTI jarðslg'álfti sem komið hefur á Suðurlandi frá því
árið 1912, eða í 75 ár, varð rétt fyrir hádegið í gær. Mældist hann
5,8 stig á Ricter. Upptök hans voru skammt frá Hekiu.
Jarðskjálftinn fannst greinilega um Suðurland, á höfuðborgarsvæðinu
og víðar. Hús í Rangárvallasýslu léku á reiðiskjálfi og lauslegir munir
féllu úr hillum. Ekki er vitað til þess að tjón hafi orði á húsum. Húsdýr
urðu óttaslegin, ekki síður en mannfólkið, hestar tóku á rás, kýr bauluðu
í fjósum og styggð kom að fé.
Titringur var á skálftamælum fram eftir kvöldi í gær. Jarðvísinda-
menn vilja ekkert fullyrða um eftirleik þessa stóra jarðskjálfta en hafa
talið rétt að vera við öllu búnir.
Sjá einnig fréttir af jarðskjálftunum á blaðsíðum 2 og 46.
Kvennalisti með kröfur í
vamar- og stóríðjmnálimi
Segjast þó setja kröfuna um hækkun lágmarkslauna á oddinn
SVO virðist sem hægar muni
ganga í stjórnarmyndunarvið-
ræðum en búist hafði verið við
eftir að fulltrúar Kvennalista
kynntu kröfur sína í utanríkis-,
varnar- og stóriðjumálum á Iaug-
ardag. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins sögðust konurn-
ar andvígar hvers konar fram-
kvæmdum á vegum varnarliðsins
og jafnframt sögðust þær vera
andvígar öllum frekari samning-
um um stóriðju hér á landi, þar
með talið byggingu kísilmálm-
verksmiðju við Reyðarfjörð og
stækkun álversins í Straumsvík.
Viðræðum fulltrúa Sjálfstæðis-
flokks, Alþýðuflokks og Kvenna-
lista var haldið áfram í gær og var
rætt almennt um efnahagsmálin. í
dag kl. 13.30 verður viðræðunum
haldið áfram, en beðið er gagna og
útreikninga frá Þjóðhagsstofnun,
Hagstofu, fjármálaráðuneyti og
Barnaverndarráð íslands gerir athugasemdir:
Brunavarnir eru í ólestri í
fjölda sumarbúða barna
Aðeins ein umsókn af um 20 hefur verið afgreidd
a!F UM 20 umsóknum, sem borist
hafa Barnaverndarráði íslands,
um leyfi til reksturs sumardval-
arheimilis eða sumarbúða fyrir
börn, hefur aðeins ein verið af-
greidd. Ástæðan er sú, að sögn
Guðjóns Bjarnasonar fram-
kvæmdastjóra Barnaverndar-
j^ðs, að úrbóta er víða þörf og
brunavarnir í miklum ólestri. Því
má búast við að einhveijir staðir
fái ekki leyfi í sumar. Barna-
verndarráð mun ekki mæla með
að leyf i verði veitt til þeirra staða
sem vitað er að ekki uppfylla
skilyrði, að sögn Guðjóns.
„Það kom okkur geysilega á
óvart hvað eldvörnum er víða ábóta-
vant,“ sagði Guðjón. Hann sagði
að við eftirgrennslan hefði komið í
ljós að á mörgum þessara staða
væri ástandið þannig að þar ættu
alls ekki að dveljast böm og vott-
orð, gefín út af barnaverndarnefnd-
um, læknum og slökkviliðsstjórum,
væru í sumum tilfellum afar vill-
andi. Slökkviliðsstjóri, sem vottaði
að brunavarnir væru í góðu ástandi,
hefði ekki komið á staðinn og hús-
næði sem reka ætti starfsemina í
væri óbyggt, þrátt fyrir að vottorð
gæfu annað til kynna. Þá leiki grun-
ur á að ákveðnir staðir hyggist reka
sumarbúðir án tilskilinna leyfa.
Bmnamálastofnun ríkisins hefur
hafið úttekt á ástandi sumardvalar-
heimila og sumarbúða. Sum þeirra
eru heimavistarskólar á veturna.
Sjá nánar í frétt á bls. 36.
Seðlabanka, sem ekki er búist við
að liggi fyrir fyrr en á morgun.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins kynntu fulltrúar Kvenna-
lista mun harðari afstöðu í
utanríkis-, varnar- og stóriðjumál-
um á fundinum á laugardag en þær
höfðu gert í fyrstu könnunarviðræð-
unum. Munu þær hafa lýst sig
andvígar því að hvers konar fram-
kvæmdum á vegum varnarliðsins
yrði haldið áfram ef þær ættu aðild
að ríkisstjórn og áttu þær þá m.a.
við framkvæmdir í Helguvík og við
radarstöðvar. Þá mun hafa komið
fram hjá þeim að þótt samningar
tækjust á milli samninganefndar
um stóriðju og erlendra aðila um
byggingu kísilmálmverksmiðju við
Reyðarfjörð eða stækkun álversins
í Straumsvík legðust þær gegn
slíkum framkvæmdum.
Kristín Einarsdóttir þingmaður
Kvennalista sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að þessar kröf-
ur væru alls ekki forgangskröfur
Kvennalistans, heldur væri krafan
um tryggingu á verulegri hækkun
lágmarkslauna algjör forgangs-
krafa í þeirra hópi. Hún sagði
umræður um önnur atriði vera mjög
skammt á veg komnar og útilokað
að taka nokkra endanlega afstöðu
í þeim málum fyrr en ljóst lægi
fyrir hvort gengið yrði að kröfunni
um tryggingu á hækkun lágmarks-
launa.